Loksins rök með ESB aðild

Ég svaf frekar illa í nótt enda stöðugt með hugann við þá pólitísku klemmu sem ég er kominn í. Fram undir þetta hefi ég alltaf getað svarað því eftir bestu samvisku að það séu engin rök sem mæla með ESB aðild. Í gær og það sjálfan sjálfstæðisdaginn kom maður í búðina hjá mér og náði þar bæði skák og mát með eftirfarandi reynslusögu.

Jón nokkur býr í Hveragerði og fer dag hvern í sund. Í gær var sundlaugin í Laugaskarði  lokuð vegna þjóðhátíðarfagnaðar á sundlaugarbakkanum. Ég þekki þetta, var sjálfur á svona samkomum með afa mínum ungur.

Nú varð Jón að aka allaleið á Selfoss. Ef í göngum í ESB þá verður vitaskuld óþarfi að halda upp á 17. júní og Hveragerðislaugin verður opin þennan dag.

Ergo eins og Kalli Sveins myndir segja: Það eru til rök fyrir því að Ísland eða allavega Hveragerði gangi í ESB...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

He, he nokkuð skondið.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.6.2009 kl. 13:32

2 Smámynd: Offari

Það er held ég nokkuð ljóst að það hlýtur að vera eitthvað aðlaðandi við Evrópusambandið annars væru menn ekki að sækjast eftir aðild. En að sleppa þjóhátíðardeginum finnst mér ekki rök sem heilla mig.

Offari, 18.6.2009 kl. 13:38

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Jón Frímann, það verður óþarfi að halda upp á þjóðhátíðardaginn þegar búið verður að afhenda lýðræðið og fullveldið í hendur erlendra möppudýra.

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.6.2009 kl. 14:49

4 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Hræðsluáróðurinn lætur ekki að sér hæða. Hér verður auðn eftir að öll sérkenna þjóðareinkennin hafa verið afmáð ESB veldi hins illa.

Þorri Almennings Forni Loftski, 18.6.2009 kl. 15:00

5 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

meinti... af hinu illa ESB..en Tómas. Hvaða lýðræði og fullveldi? Samkvæmt þer er ekkert til að afhenda eða bjoða ESB

Þorri Almennings Forni Loftski, 18.6.2009 kl. 15:04

6 identicon

það væri algjör hræsni að halda upp á 17 júni í framtíðinni ef við verðum komin í ESB. Það væri auðvitað hægt ........en hræsni eftir sem áður.

(IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 15:11

7 Smámynd: Haraldur Hansson

Sundlauginni verður lokað 9. maí í staðinn og það er jafn langt að aka á Selfoss í maí og í júní. Þannig að það eru engin rök fyrir því að ganga í ESB.

Haraldur Hansson, 18.6.2009 kl. 15:31

8 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sjúkk, þarna lékstu á okkur.

Ragnhildur Kolka, 18.6.2009 kl. 17:09

9 Smámynd: Alfreð Símonarson

Var hann í speedo sundskýlu?

Alfreð Símonarson, 18.6.2009 kl. 17:27

10 Smámynd: Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson

Nei hættu nú alveg Bjarni. Nú ertu algjörlega kominn út móa og orðinn röklaus. Svona lagað er þér svo sannarlega ekki samboðið eins og þú hefur nú barist með rökum gegn aðild. En þetta er svo tónninn sem virðist kominn í ansi marga ESB andstæðinga (ræða Sturla frá í gær sem um er getið á mbl.is er dæmi um þetta). Þessi þjóðernisrembutónn er ákaflega varhugaverður því hann getur leitt til útlendingahaturs. Vinsamlegast hjálpaðu til við að halda þessari umræðu frá öllum öfgum. Við glötum ekki þjóðsöngnum, þjóðfánanum né þjóðhátíðardeginum þó við göngum í ESB. Eða getur þú bent mér á eitthvert ESB land sem hefur glatað þessu?

Annars er þetta ekki einu sinni góður brandari.

Grétar Einarsson

PS. Mikið óskaplega er bókakaffið þitt flott og gott. Við vorum afar ánægð í bókaklúbbnum

Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson , 18.6.2009 kl. 17:54

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

Evrópu elíturnar hafa frá fornu fari talið sig sem alþjóða samfélagið. Evrópuþjóðirnar til samans byggja upp Evrópu kynstofninn í sínum fjölbreytileika. Meðfædda yfirburðahæfileika til að deila drottna. Grunnur hollustu Evrópu Borgarans byggir á meðfæddri þjóðarhollustu hans inna Sameiningarinnar.

Sameinuðu þjóðirnar eru öllum þjóðum opnar. Kolsvartir leiðtogar eru velkomnir sem og bleikir. Evrópu Sameiningin hefur aldrei verið sambærileg við Sameinuðu þjóðirnar, í öllum þeim útgáfum sem hún hefur birst í undanfarin ár þúsund.

66%  aðild og 80% innflutningur síðan 1994 ætti að vera víti til varnaðar fólki með heilann í lagi.

Albanir, Tyrkir, Serbar liggja á hnjánum til að fá að koma inn? Kosninga þátttaka er engin í ES.  

Það er munur á húsamús og hagamús. Ísland er forn ey-nýlenda fellur undir samningabálk fyrir slíkar undantekningar í Lissabon samningnum.

Vægi Íslands er um 0,06%. Norðurlandanna allra innan við 10%

Ísland er ekki hefðbundið svæði útflutnings fullvinnslu. Liggur ekki í flutninga netkerfi megninlands Evrópu. Er því ekki samkeppfært m.t.t. lávöruframleislu.. 

Júlíus Björnsson, 18.6.2009 kl. 18:39

12 identicon

Félagi Bjarni !

"Eins og Kalli Sveinss., myndi segja" !!

Lengi skynjað - og metið - þína ´djúpu kímnigáfu" !

 Gæti verið að við séum skyldir ?? !

 Heyrðirðu fréttir ríkissjónvarpsins í kvöld ?

 Sjávarútvegur ESB.

 88% OFVEIÐI FISKISTOFNA.

 Landbúnaður ESB.

 Mjólkurframleiðslan að verða gjaldþrota.

 Einkar sárt hve margir strútarnir á landi elds og ísa !

 Senda talsmenn ESB., á heilsustofnunina í Hveragerði ? !

 Eða sagði einhver, að frékar ættu þeir heima "inn  við sundin blá" !!

Best ef þeir flýðu til fjalla !

 Eða sem Rómverjar sögðu.: "Bellum omnium in omnes" þ.e. " Flýðu til fjalla" !!

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 20:39

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er ekki nú þegar búið að afhenda sjálfstæðið, lýðræðið og fullveldið til alþjóða gjaldeyrissjóðins?

Hrönn Sigurðardóttir, 18.6.2009 kl. 20:43

14 Smámynd: Júlíus Björnsson

IMF er hann handbendi Alþjóðsamfélagsins [ES]? Ef vægi Íslands er 0,06% ES þá hlýtur ES að hafa 1600 sinum meira vægi hjá alþjóðagjaldeyrissjóðnum.   Evrópu Sameiningin The Europian Union

Júlíus Björnsson, 18.6.2009 kl. 20:50

15 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég vil Íslenska Tómata og grænmeti, kjúklinga, Bjór, Nautakjöt, Kindakjöt, Flórída appelsínur og ávextir.

Ég vil íslenska leður skó og skinnfatnað. Bíla og Rafmagnsvörur frá Asíu.

Þarf ekki á þéttari samvinu að halda við ES.

Hvað vilja Íslendingar frekar fá frá ES?

Júlíus Björnsson, 18.6.2009 kl. 20:57

16 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Takk fyrir hugulsemina Bjarni   En ég læt mig hafa það að keyra þennan dag til Selfoss. (frekar en ESB).  Btw. nýja sundlaugin í Þorlákshöfn er ekkert svo slæm heldur!

Jón Á Grétarsson, 18.6.2009 kl. 23:01

17 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Lúmskur Bjarni he he....

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.6.2009 kl. 23:31

18 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Ég hef hingað til verið tregur til að nota orðið "landráð" um framferði þeirra sem nú sitja á valdastólum, en vísbendingarnar hlaðast upp. Við höfum kosið til forystu fólk, sem ekki aðeins beygir sig og bukkar fyrir erlendu valdi, heldur hefur það að yfirlýstu markmiði að afsala fullveldinu, sem forfeður okkar börðust fyrir í aldir, til erlendra manna. Hentar eitthvert annað orð betur?

Vilhjálmur Eyþórsson, 19.6.2009 kl. 00:22

19 Smámynd: MacGyver

Mér finnst þessi grein líta út eins brandari eða parodia af hræðsluáróðurinn sem heyrist oft frá ESB-andstæðingum. Ég veit ekki hvort höfundur sé innilega sammála því sem er lýst í greininni eða ef þetta er svona "tongue-in-cheek".

MacGyver, 19.6.2009 kl. 00:34

20 identicon

Jón Frímann

Þetta er ekkert annað en þvæla og bull frá þér um "Sameinuðu Þjóðunum séu svipað batterí og ESB.."

 Fyrir það fyrsta þú hérna Jón Frímann þá er lítið sem ekkert lýðræði í ESB og menn eru ekki kosnir í framkvæmdarstjórn ESB, (svona er það einnig með ESB- Dómstólana og ESB- Central Bank) þar sem menn eru ekki kosnir heldur skipaðir á bak við tjöldin og allt gert fyrir Central Banks elítuna Committee of 300, Rockefeller- og Rothschild liðið, ekki satt? Nú þessi menn á bakvið tjöldin og þessi puppet framkvæmdarstjórn ESB ræður svo að segja næstum því öllu,og menn hafa upplifað það hvað eftir annað. Þingmenn ESB með takmarkaðan tíma og/eða nánast sagt engann tíma til að veita andsvör, og ofna á allt geta þingmenn ESB ekki komið með eða lagt fram lagafrumvörp, þú hérna Jón Frímann.  Því er nánast sagt lítil sem engin von að hægt sé að breyta þessu Nýja Sovét- eða þessu ESB- bákni ykkar.  Ég kaupi þetta ekki allt frá ykkur ESB sinnum, eins og þú sérð, en fáðu þér bókina "Rotten Heart of Europe" og svo  bókina The Great Deception the secret history of the European Union eftir hann Christoper Booker og Richard North

En segðu mér eitt getið þíð litlu nice nice ESB- sinnar ekki barist fyrir því að öll hin ESB ríkin fái einu sinni að kjósa um Lissabonn-sáttmálann  (eða gömlu ljótu ESB- stjórnaskrána) En ég verð að segja eins og er, að ESB er bara þekkt fyrir að vera eitthvað ólyðræðislegt bákn og mun að öllum líkindum hafna öllum  hinum aðildarríkjunum um kosningu, ekki satt?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 02:04

21 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Góður að vanda félagi Bjarni, og merkilegt hvað Evrópusambandssinnar virðast vera lausir við allan húmor

Hjörtur J. Guðmundsson, 19.6.2009 kl. 10:58

22 Smámynd: Offari

Það er merkilegt hvað þetta er orðið heitt. Það má orðið ekki segja einn einasta brandara um þetta mál. Ervópusambandinu hefur tekist áróðursætlunarbragð sitt að kljúfa þessa þjóð einmitt þegar hún þarf að standa saman.

Offari, 19.6.2009 kl. 11:35

23 identicon

Gott fólk, hættum að taka afstöðu til ESB út frá einhverjum hagsmunasamtökum eða stjórnmálaflokkum. Tökum afstöðu út frá okkur sjálfum, fyrir fjölskyldur okkar, veskið okkar og lífsgæði okkar. Villt þú borga íbúðarlánið þitt 17 falt til baka bara svo kvótagreifinn og óðalsbóndionn sofi vel í nótt. Eða viltu ganga í ESB og taka afstöðu með sjálfum þér og borga þetta sama lán 1,5 falt til baka?

Þetta er ósköp einfalt, tökum afstöðu út frá okkur sjálfum, látum ekki sérskipaða postula segja okkur hvað við eigum að gera og allra síst að taka afstöðu til ESb út frá því hvað kvótagreifanum finnst eða óðalsbóndanum.

Vissuð þið að vextir á Íslandi lækka um 228 miljarða á ári gagnvart heimilunum og fyrirtækjunum í landinu? Þetta þýðir það að  við þurfum miklu minna að leggja á okkur til að endar nái saman. Við getum þannig eytt meiri tíma með börnunum okkar í stað þess að þræla myrkranna á milli fyrir okurvöxtum bara svo kvótagreifinn og óðalsbóndinn og sérhagsmunir þeirri nái fram að ganga.

Hættum þessu rugli, tökum afstöðu út frá okkur sjálfum, hvert fyrir sig út frá okkar eigin hagsmunum, en ekki út frá því hvað aðrir vilja að við gerum. Spyrjum bara, hvað breytist hjá mér persónulega ef við gögnum í ESB. Okkur varðar ekkert um það hvað breytist hjá einhverjum bónda upp í sveit eða kvótagreifanum í 150 miljón króna einbýlishúsinu sínu.

Ég ætla taka afstöðu til ESB út frá veskinu mínu, ég vill ekki borga 20 miljón króna lánið mitt 17 falt til baka. Hvað með þig? Ert þú undirlægja sérhagsmunaafla og tekur afstöðu gegn sjálfum þér og fjölskyldu þinni bara svo kvótagreifinn og bóndinn geti verið rólegir?

Ég skora á alla sem eru sama sinnis og ég að dreifa þessari hugmynd út um allt. Við eigum að koma því á framfæri við sem flesta að fólk að það taki afstöðu út frá sjálfu sér en ekki sérhagsmunasamtökum. Fólk á að spyrja sig, hvað fæ ég persónulega út úr því að ganga í ESB?

Valsól (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 11:47

24 identicon

Voðalega á þessi Jón Frímann bágt, greinilega húmorslaus.  Það er þó huggun harmi gegn að ef við göngum í ESB, þá bjóðast okkur eflaust lyf á betri kjörum og þá getur Jón Frímann brutt eitthvað róandi án þess að það setji hann á hausinn.

Stefán Arngrímsson (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 11:55

25 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Já, ég er nefnilega kvótagreifi og óðalsbóndi

Hjörtur J. Guðmundsson, 19.6.2009 kl. 12:05

26 Smámynd: Kári Harðarson

Haldið endilega áfram að berjast gegn ESB inngöngu með svona aðferðum.

Takk og kveðja, Kári

Kári Harðarson, 19.6.2009 kl. 13:50

27 identicon

Frábært Bjarni! 

Þú getur alveg laumað inn stöku brandara inn í Erthu Kitt sjóvið þitt.  Það verður bara skemmtilegra fyrir vikið.

marco (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 14:17

28 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Af því hér er minnst á Lisbon sáttmálann, þá er rangt sem sagt var hér í fréttum undanfarið að það eigi að breyta sáttmálanum samkvæmt vilja íra.

Eg er reyndar búinn að benda á það áður á bloggi í tengslum við umræddan sáttmála (og fékk bágt fyrir minnir mig)

Td. segir RUV: "Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins ræða nú hvernig breyta megi Lissabon-sáttmálanum um nýja stjórnskipun sambandsins, þannig að Írar fáist til að samþykkja hann."

Þetta er bara rangt og ekki við hæfi að virðulegur fjölmiðill skrifi svona.  Kemur inn ranghugmydum hjá fólki sem heur ekki kynnt sér mál eins vel og td. ég.

Það sem gerðist er að írarnir fengu garantí fyrir 2-3 atriðum sem mikill misskilningur var um í atkvæðagriðslunni í fyrra.  And-sinnar spunnu upp einhverra dellu til að koma af stað histeríu viðvíkjandi sáttmálanum, fóstureyðingar og eitthvað.

"The specific guarantees, which do not change the Lisbon Treaty, but provide a common interpretation of it, pledge that nothing in the treaty will affect Ireland's constitutional provisions on abortion and the family, its right to determine its own tax regime, or force the state to sign up to European defence co-operation."

http://www.irishtimes.com/newspaper/breaking/2009/0619/breaking26.htm

Halda menn að írar viti þetta ekki best ?  Það er ekki verið að breyta sáttmálanum.  Í rauninni aðeins verið að leiðrétta kjánamálflutning andsinna þar í landi.  Enda eru þeir nú brjálaðir:

"... anti-Lisbon treaty campaigners were dismissive of the deal.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.6.2009 kl. 18:05

29 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Jón Fríman : Að halda því fram að þjóðhátíðardagur Íslendinga leggist niður við inngöngu í ESB er, tja, heimskulegt.

Grétar Einarsson og ... : Við glötum ekki þjóðsöngnum, þjóðfánanum né þjóðhátíðardeginum þó við göngum í ESB.

Bjarni Harðar : Ef í göngum í ESB þá verður vitaskuld óþarfi að halda upp á 17. júní

Lýtur út fyrir að Jón Frímann og Grétar Einarsson.... ættu kannski að lesa aðeins betur yfir það sem Bjarni er að skrifa áður enn þeir fara að commenta á bloggið.

Hvergi sé ég Bjarna halda því fram að þjóð-hátíðardagar, fáninn eða söngurinn glatist við innlimun í ESB.

Og þið talið um offors í áróðri...

Halldór Björgvin Jóhannsson, 19.6.2009 kl. 18:59

30 identicon

Jón Frímann

Það er greinilegt á öllu að þú Jón Frímann vilt viðhalda þessu ESB-Tyranny (feudal system), og alls ekki berjast fyrir, eða hvað þá óska eftir frekara lýðræði fyrir þetta ESB bákn þitt? Hvenær byrjar svo næsta áróðurshrina, eða fyrir þessari "New World Order" hans Gordons Browns (ESB -sinna), eða áróður fyrir  "New World Governance" þeirra Burros og Sarkozy?  Já hvenær byrjar svo allur áróðurinn fyrir þessu Nýja Heimsskipulagi "New World Order" eða Tyranny  hérna á Íslandi Jón Frímann hjá ykkur ESB -sinnum, eða þar sem þetta ESB-lið vill sameina öll þessi sambönd: Evrópusambandið (ESB/EU), Afríkusambandið (AU), Asíusambandið ( Asian Union), Suður-Ameríkusambandið (SAU), Mið-Ameríkusambandið (CAU) og hugsanlega fleiri sambönd undir eina alsherjar alheimsstjórn  "One World Governmet" eða  New World Order Tyranny ( fyrir Central Banks elítuna)?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 21:10

31 identicon

Jón Frímann

Lisbon sáttmálinn er bara copy paste af gömlu ljótu ESB stjórnaskráinni, nema hvað með fáeinum undantekningum þar sem orðalagið er breytt en merkingin er sú sama og svo er orðalagið villandi, öll efnisatriðin koma þarna fram í sömu röð og voru í gömlu ljótu ESB stjórnaskráinni, reyndar var Lisabon sáttmaínn saminn strax á eftir að ljóta ESB- stjórnaskráni hafði verið hafnað.  

 MEP Exposes The EU Lisbon Treaty!!!  Lisbon Treaty: Difference from the rejected EU Constitution

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 21:37

32 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Get ég treyst því að sundlaugin verði opin?

Ævar Rafn Kjartansson, 19.6.2009 kl. 22:00

33 identicon

Ágætu Evrópukratar sem geta vart á sér heilum tekið í athugasemdaskrifum hér fyrir ofan:

Pistillinn hér fyrir ofan er GRÍN, hann fjallar um SUNDLAUG Í HVERAGERÐI og mann sem vill komast í þá sundlaug á 17. júní. 

Þetta er EKKI það sem kallað er hræðsluáróður, heldur er þetta það sem kallað er DJÓK. 

Hræðsluáróður er þegar Evrópusinnar halda því fram að landið sökkvi í sæ ef íslenskir ráðamenn fara ekki á hnén í Brussel.

Róið ykkur aðeins niður, andið djúpt og ekki fara yfir um þó að einhver djóki aðeins um ykkar Evróputrúarbrögð.

Máni Atlason (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 23:13

34 Smámynd: Bjarni Harðarson

ég var svo ánægður með þetta frændi hvað allir tóku þetta alvarlega enda aldrei að vita nema til sé í dírektívum hinnar sérstöku stofnunar esb um varnir gegn þjóðernislegum og kynþáttabundninni  mismunun sundlaugarstaða að ekki megi loka sundlaug á þjóðhátíðardegi einnar þjóðar á ees svæðinu án þess að hafa lokað alla hina þjóðhátíðardagana líka sem og alla almenna trúarhátíðisdaga þannig að kannski endar þetta allt með því að sundlauginni í laugaskarði verði alveg lokað alla daga ef við göngum í esb og ekki er það nú gott eða eins kalli sveins myndi segja, ekki er það nú gott...

Bjarni Harðarson, 20.6.2009 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband