Hrollvekjandi viðtal

Nú eru jólaannir og langt því frá að ég megi vera að því að blogga um stjórnmál en viðtalið sem Kastljós RÚV birti við Jóhannes í Bónus var hrollvekjandi. Ekki aðallega vegna barnalegrar sjálfumgleði Jóhannesar yfir því að standa einn uppi af kaupmönnum meðan aðrir hefðu farið á hausinn - heldur ekki síður útaf spurningunum sem voru stundum eins og pantaðar af viðmælenda.

Eða hvað á það að þýða að hver maður éti upp eftir öðrum að öll þau fyrirtæki sem nú eru farin á hausinn, Baugur, Penninn, 365, Húsasmiðjan, Mogginn o.s.frv. hafi verið svo frábærlega vel rekin en bara farið niður fyrir vélan vondra manna. Öll þessi fyrirtæki fóru af sjálfsdáðum á hausinn og það er ekkert sem bendir til að þetta séu mjög glæsilegar rekstrareiningar. Útfrá hefðbundnum rekstarmódelum eru þessi fyrirtæki öll of lítil til að geta nýtt sér almennilega hagkvæmni stærðarinnar og alltof stór til að njóta þeirra ávaxta sem fylgja litlum rekstrareiningum. Tilfellið er að á Íslandi er bara hægt að reka frekar litlar einingar, (sirka innan við 100 starfsmanna,) af einhverju viti því íslenskar einingar geta aldrei orðið alvöru stórar. Ekki hér á heimamarkaði.

Baugsveldið setti fjölda heiðarlegra atvinnurekenda á hausinn af því að þar voru við stjórnvölinn alvöru kapítalistar sem ekki létu sér detta í hug að safna skuldum á sama hátt og Bónusfeðgar hafa gert. Þessir áttu heldur ekki banka til að fela skuldirnar.

Nú velta þessir feðgar yfir þjóðina ógreiddum skuldum upp á hundruði milljarða og svo hleypir Kastljósið í viðtal við hinn gamla og geðþekka kaupmann sem bregst okkur viðskiptamönnum sínum hrapalega með því að  þræta eins og sprúttsali og neita að ræða um tölur!

Hverslags bananalýðveldi er þetta að verða. Nei, kannski ekki banana heldur vínberja-lýðveldi...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég datt óvart inn á viðtalið og var fljótur að slökkva. 

Það er í raun alveg með ólíkindum hve þessum Bónus-feðgum er hampað í fjölmiðlum.  Af nógu er að taka í þjóðfélgsumræðunni sem Kastljósið gæti tekið fyrir, en ónei þessi drengur Jóhannes er dreginn inn í myndverið, meikaður upp og leyft að væla.  Þeir gráta reglulega úr sér augun til að kreista fram vorkun landsmanna, og virðist bara takast ansi vel upp.

Halda fjölmiðlamenn virkilega að líf og áhugamál almennings snúist um þessa karaktera, hvað þeir gera í frístundum, hvað þeir hugsa, hvað þeir segjast skulda mikið og svo framvegis ?  

Ég fullyrði að það sé langur vegur frá því og ég skora enn og aftur á RÚV að setja á stofn "Kranaviðtals-stöðina" þar sem þessir drengir geta vælt 24/7 og þá geta þeir örfáu sem menna að hlusta - stillt á hana.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 20:36

2 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

Guð stjórni þér Bjarni.

Bónusfeðgar geta talið sig klára stjórnendur, en við landsmenn upplifum það bara fyrir þeirra eigin hagsmuni, Jói og sonur áttu ekki neitt fyrr en Bjarni Armannson veifaði töfrasprotanum, leysti Hagkaupsfjölskylduna úr álögum og lánaði feðgunum fyrir Hagkaup.

Við Íslendingar höfum verið rændir!

Peningar sem koma inn og hverfa svo snöggt að jafnvel "Speedy Gonsales" getur ekki séð hvað varð um þá. jafnvel Eva Joly og hennar snjöllu menn þurfa tíma og fjárútlát okkar til að þefa gjörninga þeirra uppi.

Það sem Íslendingar þurfa allra síst á að halda er að þeir sem segjast geta rekið fyrirtæki manna bezt ræni okkur aftur.

En þegar bækurnar eru skoðaðar finnast bara skuldir enginn stórgróði hver króna sem kemur í kassann ryksuguð burt um leið.

Menn sem kunna að ná sér í pening (ég sé Fagin (Jóhannes) sparka Oliver og drengjunum niður stigann þegar þeir komu ekki með nægar birgðir vasaklúta og vasaúra heim um kvöldið) og skilja allt sem heitið getur á Íslandi eftir í rúst.

Við þurfum heiðarlega menn til að reka fyrirtæki hér á landi. Að ekki sé talað um fyrirtæki af þessari stærðargráðu.

Kolbeinn Pálsson, 18.11.2009 kl. 21:13

3 identicon

Þetta er bölvað skítapakk Bjarni.

sandkassi (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 22:05

4 identicon

Er ekki til ærlegt fólk sem hægt er að fá til starfa á RÚV. 

Þessi "kastljós" sem kalla sig fréttamenn eru enn í bulland meðvirkni með útrásinni og er ekkert lát á því.

Erfiðar spurningar sem brenna á fólki koma ekki til álita þegar þessir "höfðingjar" mæta í drottningar- og kóngaviðtölin. 

Og svo eru ráðamenn sem eru í óða önn að hreinsa skítinn upp eftir þá spurðir eins og þeir séu sakamenn. 

Sbr. viðtal eins "kasljóssins" við Steingrím J. í kvöld.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 18.11.2009 kl. 22:41

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Bjarni enn og aftur erum við ekki sammála og það bara gott/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 19.11.2009 kl. 00:40

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ekkert einstak örhagkerfi 300.000 manna  í USA  eða EU hefur geta pínt Markaðsaðila sem dreifir á 500 milljónir.

Hreinlætis vöru hafa aukist mjög í sölu í heimum undan farin 30 ár aukin framleiðsla samfara meiri áherslu á lágvöru gæði og tækniframfarir hafa skilað lækkun á heims mælikvarði.

Kaupmaður þótt yfirleitt ágætt fyrir 30 árum.

Vístölufjölskyldan hefur minnkað og étur minna. Vextir og skattar vegna meira í vístölunni og fasteignir dýrari vegna lengri lána.

Allt þetta er óháð Bónus. Dýrustu keðju á heimsmælikvarða miðað við markaðshlutdeild baklandsins. 

Júlíus Björnsson, 19.11.2009 kl. 02:48

7 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Sá þetta viðtal að hluta - slökkti eftir ekki svo margar mínútur - ákaflega ógeðfelt í anda 2007, en svona fyrir þá sem vilja ekki vita þá:

Jón Ásgeir "vinur" var með partý í íbúðinni í New York, síðustu helgi, sem allir halda að hafi verið tekinn af honum.Var víst mjög gaman þar.

Landsbankinn lánaði 97% af kaupverði án veðs en hann staðgreiddi íbúðina og notaði sem veð í aðra fjárfestingu.

Jón Snæbjörnsson, 19.11.2009 kl. 09:59

8 identicon

Sammála þér að þetta var furðulegt viðtal en ég fann ekki fyrir samúð í garð feðganna.  En það er gaman að sjá hvað Jóhannes er sjálfum sér ósamkæmur frá því að hann byrjaði með Bónus verslanirnar og fór geyst með ásakanir um markaðsráðandi öfl á matvörumarkaði!

En skemmtilegt síðan að þú skulir nefna að við erum "vínberjalýðveldi" Bjarni.

Það minnir mig nefnilega á þegar innflutningur á vínberjum á óhagstæðan hátt til að anna markaðsþörf hafði ótrúleg áhrif á skuldir landsmanna (og eignir líka væntanlega).  Þetta sýnir mjög vel fáránleika vísitölunnar!  Þetta var einhvernvegin þannig að ekki voru fáanleg vínber sem boðleg þóttu fyrir jólin 2000-2001 og því voru flutt inn vínber frá Suður-Afríku með sér flugvél sem hleypti verðinu á vínberjum upp um ca 300%.  Þetta hafði þau áhrif að neysluvísitalan hækkaði um ca 0,02% og skuldir landsmanna hækkuðu um 600 milljónir!  Hvernig getur vörusala uppá ca 50 milljónir hámark haft svona vangefin áhrif á skuldirnar okkar?  Þetta sýnir okkur að vísitalan er ILLILEGA brengluð og enganvegin hugsuð með hagsmuni almennings heldur bara sem enn eitt beltið fyrir fjármagnseigendur!

Varðandi okkar litla hagkerfi þá fannst mér líka skondið að Víkingalotto-vinningur sem skilar sér til landsins uppá rúmar 100 milljónir stuðli að styrkingu gengis uppá 0,37%.  Þetta sýnir okkur svart á hvítu að Ísland má sín lítils ef einhver öfl sem geta auðveldlega verið 1000 sinnum stærri en hagkerfið okkar ætla sér að hagnast á braski með eignir okkar!  Svona fyrirtæki væri jafnvel ekki að leggja undir nema 1% eða minna af sínum eignum á móti aleigu okkar!  Það er ekki gott að spila póker á móti einhverjum sem getur alltaf hækkað pottinn langt yfir það sem maður getur jafnað með öllum tilækum ráðum (eða lánum)!!

Matthías Einarsson (IP-tala skráð) 20.11.2009 kl. 14:50

9 Smámynd: Júlíus Björnsson

Nú tíma bólguvístala mælir vægi þess sem hækkar mest í mánuði. Á krepputímum og í fátækum ríkjum selst mest að ódýri. Meðal kíló sem kostar 10 krónur og hækkar um 1 kr. Jafngildir 10% bólgu.

Hinsvegar hjá ríku þjóðin þar sem gæða kílóið kosta 100 kr og hækkar um 1 Kr. þá mælist bólgan 1%.

Vínberin sem ég tók þátt í selja koma 1 sinni ári og hækka ekkert að ráði í þeim rökrétta samanburði. Má fólk ekki gera sér daga mun? Á sinn eigin kostnað. Þetta er sovét í framkvæmd: fylgjendur því ráðstjórnarkommar í rauninni.

Gömlu föst bólgu viðmiðanirnar sem taka miða af því sem er talið nauðsynlegt á heimamarkaði koma miklu betur út til hagstjórnar hjá minni og fátækari ríkjum.

Dæmi 1 lítri af mjólk í Bónus Faxafeni. Íslenskt brennivín1 lítri úr Heiðrúnu.

Aðferðin sem notuð er virkar þannig ef bílar seljast ekki þá hafa þeir ekkert vægi hinsvegar gætu nokkrar krónur á verð slaga og þunnilda mælt mikla bólgu ef væru étinn eingöngu almennt.

Sjálfstæð þjóð getur notaði þann mælikvarða sem henni sýnist. 

Þetta núverandi íslenska reiknilíkan til ákvörðunar bólgu er ættað frá OCED og virkar hér innan lands þannig að þeir sem verslast dýrast í matinn valda minnstri bólgu [neytandinn spáir í krónur þegar upp er staðið á sínu stykki: verslunar sálfræði, Fjármálstofnanir einna helst skilja prósentu samhengið].

Í samanburði þjóða velda háar þjóðartekjur og/eða mikil harðstjórn minnstri bólgu.   

Þetta er enginn vandi að botna í eftir að reiknilíkanið hefur verið skilið eða krufið til mergjar.

Júlíus Björnsson, 20.11.2009 kl. 15:55

10 identicon

En skemmtilegt síðan að þú skulir nefna að við erum "vínberjalýðveldi" Bjarni.

a+ certification (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 06:17

11 identicon

I like this website very much.This is really a extraordinary web.This is not like other money directed web, the info here is truly useful. I am definitely bookmarking it as well as sharing it with my friends.

cissp certification (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 06:19

12 identicon

Þessi hræðsluáróður, sem settur er fram í fréttum á b orð við þá sem þú linkar á er orðinn ansi brjálæðislegur. Svínaflensan er með saklausari flensum, sem skotið hafa upp kollinum. Það þarf bara að googla þetta til að sjá hverslags kjaftæði er í gangi.Reglubundnar, árstíðabundnar flensur drepa um 250-500.000 einstaklinga á hverju ári. Það er hlutfall af einum milljarði, sem veikjast. 0.25-0.5%. 

cissp exam (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 06:20

13 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það er stutt síðan í sögu markaðsvæðingar lækninga á alþjóðamælikvarða að árstíðabundnir reglulegir flensufaraldrar voru skýrðir sérnöfnum. Íslendingar munu genalega séð eftir 1000 ár verjast þessu vel ef þeir eru almennt við góða heilsu og 300 milljónir eru 300 milljónir.   

Júlíus Björnsson, 9.2.2010 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband