Seinheppinn vindbelgur svarar ráðherra!

(Það er bráðum nóg komið af umræðu um Valhöll á Þingvöllum hér í bili en þessa læt ég samt fljóta,  - hún birtist um helgina í Morgunblaðinu undir ofanritaðri fyrirsögn höfundar:)

S5000327

Kannski á ekki að svara bloggi í blaðagrein en þegar það er einn af ráðherrum þjóðarinnar sem skrifar á opinberum vettvangi að undirritaður sé seinheppinn vindbelgur með rangar skoðanir sem ekki vinni fyrir þingfararkaupinu, nenni ekki að lesa sig til, skipti oftar um skoðanir en aðrir dauðlegir menn og hafi líklega ekki gert annað en að laxera síðan um kosningar,- tja þá velti ég vitaskuld fyrir mér hvar virðingu stjórnarráðsins er komið.
Ég veit að vísu ekki alveg hvað Össur Skarphéðinsson á við með orðinu laxera í þessu sambandi en flest annað í skrifum hans gat ég skilið. Semsagt á vefsíðunni http://ossur.hexia.net/. Pistillinn er reyndar líka orðréttur á minni síðu, bjarnihardar.blog.is

Á að rífa Valhöll!
Ástæða þessara gífuryrða hæstvirts ráðherra er að við erum á öndverðum meiði um framtíð Valhallar á Þingvöllum. Össur vill setja jarðýtu á hús þetta og hefur sér til fylgis við þá skoðun Kristján flokksbróður minn Einarsson á Selfossi sem er hér slökkviliðsstjóri. Það eru svosem engin ný tíðindi að afstaða til húsafriðunar gangi þvert á pólitískar línur og okkur Kristjáni gengur vel að skiptast á skoðunum um Valhöll eins og annað, fúkyrðalaust. Já, svo því sé til haga haldið, þá held ég að Valhöll megi standa og sé hluti af þeirri helgimynd sem þjóðin hefur af Þingvöllum. Fallegt og mjög sögufrægt hús í fallegu umhverfi sem gefur okkur sem ekki eigum neitt sumarhús á þessum helgistað færi á að gista Þingvelli.
En það er í mínum huga enginn héraðsbrestur að ekki séu mér allir sammála um þetta og Össur hefi ég talið til vina minna og mun gera áfram,- þó óneitanlega hafi mér brugðið við fúkyrðaflauminn. Verst í málinu eru þó rangfærslur sem allur fréttaflutningur um málið hefst með.

Rangfærslur embættismanna
Slökkviliðsstjórinn á Selfossi heldur því fram í Blaðinu sl. miðvikudag að brunavarnir séu í ólagi en dregur svo í land að kvöldi sama dags. Þær ku hafa verið í ólagi þegar hann kom síðast á staðinn fyrir tveimur eða þremur árum. Á þeim árum er búið að leggja tugi milljóna í viðgerðir á húsinu af bæði eiganda og rekstraraðila. Hótelhaldarar eiga ekki að búa við það óöryggi að opinberir embættismenn geti ruðst fram og gert gististaði þeirra tortryggilega með þessum hætti. Jafnvel ekki þó að skýrslur um nefndar viðgerðir finnist ekki í bókum slökkviliðsstjórans. Það er semsagt rangt að margra ára barátta fyrir að koma brunavörnum á staðnum í lag hafi ekki skilað árangri og það er miður þegar opinberir aðilar vita ekki af því þegar sigrar í margra ára baráttu vinnast! Svo er það vitaskuld ekki slökkviliðsstjóra að tala í nafni embættis síns um það hvort rífa eigi sögufræg hús.

Þinghelgin aðeins fyrir þotulið!
Út yfir taka þó orð byggðamálaráðherrans sem talar um Valhöll sem klastur og kraðak húsa sem beri að rífa og reisa þar í staðin byggingu til afnota fyrir ríki og Alþingi fyrir þingsetningu og ráðstefnur. Telji menn þörf á hóteli eða veitingastað fyrir almenning má að mati Össurar byggja slíka byggingu á svæðinu áður en komið er inn í þjóðgarðinn orðrétt, “...á jörðum sem hugsanlega má kalla áhrifasvæði þjóðgarðsins.”
Semsagt, almúgann út fyrir þinghelgina og nýir Þingvallanefndarmenn sem hafa aðra skoðun fá á sig gusur á bloggi ráðherrans um að hafa ekki lesið stefnumörkun stjórnvalda um Þingvelli, líti á setu í Þingvallanefnd sem ómerkilegan flokksbitling og skoðanir þeirra augljóslega rangar! Gott er að vera ráðherra með rétta sýn.

Engar skýrslur styðja Össur
Össur er oft skáldlegur í skrifum sínum en það er bókmenntafræðilegur misskilningur hans að skáld ráði yfir túlkun á sínum höfundarverkum. Staðreyndin er að í umræddum skýrslum um Þingvelli sem Össur hefur átt þátt í að móta er vikið að Valhöll með óljósu orðalagi um að huga skuli að, kannaðar verði forsendur o.s.frv. En þar er hvergi svo mikið sem ámálgað að rífa skuli Hótel Valhöll eða henda allri þjónustu við sauðsvartan almúgan upp fyrir Hakið og út fyrir þinghelgina. Eða að Valhöll sé klastur. Því miður fyrir ráðherrann nýbakaða því það er þetta sem hann vill og trúir að standi þar. Kannski Birni Bjarnasyni og Guðna Ágústssyni að þakka svo er ekki!
Dylgjum ráðherrans um að ég vinni ekki fyrir kaupi eða skipti oft um skoðanir tel ég þarflaust að svara.  

Myndin er af vindbelg árneskum uppi á Búrfelli í Grímsnesi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Já Bjarni þu stendur þig bara vel,eg er alveg sammála þer

í þessu málum/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 23.7.2007 kl. 21:22

2 identicon

Með Össuri er voði að vera
í vonlausri Þingvallanefnd.
Best er að láta hann laxera,
lævísa hann Bjarni vill hefnd.

Sauðsvartur almúginn (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 22:19

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Það má svara bloggi í blaðagrein og öfugt.

Þið verðið að taka með í reikningnn að bloggið er að taka við af dagblöðunum. Ekki alveg strax en það verður.

Þröstur Unnar, 23.7.2007 kl. 22:32

4 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Kæri vin, þar sem ég er íhald í bestum skilningi þess orðs, vil ég nú aldeilis, lýsa yfir fullum stuðningi við sjónarmið þín um, að Valhöll fái að standa, með tilheyrandi viðgerðum ef með þarf.

Víst er svo, að heftin af íslendingum, sem komnir eru um og yfir miðjan aldur (svona um 40 +) eiga sér ljúfar minningar um þennan stað og gestrisni húsráðenda.  Það er einnig giska víst, að það pirrar þotuliðið, að illalyktandi túrhestar, allra þjóða kvikindi, á gönguskóm, gegnsósa af táfýlu, sprangi um ÞEIRRA þinghelgi.

Okkur hinum, sem öngvar eigum hallirnar þarna á bökkum Þingvallavatns, verðum að lynda við þessa gesti, sem aðra.

Því tel ég einsýnt og algerlega banalt, að þetta hús, sem fengið hefur fastan sess á póstkortum og í vitund almennings, sem einhverskonar miðpunktur Þingvalla, ásamt og með Guðshúsinu og bænum, fái að standa um ókomin ár.

Það er plagsiður hjá nýríkum Nonnum, að þeim er illa við allt gamalt, sem geti á einhvern hátt verið ,,púkó" í augum ríkra erlendra vina.  Þetta sést vel þegar þeir kaupa ágæt hús, vel byggð og rífa, þar sem þeir vilja koma nýjum húsum sem ekki eru púkó að þeirra mati.

Svo er það spurningin, hvort Alþingishúsið sé ekki orðið gamalt og púkó, með Krónu konungs Danaveldis í toppinn.  Ekki örgrannt um, að það ,,kallist ekki á við" Tónleikahúsið við höfnina og auðvitað verður að rífa Eimskipafélagshúsið, það er púkó, þó svo, að það hafi verið svipt höfuðdjásni sínu og ártali komið þar fyrir á afar ósmekklegan hátt og gersamlega í takt við þjónkun við stundlega tísku, eftirstríðsárana.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 24.7.2007 kl. 08:50

5 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Takk fyrir kommenið á síðunni minni Bjarni minn  Þetta voru svo falleg orð og góður drifkraftur  En erum við ekki öll hetjur, við erum nú einu sinni vinir Bills og Bobs

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 24.7.2007 kl. 11:57

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Grátbroslegt og nokkuð skemmtilegt að fylgjast með tveimur mestu gapuxum Íslensku þjóðarinnar skrifandi hvern langhundinn öðrum leiðinlegri um Valhöll.  Vegna alvarleika málsins ættu laun ykkar þingmanna að hækka strax.  Án gamans, þá er mín uppástunga  að þið byrjið sem fyrst, þá  á ég sérstaklega við Össur, að hann einhendi  sér í að efna öll, eða sem flest  kosningalofoð Samfylkingarinnar frá því í vor. Þú Bjarni,  getur haldið áfram að klífa fjöll. 

Þorkell Sigurjónsson, 24.7.2007 kl. 13:40

7 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þú mátt alveg svara þessu með kaupið Bjarni. Hvernig má það vera að þú teljir þig vinna fyrir kaupinu þar sem þú eiginlega byrjar á því að mestu að fara í 4-5 mánaða sumarfrí?

Þú færð svo sem engu ráðið um þetta, en þetta er samt ansi kvikindisleg staðreynd

Haukur Nikulásson, 24.7.2007 kl. 14:57

8 Smámynd: Skarfurinn

Sammála Hauki stuttur vinnutími þingmanna hér er til skammar, en þá má kannski segja á móti, þeir gera þá færri AXARSKÖFT.

Skarfurinn, 24.7.2007 kl. 15:21

9 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Dálítið meinlegir út í sumarfrí þingmanna hér að ofan, enda mikið verið þrasað um "lengdina" á því.  Öfunda þig kannski svolítið, að eiga svona langt sumarfrí, strákarnir?  En vildi bara þakka þér orðin um hótel Valhöll.  Er hús sem ég tengi þjóðarsálinni og fegurð Þingvalla.  Vil ekki sjá því mokað burt, og fá eitt stykki glerhöll í staðinn.

Sigríður Sigurðardóttir, 24.7.2007 kl. 16:15

10 Smámynd: Guðmundur Björn

Þið mannvitsbrekkurnar hér að ofan, haldið vonandi ekki að þingmenn leggist í dvala yfir sumarið eða þegar þingið er ekki að störfum?

Guðmundur Björn, 24.7.2007 kl. 17:46

11 Smámynd: Haukur Nikulásson

Guðmundur Björn, það er ekki mikið annað sem þingmenn gera en að hvíla sig fyrir haustþingið. Ferðalög, golf og almennt chill. Ég hef allavega ekki orðið var við mörg fundarboð frá þingmönnum míns kjördæmis. Ef Bjarni er að gera eitthvað merkilegra en þetta, og tilheyrir hans þingmennsku, er honum í lófa lagið að upplýsa okkur "mannvitsbrekkurnar" um það.

Þessa stundina er hann í góðlátlegum "pissing contest" við samþingmann sinn, Össur. 

Haukur Nikulásson, 24.7.2007 kl. 21:56

12 Smámynd: Bjarni Harðarson

úff - ég hef oft verið spurður að því í sumar hvort ég sé ekki í fríi, sumarfríi og veit svosem ekki alveg hverju ég á að svara því flesta daga er ég í einhverju því sem tilheyrir þingmennskunni - mæti hér og þar - tala yfir þessum og hinum hópum, hitta þennan og hinn og kemst engan veginn yfir allt sem ég vildi og þyrfti - plús það að lesa hinar þessar skýrslur og fréttir og blogg og meil og guð má vita hvað. og mér finnst þetta skemmtilegt. en ef að reiknað er með 40 stunda vinnuviku,- ja, þá hefur engin dottið niður ennþá! en vitaskuld er álagið minna en var í kosningabaráttunni í vetur og mátti líka alveg minnka - bara svona svo geðheilsan héldist. ég hef svo notað lausar stundir í smá smíðar hér í fyrirtækinu mínu, sunnlenska bókakaffinu. er þar að smíða tvö salerni sem telst kannski ekki virðulegt verkefni þingmanns en hvað um það. mitt eiginlega sumarfrí verður svo frá 8. - 29. ágúst en þá verð ég í útlöndum.

Bjarni Harðarson, 25.7.2007 kl. 01:04

13 Smámynd: Haukur Nikulásson

Mér finnst Bjarni lýsa tilveru manns sem lifir og hefur gaman af því. Kannski ekki mikið frábrugðið okkur hinum. Skyldur þingmanna þessa stundina eru samt óneitanlega litlar sem engar og þeir ráða því algerlega sjálfir hvort þeir eru að gera eitthvað af viti eða bara í fríi. Flestir þeirra eru horfnir með öllu og sjást hvorki né heyrast. 

Það sem Bjarni gerir er vegna eigin frumkvæðis og áhuga á viðfangsefni sínu og það gerir hann einmitt að verðugum þingmanni. Ég hef engar áhyggjur af því að hann muni ekki vinna fyrir sínu kaupi þegar á hólminn verður komið. Ég hef áður lýst áliti mínu á Bjarna og þarf ekki að endurtaka það.

Haukur Nikulásson, 25.7.2007 kl. 09:02

14 identicon

Sæll Bjarni,

Það er flott hjá þér að standa fast á þinni skoðun um Valhallarmálið.  Þetta er stór hluti ásýndar Þingvalla og skelfilegt ef að enn ein steríla nútímabyggingin risa þarna í stað núverandi bygginga.

Varðandi vinnutíma þingmanna þá höfum við nú ávallt haldið að "sumarfrí" og önnur frí þingmanna ættu að nýtast þeim til að vinna í sínum kjördæmum, hitta kjósendur og fleira.  Alltaf leiðinlegt þegar að fáir einstaklingar eyðileggja fyrir fjöldanum með að liggja í leti og sóla sig í útlöndum.

Haltu áfram á þinni braut - það koma með þér ferskir vinar.

kk, Stúkurnar hjá Rent.is

www.rent.is

Accommodation service in Iceland

Houses for rent

Apartments for rent

Stúlkurnar hjá Rent (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband