Máttlausar rangfærslur

Ef þjóðin er spurð í skoðanakönnun: Á Ísland að sækja um aðild að ESB svarar yfirgnæfandi meirihluti nei. 

Ef að kratastjórnin sem nú situr getur farið í aðildarviðræðum eftir forskrift RÚV án þess að sækja fyrst um aðild þá eru það mikil tíðindi og verður örugglega tilefni forsíðufyrirsagna í öllum blöðum álfunnar. Staðreyndin er að áður en farið er í aðildarviðræður þarf Alþingi og ríkisstjórn að taka ákvörðun um að vilja ganga í ESB. 

Í þremur könnunum Fréttablaðsins í febrúar, mars og apríl kom alltað það sama út, u.þ.b. 11 af hverjum 20 var andvígur umsókn á móti 9 sem voru því hlynntir eða 55% á móti 45%.

Þá má reyndar búast við að þessar tölur hafi skekkst lítillega síðustu vikurnar enda átt sér stað mjög kostnaðarsöm og um margt vel heppnuð áróðursherferð ESB-sinna undir forystu Benedikts Jóhannssonar hjá Talnakönnun þar sem því er blygðunarlaust haldið fram að þetta snúist um ESB eða dauða.

Það er samt nær lagi miðað við fréttir úr Evrópu þessa dagana að það sé einmitt ESB sem leggur sína dauðu hönd á hagkerfi aðildarlanda sinna.


mbl.is 61,2% vilja aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í faglegri skoðanakönnun yrði spurt: Ertu fylgjandi eða andvígur því að Ísland sæki um aðild að ESB?

Það hefur kannski farið fram hjá að alheimskreppa fer um alla heimsbyggðina? Hvort heldur þú að löndin sem eru i innan evrusvæðins eða fyrir utan? Meðalsamdrátturinn á evrusvæinu er 4% skv. nýjustu tölum. Hann er 10% á Íslandi. Þú mátt ekki fara svona frjálslega með staðreyndir.

Kv, Óli

Ólafur Ingi (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 21:43

2 identicon

Það var áhugavert viðtalið í DV þarsíðustu helgi,en þar var rætt við Steingrím Hermannsson,fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóra.Steingrímur var tildæmis ynntur eftir hans skoðun á inngöngu Íslands inní ESB.Steingrímur mun hafa svarað svo::Þjóðverjum er að takast það sem Hitler tókst ekki í stríðinu,en það er að ná yfirráðum yfir Evrópu:: 

Númi (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 21:49

3 identicon

Gott væri ef Óli gæfi okkur upp hvar þessar tölur er að finna. Samdrátturinn er slæmur á Íslandi, en ef það væri ekki verið að draga kreppuna á langinn af verklausri og vitlausri ríkisstjórn sem hamast á sínum eigin gjaldmiðli, ætti Ísland góðan möguleika á að ná fram hagvexti frekar fljótt. Þjóðverjar, sem hafa aldrei farið niður fyrir 1% samdrátt frá stríðslokum, horfa nú á 6,8% og þeir verða lengi að  ná sér. Kaninn og Íslendingar ná sér fyrstir, þe. ef Obama verður ekki búinn að ríkisvæða allt þar vestra, sósíalistinn sá  :)

-sigm. (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 21:56

4 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Ólafur er þarna að vísa annars vegar til spár um Ísland og hins vegar spár Evrópusambandsins sjálfs fyrir sig sjálft. M.ö.o. pólitíska spá. Eldri spá sambandsins leit mun betur út þannig að það verður fróðlegt að sjá þá næstu, hún verður að öllum líkindum hærri en 4%, ballið er því miður rétt að byrja þar á bæ.

Hjörtur J. Guðmundsson, 6.5.2009 kl. 22:04

5 identicon

Brussels is now expecting Europe's GDP to contract by 4 per cent this year, twice the 1.8 per cent predicted just three months ago. The slump will also last longer, with a further decline of 0.1 per cent in 2010, compared with earlier forecasts of 0.5 per cent growth.

Sjá:

http://www.independent.co.uk/news/business/news/brussels-doubles-eu-recession-forecasts-for-2009-1679053.html

Ólafur Ingi (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 22:05

6 identicon

Það er ekki hægt að misskilja könnunina sem Gallup gerði fyrir RÚV. Þar var annarsvegar spurt um hvort ganga ætti til aðildarviðræðna, og hinsvegar hvort ganga ætti í ESB. Allir skilja þessar spurningar. Hinsvegar er ekki víst að allir viti nákvæmlega hvenær Ísland sendir inn umsóknina í inngönguferlinu. Væri svo langsótt að halda því fram, að margir Íslendingar haldi að fyrst hefjum við aðildarviðræður við ESB, og ef þær eru árangursríkar þá sendum við inn umsókn (sem er auðvitað ekki hvernig það gengur fyrir sig, en það eru eflaust einhverjir sem halda það, sem skekkir niðurstöðuna!).

Spurningarnar í könnun Gallup eru skýrar, og niðurstaðan er það einnig. Rúmlega 61% þjóðarinnar vill hefja aðildarviðræður, en aðeins 26,9% eru mótfallin viðræðum. Þetta segir allt sem segja þarf.

Jón (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 22:08

7 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Hér má lesa um þetta: http://www.google.com/hostednews/ap/article/ALeqM5ipzZ-ZVFuBCVK810-PpiBUogE45wD97VF9M81

Hjörtur J. Guðmundsson, 6.5.2009 kl. 22:09

8 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Takk Ólafur, s.s. er um að ræða spá framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sjálfs sem er núna tvöfalt verri en hún var í janúar. M.ö.o. pólitísk spá sambandsins um sig sjálft.

Hjörtur J. Guðmundsson, 6.5.2009 kl. 22:10

9 identicon

Hjörtur það er rétt hjá þér að horfurnar eru verri en spáð var. En ég bendi á að það er alsherjar efnahagslegkrísa í heiminum. Það er ekkertmálefnalegt hjá þér að efast um tölur að þessar tölur séu réttar. Það er ákveðið þversögn í þessu hjá þér. Afhverju ertu að bíða eftir næstu tölum ef að þú tekur ekkert mark á þeim?

ólafur Ingi (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 22:12

10 identicon

Takk Óli. Mér finnst skrítið að þeir nefni ekki tölurnar sem Írarnir birtu, 14,5 prósent samdráttur á tveimur árum, sem er í raun kolfall, og vonandi verða þeir fljótir að ná sér af stað aftur. Talan sem ég var með frá Þýskalandi er síðasti ársfjórðungur 2008, makalaust áfall. Ólíkt þessum tveimur löndum er það N-ið í jöfnunni sem dregur svo niður hagvöxtinn hér, neyslan. Þar er það framleiðslusamdráttur, útflutningsfall. Svo er ekki hér. Enn og aftur kemur sérstaða Íslands fram.

-sigm. (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 22:30

11 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég sé greinilegan mun á spurningunum!

1. Viltu að Ísland sæki um aðild? 

2. Viltu að Ísland gangi í ESB?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 6.5.2009 kl. 22:36

12 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Svör mín við spurningum 1 og 2...

1. Viltu að Ísland sæki um aðild? Já, þótt fyrr hefði verið. veit sjálf ekkert um hvað er að velja?

2. Viltu að Ísland gangi í ESB?  Ne, alls ekki ef við stjórnum ekki okkar auðlindum sjálf (þá á ég við að ísendingar eigi Hafið í kringum landið ...og fiskana þar)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 6.5.2009 kl. 22:39

13 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Afhverju ættir þú að vilja sækja um aðild ef þú vilt ekki verða aðilli?

Axel Þór Kolbeinsson, 6.5.2009 kl. 22:40

14 identicon

Sigm. Staðreyndin er þessi það er meira en helmingi meiri samdráttur á Íslandi samanborðið þau lönd sem eru á evrusvæðinu. Það er rétt hjá þér að það eru eitt eða tvö lönd sem eru að koma virkilega illa út úr þessari kreppu. Það er ekki sanngjart að miðað þau lönd sem koma verst út ekki frekar en ég tæki eingöngu mið að þeim ESB löndum sem koma best út.

Hjörtur talar um helmingi verri spá. Staðreyndin er sú að spáin gerði ráð fyrir 1,8% meðalsamdrætti en hann reyndist vera 4%. Tölur er afstæðar segjum að ef spáin hefði verið 0,1% samdráttur og síðan orðið 1,0% þá væri niðurstaðnn 10X verri en spáin.

Ólafur Ingi (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 22:46

15 identicon

Bjarni !

Hvað er vitlaust, spuningin eða svarið ?

Viltu viðræður við ESB ?

Já ég vil viðræður við ESB ?

Vil bara hafa það á hreinu, auðvitað er okkur best borgið innan ESB með alvöru gjaldmiðil !

JR (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 22:48

16 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ólafur:  4% samdráttur er uppfærð spá fyrir 2009.

Axel Þór Kolbeinsson, 6.5.2009 kl. 22:49

17 identicon

Ólafur. Ég átti við að spáin gengur út á 4% meðalsamdrátt.

Ólafur Ingi (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 22:52

18 identicon

Bjarni og aðrir einangrunarsinnar eru bara fúlir yfir því að niðurstaðan var þeim ekki að skapi. Niðurstaðan er hinsvegar mjög afdráttarlaus og spurningarnar voru mjög skýrar, það þýðir ekkert fyrir Bjarna og félaga að halda öðru fram.

Reyndar er merkilegt að RÚV leggst á sveif með þeim einangrunarsinnum og segir að 60% vilji aðildarviðræður. Það er alrangt, því samkvæmt könnuninni vilja 70% aðildarviðræður.

Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum (eða bara fréttamaður á sömu skoðun og Bjarni og vill tóna niðurstöðuna niður) þá setur RÚV ekki fram tölur án óákveðinna, líkt og gert var í könnunum á fylgi flokkanna fyrir kosningar. Þarna eru sem sagt 12% sögð óákveðin. Það eru álíka margir og munu líklega sitja heima og kjósa ekki, jafnvel verða þeir enn fleiri. Þess vegna er fráleitt að taka þá með, niðurstaðan er 70% með, en 30% á móti.

Mjög afgerandi niðurstaða, Bjarni, hvort sem þér líkar það betur eða verr. Þín fyrsta fullyrðing er beinlínis röng. Þar lýgur þú því að þjóðin segi nei, þegar ný könnun sýnir hið gagnstæða! - svo vitnar þú í gamlar kannanir Fréttablaðsins, sem skipta engu máli lengur. Þær voru gerðar áður en Evrópumálin urðu að kosningamáli, þannig að það er fráleitt að vitna í þær.

Evreka (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 23:13

19 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Axel spyr mig..."Afhverju ættir þú að vilja sækja um aðild ef þú vilt ekki verða aðilli?"

Svar mitt er...Ég vil verða aðili að ESB ef það hefur í för með sér betri framtíð fyrir næstu kynslóðir! En ég neita aðild ef svo er ekki.

Hinsvegar veit ég ekkert hvað er í boði?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 6.5.2009 kl. 23:48

20 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Ólafur: Spárnar taka auðvitað ákveðið mið af raunveruleikanum, eftir því sem hann versnar verða kommissarnir í Brussel að uppfæra spárnar sínar og allar líkur eru á að þær eigi eftir að versna. Ég er ekki þar með að segja að þær séu marktækar heldur aðeins að þeir geti ekki horft framhjá raunveruleikanum þegar hann knýr dyra.

Hjörtur J. Guðmundsson, 6.5.2009 kl. 23:53

21 identicon

Ólafur:

"Það er ekki sanngjart að miðað þau lönd sem koma verst út..."

Er einhver kominn út úr þessu ennþá?

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 00:09

22 Smámynd: Andrés Kristjánsson

"Blygðunarlaust haldið fram að þetta snúist um ESB eða dauða"

Mér fannst nú betra þegar talað var um að við yrðum Kúba noðrursins. Semsagt að ef við göngum ekki í ESB þá mun Obama setja viðskiptabann á okkur.

Andrés Kristjánsson, 7.5.2009 kl. 00:12

23 Smámynd: Héðinn Björnsson

Það er verið að rugla saman þremur hlutum:

  • Innganga í ESB
  • Aðildarviðræður
  • Umsókn um aðild að ESB
Til að hafa það á hreinu að þá þarf að sækja um aðild til að hefja aðildarviðræður og aðeins að þeim loknum er hægt að ganga í ESB. Að vera fylgjandi aðildarviðræðum en á móti umsókn um aðild er bara tóm steypa og fjölmiðlar mættu alveg reyna að segja fólki frá þessu. Landið viðrist nefnilega vera nokkuð jafnt skipt í þrjá hopa í þessu máli eða fylgjandi aðild, andvígur aðild og síðan sá hópur sem ekki ræður við að svara spurningunni á samhangandi hátt. 

 @Anna: Að sækja um aðild felur í sér ósk um að ganga í ESB. Það má vel vera að sú ósk sé ekki svo sterk að hún trompi alla aðra hagsmuni en það er hinsvegar ósk um að gagna í ESB. Það er því ekki sérlega heiðarlegt að vilja sækja um aðild að ESB en vilja ekki ganga í sambandið. Hvernig heldur þú að ESB myndi taka umsókn sem fylgdi skilaboðin viðvilju ekki vera með en langar voða mikið til að trufla allt ykkar innra starf með aðildarviðræðum næsta árið og trufla starf um 50 þjóð og héraðsþinga um alla Evrópu til þess að vita hvað er í boði en finnst eiginlega ESB vera ólýðræðisleg stofnun sem við höfum engan áhuga á að vera með í. Við þurfum að stíga úr skugga Ljósvetningargoðans og fara að taka meðvitaða ákvörðun um hvað við gerum og gera það svo af heilum hug.

Héðinn Björnsson, 7.5.2009 kl. 00:15

24 identicon

Að spyrja hvað við fáum með aðild er rétt að mínu mati.  þeir sem vilja ekki spyrja eru að fela eitthvað eða eru leppar þeirra sem munu tapa á aðild. og auðvitað munu einhverjir tapa á aðild

rafn guðmundsson

rafn guðmundsson (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 01:02

25 identicon

Sæll Bjarni.

Ég hélt aldrei að þú værir ekki  heimskur,hvað þá vitlaus, og auðvita er ég ekki að halda því fram.

En þú veist að heimskur maður horfir ekki yfir hólinn, og vitlaus maður hugsar ekki um það né nokkuð annað er skiptir máli.

Á blaðursíðum bloggsins fara menn mikinn í að vera með og á móti.

Ég segi það eru aðeins heimskir menn er ekkir reyna.

Auðvita eigum við að sækja um með fullum þunga, og virðingu um þær þjóðir sem þegar eru þar.

Við fáum síðan að vita hver verða okkar skilyrði, og þau skilyrði verða  lögð fyrir þjóðina sem er sannarlega er betra fólk en það er hefur stjórnað hér undanfarin ár, og þar varst þú Bjarni.

Þegar fólk vill hlaupa af hesti út í á, hvað færð þú þá ?

Ég tel að það sé aðeins heimskt fólk er vill ekki að þjóðin sameinist um að sækja um aðild og sjá hvað býðst.

Mjög auðvelt dæmi, ef það kemur sér vel fyrir 200.000 manns á Íslandi  að fiskvinnsla og  jafnvel stór hluti af landbúnaði fari á hausinn, þá er mér bara sama.

 Ég þekkti þig Bjarni fyrir nokkrum árum, þar sem ég vann á stað er þú komst nokkrum sinnum á, og hafðir sérstakar kenndir til.

Ég var rekinn þaðan af þeim er réðu, af sömu ástæðu og þú predikar, það er að segja  þeim er vildu ráða. Og mér var mútað ,að þeir héldu er stýrðu starfseminni, hinsvegar var það ekki svo.

Þeir buðu mér starfslokasamning upp á þriggja mánaða laun, sem að sjálfsögðu þeir vissu að ég átti rétt á hvort  eð var.

Og ég gat ekki barist, því , ég var heimskur,kannski, mér þótti meira vænt um þau en mig.

Bjarni.......Mér þykir vænt um gáfumenn, í mínum huga þýðir það að það séu til manneskjur er komið okkur venjulega fólkinu upp úr því að vita ekkert hvað við erum að gera.

En slæmir menn eins og ég vita það að það er ekki rétt.

Mestu gáfumenni míns samtíma hitti ég og starfaði með í tæp þrjú ár.

Og það var ekki fólkið sem réði mig, það var fólkið er ég elskaði af líf og sál, og ég elskaði að fara í vinnuna á hverjum morgni.

Eina fólkið er ég sá að var eitthvað verulegt að var fólk eins og þú, og gjarnan eins og ég ef fólk vill.

Heimskur maður vill ekki.

Hugsuður vill sjá.

Ég óska þér og öllu því þú veist þess besta.

Ég sakna einskis vinnustaðar ( en ég sakna þeirra er áttu mig af hjarta ).

 Hættu að reyna að vera gáfaður, prófaðu að vera sanngjarn, og reyndu síðan að átta þig á því að stjórnmál og stjórnmálamenn hafa drepið og eyðilagt flest alla framför í lífinu.

Líkt og trúmál.

Ég hef ekki glæra glóru á því hvort við eigum að vera inni eða úti.

Ég set spurningamerki við menntun...besta fólk er ég hef nokkurn tíman kynnst  hefur ekki  né hefur ekki notið skólagöngu.

Mín orð. Heimskur maður sækir ekki um. Heimskur maður frestar. Heimskur maður reynir eitthvað annað.

Bjarni hættu að kvarta , kannski hefur þú eftirlaun, kannski kanntu trixið, en ég og allir aðrir sjáum bara hismið.

Ef að þú hefur lausn annað en blaður, þá væri það gott því þinn málflutningur er þvaður.

 Allir hlutir eru einfaldir fyrir gott fólk.

Og fyrir þig og mig.

Kristinn Rúnar Hartmannsson.

En ég vil fremur vera með því fólki er ég sakna, og nodabene kannski mun þeim líða betur.

Kristinn Rúnar Hartmannsson (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 01:43

26 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Bjarni.

Hvað rak Ríkisútvarpið til þess að kanna þetta meðan ekki hefur tekist að mynda ríkisstjórn ?

Mér dettur nú í hug umræðuþáttur að loknum kosningum  þar sem fyrsta spurning þáttastjórnanda var um Evrópusambandið og Ástþór Magnússon gerði athugsemd við það hið sama atriði, varðandi ritskoðunaráráttu um hvað ræða skuli sem Steingrímur tók undir þá eftirminnanlega.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.5.2009 kl. 01:59

27 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hvort sem maður er með eða á móti aðildarumsókn þá er eitt víst núna er vitlausasti tíminn sem hægt er að finna í sögunni til þess að sækja um aðild að ESB.

Það verður valtað yfir okkur í samningaviðræðum einfaldlega vegna þess að forsendur okkar eru vondar.

Svo held ég að samfylkingin sé alveg til í að greiða þessa Icesave reikninga til þess að hafa ESB valdhafanna góða.

Hundruð milljarða reikningur á þjóðina til þess að auka líkur samfylkingarinnar á því að uppfylla draumóra sína.

Hef ekki enn heyrt nein rök fyrir því að innganga í ESB hafi neina þýðingu í núverandi ástandi.

Ef einhver kallar það rök að þá fari aðrar þjóðir að "treysta okkur betur" þá ætti hinn sami að hressa aðeins upp á rökfræðina sína.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.5.2009 kl. 02:04

28 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég vil benda þeim sem vilja fara í viðræður við ESB vegna þess að þeir vita ekki hvað er í boði að þeir geta byrjað á að lesa skýrslu Evrópunefndar ásamt fylgiskjölunum.

Axel Þór Kolbeinsson, 7.5.2009 kl. 08:29

29 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Ég held að fyrirsögnin eigi við textann þinn Bjarni.

G. Valdimar Valdemarsson, 7.5.2009 kl. 10:00

30 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Þetta eru mjög góð tíðindi og leiðarvísir fyrir karla og konur sem sitja Alþingi þegar kemur til umræðu og afgreiðslu á þessu máli. Þetta er á svipuðum nótum og þegar bornar eru saman tölur í undirskriftasöfnunum þar sem sammála hreyfingin er þrefalt stærri en ósammála hreyfingin.

Nú er komið nóg af tilburðum til skemmdarstarfsemi í þá veru að reyna að hindara að þetta mál fái lýðræðislegan farveg. Það er fyndið að sjá Hjört og fleiri tala um efnahagssamdrátt í Evrópu og hlakka yfir því. Græðgisvæðing Sjálfstæðisflokksins í gegnum gjafakvóta og sölu bankana, kom af stað útrásinni.

Síðan féll spilaborg Hannesar Hólmsteins og Gylfi Zoega hefur reiknað það út að gjaldþrot íslensks fjármálakerfis skilji eftir skuld landsins upp á 2000 kr við hvern jarðarbúa, ef því er deilt niður. Arfleifð Davíðs Oddssonar skilur eftir sig sviðna jörð ekki bara hér á landi heldur einnig víða um Evrópu. En þjóðrembur vilja ekki bera neina ábyrgð á því sem þeirra menn aðhafast í öðrum löndum.

Gunnlaugur B Ólafsson, 7.5.2009 kl. 10:49

31 Smámynd: Anna Svavarsdóttir

Við verðum að fara að koma þessu máli frá.  Það versta sem að við getum gert er að sitja á rassgatinu og rífast um hvert við eigum að fara. 

Við erum í djúpum skít og alveg sama hvað við ákveðum að gera. Hér getum við ekki setið og tuðað á meðan við sökkvum.

Aðild að ESB gerist ekki á næstu mánuðum eða árum.  Evran kemur ekki næstu árin. Við getum tekið hana einhliða upp en það þá höfum við ekki skjól af seðlabanka Evrópu.  Og ekki verðum við vinsælli í Evrópu við það.  Við vitum þetta öll.

Við þurfum að koma þessu máli í farveg og nota okkar litlu krafta og tíma til að slökkva eldana.  ESB aðildarumsókn læknar ekki skuldastöðu heimilanna hún bætir ekki atvinnustigið og hækkar ekki námslánin.  Ég var að átta mig á að grunnframfærslan hjá LÍN er lægri heldur en atvinnuleysisbætur.  Ekki mikill hvati til að bæta við sig þekkingu.  

Anna Svavarsdóttir, 8.5.2009 kl. 10:08

32 identicon

Akkúrat hjá Önnu! Ef Gjaldmiðillinn er vandamálið, þá erum við ekkert með neitt í höndunum með það að ESB umsókn reddi okkur evrunni bara svona. Það er hægt að skipta í evru án samþykkis ESB, það eru 11 ríki með hana en utan ESB, þar af 6 í óþökk ESB.

Ekki fara þeir nú að láta rigna peningum yfir okkur heldur, enda sjálfir í kreppu.  Það gleymist nú reyndar oft í umræðunni að ESB þjóðir þurfa að borga til sameiginlegra sjóða, sem svo aftur deila til baka. Að frádregnum kostnaði. Er ekki aðal tekjustofninn hlutfall af VSK, og VSK er lágmarksprósenta?

M.ö.o. þá myndi aðild byrja á greiðslum til ESB, sem svo þarf að reyna að klípa til baka. Veit nú ekki hvernig sú glíma gæti farið, en mér sýnist nú svo, að bara það að dýfa litlu tásu út í stóru Evrópulaugina hafi kostað nóg nú þegar.

Jón Logi (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 15:16

33 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

ESB hefur í megin atriðum þrjá sjálfstæða tekjustofna, sem eru eftirfarandi:

  • Hluti af tollum og innflutningsgjöldum aðildarríkjanna (15% af tekjum ESB árið 2007).
  • Hlutdeild í virðisaukaskattsgreiðslum aðildarríkjanna (15% af tekjum ESB árið 2007).
  • Hlutdeild í vergum þjóðartekjum aðildarríkjanna (69% af tekjum ESB árið 2007).

Tekjur af þessum tekjustofnum mega ekki fara yfir 1,24% af vergum þjóðartekjum aðildarríkjanna.  (Skýrsla Evrópunefndar, bls 85. pdf)

Bráðabrigða tölur um vergar þjóðartekjur árið 2008 eru 1.004 milljarðar króna. (Hagstofa Íslands) Samkvæmt því væru hámarksgreiðslur til ESB tæpir 12,5 milljarðar króna, en þá á eftir að taka til þá styrki sem við gætum fengið til baka.

Gróf ágiskun mín á nettógreiðslum til ESB eftir þá styrki sem við mögulega gætum fengið er á bilinu 3 - 10 milljarðar króna, en það er bara ágiskun.

Axel Þór Kolbeinsson, 8.5.2009 kl. 15:44

34 Smámynd: Árni Gunnarsson

Eftir 18 ára samfellda vinnu sjálfstæðismanna og framsóknarmanna fyrir einkavini og pólitískt tengd fyrirtæki auk sjálfra sín er samfélagið í rúst.

Við það ástand er þjóðin svo vonlaus og ráðvillt að hún mun jafnvel þiggja hvaða kost sem er annan en handleiðslu eigin stjórnvalda.

Og þá er gráupplagt fyrir kratana að plata fólk til að bindast ESB sem þeir hafa alltaf þráð sem atvinnutækifæri fyrir rétttrúaða jafnaðarmenn.

Hvurn varðar um yfirráð yfir auðlindum ellegar eigið forræði yfir því hvað megi leyfast að éta þegar hægt er að verða ríkur á því að fletta skjölum í erlendri stórborg og tala útlensku á fínum matsölustöðum þar sem dýrar krásir eru étnar og reikningurinn sendur til lénsins í norðri?

"Nej jeg er sgu fanden gale mig ekki nein íslandsmand, sagði Peder Povlsen og tók ofan svarta harðkúluhattinn fyrir skáldi sínu og strunsaði virðulega burt í stórri bugðu, og hvarf fyrir hornið."

Nú spái spái ég því að Alþingi muni með hundshaus samþykkja að senda jakkaklædd stertimenni á þann miðilsfund sem fullnusta þarf til að komast í snertingu við Hina Einu Opinberun kratanna gegn um langa sögu. Og líklegra en hitt er að á þeim miðilsfundi muni birtast sami ryðgaði bárujárnsskúrinn sem opinberaðist Pétri Pálssyni Three Horses forðum tíð hjá miðlinum Þórunni í Kömbum í Sviðinsvík undir Óþveginsenni.

Og að með það yfirskilvitlega jarteikn muni sendiboðarnir koma heim og gylla fyrir þjóðinni að nú sé það í hennar höndum að játast undir auðmjúka inngöngu í Höll sumarlandsins.

Árni Gunnarsson, 8.5.2009 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband