Heilagar kýr

Heilagar kýr eru skemmtilegar, svolítið óskammfeilnar og merkilegar skepnur. Ég hefi oftar en einu sinni séð viðbrögðin á götum úti í Indlandi þegar einhver stuggar við þeim.

Kýrin verður ólundarleg en varðmenn hennar ærast hreinlega, enda handhafar bæði sannleikans og guðdómsins. Nú hefi ég aldrei prófað að blogga um kýr þessar enda yrði það að vera á Hindí eða Urdu til að koma að gagni og þau mál kann ég ekki.

En kýr þessar eru til í öllum löndum. Ég hefi nokkrum sinnum hnotið um þær í bloggi hér heima og fengið yfir mig slíkan reiðilestur og vandlætingar að hrein unun er að. Nokkrum sinnum hef ég skrifað örfá orð um félag meintra trúleysingja, Vantrú og fengið yfir mig holskeflu móðursýki frá fólki sem telur sig trúlaust en býr yfir miklu ofstæki.

Síðan hef ég ekki fundið sambærilega kú í landinu fyrr en með smá bloggi um Jón Gnarr. Að efast um ágæti Besta flokksins vekur svipuð viðbrögð og þegar einhver heiðinginn rekur frá sér kú á grænmetismarkaðinum í Delhí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Ég held í hreinskilni sagt, Bjarni, að þú hafir sjálfur kallað yfir þig þessi viðbrögð. Ekki með því að gagnrýna Jón Gnarr og Bezta flokkinn, heldur fyrir það að skrifa í umræddri færslu þinni að þessar lýðræðislegu kosningar væru atlaga að lýðræðinu, sem er bull. Kosningabarátta flokks getur verið lýðskrum, en réttmætar niðurstöður úr lýðræðislegum kosningum geta aldrei nokkurn tíma verið atlaga að lýðræðinu, því að það er mótsögn.

Á hinn bóginn var staðsetning Sóleyjar Tómasdóttur efst á framboðslista VG ólýðræðislegt. Og m.a. þess vegna fékk VG svo slæma útreið.

Vendetta, 5.6.2010 kl. 11:30

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Möööö. 

Fólk er smá saman að átta sig á að Jón Gnarr gerir engan mun á gríni og alvöru. Grín er alvara og alvara er grín. Hann lifir í Kardimommubæ eigin óra.

En það fer um mig aulahrollur þegar ég sé Dag reyna að leika með Jóni. Jón er eins og brjálaði kúrekinn sem skýtur af skammbyssunum sínum niður við fætur Indíánans til að fá hann til að dansa. Dagur hoppar og skoppar en af andliti hans skín skelfingin.

Um þessar mundir held ég að Jón Gnarr og Félagar ætli bara að láta kylfu ráða kasti. Alvöru stjórnsýslan lendir á Degi og Jón sprellar uns hann fær leið á því. Kannski reynir hann að verða bara alvarlegur alvöru pólitíkus, en þá er spilið líka búið og umboð kjósenda útrunnið.-

Svanur Gísli Þorkelsson, 5.6.2010 kl. 12:00

3 identicon

Góður punktur um heilagleikann Bjarni en fyrirtæki mitt fékk yfir sig gusu svívirðinga í vetur því ég leyfði mér að gagnrýna Vantrú sem er sértrúarfélag sem hefur fundið sannleikann hinn eina. Allir ósammála eru fífl í þeirra augum og skoðunum þeirra ber að eyða.

Alveg hlægilegur svona komið frá rétt ríflega 100 manna félagsskap sem leggur stund á skítkast ofstæki og mannhatur.

Ég bíð enn eftir afskökunarbeiðni Vantrúar en þeir eru ekki menn til þess því Þeir eru hin heilaga kú íslenks sértrúarlífs. 

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 5.6.2010 kl. 12:09

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Bjarni þarna eru við eins og oft mikið sammála,þessar heilögu Kýr eru þarna ,og ósnertanlegar/mæltu manna heilastur/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 5.6.2010 kl. 12:44

5 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Það er náttúrulega guðlast að gagnrýna Vantrú ...

Jón Á Grétarsson, 5.6.2010 kl. 13:42

6 identicon

nei heyrðu Bjarni, eru menn en að sofa úr sér í Árborg? :)

sandkassi (IP-tala skráð) 5.6.2010 kl. 13:46

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

"Aldrei getur beljudjöfullinn séð tíkarræfilinn í friði" sagði Guðbjartur sjálfseignarbóndi forðum þegar kýrin snerist til varnar gegn ofsa tíkarinnar.

Mí sýn á málið er dálítið á annan veg en þín Bjarni minn góður og hún er einhvern veginn svona:

Þegar Besti flokkurinn fór að sýna fylgi og reis í hverri skoðanakönnun fóru hinar heiögu kýr stjónmálanna og kúasmalarnir að óróast. Margur bloggarinn missti stjórn á sér og frussaði út úr sér hinum verstu fúkyrðum jafnt um "leiðtoga!" flokksins sem og þá sem voguðu sér að veita honum brautargengi.

Þá fór margt úr Sjálfstæðu fólki að rifjast upp fyrir mér.

Árni Gunnarsson, 5.6.2010 kl. 14:00

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Bjarni minn. Eitthvað er nú óskýrt í þessari fyrirlitningu á Besta-flokks-félögum?

Ég hreinlega skil ekki af hverju sumir vilja alls ekki breytingar í Íslenskri pólitík?

Sérstaklega þegar breytingarnar eru til hins betra!

Réttlæti og mannréttindi eru í mínum huga heilagasta aflið! Skil ekki samhengið á milli kúa og mannréttinda? En kannski á ég bara eftir að læra það?  M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.6.2010 kl. 14:20

9 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Fólk talar um "réttlæti og mannréttindi" í tengslum við breytingarnar í íslenskri pólitík. Hvar sér þess merki í gjörðum Jóns Gnarr fram að þessu eða í stefnumálum hans (ef stefnumál má kalla)  að réttlæti og mannréttindi séu höfð í fyrirrúmi frekar en áður var? 

Jón fetar alla vega sömu  gömlu flokkspólitísku leiðirnar til að mynda meirihluta í borgarstjórninni. 

Þessi netsíðu-athugasemdakassi sem komið hefur verið upp er jú ágæt hugmynd en það eru "verkin sem tala" svo maður vitni beint í kappann. 

Svanur Gísli Þorkelsson, 5.6.2010 kl. 14:45

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það hefur samt ekkert upp á sig að láta eins og naut í flagi yfir nokkrum beljurössum!

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.6.2010 kl. 15:45

11 identicon

Félagi Bjarni !

 Tuttugu þúsund sex hundruð sextíu og sex kjósendur í Reykjavík, létu trúðinn Jón Gunnar Kristinsson, gera sig að algjörum fíflum !

 Aldrei fyrr í íslenskri stjórnmálasögu hefur sirkushópi tekist jafn vel ætlunarverk sitt, þ.e., að hæða og spotta saklausa einfeldinga !

 Og " Dag skal að kveldi lofa" !!

 Var útreið Samfylkingarinnar í bæja & borgarstjórnakosningunum ekki nægilega skelfileg ?

 36,4% fækkun kjósenda milli ára !

 Og nú leiðir varaformaðurinn trúðana til hásætis !!

 Fyrir ári var sagt.: " Guð blessi Ísland" - Í dag má bætra við: ... og sér í lagi Reykvíkinga!"

 Mikill meirihluti þjóðarinnar bókstaflega mállaus af undran, eða sem Rómverjar sögðu.: " Vox faucibus haesit", þ.e. " Mállaus af undran" !!

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 5.6.2010 kl. 16:01

12 Smámynd: Grétar Ómarsson

Hvað er að?. þjóðin velur fulltrúa og borgarbúar völdu besta flokkinn, er eitthvað athugarvert við það? þetta segir okkur að hinir flokkarnir eru að gera eitthvað rangt frekar en að besti flokkurinn sé að gera eitthvað rétt.

Meirihluti kjósenda í RVK eru að kalla á breytingar, burt séð frá því hverjar þær eru, en núna er besti flokkurinn að sækja um starf í RVK sem almenningur greinilega réði þá í, lýðveldið hefur talað, og okkur ber að virða það.

Þetta er 4 ára ráðningasamningur sem lýðurinn veitti besta flokknum og nú er það þeirra að sanna fyrir borgarbúum að þeir standi undir hlutverkinu sem þeir voru ráðnir í. 

Annars verða þeir REKNIR á næsta kjörtímabili af lýðnum. 

SVONA VIRKAR LÝÐVELDIÐ!!!!

Grétar Ómarsson, 5.6.2010 kl. 16:12

13 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sigurður þór og allir hinir! Er það ekki einmitt mál málanna að fólk vill hvorki stjórnlaus græðgis-naut í flagi né heilaþvegnar græðgis-beljur í stjórn í réttlætis-borgar-pólitíkina? M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.6.2010 kl. 20:25

14 Smámynd: Árni Gunnarsson

Í borginni þekkist ei vol eða víl

og vikinn á brottu er kvíðinn,

því við eigum hámjólka heilagar kýr

sem af húsþökum ávarpa lýðinn!

Árni Gunnarsson, 5.6.2010 kl. 21:20

15 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Bjarni. Skemmtileg færsla hjá þér og eins kommentin. Það sem Svanur Þorkels segir er eins og talað út úr mínu hjarta. Aulahrollur og angist settust að mér við útsendingu kastljósþáttar í gær þegar fyrsta viðtal var tekið við þá félaga Jón og Dag. Jón talaði um að hlusta á fólkið en svo var það of flókið fyrir hann, grey karlinn, þannig að hann lét bara Dag um málið. Skoðanakannanir sögðu að flestir vildu Hönnu Birnu en ekki Jón Gunnar í borgarstjórastólinn. Samt velur hann Samfylkinguna til að bjarga sér. Mér fannst þetta sniðugt framboð í skoðanakönnunum og þess háttar en að skrifa þetta á spjöld sögunnar er svolítið annað mál. Það verður fróðlegt að sjá hvað er í pakkanum " Allskonar fyrir aumingjana"  En kannski verður þetta skemmtilegasti "vaktarþátturinn" hans Jóns en samt fokkmerki framan í hugsandi fólk og þá er ég ekki að meina neinn fjórflokk eða stofnanir í embættismannakerfinu. Ég held að stór hluti Reykvíkinga séu niðurbrotnir yfir þessu háði en við í Kópavogi höfum tekið til í okkar ranni og valið vit og reynslu til að stýra hér málum eins og sést best á okkar nýja bæjarstjóra. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 5.6.2010 kl. 21:33

16 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Árni minn! Þetta var flott hjá þér! M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.6.2010 kl. 21:34

17 Smámynd: Árni Gunnarsson

Nú kom í ljós að það var ekki að ástæðulausu sem ég hef verið varaður við því að taka til máls ófullur og þá allra síst í bundnu máli. Mér varð það á að taka rímorð sem ekki passar í endarím fyrstu hendingar og verð því að breyta þessu hugþekka ljóði!

Nú lifnar það afl sem í borginni býr.

Að baki er gremjan og kvíðinn.

Því við eigum hámjólka, heilagar kýr

sem af húsþökum ávarpa lýðinn.

Og ég bið alla sem lesa afsökunar en þó mest sjálfan mig.

Árni Gunnarsson, 5.6.2010 kl. 21:53

18 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Efast um að íslendingar verði eins þolinmóðir og hindúar.  Efa það stórlega.

Nú vil eg eigi goð geyja, en í rauninni er synd að honum Jóni skuli hent inní þetta núna á þessum erfiðu tímum.  Það er málið sko í mínum huga.

Að framundan er niðurskurður og hækkun gjalda hjá sveitarfélögum almennt, þ.á.m. Rvk.

Þá segja sumir eitthvað á þá leið:  Ja, já já en nú verður sparað í allskyns gæluverkefnum o.s.frv og nefna eitt og annað.

Vandamálið við þessa framsetningu er, að stærstu útgjöldin eru til almannaþjónustu.  Svona grunnþjónustu.  Jú jú, þó hitt allt sé samanlagt dáldlir peningar, þá er það bara dropi í hafið miðað við hinn mikla massa í grunnþjónustunni.  Að ætla bara að spara í alskyns gæluverefnum eða óþarfa sem kallað er, það er bara eins og að hella úr vatnsglasi í Atlandshafið. 

Það virkar ekkert eða sér ekkert á nema að taka á stórum málum - og menn vita alveg hvað þýðir meðal almennings ef það er gert:  Big problem og varnarbarátta.  Og ofaná þetta þarf svo etv. að hækka gjöld.

Um þetta hafa viðvörunarorð mín alltaf snúist.  Eg hef sagt: Hver er stefnan?  Hvar eiga áherslupunktar að vera, hvað ætla menn að gera o.s.frv. .  Og í samanlögðu ofannefndu samhengi,  er alveg mergjað að hægt sé að fara í gegnum heila kosningabaráttu í höfuðborg landsins - án þess að nokkuð sé minnst á stefnu, nema þá bara sem neðanmálsgrein einhversstaðar.  Og þetta sko varð til að stefna amennt, hinna flokkanna líka, hvarf bara.  Varð eitthert aukaatriði og aðalmálið var eitthvað allt annað hjá fjölmiðlum, svo sem sniðuglegheit og þess háttar.  Hvítabjörn og eitthvað.

Það er alveg magnað að 1/3 Rvk. búa skuli kjósa svona og ekki allt búið enn!  Nei, annar 1/3 Rvk. búa kýs Sjallaflokk!  Hallú.  Alveg mega sko.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.6.2010 kl. 21:54

19 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ómar Bjarki! Engum treysti ég betur til að skipta köku Reykjavíkur-útsvarsins réttlátar en Jóni Gnarr.

Hann hefur svo gífurlega reynslu og þekkingu á hvað er mikilvægast til að öllum geti liðið þolanlega, en ekki bara sumum eins og verið hefur?  M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.6.2010 kl. 22:18

20 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

Sæll Bjarni, ég er þér sammála og ég get heilshugar tekið undir með Kollu í nánast öllu, sem og flestum athugasemdunum hér að ofan líka. Enda er þetta allt í anda þess sem ég hef sjálf hef verið að fjalla um. Þakka góðan kveðskap frá þér Árni. Góðar stundir

Hulda Haraldsdóttir, 6.6.2010 kl. 00:38

21 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hi aftur . Hér er breytingartillaga við fyrri vísu Árna.

Í borginni þekkist ei vol eða víl

og vikinn á brottu er kvíðinn,

því þar má sjá hóp af húmoristaskríl 

sem af húsþökum ávarpar lýðinn!

 :))) reikna með að Árni hafi gert þetta viljandi til að kalla á viðbrögð sem eru jafn augljós og þessi. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 6.6.2010 kl. 10:25

22 Smámynd: Vendetta

Stökur Árna eru rétt kveðnar bragfræðilega. En ekki þín breytingartillaga, Kolla, þar eð þriðja braglína hefur of mörg atkvæði og það hefur sjaldan þótt góður skáldskapur.

Varðandi Kópavoginn, þá þarf nánast ekkert að gera til að nýr meirihluti verði hæfari en sá gamli. En það er ekki fyrirfram gefið, að þessi nýi bæjarstjóri geri nein kraftaverk, það mun tíminn leiða í ljós. Að vera umsjónarmaður eins takmarkaðs sviðs er ekki sama og taka ábyrgð á heilu bæjarfélagi.

Á hinn bóginn er ekki fyrirfram gefið, að Jón valdi ekki borgarstjóraembættinu eins og þú heldur fram, það verður líka að koma í ljós. Og hann gerir sér fulla grein fyrir alvöru málsins. Bara af því að hann er leikari, þýðir ekki að hann hafi ekki vit á borgarmálum. Ég veit ekki betur en að Arnold Schwarzenegger sé ágætis ríkisstjóri í California. Og hann var leikari ... eða þannig.

Vendetta, 6.6.2010 kl. 12:45

23 identicon

Clint Eastwood í bænum Carmel í Californiu, stóð sig með miklim ágætum.

Ég veit annars ekki hverjir eru gjaldgengir í hvað. Á hverjum degi fylgist ég með alþingi sem að stórum hluta kann ekki til verka þrátt fyrir menntun í mörgum tilvikum, breytir engu ef menn eru ekki færir á sínu sviði.

Enginn má sækja um stöðu Seðlabankastjóra nema vera hagfræðingur, fór það í gegn eða? Man það ekki enda of vitlaust til þess að leggja á minnið.

Spurningin er fyrst og fremst hvort að menn séu heiðvirðir.

Þá vegur intelect og gáfur ekki þungt enda tiltölulega almennir þættir, sama má segja um menntun.

En heiðvirður maður getur gert hvað sem er. 

sandkassi (IP-tala skráð) 7.6.2010 kl. 01:20

24 Smámynd: Billi bilaði

Af hverju verða menn hissa, Bjarni, að fá steina í glerhús sitt þegar þeir níða náungann?

Billi bilaði, 7.6.2010 kl. 13:24

25 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég bíð enn eftir rökum frá þeim sem fyrirfram telja Jón vanhæfari en hina flokksuppalina gæðinga sem fæstir hafa nokkra praktíska reynslu af því að vera almenningur.

þeim mun stærra sem menn taka upp í sig, þeim mun meira þurfa menn að kyngja.

það verður fróðlegt að fylgjast með framvindunni og sjá hverjir ná að kyngja án þess að svelgjast á.

Brjánn Guðjónsson, 7.6.2010 kl. 19:24

26 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Vendetta. Takk fyrir tilsögnina en hún var óþörf ég vissi þetta en var bara að henda fram tillögu um rímið. Hefði átt að vanda mig meira þín vegna. Ef mönnum finnst ég hafa tekið stórt upp í mig þá hef ég rétt á minni skoðun en ég er nú vön að gefa mönnum tækifæri til að sanna sig og ét þá fúslega ofan í mig, ef þarf,  til að menn njóti sannmælis. Hinu leyni ég ekki að það voru mikil vonbrigði að hann skyldi fara beint í að mynda meirihluta og loka á aðra borgarfulltrúa nákvæmlega eins og alltaf hefur verið gert. Menn vita ekkert um það hvort þessi flokkur hefur stefnu eða ekki. Þeir hafa meira að segja sagt að þeir lofi að svíkja öll loforð og yfirlýsingar. Hvort hann Jón Gunnar er eins mikill leikari og þeir sem að framan eru taldir ætla ég ekki að dæma um enda ekki leiklistarmenntuð :)) kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 8.6.2010 kl. 12:07

27 identicon

Leiklistarmenntun er mjög góð menntun.

sandkassi (IP-tala skráð) 8.6.2010 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband