Íhaldið svíkur líka í ESB málum

Sjálfstæðissinnar eiga sér engan flokk á Alþingi. Þeir eiga að vísu einarða talsmenn í þremur flokkum en allir flokkarnir kremjast nú undir þeirri moðsuðu að verða á einhvern hátt að koma til móts við kröfuna um ESB aðild Íslands.

Sjálfstæðismenn margir hafa farið hér mikinn yfir okkur ESB-andstæðingum sem tókum þann illskásta kost að kjósa VG í kosningunum. Nú er algerlega komið fram að ekki einu sinni í stjórnarandstöðu tekst þingliði Sjálfstæðisflokks að standa við flokkssamþykkt um að mæla aldrei með ESB aðild og gera alltaf þá kröfu að það yrði að minnsta kosti tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla.

Tillaga Framsóknar og Sjálfstæðisflokks er vitaskuld illaskárri en tillaga stjórnarflokkanna en hún er svik við þá stefnu sem flokkurinn samþykkti á Landsfundi. Það er aumt að enginn flokkur skuli nú þora koma fram með tillögu um að Ísland einfaldlega haldi sjálfstæði sínu...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Haraldur Hansson hefur samið þá tillögu:

Tillaga til þingsályktunar

um undirbúning þess að gera ríkisstjórn Íslands hæfa til að takast á við kreppuna.

 
Flutningsmenn: Jón Sigurðsson frá Hrafnseyri, óþekkti þingmaðurinn
og aðrir þeir sem eru með bein í nefinu

 

Alþingi ályktar að fela utanríkismálanefnd Alþingis að undirbúa breytingar á stjórnarskrá, sem nauðsynlegar eru, til að tryggja að fullveldi Íslands verði ekki framselt, hvorki með aðild að Evrópusambandinu né nokkrum öðrum hætti.  Einnig tillögur að þeim lagabreytingum öðrum sem nauðsynlegar kunna að reynast.

 

Greinargerð.

Flutningsmenn telja að nauðsynlegt sé að tryggja þjóðarhag til frambúðar með því að slá þessa vitleysu út af borðinu í eitt skipti fyrir öll. Að því búnu geta Alþingi og ríkisstjórn varið kröftum sínum í að sinna því sem máli skiptir.

Birt án leyfis.  Vona að Haraldur fyrirgefi mér það.

Axel Þór Kolbeinsson, 29.5.2009 kl. 11:20

2 identicon

;-)

þið eruð ótrúlega hlægilegir.

Sjálfstæðir menn eins og Bjartur í S.húsum

S. (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 12:29

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Takk og sömuleiðis S.

Axel Þór Kolbeinsson, 29.5.2009 kl. 12:31

4 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Það er nú þó eitt við þessa tillögu Framsóknar og Sjálfstæðismann ef ég skil hana rétt:

Það er að ef það á að koma fram frumvarp til Alþingis þá skal það fyrst skoðað blákalt í utanríkismálanefnd og hagsmunaaðilar kallaðir til. Geri einnig ráð fyrir að þá vilji þeir að samningsskilyrði verði hluti af frumvarpinu en ekki bara ýjað að því svona með.

Þeir eru ekki að leggja til að farið verði í aðildarviðræður, einungis að faglega og skynsamlega sé unnið að gerð slíks frumvarps ef slíkt á að taka til atkvæða á Alþingi.

Hvað svo gerist þegar þar að kemur hvernig sumir flokkar eða þingmenn muni greiða atkvæði er annað mál.

Ekki er ég þó hrifinn af þessari ESB hringavitleysu á meðan mun brýnni mál eiga að vera í vinnslu.

Carl Jóhann Granz, 29.5.2009 kl. 13:26

5 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Heill og sæll félagi Bjarni

Finnst andstaðan við vettvang samstarfs innan Evrópu vera einmitt stefnulaus moðsuða. Sumir eru á móti vegna sérhagsmuna óg sumir vegna þess að þeir vilja hafa tengsl við Ameríku í forgrunni. Sumir vilja halda krónunni áfram, sumir vilja dollar, sumir vilja svissneskan franka, sumir vilja norska krónu.

Nú er verkefni Alþingis að ná sem breiðastri og mestri sátt um þingsályktun varðandi tilhögun og forsendur aðildarviðræðna. Þingmönnum ber að fylgja samvisku sinni. Tvöfalt þjóðaratkvæði í málinu væri bara skrípaleikur, enda vita allir að andstæðingar setja þá kröfu bara til að vinna tíma og gera umræðuna það leiðinlega að kjósendur hafi glatað áhuga á málinu. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 29.5.2009 kl. 13:58

6 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Gunnlaugur Samtök Fullveldissinna vilja hafa hagsmuni íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi og hafna því ánauð Brüsselveldisins.

Ísleifur Gíslason, 29.5.2009 kl. 14:19

7 identicon

Sæll Bjanri. Já það er orðið mjög aumt hvernig Samfylkingunni hefur tekist að véla um þessi ESB mál, fyrst gagnvart VG og nú er hún eiginlega með lymskubrögðum búinn að fá stjórnarandstöðuna á það líka að sækja um ESB aðild. 

Þetta er með hreinum ólíkindum hvernig SF hefur tekist að koma þessu ESB mál fyrir og jafnframt gera það að aðalmáli Þingsins.

Allar óskir okkar um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu virðast alveg vera komnar útaf borðinu með hjálp fjölmiðlavaldsins.

Nú vitum við það að það er ekkert á stjórnmálaflokkana að treysta í andstöðunni við ESB aðild. Þeir standa ekki einu sinni við sínar eigin flokksamþykktir. Fá allir hland fyrir hjartað vegna ESB málsins og sveigjast út og suður.

Þetta er ekkert nýtt eða sér íslenskt. Nákvæmlega svona var þetta líka í Noregi á sínum tíma, þar var öll stjórnmálaelítan nær einhuga í þessum ESB kór, allir fjölmiðlarnir sungu ESB lof og prís. Nær því allt sérfræðinga- og háskólasamfélagið mærði ESB og talaði um að Noregur myndi einangrast sem Norður Kórea Norðursins ef ekki yrði gengið inn.

Þar fyrir utan voru öll atvinnurekendasamtökin og verkalýðsforystan á einu máli um að ganga ætti í ESB þegar í stað.

Lengi vel var nú staðan þannig í skoðanakönnunum að það væri nánast bara formsatriði að kjósa svo mikill virtist stuðningurinn vera við ESB.

En þegar nær dró og ESB andstæðingar komu með sín rök þá dró á milli og á endanum kolfelldu Norðmenn aðild að ESB og það tvisvar sinnum.

Við munum líka gera það hér og ég held reyndar með enn meira afgerandi hætti en Norðmenn hafa gert.

Við þurfum bara að efla andstöðuna og gera enn betur grein fyrir því hvað við erum að missa og hvað það er í raun vitlaust að ganga í þetta samband sem er að breytst í Evrópu Stórríkið.

                          ÁFRAM ÍSLAND - EKKERT ESB- RUGL !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 14:30

8 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Bretland, Þýskaland, Frakkland, Ítalía, Svíþjóð, Danmörk, Finnland o.s. frv. eru lönd sem þú telur að hafi glatað sjálfstæði sínu og selt sig í ánauð? Þetta er holur málflutningur og í raun fordómafullur.

Við erum að stærstum hluta í Evrópusambandinu í gegnum EES og fáir hafa mótmælt neinu af þeim lögum sem innleidd hafa verið. Þau hafa reynst landi til farsældar og aukið lýðréttindi fólks.

Þar með talið að skikka atvinnubílstjóra og vinnualka að hvíla sig.

Gunnlaugur B Ólafsson, 29.5.2009 kl. 14:31

9 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

(Nafni kom á milli en svarið var til Ísleifs)

Gunnlaugur B Ólafsson, 29.5.2009 kl. 14:34

10 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Gunnlaugur B.

Við erum að minnstum hluta í ESB, enda hafa tollareglur sambandsins engin áhrif hér, við borgum ekki hlutdeild í vsk til ESB, við tökum ekki upp reglur um samgöngumál, heilbrigðismál, sameiginlega utanríkisstefnu og svo mætti lengi telja.

Axel Þór Kolbeinsson, 29.5.2009 kl. 15:21

11 identicon

Félagi Bjarni!

 " Full og óskoruð yfirráð yfir ÖLLUM AUÐLINDUM ÞJÓÐARINNAR".

 Þannig hljóðar hluti landsfundarályktunar Sjálfstæðisflokksins.

Á sama hátt munu einnig ALLIR þingmenn flokksins greiða atkvæði, hvað varðar ESB.

 Sjálfstæðisflokkurinn mun ALDREI mæla með aðild, ef ekki skýlaust framfylgt ofanskráðri landsfundar ályktun. Basta !

 " Gjör rétt, þol ei órétt"

 Þol ei heldur að menn fari kollsteypur með sannleikann !

 Eftir glæsisögu 80 ára, stendur Sjálfstæðisflokkurinn á krossgötum - en þó enn hnarreistur !

 Sjálfstæðismenn geta því sagt sem Rómverjar forðum: " Add indicium" - .þ.e. " Með heilbrigða skynsemi ( nær alltaf!!)

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 17:38

12 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sæll Bjarni bloggvinur,þessi séðasti sem þarna skrifar er mer að skapi Kalli Sveins/Við viljum ekki missa sjálfstæði okkar,en samvinna sem er okkur til frama og góðs er hægt að samþykkja/ kveðja/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 29.5.2009 kl. 18:09

13 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Gunnlaugur þú ert greinilega að tala sennilega fyrir borgun en ekki frá hjartanu.Í kvöldfréttum var sagt að Baugur og tengd félög hefðu stutt SF landráðaflokinn með rúmlega 40 millum,er kannski tenging á milli 40 milljóna og þessa einharða áhuga á inngöngu í ESB ég spyr bara???Baugur og tengdar verslanir hér á landi eru sennilega um 60-80% af öllum verslunum hér á landi og þeirra mesti gróði væri að komast í ESB geta flutt inn vörur ódýrt og ekki versla við innlendan iðnað og framleiðslu og þar með setja það á hausinn.Þetta er manni farið að gruna án þess að vita,kannski vita einhverjir eitthvað meira hérna á blogginu??Mér finnst nú helvíti hart af þessari aumu ríkisstjórn að ætla að láta okkur borga fyrir fjárglæframennsku þessara manna og líka að koma okkur í ESB galeiðuna.Er ekki nóg komið nú held ég að þjóðin þurfi að taka völdin og koma landinu í lag aftur,það erum við sem getum það en ekki ESB einsog kvislingarnir halda eða reyna að segja þjóðinni það með hvítum lygum.

Marteinn Unnar Heiðarsson, 29.5.2009 kl. 21:07

14 identicon

"óforbetranlegur fornaldardýrkandi "

Wakey wakey Bjarni, það er árið 2009 og Ísland er gjaldþrota eftir einmitt fólk sem hugsar eins og þú, einangrunarsinnar!

Ragnar Örn Eiríksson (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 21:38

15 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Sæll Bjarni,,,,í þessu máli, er það algert grundvallar atriði, að það sé ekki undir stjórn Samfylkingarinnar, einnar sér. Það er versta, mögulega útkoma.

Við, skulum ekki einfaldlega, reikna með, að samningur, sem þeir kæmu með heim, eftir að hafa legið kylliflatir með lotningarbliki í augum, á öllum samningafundum, muni algerlega pottþétt vera felldur.

Nei, Bjarnir minn,,,þá er miklu mun skárra, að stjórnar-andstaðan, setji Samfylkingunni stólinn fyrir dyrnar, og tryggi það; að það verði þó samið, með íslenska hagsmuni í fyrirrúmi.

Ég ætla ekkert að fullyrða, að líkurnar á svokölluðum góðum samningi, séu miklar. En, að minnsta kosti, myndi slík samninganefnd, koma með eitthvað, sem væri ekki eins slæm útkoma fyrir Ísland.

Síðan, hefði þjóðin loka orðið. Ég, ætla alls ekki, að lýsa því yfir hér og nú, hvaða afstöðu ég myndi taka í kjörklefanum.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 29.5.2009 kl. 21:55

16 identicon

Fullveldisíhaldið hefur sitt í gegn eins og venjulega, nú með því að drepa málið í þvííkum leiðindum að allir gefast upp. Skítt með það að landið fari á hausiinn, fullvalda sökkvum við. Samtök "fullveldissinna" sem tala af heilagri fyrirlitningu um þá sem vilja koma fjárhag landsins á fastan grurndvöll, enda þótt þeir hafi engin svör um hvernig við eigum að lifa í þessu landi á næstu áratugum. Og helstu rökin eru þau að með aðild að ESB glötum við yfirráðarétti yfir fiskinum. En hvaða rétt hef ég yfir þessum andskotans fiski, spyr ég. Það má ekki fyrna fiskveiðiheimildir því að það er búið að veðsetja þær langt fram í tímann. Var ég spurður? Varð ekki var við það. Hvaða mali skiptir það mig þá hver veiðir þenna fisk! Vandamálið er nefnilega það að Íslendingum, fullvalda og allt það, hefur gengið ágætlega að koma mér á kaldan klaka og ég sé ekki að ESB verði neitt öflugra í því -- nema síður væri. Hættið því þessu fullveldiskjaftæði, a.m.k. meðan íslenskum stjórnvöldum tekst ekki að sannfæra einn eða neinn um að þau séu starfi sín vaxin.

GH (IP-tala skráð) 30.5.2009 kl. 00:40

17 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Bjarni og takk fyrir síðast.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur svikið sína landsfundarsamþykkt vægast sagt og sé ekki betur en sama gildi um Framsóknarflokkinn, varðandi afstöðu í þessum málum.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.5.2009 kl. 01:23

18 identicon

Merkilegt, allt þetta ,,fullveldisfólk" er annað hvort gamlir menn, 60+ eða sveitafólk, eða bæði.  Þeir kalla svo upplýst fólk ,,elítu" í neikvæðri merkingu.  ;-)  hlægilegt fólk.  Nóbelsskáldið ,,elítan" hæddist að þessum forheimsku-hugsunarhætti hér fyrir margt löngu, persónugerði íslenska (þáverandi) hugsunarháttinn í Bjarti.  Sú líking á fullkomlega við enn þann dag í dag í málflutningi Bjarna og annarra ,,fullveldissinna" hérna.

Ísland fór á hausinn af því við vildum ekki hlusta á neina útlendinga með varnaðarorð, við erum svo ,,sjálfstæð" og klár.  Við vitum allt betur en útlendingar.  Svo segja Bjarni og félagar að allar þessar stórþjóðir hafi framselt fullveldi sitt og séu ófullvalda.  En við(þeir) Íslendingar séum eina þjóðin (ásamt Norðmönnum) sem sjáum í gegnum þetta.  Við(þeir) erum þau einu sem skiljum hvað er hér á ferðinni, þetta er afsal fullveldis en ekki samstarf.  Hinar heimsku þjóðirnar hafa ekki fattað þetta.  Ekki frekar en þær föttuðu hvernig átti að búa til stóra banka, það kunnum bara við.  Eða reka landbúnað, það kunnum bara við.  Eða vera sjálfstæðar, það kunnum bara við.

Mér finnst gaman að horfa á Bjarna og félaga (,,fullveldissinna") eyðileggja allt það sem mögulega gæti átt rétt á sér í málflutningi þeirra, með kjánalegum illa upplýstum málflutningi.  Svo eru líka svo margir furðufuglar að taka þátt í umræðunni á þessum nótum að einn og einn hófsamur með eitthvað vitsmunalegt fram að færa týnist í hafsjó hins veruleikafirrta fullveldisblaðurs.  Meðan ,,elítan" talar á upplýstari nótum.  Þess vegna mun þessi málflutningur styrkja ,,elítuna" en grafa undan þeim sjálfum.

S. (IP-tala skráð) 30.5.2009 kl. 09:12

19 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þetta er assgoti skemmtileg umræða...allt Ísland er greinilega fullt af fíflum. Ég held, að fólk, sem talar á þessum nótum, að hinir aðilarnir séu fífl, ættu að líta í spegil. Ég segi ekki meira, þeir taki til sín sem eiga.

Ábending til, andstæðinga aðildar. Það verður engin landauðn, þó við gögnum í ESB. 

Ábending til, talsmanna ESB aðildar, tímaramminn skiptir máli; með skuldir upp á 2. þjóðarframleiðslur, mun taka - mjög, mjög, mjög, mjög - langan tíma, að ná í Evruna. Látum okkur sjá - 95% þjóðarframleiðsla + 85% þjóðarframleiðsla + Icesave + halli næstu ára á ríkiskassanum = 2. þjóðarframleiðslur. 

Þannig, að við erum ekki að fara að ná í Evruna, innan sanngjarns tímaramma, þ.e. innan við 10 ár. Það mun taka, miklu lengri tíma, að lágmarki 15, sennilega 20 ár +.

Svo, rétti smanburðurinn, er milli EES og aðildar án Evru. Í þeim skilningi, fáum við ekki mikið úr þessu. Mín skoðun, er að með EES höfum við fleitt rjómann af ESB samstarfinu, og viðbótin sem við fengjum með aðild - Evru, sé einfaldlega ekki nóg, til að réttlæta inngöngu.

Jæja, komið með ykkar röksemdafærslu á móti.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 30.5.2009 kl. 11:08

20 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Gott innlegg hjá þér Einar Björn.

Axel Þór Kolbeinsson, 30.5.2009 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband