Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Þjóð sem getur ekki stjórnað eigin málum!

Hversu vel stenst sú skoðun að Íslendingar geti ekki stjórnað sínum málum og að við þurfum útlendan gjaldmiðil og útlenda leiðsögn í meðferð mála... Sjá meira.

Baráttufundur gegn ESB haldinn í Flóanum

Heimssýn, samtök sjálfstæðissinna í Evrópumálum halda opinn baráttufund gegn ESB aðild í Þingborg í Hraungerðishreppi kl. 20:30 annaðkvöld, þriðjudagskvöldið 19. maí.
Meðal frummælenda verða fulltrúar stjórnmálaflokkanna og gestir frá  Nej-til-EU í Noregi.
Hversvegna felldu Norðmenn aðildarsamning?
Hvaða hætta er fólgin í að senda Össur með fullveldi þjóðarinnar til Brussel?
Hvað gera Framsókn, Sjálfstæðisflokkur og VG í baráttu komandi vikna?
Fjölmennum og höldum hátt á loft baráttunni fyrir frjálsu og fullvalda Íslandi.

Er ESB fóbían óþörf?

Minn latínuskotni bloggvinur Kalli Sveins kommenterar við síðustu færslu og veltir fyrir sér hvort ESB-fóbían sé ekki að verða óþörf. Það taki Íslendinga hvort sem er 30 ár að uppfylla öll skilyrði ESB fyrir ingöngu !!

Betra að satt væri að þessvegna gætum við öll andað léttar. Tilfellið er að það tekur andartaks sofandahátt að glutra niður aldalangri baráttu fyrir fullveldi og frelsi. ESB löndin horfa til Íslands og Noregs vegna þeirra gífurlegu auðlinda og ríkisdæmis í landi og sjó sem fylgir þessum löndum. Landvinningastríð eru nú háð við svokölluð samningaborð þar sem þó er um fátt að semja...

Ef við setjumst að slíku borði mun ESB beita okkur grímulausum þrýstingi til að ljúka málinu með inngöngu,- jafnvel viðskiptaþvingunum og við erum ekki beint í stakk búin til að mæta slíku núna!

Ég ætla að treysta því að Borgarahreyfingin hleypi málinu aldrei í gegn nema að fyrst komi til þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort fara eigi í aðildarviðræður. Eða til hvers var annars búsáhaldabyltingin...


Fullveldissinnar aldrei mikilvægari

Við sem stóðum að L-listanum í upphafi kosningabaráttunnar erum enn að. Nú hefur undirbúningsstjórn gengið frá formlegri stofnun á félagsskap Fullveldissinna eins og lesa má um hér.   Það er ljóst að hlutverk stjórnmálahreyfingar sem berst einörð gegn ESB aðild er brýnna nú en nokkru sinni og alveg ljóst að til þess að vinna að verkinu þarf formlega stofnun félagssamtaka. Meira um þetta síðar...


Egill floginn í fótspor forfeðra sinna

egill_i_afganistanegillinn minn er alfarinn úr föðurhúsum og eftir sitja hnípin hjón  hjá ennþá hnípnari þjóð og mega nú muna sinn fítil fegurri og stekkinn meirum snerrubúð en nú er því aðeins er nú einn barnunginn eftir í húsum og þó varla því hann er fluttur í partíkjallarann og við elínin eins og gömul hjón alein í risinu eða turtildúfur sem ekki átta sig almennilega á að frumburðirnir þrír skuli nú allir flognir hvur til sinnar áttar, einn í nýju jórvík í fótspor síns langlangafa og annar nokkrum árum fyrr hér norður á árbakka ölfusár nokkrum hlöðulengdum frá okkur en sá þriðji og eini sem ekki er karlfugl austur í þau héruð þar sem túristar koma að skoða jökul og það er nú það en mest um vert væri nú ef egill fyndi einhver tangur eða tetur af frænda þeim sem halldór skagfjörð hafði barnungann með sér til vesturheims þegar hann fór þangað að smíða borg þá sem nú heitir alminnilegast new york og ku vera þar fagurt handbragð á eldri húsum sem dóri þessi afi hans afa míns bangaða saman fyrir rauðskinna og kúreka og vel hefur enst og betur en sum hin nýrri hús sem þar voru reist þvert á flugleiðir en engar voru þá flugvélarnar að týna sér í en samt fór það svo að hann sigurbjörn langafabróðir minn týndist í plátzi þessu og hefur enginn maður séð hann síðan utan þá kanar og kannski orðið of seint að 0015slz1leita nú en sumir lenda á glapstigum sem til útlanda fara og aðrir kvennafari og eins víst að hvorutveggja og fleira gott hafi hent þennan frænda minn sem smiðurinn aldrei fékkst til að tala um þegar hann aftur kom hingað heim til þess að bera beinin í honum skagafirði eins og skagfirðinga er siður og raunar skrýtið að því skuli ekki hafa verið meira á lofti haldið að kauptún þetta í vínlandi er skagfirskt í öllum sínum hagleik og það veit ég að egill minn sér núna og á eftir að sýna öldruðum föður næst þegar við finnumst því hans verkefni þarna ytra utan að leita sigurbjarnar er að mynda með fótótækni í tilsögn hins heimskunna steve mccurry sem ku heimsfrægur og áreiðanlega af skagfirskum ættum eins og flest fólk sem náð hefir heimsfrægð…

(um myndir: egill eins og hann sást síðast í afganistan og stúlka sú sem mest gerði portretmanninn mccurry heimsfrægan og hefir græn augu en það er varla úr okkar ættum og því strax hægt að útiloka að hún sé með í leitinni og eins og þar segir þá munar um hvern einn en ef einhverjir vildu nú þar vestra vera svo vænir og gera svo vel og hjálpa honum agli mínum að leita þá er ættfræðin þannig að strákurinn sem nú byggir new york er bjarnason, harðarsonar, sigurðssonar, benediktssonar halldórssonar skagfjörð en halldór sá átti að yngri syni sigurbjörn þann sem settist að í new york og hljóta hans afkomendur því að vera nauðalíkir agli skyldleikans vegna en af þeim eigum við hvorki myndir, heimildir, nöfn né sjúkraskýrslur og er þó allt vafalaust til í þar til bærum stofnunum vestra...)


Kjósum fyrst um stjórnarskrá og ESB-aðild

Það er auðvitað fráleitt að naumur meirihluti Alþingis feli ríkisstjórninni að aðhafast það sem er andstætt stjórnarskrá. Þingmenn eru eiðsvarnir Stjórnarskrá lýðveldisins og ber að hegða sér í samræmi við það. Það er enginn ágreiningur um að ESB-aðild gengur gegn fullveldisákvæðum stjórnarskrárinnar. Þessvegna verður fyrst að breyta Stjórnarskránni og síðan er lágmark að almenningur fái að kjósa um þessa tillögu Össurar Skarphéðinssonar. Staðreyndin er að það er ekki hægt að hefja viðræður nema sækja um og lýsa yfir vilja til að ganga í ESB.

Dettur einhverjum í hug að almenningur sé til í að senda Össur Skarphéðinsson til Brussel með fjöregg þjóðarinnar í jakkavasanum?

Það er reyndar að finna í flokkssamþykktum allra fjórflokkanna ákvæði um að áður en farið skuli í viðræður skuli fyrst efnt til þjóðaratkvæðis. Hvað er að gerast að forystumenn þessara flokka ætli að skauta framhjá því núna...


mbl.is ESB-tillagan birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tröllkonutrog í Henglinum og hrekkjóttar vinnukonur

Helgi Ívarsson fræðimaður í Hólum bloggaði aldrei en var seinustu árin afkastamikill í fræðagrúski. Eins og hér hefur verið sagt frá gefur Sunnlenska bókaútgáfan út lítið kver með greinum eftir Helg. Hér eru sýnishorn þessara skrifa, fyrst merkur þjóðfræðipistill af æskuslóðum Helga:

http://bokakaffid.blog.is/blog/bokakaffid/entry/876588/

og hinsvegar smá brot innan úr lengri pistli þar sem fjallað er um matargerð og hrekki

http://bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar/entry/876577

Meira síðar...

Fáum við ESB útaf borðinu!?

Fjölmargir ESB andstæðingar hafa kokgleypt þá hugmynd að með einföldum aðildarviðræðum við ESB og síðan kosningum þar sem þjóðin hafnar aðild séum við að vinna pólitískri umræðu í landinu þann ómetanlega greiða að fá málið út af borðinu.

Gegn þessu eru óteljandi rök:

- ESB er aldrei út af borðinu, það er ekki reynsla Norðmanna þar sem ESB-sinnar eru sífellt að efna til ófriðar um málið þó kosið hafi verið tvisvar og sama er að segja úr Svíaveldi þar sem naumur meirihluti ESB-sinna sigraði aðildarkosningar.  Fullveldisbarátta smáþjóða er eins og mannréttindabarátta og önnur pólitík ævarandi barátta við heimsku og fordóma.

- Við getum ekki farið í aðildarviðræður nema meirihluti þings og ríkisstjórnin vilji í aðild. 

- Við getum ekki reiknað með að kosning um aðildarsamning verði kosning um aðild eða óbreytt ástand. ESB er ófeimið við að beita þrýstingi og því miður vafamál að Ísland hafi samningsstöðu til að segja nei ef landið sest að samningaborði. Við getum með aðildarumsókn hrint af stað atburðarás sem stórskaðar okkar samninga við ESB löndin eins og þeir eru í dag - og eru samt ekki of góðir.

-  ESB yfirráðastefnan er landvinningastríð. Ísland er gómsætur biti með auðlindir á við milljónaþjóð og skuldir sem eru ekkert miðað við auðlindirnar. ESB mun búa til "tilboð" sem er ekki hægt að hafna og taka það svo allt til baka á næstu árum þegar ríkjabandalagið þróast yfir í ríki! 

- Ísland getur hæglega breyst í afskekktan útkjálka. Öll hagkerfi hafa tilhneigingu til að draga fé, fólk og völd að einum miðlægum punkti. ESB er þar engin undantekning og sá miðpunktur verður álíka fjarlægur Raufarhöfn og Reykjavík...

 


Helgakver er í undirbúningi

 

helgi_ivarsson_sh



Sunnlenska bókaútgáfan undirbýr nú útgáfu á Helgakveri, bók sem hefur að geyma brot af því besta úr skrifum Helga Ívarssonar í Hólum í Stokkseyrarhreppi (1929-2009).

Helgi var með merkustu fræðimönnum Árnesinga og eftir að hann hætti búskap ritaði hann reglulega pistla í Sunnlenska fréttablaðið undir dálkaheitinu Sagnabrot. Sagnabrot Helga urðu á þriðja hundraðinu en í bókinni verður aðeins birtur hluti þeirra.

Áætlaður útgáfutími er komandi haust. Fremst í Helgakveri verður birtur listi yfir þá sem vilja votta Helga virðingu sína með því að gerast áskrifendur að bókinni. Fyrir nafnbirtingu greiða áskrifendur 3300 krónur. Hægt er að skrá sig í tölvupósti bokakaffid@sunnlenska.is eða beint í athugasemdakerfi hér að neðan.


Mynd af fátækt og ríkidæmi

kiddi_setta_kristbjorg_sjana.jpg

 

 

 

Á degi eins og þessum þegar  hvur maður á síns föður að hefna á versunni og má varla milli sjá af hvoru er meira heimskunni eða rigningunni er langsamlega best og skemmtilegast að blogga um langömmu sína sem stendur hér eins og bedvínaforingi í hópi síns fólks austur á Fáskrúðsfirði fyrir meira en hálfri öld síðan og kerlingarnar báðar tvær í stóískri ró þess sem vel veit að þetta fer einhvernveginn og ef illa þá allavega ekki verr en það en Kiddi frændi lítur prakkaralega framan í veröldina eins og það sé hann sem hafi laumast til að kroppa ofan í miðbikið á myndinni þannig að nú sér enginn hvað Kristbjörg systir hans er að hugsa þennan dag og týnt það andlitið sem fríðast var í þessu litla samkvæmi enda stúlkan sú kannski of skynsöm til að vera nokkuð að bæta hugsunum inn í þessa mynd sem kemur til okkar nú á tímum þegar menn hafa hugsað í hringi og halda að við séum fátæk í ríkidæminu rétt eins og þessar konur sem vissu sig ríkar í fátæktinni en samt voru þær báðar, Sjana hans Sjönu Björns sem er hér til hægri og langamma mín Setta allra kerlinga fátækastar í litlu fátæku plássi og máttu stundum éta slepjað saltket á útmánuðum en vonda soðningu um sumarmál og enginn kvartaði


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband