Sjálfstæðisuppgjöf tilkynnt í útlöndum

 Jeg tror ikke Island har noe valg etter den knekken vår valuta har fått, sier kultur- og utdanningsminister Katrín Gunnarsdóttir fra Selvstendighetspartiet til Klassekampen. (I lauslegri þýðingu segir varaformaður Sjálfstæðisflokksins að land hennar eigi enga aðra möguleika eftir kreppuna en að ganga í ESB.)

Þetta segir komment Þorgerðar Katrínar í norsku kommablaði sem heitir upp á gamalnorsku Stéttabaráttan. Það lýsir svo innilegri fyrirlitningu og forheimskan þegar íslenskir ráðamenn telja sig geta sagt eitt í útlöndum og annað hér heima. Nema þetta sé með ráðum gert að gefa út pólitískar stefnuyfirlýsingar út í útlöndum og láta það svo heyrast í íslenskum fjölmiðlum að það sé talað við þá á útlensku. Og einkar smekklegt að endanleg uppgjöf þess flokks sem kennir sig við sjálfstæði landsins sé gefin út á norsku.

Það hefur lengi legið fyrir að Þorgerður er harðákveðin ESB-sinni en hún gat sýnt þann manndóm að tilkynna um svo afdráttarlausa lotningu fyrst á Íslandi. Mestu vonbrigði helgarinnar er aftur á móti hvernig Illugi, Árni Math og Geir hafa allir snúist á sveif með aðildarviðræðum og eiginlega ekki annar eftir en Björn til að leiða Sjálfstæðisflokk sem aðhyllist sjálfstæði...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TómasHa

Er þetta ekki nákvæmlega sama og hún hefur sagt hér á landi? Menn þurfa ekki að hafa lesi mikið um skoðanir Þorgerðar til að átta sig á aðdáun hennar.

TómasHa, 15.12.2008 kl. 13:54

2 identicon

Bjarni vanalega hristi ég hausinn þegar ég heyri þig eða aðra Framsóknarmenn tala en þarna hittir þú naglann á höfuðið. Ef Sjálfstæðisflokkurinn gefst upp á þessu grundvallarmálefni þá er búið að hverfa það langt frá stefnu flokksins að enginn tilgangur verður lengur með því að halda áfram starfi hans, svipað og er að gerast núna með Framsóknarflokkinn eftir að þið Guðni fóruð og landbúnaðarstefnu flokksins var kastað fyrir borð.

Þorgerður Katrín á best heima í Samfylkingunni og hvet ég hana eindregið til þess að fara þangað yfir því að hennar verður ekki sárt saknað í flokki þeim er kennir sig við sjálfstæði íslensku þjóðarinnar.

Hafsteinn (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 14:00

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Bjarni. Vísa til bloggs míns um sama mál. Allt bendir til að
Sjálfsstæðisflokkurinn klofni alvarlega á landsfundinum í jan með
yfirtöku ESB-sinna á flokknum með tilheyrandi fylgishruni eins og
hjá Framsókn nú, því ESB-væðing Framsóknar á bara eftir að fara
fram formlega í jan.

Þess vegna eru líkurnar að stofnaður verði flokkur sjálfstæðissinna
í Evrópumálum, borgaralegur flokkur sem vill standa vörð um full-
veldi og sjálfstæði Íslands, íslenzka þjóðmenningu og tungu.
Flokkur sem þjóðleg öfl úr Framsókn, Sjálfstæðisflokki  og Frjáls-
lyndum standi að.  Og það sem meira er. Þessi flokkur gæti
einmitt staðið fyrir allsherjar uppstokkun í íslenzkum stjórnmálum
á MIÐ/hægri-kanntinum, nokkuð sem fjöldi heiðarlegs borgara-
sinnaðs fólks kallar svo mikið eftir í dag.

Og hér með er skorað á þig Bjarni að taka sæti á Alþingi strax í janúar n.k UTAN FLOKKA en sem málsvara þeirra þjóðlegu pólitísku samtaka sem í undirbúningi eru.

Með þjóðlegri kveðju!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.12.2008 kl. 14:04

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kom ekki Quisling fram með stefnu sína í Noregi? Er það ekki við hæfi, að þeir slöku Íslendingar, sem vilja svíkja okkar fornu og nýju landsréttindi, komi fram á norskri grundu – varla eru þau búin að manna sig upp í að voga sér að gera þetta í Brussel?

Þorgerður Katrín, Illugi, Bjarni ungi Ben., Vilhjálmur Egilsson og Ólöf Nordal ættu að stofna sinn eigin Ósjálfstæðisflokk og reyna að snapa atkvæði af einhverjum öðrum en sjálfstæðismönnum. Lengi lifi fullvalda Ísland.

En vegna orða Guðmundar Jónasar og raunar þinna, Bjarni, líka, í lok pistilsins, þá er nú rétt að minna á, að grasrót Sjálfstæðisflokksins er ekki það sama og svikulir menn í forystu hans. Gleymið ekki þessu, að 20. nóvember sl. birti Morgunblaðið ýtarlega skoðanakönnun um EBé-aðild, sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins (sjá þessa grein mína), og þar kom fram, að einungis "24% sjálfstæðismanna eru hlynnt aðild, en 54% andvíg"! Andstæðingar aðildar eru þannig 2,25 sinnum fleiri en fylgjendur hennar í Sjálfstæðisflokknum. Ætla einhverjir foringjar svo að svíkja flokk sinn, land sitt og þjóð, allt í senn? Slíkir ógæfumenn ættu að pakka saman og hætta í stjórnmálum.

Með góðri kveðju, 

Jón Valur Jensson, 15.12.2008 kl. 17:36

5 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Sýnist vera kominn grunnur fyrir íslenskar SS sveitir (sjálfstæðis Sjálfstæðismenn). Slíkt væri sviðaðs eðlis og þegar þjóðremban nær sér á flug hjá frændum okkar í Noregi og þeir kynna sig sem "norsk nordman".

Þetta virðist ganga hraðar að Evróðuvæða Ísland heldur en nokkurn grunaði. Þetta er svona eins og með farsímana. Við tökum þetta með stæl, þegar við skellum okkur í málið. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 15.12.2008 kl. 19:41

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Gunnlaugi finnst "þjóðremba" Gordon Brown miklu betri. Þú ættir að segja þetta við hann persónulega Gunnlaugur. Vitlu ekki bara skila þeim 200 mílunum aftur og 60% af afla síðustu 30 ára - ofaní Icesave útrásar kumpána sem hörðu banka ESB réðherra þinna í vasanum. Kysstu vöndinn Gunnlaugur. Þá verður allt gott.

Þetta er eitt aðaleinkenni á Eurokrötum, sjálfseyðingarhvötin.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.12.2008 kl. 20:07

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Aumt er sprok þitt, Gunnlaugur, og miklu aumari verður málstaður allra Ebé-undirlægna heldur en Gizurar Þorvaldssonar, ef þær hafa sitt fram.

Jón Valur Jensson, 15.12.2008 kl. 20:16

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hin and-þjóðlegu viðhorf Gunnlaugs eru aumkunarverð. Og þó í ljósi
þess að einu efasemdaraddirnar sem heyrðust um ágæti þess að
Ísland yrði sjálfstætt lýðveldi kom úr herbúðum krata. End voru þeir
ætið líka andsnúnar útfærslu okkar mikilvægu fiskveiðilögsögu.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.12.2008 kl. 21:15

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ef einhversstaðar er til þjóðarremba þá er það nýja remban í Evrópusambandinu sem krefst þess að allir Evrópubúar falli undir eitthvað sem rembustjórar Evrópusambandsins kalla "Europeans" eða "The European idenity", sem er ekki til, hefur aldrei verið til og mun aldrei verða til. Þetta er það sem Sovétríkin reyndu en misstókst svo hrapallega.

Ef maður segir ekki já og amen við euro-sósíal-krötum þá er maður sendur í svona "intellectual Gulag", með orðum eins og þjóðarremba og "and-evrópskur".

Ef enginn hugsar um landið sitt þá gerir það heldur enginn annar fyrir mann. Þá verður það einfaldlega tekið af þér. Eins er það með myntina. Það þarf að passa vel uppá hana og að hún sé ekki misnotuð.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 15.12.2008 kl. 21:21

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Svo er vert hjá Gunnlaugi að vita að til er RASISMI gegn sinni eigin
þjóð!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.12.2008 kl. 21:43

11 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Ef að þetta sjálfstæðistal á að ganga upp hjá ykkur strákar mínir þá verðum við að segja okkur frá öllum alþjóðlegum skuldbindingum. Því væri eðlilegt að við sýndum Sameinuðu þjóðunum puttann.

Látum ekki segja okkur hver séu mannréttindi barna og segjum okkur frá barnasáttmálanum eða öðrum alþjóðlegum viðmiðum hvað í því felst að vera ábyrg og siðuð þjóð. Þessi málflutningur ykkar virðist draga frekar upp þá mynd að þið séuð það sjálfstraust ykkar sé það lítið að þið treystið ykkur ekki í samvinnu þjóða í pólitík, menningu og efnahagsmálum.

Þar ber okku, fólkinu í landinu, að láta hjartað fylgja máli og ganga fram kokhraustir og fullnýta þau tækifæri sem sameinuð Evrópa hefur upp á að bjóða. Við eigum ekki að ganga þar um sem neinir hikandi betlarar. Lifi sjálfstæðir Íslendingar í sameinaðri Evrópu!

Gunnlaugur B Ólafsson, 16.12.2008 kl. 02:06

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er röksemd sem stenzt ekki, Gunnlaugur, að benda á aðild okkar að Sameinuðu þjóðunum eða t.d. Norður-Atlantshafsbandalaginu sem eitthvað sambærilegt við EB-innlimun. Ekki höfum við gefið SÞ eða NATO æðsta löggjafarvald hér á landi né yfirráð yfir allri fiskveiðilögsögunni milli 12 og 200 mílna frá landi.

Ef einhver segði við þig: "Við ættum að gerast 51. ríki Bandaríkjanna, enda væri það ekkert meira fullveldisafsal en þegar við ákváðum að taka þátt í SÞ og NATO!" myndirðu þá falla fyrir þeirri röksemd? – Nei, vitaskuld ekki, og samt eru hin einstöku ríki Bandaríkjanna með sjálfstæðara löggjafarvald hvert um sig heldur en ríkin í EB.

Lokaklausa þín er með afbrigðum klisjukenndur áróður af "jákvæða" endurtekningataginu. Þessi "sameinaða Evrópa" þín er ekkert skárri en Sviss eða Noregur, og hún hefur naumast getu til að sætta hinar gríðarlegu mótsagnir sem þar eru milli hagkerfa og hagsmuna ríkjanna. Þar að auki vantar hana það, sem verðmætast er: barnsfæðingar, m.a. vegna fósturdeyðingaplágunnar. 30% færri börn fæðast í nýrri kynslóð þar á móti fjölda foreldranna. Vegna gríðarlegrar fjölgunar fólks á eftirlaunaaldri á næstu áratugum og skelfilegrar fækkunar fólks á starfsaldri mun EB neyðast til að taka við a.m.k. 50 milljónum innflytjenda – og myndi sennilega "leysa" vandamálið með því að taka Tyrkland inn sem meðlimaland, og þeir fengju þá alls staðar sama rétt og við til starfa og atvinnurekstrar. Líttu til Noregs um lærdóminn af slíku eða sambærilegu. Hefurðu reiknað út þau aukavandamál sem hljótast myndu af mjög verulegri fjölgun múslima hér á landi? Eða eru þessir þankar þínir bara settir fram í fyrirhyggjuleysi og léttum dúr?

Jón Valur Jensson, 16.12.2008 kl. 03:07

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Voru þetta örugglega heilar 200 milljónir, Erlingur? Ljótt er, ef satt er, og þakka þér ábendinguna.

Jón Valur Jensson, 16.12.2008 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband