Evran hentar ekki í jaðri Evrópu

Yfirlýsing þýska innanríkisráðherrans um að Grikkir hafi meiri möguleika til endurreisnar utan evrusvæðisins en innan þess, markar mikil tímamót. Með henni viðurkennir ráðherrann að evran henti ekki jaðarríkjum sambandsins. Sama röksemd verður innan skamms yfirfærð á Portúgal, Ítalíu og jafnvel Spán.

Hvernig væri að íslenskir ESB sinnar tækju orð þýska ráðherrans til íhugunar. Hagsveifla Íslands er enn fjær Þýskalandi heldur en Grikklandssveiflan. Það er löngu augljóst að mynt þarf að taka mið af hagkerfinu og allt annað er stórhættulegt fyrir efnahag ríkja.


mbl.is Möguleikar Grikkja meiri utan evrusvæðisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held nú ekki að hann eigi við geografískt jaðarríki, heldur ríki á menningarlegum og efnhagslegum jaðri vestur Evrópu. Ef þú skilgreinir Ísland menningarlega og efnhagslega á þessum jaðri, þá hefur þú sjálfsagt eitthvað til þín máls.

Thor Svensson (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 13:18

2 identicon

Bjarni varaðu þig, heldur þú að Össur viti allt þetta ekki miklur betur en þýski innanríkis ráðherran? Væri ekki betra að hvetja Össur til að fara og koma vitinu fyrir þann þýska? 

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 13:21

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Blinda íslenskra ráðamanna er algjör í þessum máli sem og flestum öðrum. Ætli þetta verði ekki nefnd Klúðursstjórnin?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2012 kl. 13:32

4 identicon

Sæll Bjarni; sem og aðrir gestir, þínir !

Bjarni síðuhafi og Thor Svensson !

Eitthvað mikið; er landafræðiþekkingu ykkar - sem og jarðfræðilegrar; verulega ábótavant, sé mið tekið, af ykkar skrifum.

Ísland er; og hefir verið, óaðskiljanlegur hluti Norður- Ameríku, svo ykkar tæpa minni, sé upp rifjað, að nokkru.

Með beztu kveðjum; öngvu, að síður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 14:23

5 identicon

Óskar Helgi. Þetta er hárrétt hjá þér. Finnst þú ættir að senda bréf til Bandaríkja Norður Ameríku og benda þeim á þau mistök að það vant eina stjörnu í fána þeirra! ;o)

En að öllu gamni slepptu, þá held ég nú ekki að þýski innanríkisráðherrann hafi verið með jarðfræðina í huga í ummælum sínum. Ég leyfði mér svo að í fyrra kommenti mínu að efast um hann hefði verið að meina jaðarríki í landfræðilegri merkingu heldur í menningarlegu og efnahagslegu tilliti. Spurning hvort Ísland sé jaðarríki í þeirri merkingu.

Thor Svensson (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 14:52

6 identicon

Komið þið sæl; að nýju !

Thor Svensson !

Skenz þitt; sem yfirborðs kerskni, tjóar lítt, þegar um einfaldar staðreyndir er að ræða, ágæti drengur.

Teljast kannski; Mexíkó - Kanada - Grænland og Alaska (Alaska; forn hluti Rússneska Keisaradæmisins, allt; til 1867), ekki til Norður- Ameríku, líkt og Bandaríkin, Thor ?

Eða; ertu að reyna, að drepa umræðunni á dreif, að óþörfu, nokkuð sérstaklega ?

Með; hinum sömu kveðjum - samt, sem áður / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 15:02

7 identicon

Óskar Helgi. Bjarni skrifar um orð þýska innanríkisráðherrann um Evru og jaðarríki Evrópu sambandsins. Ég bendi á að það sé líklegra að hann sé að tala um ríki sem liggja á mörkum fyrsta og annars heims en hann hafi verið með Ísland í huga. Að blanda jarðfræði og rússneska keisaradæminu m.ö inn í þetta er að drepa umræðunni á dreif. Svo ég láni þín orð.

En ef þú ert slakur í landafræði, það get ég bent þér á ágætis efni á Wikipedia: http://is.wikipedia.org/wiki/Evrópa ;o)

Thor Svensson (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 15:19

8 identicon

Sæl; enn sem fyrr !

Thor Svensson !

Þakka þér fyrir; ágætar ábendingar, svo sem.

En; ég mun sitja við minn keip, að öðru jöfnu, ágæti drengur.

Ég tel mig ekkert; slakari í landafræðinni, en gengur og gerist - alla vega, var hún mér þjálli á námsárunum, en stærðfræðin, til dæmis, eða svo sögðu mínir uppfræðarar (kennarar), jafnan.

Skírskotunin; til Rússneska Keisaradæmisins, var nú af sögulegum toga, svo fram komi, einnig - en; ábending þörf, öngvu að síður, hvað svo sem þér kunni, um að finnast, þar um, Thor.

Sízt lakari kveðjur; hinum fyrri / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 15:47

9 identicon

Óskar Helgi. ég hefði örugglega gaman af að spjalla við þig um landafræði, sögu og jafnvel jarðfræði. En það má vera á öðrum vettvangi. Kemur þessu máli ekki mikið við.

Mér finnst hinsvegar slæmt að bæði svokallaðir Evrópusinnar og Evrópuandstæðingar grípi hvert hálmstráið til að styðja sitt mál. Og er þá gæði meðala ýtt til hliðar. Svo finnst mér vera í þessu tilfelli, þar sem ekki er verið að ræða um Ísland sem jaðarþjóð að mínu áliti.

Afhverju er það slæmt. Jú, því þetta mál fer að líkjast meira og meira afkáralegum skotgrafahernaði þar sem málsaðilar verða ótrúverðari með hverri athugasemd, svo venjulegt efasemdarfólk veit ekki í hvorn fótinn á að stíga.

Möguleg Evrópusambandsaðild á eftir mínu áliti að fjalla um.

1. Viljum við vera hluti af Evrópu og á sama báti og þjóðir þær sem það samband fylla eða viljum við standa utanvið og vera í takmörkuðu samstarfi (frjáls og óháð verðum við aldrei að fullu) ?

2. Er það fyrir Ísland efnahagslega óhagstætt, hagstætt, eða yrði lítil breyting þar á?

Svarið við 1) verður hver að finna hjá sjálfum sér. Það hjálpar ekkert að þrasa um það. Punktur 2) er mikilvægast að fá sem besta vitneskju um frá fróðum mönnum.

Svo kemur spurningin um Evru sem gjalmiðil. Hér sýnist sitt hverjum. En hér held ég að menn ættu að slappa svolítið af. Það er ekki í valdi Íslands að ákveða hvort við fáum Evru eða ekki. Við getum sótt um það, en við uppfyllum einfaldlega ekki skilyrðin. Munum ekki gera um langa hríð og höfum reyndar aldrei gert. Svo það er tilgangslítið að karpa um þetta.

Thor Svensson (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 16:52

10 identicon

Átti að sjálfsögðu að vera "Viljum við vera hluti af Evrópusambandinu".

Thor Svensson (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 16:59

11 identicon

Jarðfræðilega er Ísland að hálfu innan ameríku og að hálfu innan evrópu. Vesturhlutinn, vestan flekaskilanna er amerískkur en austurhlutinn evrópskur, svo ég rugli nú enn frekar með landafræðina.

Jon E (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 17:15

12 identicon

Komið þið sæl; enn !

Thor Svensson !

Ég hygg; að þú ætlir þér ekki, að vera með einhverjar hártoganir, en mér sýnist, sem þú mættir alveg lesa mína síðu, þér til glöggvunar, minna viðhorfa, í ríkum mæli.

I. Evrópa (utan Rússlands - Sviss,og nokkurra annarra ríkja) er ; á fallanda fæti - fyrir sinn eigin tilverknað, ágæti drengur. Asía mun; í ríkara mæli, taka yfir skagann (Evrópu); Hernaðarlega- sem og efnahagslega, enda er sú álfa, ásamt Ameríkunum þrem - Afríku og Eyjaálfu, á hægri - en öruggri uppleið, svo sem.

II.

Gjaldmiðill; hvers lands - einn og sér, ber ekki ábyrgð, á velferð notenda sinna, til góðs eða ills, miklu fremur, handónýt stjórnmála gerpi, eins og sannast hérlendis, á meðferð þeirra á Krónunni, gegnum tíðina, ágæti drengur.

III.

Vitaskuld; vilja ekki þroskaðir og upplýstir Íslendingar (þó; fækkandi fari), verða innlyksa í Fjórða ríki Þýzk - Frönsku böðlanna (ESB), og gamal gróinna nýlenduvelda annarra, suður í Evrópu, Thor minn.

IIII.

Reyndu svo, að fara að koma niður á Jörðina, í þínum umþenkingum, ágæti drengur.

V.

Jú; jú, ánægjulegt þætti mér, Falangistanum (liðsmanni Francós heitins á Spáni - og þeirra Gemayel feðga, austur í Líbanon), að hitta þig við góða hentugleika, Bókakaffi Bjarna sjálfs, þess ágæta Byskupstungna þvergirðings, gæti þar komið til álita, sem spjall grundvöllur okkar, Thor minn, ekki síður, en aðrir staðir, svo sem.

Sömu kveðjur; nákvæmlega - sem seinustu /          

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 17:22

13 identicon

Jon E !

Huglægt; sem hlutlægt, munum við fylgja öðrum Ameríkönum, góðum grönnum í vestri og suðri, fremur en austan hafs kraðakinu, ágæti drengur; hér eftir, sem hingað til.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 17:25

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hefi ekki fyrirsögnin átt að vera "Evran hentar ekki á jaðar Evrópu en krónarn hentar hvergi"?

Síðan ágætt að Bjarni átti sig á að við erum ekki að hugsa til endurreisnar heldur þess að fá loksins stöðugleika í gengi gjaldmiðils okkar þannig að hér sé hægt að gera raunhæfar áætlanir varðandi rekstur heimilis. Að maður þuri ekki að leggjast í að spá fyrir um gengi næstu 40 ára og verðbólgu heldur geti treyst því að það sé innan einhverra vikmarka. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.2.2012 kl. 17:35

15 identicon

Sæl; enn á ný !

Magnús Helgi !

Til þess; að hér megi hefja endurreisn, þurfa landsmenn, að losa sig við glæpaklíkur 4ra flokka - flokka andstyrma, sem ekki þarf að nefna á nafn sem slíka, svo rækilega, þekkjum við þá.

ÞAð eru; cirka 7000 afætur / stjórnmála - embættismanna og Þjóðkirkju kerfanna, sem við þurfum að dæma til varanlegrar útlegðar, af landinu, svo fram komi.

Og; dómstóllinn skyldi vera : Alþýðudómstóll götunnar, gott fólk !

Með; fjarri því síðri kveðjum - en þeim seinustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 17:42

16 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

það er nú eitthvað óljóst hvað sagði og í hvaða tilefni.

Hann er frá Bavaríu.

Sennilega er þetta eitthvað lókal dæmi til heimabrúks. Svona álíka og allt sem sem Vigdís Hauksdóttir segir hérna uppi verður að túlka i samhengi við það að hún er úr Hraungerðishreppi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.2.2012 kl. 18:13

17 identicon

Komið þið sæl - enn; og aftur !

Ómar Bjarki !

Ég frábið mér; að samþykkja = merki þitt, milli hinna ágætu nágranna minna, í austri, þeirra Hraungerðinga, og Vigdísar Hauksdóttur, þó svo hún sé, úr þeirri sveit sprottin, vitaskuld.

Reyndar; hugði ég Vigdísi Hauksdóttur meiri mannkosta konu, en hún hefir algjörlega brugðist þar, mínum vonum - sem margra annarra, með undirlægjuhætti sínum, við þau Sigmund Davíð Gunnlausson, og þar með óþverra hirð Halldórs Ásgrímssonar, sem dylst í skjóli, þeirra Sigmund ar, eins og á daginn er komið, sannarlega.

Þér að segja; Ómar Bjarki, eiga Hraungerðingar sinn hlut, í víðkunnri uppfinningasemi Flóamanna allra (að meðtöldum : Sandvíkingum - Villingaholtshrepps - og Gaulverjum), svo fram komi, á mörgum sviðum tækni framfara margra, um aldanna skeið.

Þar með; getur þú alveg, sparað þér köpuryrðin, í garð einnar nágranna sveitar minnar, ágæti Asutfirzki drengur.

Sömu kveðjur - sem seinustu, að sjálfsögðu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 18:28

18 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Róa sig. þetta var nú bara spaug. Kanna viðbrögðin.

Reyndar er eg með þó kenningu að það sé meiri þjóðrembingur í ofannefndum sveitum en víða annarsstaðar á landinu. Og jafnvel í Ánessýslu heilt yfir.

Afhverju þetta er skal eg eigi fullyrða um en er helst á að þetta stafi einfaldlega af einangrun.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.2.2012 kl. 18:37

19 identicon

Friedrich minntist aldrei á jaðarríki. Ég get allavega ekki fundið það hjá spiegel eða öðrum fjölmiðlum í Þýskalandi á netinu.

Hér er grein í Spiegel:

http://www.spiegel.de/politik/deutschland/0,1518,817567,00.html

En hvað með það, það finnst held ég öllum nóg komið.

Stefán (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 19:25

20 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Ómar Bjarki !

Ég tel; að fremur megi saka Flóamenn - sem Árnesinga almennt, um ALLT ANNAÐ, en þjóðrembing, í þeim skilningi, sem við leggjum, í það hugtak.

Ætla ekkert; að geta mér til, um aðra landshluta, þar sem saka mætti fólk, um þá hyggju, sem að kvæði sérstaklega,  Austfirðingur knái.

Sjálfur; hefi ég kastað á glæ, þeirri þjóðernishyggju, sem í mér bjó framanaf, og hefi tekið upp Alþóða tengsla áhugann, miklu fremur, seinni misserin.

Mér sýnist; sem eitthvað verulega þurfi stórt til, að Íslendingar kæmu á legg þjóðernishreyfingu, sem undir nafni gæti staðið, Ómar Bjarki.

Jú; jú, annarrs, er ég alveg salla rólegur; þér, að segja.

Með; sömu kveðjum - sem seinustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 20:23

21 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Óskar, þetta með ,,Alþjóða tengsla áhugann" og þá býst eg við að þú meinr að Ísland eigi bara semja sitt á hvað við Japan, Kína, Rússland, Indland og veit ekki hvað og hvað - að þetta er ap mínu mati og samkv. minni teoríu, hluti af þjórembingnum sem eg minnist á.

þetta er algjört ofmat á Íslandi og vanskilningur eða vanþekking á hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Haldandi það að 300 þúsund hræður einhversstaðar útí ballarhafi geti platað bara milljóna og milljarða ríki sitt á hvað maður. Og þó íslendingar gætu það vegna genatísks yfirburðar - þá væri það eigi hægt vegna fámennis! það væru þá bara allar þessar 300 þúsund hræður í þessari samningagerð og plati! Sér hver maður að það gengi ekkert upp.

þannig að þessi hugmynd er alveg fráleit og óraunsæ svo af ber og er aðeins ein afleiða þjóðrembings.

Og nnfremur - já, einmitt, íslendingar eru svo miklir snillar í alþjóðasamskiptum! Rosalegir snillingar. Raunveruleiki: þeir hafa enga reynslu eða vit á slíku. Frá lýðveldisstofnun hefur BNA séð um þetta fyrir þá og danir þar áður. Íslendingar sem þóttust vera að starfa erlendis á vegum ríkis hafa sennilega mestanpart verið alltaf hálffullir og vitlausir og ekkert vitað í sinn haus. Bandaríkin hafa sennilega bara séð um þetta. Séð um helstu skildur Íslands á alþjóðavettvangi. Síðan kemur tlsvert högg þegar BNA fór hérna um árið. Kemur talsvert högg. Verndarinn nennir ekki að standa í að sinna vitleysisgangi innbyggjara lengur og hafa enga hagsmuni af því lengur.

Ísland á bara einn leik í stöðunni. það er þvingaður leikur. Eins og flestallir leikir í utanríkispólitík frá því að Ísland byggðist. þessi leikur er aðild að EU.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.2.2012 kl. 21:13

22 identicon

Stefán. Þetta er rétt hjá þér. þýski innanríkisráðherrann minnist ekki einu orði á jaðaríki í vitnaðri grein. Hann segir hinsvegar að í Griklands tilfelli, gætu möguleikarnir á umbótum í landinu og aukinni samkeppnisaðstöðu verið stærri ef landið stæði til hliðar við efnahags og myntbandalagi Evrópusambandsins (þ.e. EMU) "Außerhalb der Währungsunion sind die Chancen Griechenlands, sich zu regenerieren und wettbewerbsfähig zu werden, mit Sicherheit größer, als wenn es im Euro-Raum verbleibt". - Allt annað er oftúlkun (eða hreinlega rangfærslur?) blaðamanns Moggans og Bjarna hér að ofan! Sem staðfestir bara sem ég nefndi hér að ofan, að engin meðul eru heilög til stuðnings málstaðarins.

Thor Svensson (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 21:23

23 identicon

Sæl; enn !

Ómar Bjarki !

Þvert; á móti !

Þú leggur; all skakkan skilning, í mín orð, Ómar minn, í all mörgu.

Til dæmis; legg ég til, að takist ekki að koma á utanþingsstjórn fólks, sem kemur frá : Fiskveiðum, og vinnzlu - Landbúnaðarstörfum - Iðn greinum, margvíslegum, megi loka samfélaginu ÍSLENZKA, Ómar Bjarki - falbjóða Kanadamönnum og Rússum landið, til dæmis - og hyrfu þá Íslendingar, hægt og hljótt, inn í þjóða höf, þessarra ríkja, að skaðlausu.

Hvernig; litist þér, á þann farsæla möguleika, Austfirðingur ?

Að minnsta kosti; má GJÖRÓNÝTT stjórnmála hyskið, innlenda, ALDREI komast hér, til frekari valda - en orðið er, eftir spellvirki þeirra !

Og mundu; ''EU'' skrípið, heyrir vonandi sögunni til, senn.

Flestar Evrópuþjóðir; eru farnar að sjá í dag - að betur hefði Þjóðverj um verið tvístrað, eftir styrjöldina 1939 - 1945, og landi þeirra skipt upp, milli ýmissa nágranna þeirra, heldur en að fá að sprikla, einn ganginn enn.

Þjóðverjar voru - og eru; ÚRKAST Evrópu skagans, Ómar minn. Frakkar hafa verið; ásamt ýmsum öðrum, þægilegir taglhnýtingar þeirra, sem kunnugt er, eða frá styrjaldarlokunum 1945.  

Sömu kveðjur - og seinustu; að sjálfsögðu /

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 21:29

24 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já, selja Rússlandi Ísland - og er þetta agengt viðhorf þarna uppí Hreppunum?

Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.2.2012 kl. 21:43

25 identicon

Sæl; sem fyrr !

Ómar Bjarki !

Ekki; skal ég alfarið, svara fyrir viðhorf frænda minna, uppi í Hreppum, en þetta er viðhorf MITT; hér í Hveragerðis og Kotstrandar skírum, hafi Íslendingar ekki rænu á, að kasta hvítflibba- og blúndukerlinga kerfinu núverandi, fyrir róða.

Ekki það; að ég vildi bjóða Rússum einum auðlegðina - heldur og Kanadamönnum einnig, EINS OG ÉG TÓK FRAM, hér að ofan, færi allt hér á verstu vegu, Ómar Bjarki.

Ég vona; að þú sért ekki haldinn þeirri lesblindu, að geta ekki lesið RÉTT, út úr orðum mínum, ágæti drengur, hnökralaust !

Hinar sömu kveðjur - og síðustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 21:57

26 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Eg er eigi að sjá þetta ganga alveg upp teorískt.

þú talar um að falbjóða Ísland og þá einna helst Kanada og Rússíá. Og jafnframt að þá ,,hyrfu þá Íslendingar, hægt og hljótt, inn í þjóða höf, þessarra ríkja, að skaðlausu."

Til hvers þá að falbjóða? þú ert að tala um að leggja Ísland niður sem ríki og gerast úteyja Kanada eða Rússlands.

þ.a.l. er tilgangslaust að selja eitthvað því það mundi þá enda bara hja viðkomandi ríkjum hvort eð er.

Ennfremur er þá þetta þjóðrembingstal þitt viðvíkjandi flestum málum á undanförnum misserum tilgangslaust.

Gengur enganvegin upp teorískt.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.2.2012 kl. 22:32

27 identicon

Sæl; einn ganginn enn !

Ómar Bjarki !

Lestu betur; mínar ályktanir, ágæti drengur.

Og; blessaður slepptu ''þjóðrembingstalinu'', mér til handa, Ómar minn, ég var búinn að segja þér ástæðuna fyrir, að ég hvarf frá þjóðernis kenndinni, og tel mig ekkert, þurfa að sjá eftir því.

Að lokum; Ómar Bjarki !

Gættu þess bara; að fara ekki að hljóma, eins og illa rispuð Vinyl plata, á 33 eða 78 snúningum, ágæti drengur.

(Tek fram; að ég er ekki að lasta þær gamalgrónu plötur - fremur en spilarana, á nokkurn hátt.)   

Enn; sem fyrr - með beztu kveðjum /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2012 kl. 22:44

28 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jæja kallinn, þú getur alveg prófað að fara fram þessa hugmynd i Árnessýslu - en eg dreg stórlega í efa að miklar unfirtektir yrðu. Eg er td. ekki að sjá að Vigdís nágranakona þin tæki vel í þetta.

Meei, eg held að EU sé málið. Sjáða bara hvað þeir austfirsku eru að gera:

http://www.ruv.is/frett/laera-ad-nyta-hreindyr-ad-haetti-sama

,,Nú nýlega gafst Austfirðingum kostur á að kynna sér milliliðalaust hvernig samar hafa meðhöndlað og nýtt afurðir hreindýra um aldir.

Námskeiðið er hluti af Evrópuverkefni Þorpsins sem er austfirskt hönnunar- og nýsköpunarverkefni en það er styrkt af starfsmenntaáæltun Leonardo"

þetta er kúl.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.2.2012 kl. 22:56

29 identicon

Ég get tekið undir að Ísland sé bæði landfræðilega og stjórnmálalega á jaðri Evrópu. 

Hitt er annað mál að hér er og hefur verið afleit efnahagsstjórn með íslenskum seðlabanka og stjórnvöldum. Sem dæmi nefni ég að það kærir sig enginn um ísl.krónu og varla hægt að skipta henni í Danmörku lengur.

Ég hef bundið vonir við evrópska efnahagsstjórn (eða allavega betri efnahagsstjórn) lengi. Grikkland var étið af spillingu, og fæstir mótmæla spillingu hérlendis (ísl. króna felur það ekki).

Þess vegna kem ég með þá tillögu að við tengjumst myntbandalagi við Noreg! Noregur er ekki í ESB og Ekki með Evru heldur alvöru gjaldmiðil og efnahagsstjórn. Við gætum haft isl.krónu áfram sem væri tengd norsku krónunni, eins og danir tengja d.kr við evruna.

Hvernig litist ykkur á þetta? 

Anna Benkovic Mikaelsdóttir (IP-tala skráð) 28.2.2012 kl. 11:53

30 identicon

Komið þið sæl, á ný !

Kæra; Anna Benkovic !

Þakka þér fyrir; góðar kenndir, til Íslands - og íslenzkra málefna, sem þú hefir ekki farið varhluta af, að kynnast, fremur en við hin, en; ... sannast sagna, veit ég ekki fyrir víst, hverjum treysta má, til þess að taka við hræinu -- einna helzt; Kanadamönnum og Rússum, mögulega / og hyrfu þá Íslendingar inn í þjóða höf þeirra - og yrði örugglega ekki saknað, af mörgum, Anna mín.

 

Með beztu kveðjum - sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.2.2012 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband