Ţorgeirsboli fyrir stórtíđindum!

Rumskađi millum draumfara og hlandsprengs rétt ađ ganga fjögur í nótt. Ţađ sem samt ruskađi mér úr draumalandinu var forvitnin ţví úti fyrir í vetrarnóttinni heyrđi ég langdregiđ baul. Eilítiđ dimmraddađ en ađallega ógnarlega langt og kveđandinn svolítiđ rámur eins og af elli. Vinalegur en samt uggandi tónn.

Ég reif mig ţví úr mókinu og hausinn af koddanum en heyrđi ţá ekkert nema bílhljóđ af Austurveginum inn um opinn svefnherbergisgluggann.

Baul sem ţessi hafa nokkrum sinnum heyrst á seinni öldum eđa allt frá ţví fyrst spurđist til hins mikla Ţorgeirsbola. Baul hans ţykja bođa stórtíđindi. Ţegar hann baular illskulega getur ţađ veriđ fyrir hafís, mannfelli eđa rosa. En vinalegt baul eins og ţetta hefur miklu heldur veriđ fyrir hvalreka, góđu strandi eđa gestakomum.

Engum sögum fer af ţví í fornum skrćđum ađ boli ţessi hafi baulađ fyrir sigri í prófkjörsbaráttu en einhverntíma er allt fyrst...


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guđmundur Jónas Kristjánsson

Bara til hamingju  Bjarni Harđarsson. Og líka ţú Guđni Ágústsson.
Kannski verđur ţetta til ţess, ađ viđ nútímanlegar ţjóđlegar íhaldssálir (fyrrverandi framsóknarmenn) göngum aftur í okkar góđu  Framsókn  og sigrum međ ykkur í vor:)

Guđmundur Jónas Kristjánsson, 22.1.2007 kl. 00:24

2 identicon

Til hamingju Bjarni en svoa til ađ vera ekki vćminn ţá lćt ég ţessa fljóta:

Baulandi blóđi stokkiđ,
blíđlegt ţó tautiđ,
gengiđ í framsóknarflokkinn
er frćgasta nautiđ.

Bestu kveđjur
http://blog.central.is/kriseir

Kristján Eiríksson (IP-tala skráđ) 23.1.2007 kl. 11:48

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband