Vofa kommúnismans!

Kommúnistaávarpið hefst á meistaralegri orðræðu Karls Marx um vofu kommúnismans sem gangi nú ljósum logum í Evrópu. Síðan eru liðin 160 ár og draugur þessi lætur lítt á sjá. Við talsmenn Draugasetursins á Stokkseyri höfum margoft boðið draug þessum að setjast að í kyrrð á setri voru en forgefins.

Vofa þessi leikur stórt hlutverk í stjórnmálaumræðu á Íslandi eins og allsstaðar í Evrópu og það hættulegasta við hana er að sumir halda hana dauða eftir að kalda stríðinu lauk. Allsstaðar þar sem misvitrir alþýðuleiðtogar ala á sundrungu, hræðslu við framtíðina og óljósu réttlætishjali. Allsstaðar þar sem alið er á óttanum við hið skipulagslausa og villta hagkerfi kapítalismans. Allsstaðar þar er vofa kommúnismans á ferð. Draugi þessi fylgir myrkur, fáfræði, kúgun og eymd.lenin

 

Kommavofan í ES

Við hittum vofu þessa fyrir í Evrópuumræðunni og endurvakta í skrifræðisskrímslinu í Brussel þar sem því er trúað líkt og í Kreml að hægt sé að stjórna öllu stóru sem smáu með blýanti. Meistarinn úr Suðursveit, Þórbergur Þórðarson orðaði þetta einhverntíma svo að sá munur væri á kapítalismanum og sósíalismanum aðíá síðarnefnda kerfinu væri stjórn samfélagsins vísindaleg. Það þarf ekki að taka það fram fyrir lesendum að Þórbergur var í senn einn mesti andans snillingur þjóðarinnar á 20. öld og mestur rati í pólitík. Og gallharður sósíalisti.

En einmitt þeir sem trúa á vísindin í þjóðfélagsstjórnun verða alltaf andstæðingar frelsisins. Og fyrir utan hin járngráu lönd kommúnismans er helsið eiginlega hvergi meira og verra en í Evrópusambandsríkjunum.

 

Ófrelsishugsun Framtíðarlandsins

En þessi helsishugsun, trúin á ófrelsið og hin þjóðfélagslegu vísindi birtist víðar. Kemur í raun og veru glögglega fram í hræðsluáróðri Framtíðarlandsins þar sem hamrað á að við verðum að stöðva allar framkvæmdir í landinu þar til við höfum með vísundunum einum að vopni komist að því hvar megi velta steini og hvar ekki. Það megi alls ekki leyfa stjórnmálamönnum að ákveða neitt í þeim efnum, valdið eiga að vera hjá embættisráðnum vísindamönnum sem eru óskeikulir.

Nú er það auðvitað svo að vísindamenn geta ekkert betur en fiskvinnslukonur að bændur tekið pólitískar ákvarðanir. Og það verður aldrei neitt annað en pólitísk ákvörðun hvar við eigum að heimila framkvæmdir og hvar við eigum að friða. Það eru ákvarðanir sem eru hvergi betur komnar en hjá lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum þessa lands. Allt hjal um að færa völd stjórnmálamanna yfir til andlitslausra vísindalegra embættismanna er angi af draugagangi. Draugagangi kommúnismans.

 

Þjóðnýtingaráform í sjávarútvegi

Þriðja dæmið um þennan draugagang sem mig langar til að víkja að hér eru þjóðareignarhugmyndir. Nýlega lögðum við Framsóknarmenn til að í Stjórnarskrá landsins væri sett ákvæði um að fiskimiðin væru þjóðareign. Ákvæði sem væri ekkert annað en staðfesting á því sem er og skerpir um leið á þeirri stöðu sem er í kvótakerfinu sem er kerfi þar sem ákveðinn hópur manna hefur takmarkaðan og tímabundinn veiðirétt. Réttsýnir menn hafa lengi talið brýnt að skerpa á þessari réttarstöðu og brjóta á mögulegum hefðarrétti útgerðar.

Skuspilið sem vinur minn Össur Skarphéðinsson setti í gang af þessu tilefni sannfærði mig um þrennt. Fyrst að það er ekkert nýtt undir sólinni. Í öðru lagi að Össur hefur engu gleymt síðan hann var blóðrauður bolsi á Þjóðviljanum. Í þriðja lagi að bolsum er nú sem fyrr mest um vert að efna til ófriðar. Þjóðarhagur,- hvað kemur þeim hann við!

En kommarnir í landinu komu allt í einu grímulausir fram og töluðu eins og það væri réttlætismál að þjóðnýta sjávarútveginn. Glömruðu á fölskum kommaloforðum um réttlæti sameignarkerfisins svo að jafnvel krimti af gleði í löngu stirfnuðum múmíum þeirra Leníns gamla og Stalíns.

 

Höfundur skipar annað sætið á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi og er sérfræðingur í draugagangi. Birt í Blaðinu í Reykjavík í dag, 24. mars 2006

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Já, við trúum enn helstu kennisetningu Marx: Hver leggi til samfélagsins eftir getu, en fái eftir þörfum! Megi nú draugurinn magnast sem mest hann má og setjast að á hálftómu þurrklofti sunnlenskra Framsóknarmanna! 

Auðun Gíslason, 24.3.2007 kl. 23:48

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Nu likar mer við þig Bjarni ,það hveður að hjá þer og láttu kommana bara hafa það ,við þekkjum þá,og .eir blekkja okkur ekki!!!!Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 25.3.2007 kl. 00:00

3 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Bjarni, við þennan morgunlestur fór ég að hafa samúð með Laxnes og öðrum sem að hafa orðið fyrir einelti stjórnvalda og eru í anda McCarthy. Svelgdist örlítið á morgunteinu! Er nokkur fasisma uppgangur þarna á Selfossi? Þú virðist ekki ætla að fara í tertuboð með Valgerði í tengslum við 50 ára ESB afmælið. Greinin finnst mér vel skrifuð en það er sterklega verið að höfða til fordóma með henni.

Bjarni, hvað finnst þér um það að Styrmir Gunnarsson sagði í nýlegu sjónvarpsviðtali að hann hafi hneygst til þjóðernishyggju á yngri árum. Sama gerði Eyjólfur Konráð sem var ritstjóri. Ert þú ekki til í að sýna þeim álíka dómhörku fyrir að vera nasistar, eins og sletturnar sem Össur fær fyrir að hafa verið ritstjóri Þjóðviljans?

Gunnlaugur B Ólafsson, 25.3.2007 kl. 00:12

4 identicon

Þetta er flottur pistill.

Atli (IP-tala skráð) 25.3.2007 kl. 12:22

5 Smámynd: Auðun Gíslason

Ákvarðanatakan á auðvitað að vera hjá lýðræðislega kjörnum fulltrúum. Þegar Kárahnjúkavirkjun var til umræðu hjá lýðræðislega kjörnum fulltrúum íslensku þjóðarinnar á Alþingi beitti þáverandi iðnaðarráðherra Valgerður Sverrisdóttir þeirri gerræðislegu aðferð að halda fyrirliggjandi upplýsingum leyndum (allavega lagði þær ekki fram) fyrir þinginu. Það er kannski dæmi um hvernig lýðræðisleg vinnubrögð eiga ekki að vera. Til þess að taka ákvarðanir þurfa allar upplýsingar að liggja fyrir, ekki bara þær sem henta stjórnarherrunum hverju sinni. Annað dæmi um ólýðræðislega ákvarðanatöku (það var ólýðræðisleg ákv. að skammta þinginu valdar upplýsingar) er ákvörðunin um stuðninginn við innrásina í Írak. Hún var tekin af tveimur mönnum og byggðist á einhliða völdum upplýsingum. Aðrar ríkisstjórnir tóku ákvörðun,  sem byggðu á öðrum upplýsingum, og studdu ekki innrásina. Þessvegna er ekki hægt að réttlæta ákvörðunina um stuðninginn með því að miðað við þær upplýsingar sem fyrir lágu hafi ákvörðunin verið rétt. Það voru notaðar einhliða valdar upplýsingar við mjög svo ólýðræðislega ákvarðanatöku. Er ekki kominn tími til að framsóknarmaðurinn strjúki grasið frá augunum? Varðandi ESB þá eru ákvarðanirnar sem teknar eru í Brussel innleiddar af þjóðþingum aðildarlandanna, en ekki sjálfkrafa. Kom ekki fram hjá Eiríki Bergmann að Svíar innleiddu 8% af því sem Brussel  sendir frá sér. Og þá komum við aftur að grasinu....

Auðun Gíslason, 25.3.2007 kl. 14:55

6 Smámynd: Bjarni Harðarson

takk fyrir þetta auðunn. um íraksmálið er ég þér sammála og það sem meira er - það eru það allir framsóknarmenn að núverandi formanni meðtöldum. hann hefur lýst því yfir að hann telji að það hafi verið staðið rangt að þessari ákvörðun og að ákvörðunin hafi einfaldlega verið röng. öllu lengra er ekki hægt að ganga í að biðjast afsökunar nema menn eigi tímavél...

Bjarni Harðarson, 25.3.2007 kl. 19:16

7 Smámynd: Bjarni Harðarson

ps. gunnlaugur. ég ætla að svara þessu sem þú varst að senda mér í sérstökum pistli innan fárra daga - ég held að við séum nær því að vera sammála en ætla mætti.

Bjarni Harðarson, 25.3.2007 kl. 19:17

8 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég held að það séu verri vofur til en vofa kommúnismans. Viðurkenni þó að hún er enginn ærsladraugur en ég hef alltaf kunnað vel við þá tilhugsun að hægt verði einhvern tíma að byggja upp samfélag þar sem jöfnuður ríkir og sameiginlegt eignarhald á helstu auðæfum ríkisins þykir sjálfsagt.

Steingerður Steinarsdóttir, 26.3.2007 kl. 15:00

9 identicon

Sæll, Bjarni og þið öll !

Það er rétt, hjá Steingerði; vofa Framsóknarflokksins, er líklega sú skelfilegasta; norðan Alpafjalla a.m.k. Siðferðisþrotið og sóðaskapurinn ríður ekki við einteyming, bendi bara á stöðu sjávarplássanna og byggðirnar, víða um sveitir landsins. Landbúnaðarráðherragrínarinn er eitt helzta tromp þeirra, það var þá helzt. Bjarni, þú leiðréttir mig vafalítið, hafi ég ekki heyrt rétt, í fréttum Ríkisútvarpsins; á dögunum, að Guðni Ágústsson hafi lýst yfir stuðningi sínum, við álversstækkunina í Straumsvík ?

Heyr á endemi, þingmaður okkar Sunnlendinga, til fjölda ára leggur lag sitt, við þau öfl, hver horfa gjörsamlega framhjá orkuþörf; hér heima í héraði, á komandi tímum. !

Þakka þér fyrir allt gamalt og gott, Bjarni. Vonandi, að þú sjáir fljótt, hvers lags ormagryfja umvefur þig, og þitt ágæta ryckti.

Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.3.2007 kl. 16:16

10 identicon

Einhver ágætasta blaðagrein seinni ára, Bjarni. Halda menn að kommúnisminn hafi drepist um leið og Járntjaldið hrundi? Fjarri því. Hugmyndafræðin lifir góðu lífi mjög víða. Hún hefur bara fengið fínni föt í samræmi við nýja tísku. En eðlið og markmiðin breytast auðvitað ekkert.

Gústaf Níelsson (IP-tala skráð) 27.3.2007 kl. 20:51

11 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Gústaf sagnfræðingur og trúlega fasisti eða nasisti (það er allavega ekkert verra að ætla honum það heldur en ætla fólki tengsl við kommúnisma) kemur sterkur inn. Hann þekkir "óeðlið" sem erfitt er að halda aftur af, brýst fram að lokum, þó klætt sé tímabundinni tísku eða draugalegu gervi. Samkvæmt þessum skrifum hans þarf víða að vera á verði, hinir hættulegu kommúnistar eru út um allt? Halldór Laxnes (bannaður í US af íhaldinu), Sigurbjörn Einarsson (sattmáli Framtíðarlands) og Vigdís Finnbogadóttir (sáttmáli framtíðarlands). Sennilega þau þrjú nöfn sem margir mundu velja sem sterkustu áhrifavalda á ímynd og sögu þjóðarinnar síðustu hundrað árin.   Say no more ... say no more !

Gunnlaugur B Ólafsson, 28.3.2007 kl. 00:37

12 identicon

Þú hefðir gott af því að lesa Skáldatíma Laxness, Gunnlaugur. Vel máttu mín vegna halda að hugmyndafræði kommúnismans hafi fallið í gleymskunnar dá með hruni Járntjaldsins. Það er auðvitað hryggilegt þegar góðviljað sómafólk, en pólitískir einfeldningar, lætur draga sig á asnaeyrum. Því miður hafa margir orðið fyrir því. Ég átta mig nú ekki alveg á samhenginu um Sigurbjörn og Vigdísi í þessu efni og áhrifavald Vigdísar ýkirðu vafalaust. Mig máttu kalla öllum þeim ónefnum sem þig lystir, ég er ekkert viðkvæmur fyrir því, en götustrákaskrif þín segja auðvitað meira um þig en mig.

Gústaf Níelsson (IP-tala skráð) 7.4.2007 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband