Ísland - verst í heimi?

Ég er ekkert viss um að Ísland fari ver út úr þessu en margir aðrir. Ísland er bara aðeins á undan...

Einhvernvegin þannig fórust Jóhannesi Birni orð í stórgóðu viðtali við  Egil Helgason í dag. Hér á landi er því trúað að kreppan sé aðallega á Íslandi og verst á Íslandi og eiginlega bara hégómi í öðrum löndum. Ég hef efast um þessa mynd frá upphafi. Við vitum ennþá lítið hvað gerist í Evrópu á komandi misserum. Sjáum samt að markaðir eru enn að hrapa um allan heim en vitaskuld er meiri viðstaða í stærri kerfum en smærri. Þau eru því lengur að hrynja en líka lengur að rísa. Meira að segja bankamenn eru farnir að segja þetta,- við munum rísa hratt á Íslandi.

En það rímar algerlega við íslenska þjóðfélagsumræðu að vera í ökla eða eyra. Trúa því að Ísland sé best í heimi og skipta svo bara út einum staf og við erum verst allra. Auðvitað alveg glórulaus umræða.

Ég hef fyrr sagt það hér á blogginu að þó alltof margir fjölskyldur eigi eftir að glíma við gjaldþrot og atvinnuleysi þá verður það sem betur fer aðeins brotabrot af heildinni. Langflestir munu lifa frekar venjulegu lífi, ögn lágstemmdara og ekki leggja neitt til hliðar. Jafnvel ganga á eigur sínar. En lífi sem verður samt aðallega venjulegt...

Viðtal Egils við Guðmund Magnússon blaðamann var líka frábært og margt mjög Framsóknarlegt í hans málflutningi, til dæmis það að við setjum sameign þjóðarinnar á auðlindum í Stjórnarskrána.

Annars er það besta frá helginni að við Elín mín áttum góða göngu um fornar mýrar Skálholtsbiskupa, frá Smalaskálaholti og framhjá henni Digru Siggu sem er klettabelti fagurt og hér sést á myndkríli, - norður og austur vegleysur um Skálholtshaga þar sem Sveinn spaki lá fenntur með skólapilti fyrir 600 árum og ferðaðist með tímavél - og alla þessa sömu leið og við Raggi Sverris gengum 9 ára þegar okkur var hent út úr skólabíl fyrir firnarlega mikla óþekkt og sumir töldu okkur týnda ofan í keldu en við áttum hinn skemmtilegasta dag og sluppum við skólann en vorum ekkert skammaðir enda þóttust allir fegnir að við værum ekki í keldunni  - þó það hafi nú um sumt verið ofar mínum skilningi, svoddan skaðræði sem við vorum og erum kannski enn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sá viðtalið við Jóhannes Björn og þar sem ég hef fylgst með skrifum hans árum saman kom þetta álit hans ekki á óvart.

Hann hefur m.a. bent á að þær skuldir sem séu á sveimi í fjármálakerfi heimsins sé 600 sinnum heimsframleiðslan.  Er ekki verið að tala um að á Íslandi sé það 12 faldar útflutningstekjur.   Sennilega erum við því ekki í eins slæmum málum og það lítur út í augnablikinu.

Magnús Sigurðsson, 26.10.2008 kl. 18:15

2 identicon

Jæja Bjarni, hvernig líst þér og samþykkt framsóknar manna í NE?

 Tel að þú og Guðni verðið undir mjög fljótlega, hvað gerið þið þá, gangið í Frjálslyndaflokkinn? vel geymdir þar.

Pétur (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 21:22

3 identicon

Og húsfreyjan á Lómatjörn farin til Evrópu!

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 22:12

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Ég hef trú á að við verðum eins og Nero þó án hörpunar það er að við verðum búin að ganga frá okkar málum þegar að Evrópa hrynur og eins og að ástandið sé ekki nógu slæmt í heiminum þurfti Kanin endlilega að dúndra á hús í Sýrlandi núna sem þýðir að panik myndast olía rýkur upp hlutabréf falla enn meir. Er einhver furða að maður haldi að kreppan sé af mannavöldum.

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.10.2008 kl. 22:14

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Merkilegt þetta yfirlæti Bjarni og hvernig þú tekur allt í einu til við að tala niður til fólksins í landinu. Ertu að hætta í pólitík? Maður fær ekki séð annað á svona harakíí málflutningi.

Jón Aðalsteinn: Þú ert ekki einn um þessa skoðun. Hér má sjá hvað sjálfir Kínverjar segja um málið.

Er þetta ekki farið að líkjast efnahagsheimstyrjöld? Skyldu þessi sterku öfl láta sér einu gilda um þá gullkistu, sem ísland er og láta vera að nýta sér ástandið? Það telur Bjarni af öllu sem á honum má heyra.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2008 kl. 22:40

6 Smámynd: Bjarni Harðarson

Fyrirgefðu Jón Steinar - en hvar talaði ég niður til þín eða annarra?

Bjarni Harðarson, 26.10.2008 kl. 22:42

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

"Hverjum getum við treyst?", nefnist stórgóður pistill í Fréttablaðinu í dag. Höfundurinn er hinn magnaði þjóðfélagsrýnir Njörður P. Njarðvík. Í lokin vitnar hann í orð sem sænski rithöfundinn Vilhelm Moberg sagði eitt sinn: "Þegar stjórnmálamaður segir að við sitjum öll í sama báti, þá skaltu vara þig. Það táknar að þú skulir róa."

Kannast einhver við að hafa heyrt þessi orð nýlega af munni íslenskra pólitíkusa?

Árni Gunnarsson, 26.10.2008 kl. 22:57

8 identicon

Bjarni minn. ertu að reyna að halda því fram að við séum ekki í dýpsta skít af öllum?

Ég vona þín vegna að orð þín rætist um að evrópa og heimurinn allur líði verri hagfræðilegar kvalir en við. En ætlar þú að hætta í pólítík ef þú hefur rangt fyrir þér? Hvað gerist Bjarni minn ef að Ísland er verst sett af öllum ríkjum heims?

Ísland er best, en það hugnast engum að búa hér til lengdar ef að þið pólítíkusar eruð allir jafn blindir. Þið eruð eins og múlasnar og horfið eingöngu á einn punkt, arkið áfram og horfið aldrei til hliðar. Ykkur dettur aldrei í hug að heimurinn sé stærri og meiri en heilabúið á ykkur er búið að njörva niður. 

Kommúnisminn er sagður hafa fallið. Nú fellur frjálshyggjan.
Hvað fellur næst? Ríkisstjórnin? fellur þú kannski frá þröngsýni þinni?

Diesel (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 23:12

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú dæmir þá sem í angist mikla ástandið fyrir sér hér að ofan. Og setur þig ofar bloggurum m.a. og gerir lítið úr þeirri umræðu, sem á sér stað og hve alvarlegum augum fólk lítur málin. Hér er ástandið verra en annarstaðar, gerðu ekki lítið úr því, þótt við höfum ekki kennt kaunanna enn sem stendur. 

Kannski varstu að koma með nýjan vinkil á málið eins og Björgólfur og kenna pöbulnum um ófarirnar?  Kannski varstu bara að reyna að vera kreatífur í umræðunni og ég miskilið  vona hrapalega. Kannski finnst þér óviðeigandi yfirleitt að fólk skuli ræða þessa hluti og velta þeim fyrir sér.

Bloggið er þverskurður þjóðarinnar og hún veit ekki sitt ´júkandi ráð eins og sjá má af síðustu skoðanakönun þar sem 45% tóku ekki afstöðu til flokkanna.  Hvað skyldi það þýða? Jú að fólkið hefur gersamlega misst alla tiltrú á stjórnmálamönnum, sem er ansi dapurt fyrir þjóð sem treystir allt sitt á lýðræði. Eða hvað finnst þér?

Ég bið þig því að ganga hægt um dyr í allri Þórðargleðinni með fyllstu virðingu Bjarni minn.  Aðgát skal höfð í nærveru þjóðarsálar.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.10.2008 kl. 03:00

10 identicon

Merkilegt hvað þið framsóknarforkólfar eruð stikkfrí við allar vammir og skammir núna. Það er eins og mig minni, að þið hafið þar til fyrir einu og hálfu ári cirka verið í ríkisstjórn samfleytt í 12 ár og lengst af haft með bankamál að gera? Voru ekki einhverntíma í þeirri stjórn fólk, sem ber nöfnin Valgerður Sverrisdóttir og Finnur Ingólfsson? En það man líklega enginn eftir því! Viðskipta- og bankamálaráðherrar hafa náttúrulega ekkert með það að gera að setja reglur um fjármálamarkaðinn, þegar búið er að einkavinavæða ríkisbankana?

Bóbó (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 04:44

11 identicon

Talandi um Finn Ingólfsson.

Hvar er hann? Er hann stikkfrí?

Jóhann (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 07:55

12 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Sæll Nafni, skil vel, að það sé hressandi að labba um í náttúrunni umhverfis Skálholt.

Hinnsvegar skil ég ekki í þeim ,,sérfræðingum" sem voru í vinnu hjá auglýsingastofum bankana (nefndum ,,Greiningadeildum) og nú standa á blístri yfir því hvað Seðlabankinn hafi verið sienn á sér til bjargar.

Er þetta fólk ekki búið að þyggja laun,s em sérfræðingar menntaðir (lærðir) í Hagfræði og svoleiðis nokk?  Hví ,,greindu þeir ástanidð ekki rétt"?

Voru þeir að taka laun á fölskum forsendum.

Hví eru þeir hjá rFréttablaðinu og Bylgjunni nægjanlega stórir í sniðum, að taka nú Ólaf Ísleifsson á beinið um skilyrði IMF og ,,Handleiðslu" þeirra að launsn okkar vanda?

Mér heyrist einna ehlst, að ráðin séu flest úr gömlum minnisböðum Da´við s Oddssonar.

Hækka vexti (halda þeim háum)

Setja regluverk um banka og aðra fákeppnisfélög.

Draga úr útgjöldum hins opinbera

Fleita Krónu eins fljótt og unnt er.

Vara jafnvel við, að yfirþjóðleg kerfi freistist til, að ná undir sig auðlindum þjóða í vanda líkt og orkiu og fiskimiðum.

Ætli þessu ummæli sem lesa mátti í FT fyrr í síðustu viku, hafai verið óvart?

Tæplega.

Með ósk um að sá hinn sami aðili, sem kom til bóndans forðum, þegar var komið um miðjan sláttur og honum sem stóð  þreyttur í flekknum, þótti gott að hlusta á ,,vininn" segja Hvíldu þig Hvíld er góð".  Þetta eru allmargir að segja núna við alþýðu manna hérlendis, lofa fró og hléi gegn vindnauði köldu á glugga. 

Sama fólkið kemur, þegar atvinnan er mest farin úr landi og auðlindir okkar undir annarra stjórn og segir líkt og ,,vinuurinn " fallegi sagði við Bónadann þá komið var fram yfir Mörsug og Þorri gnauðaði á illa haldið fé hans, sakir vannæringar,--,,Latur lítið hey".

ÞAð er enfnilega svo, bæði í henni náttúru og lífinu bara svona almennt, að það er hvur sjálfum sér næstur, saman ber hann Brown, sem leitar einhvers til blóra fyrir yfirvofandi hrun í Bretlandi (líklega munu netbankar Bandarískir og annarra þjóða nú vera apð falla líkt og mý í stórrigningu.

Miðbæjaríhaldið,

vonar allt gott en gerir sér grein fyrir mannlegum vaeikleika, enda alla daga að berjast við svoleiðis í sjálfum sér.

Bjarni Kjartansson, 27.10.2008 kl. 13:48

13 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hér er mikið um spurningar en fátt um svör, leyfi mér að bæta aðeins úr því.

Er einhver furða að maður haldi að kreppan sé af mannavöldum?

Nei, enda er hún það að sjálfsögðu. Peningar duttu ekki af himnum ofan heldur voru þeir prentaðir af mönnum, en áður en þeir voru prentaðir voru þeir fyrst hannaðir (af mönnum líka) ásamt hagkerfinu í kringum þá. Athugið að hagkerfið er líka mannanna tilbúningur og það er ekkert náttúrulögmál sem segir að við getum ekki hreinlega bara ákveðið að taka upp skynsamlegra peningakerfi sem venjulegt fólk getur skilið hvernig virkar. Hinsvegar eru alltaf ákveðnir forrétindahópar sem hafa hagsmuni af því að kerfið sé ógegnsætt og flókið, þannig að venjulegt fólk sé ekkert að pæla of mikið í þessu og horfi bara í staðinn á sjónvarpið, á meðan það er arðrænt í kyrrþey.

Er þetta ekki farið að líkjast efnahagsheimstyrjöld?

Líkjast??? Þetta er eiginlega ekki rétta spurningin, eða ofan í hvaða holu hefur spyrjandinn haldið sig undanfarið? ;) Efnahagsumbrotin núna eru bara ein hlið á heimsstyrjöld sem staðið hefur yfir frá byrjun aldarinnar og sér enn ekki fyrir endann á, en þetta stríð mætti e.t.v. kalla WWIV ef miðað er við þá söguskoðun að Kalda Stríðið hafi líka verið heimsstyrjöld.

Skyldu þessi sterku öfl láta sér einu gilda um þá gullkistu, sem ísland er og láta vera að nýta sér ástandið?

Nei alls ekki, nú sem fyrr er engin ástæða til að ætla annað en að "þessi sterku öfl" fylgist vel með gangi mála. Afhverju ætli hryðjuverkamönnunum í UKUSA-bandalaginu sé annars svona mikið í mun að fella allt sem íslenskt er? Auðvitað svo hægt sé að kaupa hræið á brunaútsölu! Það fór reyndar ekki mikið fyrir því í fréttum en á sama tíma og bandaríski seðlabankinn neitaði okkur um aðstoð voru útsendarar JP Morgan fjárfestingarbankans skyndilega mættir til fundar í Ráðherrabústaðnum, þeim lá meira að segja svo á að þeir splæstu í leigubíl þangað beint frá KEF fyrir 20.000 kall (sem var þá reyndar orðið ódýrt í dollurum talið...). Það er einmitt undir svona kringumstæðum sem hýenur og aðrar hræætur skríða gjarnan út úr fylgsnum sínum, meira um það og JP Morgan má lesa í hinni stórkostlegu bók Falið Vald.

Kommúnisminn er sagður hafa fallið.

Já... eða kannski var hann bara gjaldfelldur? Ísland er líka sagt hafa fallið en þó eru sumir sem vilja meina að það hafi verið fellt... Athugið til dæmis hvert Sovétríkin leituðu eftir aðstoð þegar þau voru um það bil að verða gjaldþrota. (Vísbending: stofnun sú ber þriggja stafa skammstöfun og er Íslendingum nýlega orðin "góðkunnug".)

Nú fellur frjálshyggjan.

Það var óhjákvæmilegt og fyrirsjáanlegt, ekki síst eftir að Sovétið var fallið. Auðvaldið þrífst nefninlega ekki vel nema hafa einhvern stæðilegan óvin til að "demonisera" fyrir augum almúgans. Það athyglisverða er samt kannski eftir að við komum óvænt að lokuðum dyrum hjá flestum vinaþjóðum (svokölluðum!), hverjir það eru sem koma okkur líka til bjargar með 2.100.000.000 stk. af gúmmítékkum? Samkvæmt Seðlabanka Íslands var það "Augljóst ... að erlendu seðlabankarnir höfðu samráð sín á milli." Lesendur verða sjálfir að gera upp við sig hvaða merkingu þetta hefur... en hver ætli sé þá núna hinn raunverulegi óvinur?:

Tilvitnun: "Þeir sem stjórna seðlaeign þjóðarinnar halda í hendi sér örlögum fólksins."  - Reginald McKenna, fv. fjármálaráðherra Bretlands

Hvað fellur næst? Ríkisstjórnin?

Ekki á meðan við sýnum af okkur þann aumingjaskap að setja hana ekki hreinlega af með borgaralegu valdi. Íslensk stjórnvöld eru orðin vön svo miklum þægindum og vita að þau geta komið fram vilja sínum sama hvað tautar og raular. Þó við mótmælum sum kannski hástöfum þá erum við (flest) of friðsæl til að stíga skrefið til fulls og skilja höfuð frá búk (á stjórnvaldinu þ.e.a.s.). Stjórnarfarið sem við búum við hérna er kannski "lýðræði" að nafninu til, en Sjóður #9 í Glitni var líka kallaður "öruggur"... (Sjá útskýringu Wikipedia á hugtakinu "flokksræði" og dæmið svo sjálf hvort það á ekki betur við).

Talandi um Finn Ingólfsson. Hvar er hann? Er hann stikkfrí?

Finnur Ingólfsson er svosem ekkert stikkfrí en hefur samt alltaf verið flinkur að spila sig þannig, sem útskýrir líklega hvers vegna ekkert spyrst til hans núna. Finnur var nefninlega iðnaðar- og viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar 1995-1999 og var þar með hans hægri hönd við einkavæðinguna. Hann var skipaður Seðlabankastjóri 2000-2003 en eftir það hefur hann setið í stjórnum margra af stærstu fyrirtækjum landsins, t.d. VÍS og Kaupþingi. Fyrir rúmu ári síðan keypti hann svo tvíburafyrirtækin Frumherja og Frumorku, en það fyrrnefnda hefur ráðandi markaðshlutdeild á sviði bifreiðaskoðunar, löggildingar mælitækja o.fl. sem snýr að leyfisveitingum ýmisskonar. Sennilega er Finnur bara ennþá upptekinn við að útdeila leifunum af Sambandinu til vina sinna og annara Framsóknarmanna eftir að hafa notað það til að kaupa Búnaðarbankann af ríkinu á sínum tíma. Félagi Ögmundur fjallaði t.d. um klíkuskapinn kringum þau mál og eignarhaldsfélagið Gif fyrir rúmu ári síðan.

---

Þegar maður er á annað borð kominn ofan í þessa kanínholu þá virðist sukkið og vitleysan í þessu hafa verið gjörsamlega botnlaus. Allt of lengi...

Góðar stundir góðir Íslendingar, og lengi lifi byltingin!

Guðmundur Ásgeirsson, 27.10.2008 kl. 14:11

14 Smámynd: Sævar Einarsson

Ísland er best í heimi, það vantar bara að hreinsa til í Seðlabankanum og víða í ríkisstofnunum.

— ICELAND'S MOST WANTED —

GORDON BROWN
Wanted, alive and preferably in working order - for treason and severe plotting against the innocent Icelandic nation. Also wanted for sheep theft, tekið héðan  en myndin er ekki sú sama.

Er að skipuleggja aðgerðina "Víkingur Delta 2" "Operation Viking Delta 2"  Endilega ef þú getur aðstoða mig ef þú ert í hryðjuverkastétt með því að smella á linkinn hér fyrir ofan, með fyrirfram þökk. Sævarinn hryðjuverkaatvinnulausi.

 

Sævar Einarsson, 27.10.2008 kl. 17:00

15 identicon

Gleymdi einu

En það rímar algerlega við íslenska þjóðfélagsumræðu að vera í ökla eða eyra. Trúa því að Ísland sé best í heimi og skipta svo bara út einum staf og við erum verst allra.

Það þarf að skipta út einum staf og bæta einum við.     :)

best, verst

Diesel (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 22:45

16 Smámynd: Bjarni Harðarson

æi diesel - eins og þú veist þá skrolla ég og þessvegna vonandi fyrirgefið að gleyma einu andsk. errrrrrrri.

en allavega - takk fyrir umræðuna sem var góð þú sumt sé svolítið byltingakennt fyrir mitt framsóknarhjarta. og þetta er rétt að hjá nirði p. að þegar farið er að tala um allir skuli róa á sama báti þá skulum við gjalda varhug og við skulum líka trúa varlega þegar allir hávaðabelgir hrópa það sama - þá er yfirleitt verið að hrópa vitleysu. meira um það síðar...

Bjarni Harðarson, 27.10.2008 kl. 22:55

17 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

Annars er það besta frá helginni að við Elín mín áttum góða göngu um fornar mýrar Skálholtsbiskupa..

Talandi um biskupa þá var ég að setja inn pistil á blogginu mínu um að við ættum að biðja fyrir ástandinu. Burtséð frá því hvort við erum eitthvað sterktrúuð eður ei. Þarna er stuttur bænalisti og eitt bænarefnið er:

Biðjum um stjórnmálamenn sem vinna sér inn traust þjóðarinnar með því að starfa af heilindum og skynsemi og sem við finnum að erum að hugsa um okkur, ekki sjálfa sig eða einhverja hagsmunaklíku.

Slóðin er: http://einarsmaeli.blog.is/blog/einarsmaeli/entry/690084/ fyrir þá sem vilja skoða.

Sjálfur er ég framsóknarmaður, en það var ekki út á gæja eins og Halldór eða Finn eða Björn Inga sem ég gekk í flokkinn. Ég hreifst af hugsjónum flokksins á níunda áratugnum þegar Steingrímur Hermanns leiddi hann. Hann kunni að viðurkenna mistök og þessi auðmýkt hans gerði hann ástsælan þjóðarleiðtoga. Man einhver eftir betri forsætisráðherra síðan 1980 og þar til nú?

Rétt áður en Halldór sagði af sér þá var ég búinn að fá upp í kok og farinn að íhuga það alvarlega að kjósa eitthvað annað en framsókn. En þá kom Jón Sig. fram - og það var leiðtogi sem var hægt að dást að. Hann var bara allt of stutt - ég vil að við fáum hann aftur í framboð, enda sárvantar flokkinn góða og öfluga forystu í Reykjavík.

Ég kalla líka eftir því að flokkurinn endurskilgreini sig enda nýtur hann ekki trausts fjöldans eftir að Halldór &co lögðu hann í rúst. Okkur er ekki nóg að vísa til þess að þetta var einu sinni góður flokkur. Við þurfum að gera Framsókn að góðum flokki upp á nýtt, með því að

  1. Marka skýra og trúverðuga stefnu upp á fyrir hvað flokkurinn stendur núna í dag
  2. Velja traustvekjandi fólk til að vera fulltrúar flokksins og leiða lista hans í öllum kjördæmum

Seinna atriðið er það sem flestir horfa á þegar á að kjósa. Og ef okkur verður að þeirri ósk að núverandi ríkisstjórn skammist til að láta kjósa strax á næsta ári, þá er okkur eins gott að hefja verkið strax og byrja nokkurs konar kosningabaráttu nú þegar. Gera fólk áberandi í öllum kjördæmum frammi fyrir þjóðinni sem geti verið góðir leiðtogar fyrir framboðslistana.

Sumir liggja Bjarna á hálsi fyrir að vera ekki sammála restinni af flokknum og þingmönnum hans. Kæru vinir, það sem við þurfum er ekki samsafn jábræðra sem segja "já, ráðherra" við Halldór eða Guðna eða hver sem það skal vera sem leiðir okkur. Við þurfum samsafn af fólki sem aðrir treysta vegna þess að þessir einstaklingar eru heiðarlegir.

Bjarni kann að vera hvatvís, og ég er ekki alltaf sammála honum, en ég sé ekki betur en hann starfi af heilindum. Slíka menn vil ég mun frekar en forritaðar strengjabrúður sem segja "já ráðherra". Við þurfum ekki stjórnunarstíl Halldórs aftur inn, við þurfum heiðarlega og drengilega stjórnmálamenn. Og ég get nefnt fleiri góða, eins og Birki Jón Jónsson og Magnús Stefánsson. Ef við fáum Jón Sig. aftur í framboð auk þeirra, og ef okkur tekst að skilgreina hlutverk Framsóknar upp á nýtt, þá held ég að við séum tilbúin í næstu kosningabaráttu.

En ég held okkur sé sæmst að byrja að leggja þennan grunn strax, ekki síst að sækja öfluga leiðtoga fyrir kjördæmin, hugmyndavinnan tekur lengri tíma, því við vonum auðvitað að við fáum kosningar á næsta ári - það er það eina réttláta eftir að núverandi ríkisstjórn missti niður um sig. Ég er þó sammála Bofs þegar hann segir:

Hvað fellur næst? Ríkisstjórnin? - Ekki á meðan við sýnum af okkur þann aumingjaskap að setja hana ekki hreinlega af með borgaralegu valdi.

Aðeins fjöldaáskoranir geta komið núverandi stjórnarflokkum til að gera hugmynd Björns Bjarnasonar um kosningar á næsta ári að veruleika. Þessi stjórn hefur sterkan þingmeirihluta og ég held að þessir flokkar séu ekkert að hætta að vilja starfa saman. Ég held að ef nógu margar og fjölmennar kröfugöngur heimti kosningar, þá láti Samfylkingin undan þeirri kröfu.

Einar Sigurbergur Arason, 28.10.2008 kl. 03:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband