Þakkir heimska Bjarna til hans drýldna Jóns

Var vakinn upp fyrir níu íjbh.jpg morgun með þeim fréttum að Jón Baldvin kallaði mig mannvitsbrekku í hálærðri ritgerð í opnu Morgunblaðsins. Umfjöllunarefnið var einkanlega Björn Bjarnason sem er hér fært mjög til foráttu að hafa í ESB málum sömu skoðun og heimskinginn Bjarni Harðarson. 

Sem betur fer tókst mér nú að sofna aftur í minni heimsku og þótti nú heldur vænt um að Jón Baldvin gæti enn gamall maðurinn fundið sér til skammar og skemmtunar.

En ef að ESB-sinnar eiga þessi rök sterkust að kalla okkur ESB-andstæðinga heimska þá er þeim það frjálst og ekki ætla ég að leggja mat á það hvar ég er á greinarvísitölukvarða Jóns Baldvins Hannibalssonar.

Veit þó að í fræðum Baldurs Þórhallssonar er ég flokkaður með því fólki sem hefur frekar litla eða jafnvel neikvæða evrópuvitund en um þá tegund vitundar hafa menn við Hí skrifað heilu doktorsritgerðirnar og eru skringifræði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

ESB = dauðadómur

Ísland verður fyrsta landið í heiminum til að koma sér upp úr þessari heimskreppu og það eitt veitir okkur gríðarlegt forskot á hina. Það eina sem Ísland vantar er traustur gjaldmiðill sem er einhvers virði, ég mæli með CAD eða pundi, pundið væri sterkur leikur þar sem hann er hagstæður með eindæmum í dag þó svo ég fyrirgefi aldrei bretum hvernig þeir fóru með okkur, því gleymi ég aldrei og þeir eiga eftir að fá að finna fyrir því þegar fram líða stundir.

Sævar Einarsson, 28.3.2009 kl. 12:35

2 Smámynd: Sævar Einarsson

Hvað varðar JB þá er hann bara sár og svekktur yfir því að fá engan stuðning, honum var hafnað og vantar hækju til að villa um fyrir sitt eigið (f)ágæti.

Sævar Einarsson, 28.3.2009 kl. 12:38

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Eftir því sem ég kynni mér kosti og galla Evrópuaðildar betur, þá sýnist mér eini kosturinn vera gjaldmiðillinn. Hann hefur reyndar víðtækar afleiðingar í formi stöðugleika og þar með lægri vaxta. Ókostirnir eru hins vegar fjölmargir og alltof langt mál að telja upp hér.

Í fyrsta lagi þá fáum við ekki inngöngu í ESB fyrr en sæmilegum stöðugleika er náð og þá verða vextirnir líka orðnir lægri. Þegar þeim áfanga er náð, er ég hræddur um að ESB-sinnar verði ráðvilltir og jafnvel örvæntingarfullir. Hvað uppdikta þeir þá til að réttlæta rétttrúnað sinn?

 Ef það er hægt að taka upp annan gjaldmiðil án ESB aðildar, þá er sjálfsagt rétt að gera það.

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.3.2009 kl. 12:45

4 Smámynd: Magnús Jónsson

Bjarni:þú er ekki einn um að vera svona heimskur, ég er svona líka, verðum við ekki að fara að stofna félag um þetta, legg til nafnið -Heimska Manvitsbrekkufélagið, og biðjum Jóni Baldvin um að tilnefna félaga fyrir okkur, hann er reyndar búin að vera að því síðan fyrir jól, og við erum bara nokkuð margir sko........

Magnús Jónsson, 28.3.2009 kl. 12:45

5 identicon

Það er vissulega heimska að sjá ekki að það verður fá þjóðinni að kjósa um slíkt deilumál, sama hvað e-r bóksali á Selfossi (sem ætlar að verða þingmaður okkar Reykvíkinga?)segir! 

Það er út af rökustuðningi eins og "ESB = dauðadómur" sem flestir tala svona um ykkur L-trúðanna.

Þið eru samt skemmtilega vitlausir, haldið áfram, það er gaman af ykkur.

E (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 12:54

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég lít nú á þessa ESB þráhyggju svona eins og einhvern flensuskít og held mig við vonina um að mönnum fari bráðum að skána þessi ófögnuður.

Árni Gunnarsson, 28.3.2009 kl. 12:54

7 identicon

Þegar að rökin skortir þá er farið út í svívirðingar. Ég óska Jóni alls hins besta í pólitíkinni, hann er efnilegur.

sandkassi (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 12:55

8 Smámynd: Kristbjörg Steinunn Gísladóttir

Tek undir með Gunnari Waage, þegar rökin vantar þá er farið út í svívirðingar, eins að þora ekki að koma fram með skoðanir sínar undir nafni eins og E gerir.

Kristbjörg Steinunn Gísladóttir, 28.3.2009 kl. 13:15

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jón lenti í 13. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar.

Er það ekki óhappatalan?

Jón Valur Jensson, 28.3.2009 kl. 13:18

10 identicon

Jón Baldvin veður villu ,reyk og svíma. því hvorki er hér brekka né mannvit á ferð. 

eiður (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 13:49

11 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Ja það er skárra að vera álitinn heimskur heldur en föðurlandssvikari og landráðamaður

En hvað varðar gjaldmiðilskipti, þá finnst mér að við ættum að doka við þar til að alheimskreppan er yfirstaðin og sjá hvaða gjaldmiðlar standa traustir.  Þá fyrst er tímabært að kanna það að taka traustan alþjóðlegan gjaldmiðil upp hérlendis. Það lítur svo skelfilega illa út fyrir Evrópusambandið að margir efast um að það geti staðið alheimskreppuna af sér, þessvegna er það glapræði fyrir okkur íslendinga að ganga inní það til þess eins að sökkva algjörlega með því.  Ef og þegar við tökum upp annan gjaldmiðil þá verður það að vera í stöðugu traustu alþjóðlegu fjármálaumhverfi Núna er ekki rétti tíminn.

Skynsamlegast væri fyrir íslendinga að styrkja gengi krónunnar með aukinni verðmætasköpun og uppbyggingu atvinnu. 

Guðrún Sæmundsdóttir, 28.3.2009 kl. 13:54

12 identicon

Bjarni Brekkan bóksali, er það ekki málið ?? Við skulum ekki gleyma aðalatryðinu og það er að Jón Baldvin er höfundur bankahrunsins, jú hann tróð okkur í ees sem er aðalástæðan fyrir einkavæðingu bankana og reglur þeirra giltu fyrir okkar banka. ESB mun gefa sígaunum mera vald en okkur íslendingum því þeir eru fleirri og það verður gaman þegar þeir fara að setja reglur um esb staðlaða júgurstærð á kúm sem fæddar eru austan rangár. 

Baldur M Róbertsson (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 14:53

13 Smámynd: Hlédís

Við sem varkár erum gagnvart Evrópubandalags-yfirráðum á Íslandi getum, t d,  kallast Skjaldbökur með vísan í söguna "Hérinn og skjaldbakan"   Virðist JBH smellpassa í Hérahópinn.

Hlédís, 28.3.2009 kl. 15:05

14 Smámynd: Haraldur Baldursson

Lýsingar af Baldri Þórhallssyni, sem þykist kenna stjórnmálafræði, eru þær að orðar það sem svo að kennslann sé hlutlaus. Raunin er þó sú að nemendur læra ekki bara á fræðin, þeir læra á kennarana líka. Vilji þeir fá hærri einkunn en lægri vita þeir orðið í tilfelli Baldurs að ritgerðir og próf verða að undirstrika ágæti inngöngu í ESB. Baldur ástundar því ekki hlutlausa kennslu heldur mjög litaða.

Haraldur Baldursson, 28.3.2009 kl. 15:40

15 Smámynd: Ragnar L Benediktsson

Í Nýju Gineu nota innfæddir til sveita skeljar sem gjaldmiðil. Hvað skyldi gengið á þeim vera ?

Ragnar L Benediktsson, 28.3.2009 kl. 16:01

16 identicon

Jón Baldvin veit að hann veit ekki lítið
og vitinu mikla er gjarn á að flíka.
En ætli honum þyki ekki eilítið skrítið
að annað fólk skuli ekki vita þetta líka?

Það ætti kannski frekar að skrifa þetta svona:

Jón Baldvin veit að hann veit ekki lítið
og vitinu mikla er gjarn á að flíka.
En ætl'onum þyki ekki eilítið skrítið
að annað fólk skul'ekki vit'etta líka?

Atli (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 16:10

17 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

JÓN BALDVIN Á FRAMTÍÐ FYRIR SÉR Í PÓLITÍK EF HANN HELDUR VEL Á MÁLUM NÆSTU TÍU TÓLF ÁRIN EÐA SVO.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.3.2009 kl. 16:32

18 identicon

Myndi ekki kalla þig heimskann frekar vitgrannan,

en auðvitað er lélegur þetta brandari hjá mér svona svipað og trúðurinn sem skemmti sjálfstæðismönnum áðan. Þegar rökin þrýtur leita menn í skítkastið.

steini (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 16:58

19 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég er ESBsinni og myndi aldrei kalla þig heimskan, þótt okkur greini á!

Ekki hlusta á svona rugl.  Ég er svekkt yfir JBH að nota svona skot undir beltisstað, hann minnkar bara sjálfur við það!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.3.2009 kl. 17:25

20 Smámynd: ThoR-E

Jón ætti að líta í eigin barm.

Að vera svona æstur í að kyssa vöndinn ... er hann búinn að gleyma hvernig ESB kom fram við okkur t.d í Icesave málinu??

Einnig virðist Jón Baldvin vera gífurlega æstur í að afsala aulindum okkar til Brussel.

Ekki skrítið að manninum væri hafnað á dögunum. Svona "ofsamenn" höfum við ekkert við að gera.

ThoR-E, 28.3.2009 kl. 17:35

21 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Kristbjörg og Gunnar Waage, aha... sammála. Hann Jón Baldvin er sár.  Ég vorkenni honum pínu eftir síðustu útreið hjá Samfylkingunni.  Ekki gott að  henda grjóti úr glerhúsi samt.  Kannski hann eigi sér andvökunætur varðandi EES og bankahrunið. Æi... greiskarnið...    Ég svæfi ekki vel að hafa þann skandal á samviskunni.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 28.3.2009 kl. 17:42

22 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Maður er manns gaman,hefur það eitthvað með vit að gera/Þeim kom aldrei vel saman feðgunum Hannibal og Jóni baldna ætli þeir hafi ekki veri og líkir,er ekki svoleiðis fíla heimska,ef ekki hvað er það þá/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 28.3.2009 kl. 17:47

23 identicon

Það verður nú samt að segjast eins og er Bjarni inn, að rökin fyrir því að fara ekki í ESB eru ansi slök. Þið talið um að við missum auðlindir okkar. Þetta stenst ekki skoðun og ég hafna þessum rökum þem þvættingi og rök eingöngu til þess fallin að hræða fólk frá því að taka skynsamlega ákvröðun í málinu. Haldið þið virkilega að öll þau lönd sem hafi gengið í ESB hafi gert það á þeirri forsendu að þau í leiðinni missi allar auðlindir sínar, og á hverju ættu þær þá að lifa, og hvert hefðu auðlindirnar átt að fara? Þetta er rugl umræða og leiðinlegt þegar menn grípa til þess að ljúga til að auka fylgi við skoðanir sínar. Eins er þetta varðandi verðtrygginguna, þið vitið vel að það er ekki hægt að losna við hana með þeim gjaldmiðli sem við erum með og þið vitið vel að einhliða upptaka erlends gjaldmiðils er mjög hættuleg fyrir landið okkar. Samt haldið þið því fram að þetta sé hægt. Þarna ljúgið þið bara til þess að fá fólk til fyrlgilags við þessar þjóðernislegu hugsanir ykkar. Því miður þá virðist enginn gefa sér tíma til að kynna sér þessi mál, heldur tekur fólk ákvarðanir út frá stjórnmálaflokkum. Ég tek ákvörðun um að styðja þá hugmynd að við göngum í ESB eingöngu vegna þess að ég tel að mínum hagsmunum sé þar best borgið. Þá er ég hreinlega að tala um veskið mitt, því um það snyst þetta. Ég vill ekki búa í landi þar sem ég þarf að borga hverja krónu sem ég fæ lánaða mörgum sinnum til baka. Þið viðhaldið slíkri villu.

Valsól (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 20:38

24 identicon

Baldur m Róbertsson, bara svo þú vitir það þá er efnahagshrunið hér á landi ekki EES að kenna, heldur Sjálfstæðisfloknum. EES reglur eru í öllum löndum ESB, svo það lýsir bara fákunnáttu að koma með svona yfirlýsingar. Þú kemur upp um þig og þína skoðun á ESB, þú veist greinilega ekkert um málið. Kenna EES ha ha ha, það er eins og að kenna umferðareglum sem segja að hámarkshraði sé 90 km um ef ökuníðingur keyrir á 170.

Valsól (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 20:47

25 Smámynd: Baldur Hermannsson

Lát eigi deigan síga drengur þótt afgamalt og langvitlaust kratagægnsi frussi yfir þig.

Baldur Hermannsson, 28.3.2009 kl. 22:03

26 Smámynd: Ragnar Geir Brynjólfsson

Heill og sæll Bjarni.

Í gömlu vísubroti segir:

Hirði eg ei þótt höldar kalli mig vóndan -

 - heldur kyssi ég húsfreyjuna en bóndann

 

B.kv.

Ragnar.

Ragnar Geir Brynjólfsson, 28.3.2009 kl. 22:37

27 Smámynd: Offari

Bjarni minn ég kalla það ekki heimsku að vita ekki það sem þér hefur aldrei verið sagt. Mér hefur aldrei heldur verið sagt hvað það er sem heilla þriðjung þjóðarinar við Esb inngöngu. Samt tel ég mig ekki heimskann.

Guðrún Sæmundsdóttir hér ofar hittir held ég naglan á höfuðið. Við eigum ekkert að skoða aðra gjaldmiðla fyrr en kreppan er afstaðin. Þótt krónan hafi fallið er ekki þar með sagt að við eigum að losa okkur við hana þegar minnst fæst fyrir hana.

Ég er reyndar lítið hrifinn af Esb en mun hinsvegar sætta mig við vilja þjóðarinar. En að kjósa um Esb núna þar sem reynt er að halda því fram að það bjargi okkur úr skítnum finnst mér ekki góð lausn.

Mér finnst einhvenveginn að aðgerðarleysið hjá samfylkinguni sé eingöng trix til að láta okkur lúta þeirra vilja og ekkert verði gert fyrr en við göngum í Esb. Athugið að ekert á heldur að gera fyrr en Davíð yrði rekinn en samt gerist ekkert.

Offari, 28.3.2009 kl. 22:49

28 Smámynd: Bjarni Kjartansson

að vera kallaður heimskur af Jóni hinum Baldna er hrós og skjall.

Lít á rökfærslur hans og sjá.

Bjarni Kjartansson, 29.3.2009 kl. 00:37

29 identicon

Mikið hefði ég gaman af að sjá ykkur JBH takst á.  Það væri flott að hafa bardagann á Útvarpi Sögu.  Spurning hvort að þú hlypir grenjandi út eins og Guðni undan Stormskerinu.

Ég held þó ekki.  Held frekar að þú myndir sitja það af þér að verða að gjalti.

Ekki þó af því að JBH hafi endilega rétt fyrir sér.  Bara svona tilfinning.

marco (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 00:49

30 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Offari langar bara að spyrja þig að eftirfarandi (man ekki hvort ég hafði gert það áður).

  1. Er ekki hluti kreppunar hér hjá okkur vegna þess að krónan hefur fallið um 50% frá því 2007?
  2. Er ekki vandamál hjá okkur nú að enginn vill skipta með krónur þannig að við þurfum að taka að láni allan gjaldeyri sem við ætlum að nota?
  3. Er ekki vandmál hjá okkur núna að við verðum að halda uppi gjaldeysishöftum til að sá litli gjaldeyrir sem við eigum leiti ekki út á nokkrum dögum m.a. við innlausn á krónu- og jöklabréfum?
  4. Er ekki vandamál að til að bankar hafi fengist til að lána í lengri tíma þá hefur þurft að verðtryggja kronuna því hún rýrnar svo hratt?
  5. Eru ekki fyrirtæki í vandamálum þar sem að engir bankar erlendis vilja skipta krónum. Ekki lána fyrirtækjum og krefjast staðgreiðslu í erlendri mynt þar sem engin hefur trú á krónunni?

Svo hvernig ætlar fólk að komast út úr kreppunni án þess að láta umheimin vita að hverju við stefnum varðandi mynt og hvernig við ætlum að koma á stöðugleika hér?

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.3.2009 kl. 00:56

31 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég legg til að brekkan frá Aðalstræti upp vesturgötu og að heimkynnum jóns verði kölluð mannvitsbrekka hér eftir.

Ég er líka haldinn þessari heimsku og heimóttaskap eins og þú með öll mín 130 stig í höfðinu. Verst að ekki sé hægt að kaupa sér fleiri til að ná af sér slýðruorðinu.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2009 kl. 11:25

32 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er þó huggun harmi í Bjarni minn að við erum ekki bolir.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2009 kl. 11:27

33 identicon

Eitt finnst mér alveg vanta í all þessa ESB umræðu og það er hvað vinnst og hvað tapast. Mér finnst stöðugt skítkast vera aðalgrunvöllurinn í þessari umræðu. Gaman væri ef einhver gæti á hlutlausan hátt talið upp kosti og galla þess að vera í ESB svo t.d ég gerði mér grein fyrir hvað þetta snýst raunverulega um. En réet er það ef rökin sem notuð eru að hinn eða þessi sé heimskur þá er ekki mikið á að byggja.

kv. Gísli Kr.

Gisli Kristjansson (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 12:32

34 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Bjarni þú varst frábær í Silfrinu áðan Snilld að koma með samlíkinguna um kosningarétt kvenna

Guðrún Sæmundsdóttir, 29.3.2009 kl. 14:14

35 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Já þegar rökin vanntar er farið út í svívirðingar.  Gott innlegg í Silfrinu í dag!  Hverjum datt í hug að leyfa konum að kjósa annars?

Jón Á Grétarsson, 29.3.2009 kl. 21:10

36 Smámynd: Offari

Offari langar bara að spyrja þig að eftirfarandi (man ekki hvort ég hafði gert það áður).

  1. Er ekki hluti kreppunar hér hjá okkur vegna þess að krónan hefur fallið um 50% frá því 2007?
  2. Er ekki vandamál hjá okkur nú að enginn vill skipta með krónur þannig að við þurfum að taka að láni allan gjaldeyri sem við ætlum að nota?
  3. Er ekki vandmál hjá okkur núna að við verðum að halda uppi gjaldeysishöftum til að sá litli gjaldeyrir sem við eigum leiti ekki út á nokkrum dögum m.a. við innlausn á krónu- og jöklabréfum?
  4. Er ekki vandamál að til að bankar hafi fengist til að lána í lengri tíma þá hefur þurft að verðtryggja kronuna því hún rýrnar svo hratt?
  5. Eru ekki fyrirtæki í vandamálum þar sem að engir bankar erlendis vilja skipta krónum. Ekki lána fyrirtækjum og krefjast staðgreiðslu í erlendri mynt þar sem engin hefur trú á krónunni?
Svo hvernig ætlar fólk að komast út úr kreppunni án þess að láta umheimin vita að hverju við stefnum varðandi mynt og hvernig við ætlum að koma á stöðugleika hér?

1.       Krónan féll vegna þess að íslendinga skulda of mikið. Fall krónunar er vissulega hluti af kreppuni en hún hækkar ekkert við að ganga í Esb.

2.       Það er vissulega vandamál en kemur samt í veg fyrir peningaflótta úr landi. Við eigum hinsvegar ekki að flytja inn meir en svo að útflutningurinn dugi okkur sem gjaldeyrisöflun.

3.       Jú en ég efast um að gjaldeyririnn aukist við það eitt að ganga í Esb. Þótt svo krónan breytist í Evru verðum við að hafa þann penigaforða sem til er í landinu til að halda uppi inanlandshagkerfinu.

4.       Verðtryggingin kemur í veg fyrir að maður tapi þeim peningum sem maður á. Vissulega er þetta vandamál fyrir þá sem skulda en það breytir í raun engu fyrir skuldara að skipta um mynt núna þegar krónan er lág því þá breytist bara skuldin í aðra mynt.

5.       Jú ég þekki það vandamál þar sem ekki fæst gjaldeyrir til að borga erlendar skuldir. En jafnvel þótt krónan sé veik og var fyrst til að falla í þessum hremmingum tel ég að aðrir gjaldmiðlar eigi líka eftir að falla. Ég tel að Evran falli mest því vandamálin eru mest í Esb löndum.  Að taka upp Evru núna gæti því þýtt aðra gengisfellingu fyrir landi og ég efast um að nokkur vilji lenda í því aftur.

 

Þrátt fyrir erfiðleika núna tel ég bestu möguleika fyrir Ísland að ná sér út úr kreppuni eitt og sér. Ég reikna með að betra sé að taka hvert land fyrir sig en að skella einni heimsálfu í úrlausnarpakkann.  Ísland stendur vel að vígi vegna þess að matvælaframleiðsla okkar er mun meiri en innanlandsþörfin.

 

Stefna okkar á að vera að vera sjálfum okkur næg. Ef við getum verið óháð öðrum tel ég að litið verði upp til okkar og aðrar þjóði fari að leita ráða hjá okkur. Fiskurinn verður alltaf útflutnigsvara því þótt allstaða sé að dragast saman í neyslu hættir fólk ekki að borða.

Offari, 29.3.2009 kl. 21:29

37 Smámynd: ThoR-E

Valsól: Ég er þér oft sammála, en ekki þarna.

Þú segir hér fyrir ofan að þú hafnir þeim rökum anti-ESB sinna um auðlindir okkar ef farið er í ESB. Þetta stenst ekki skoðun og ég hafna þessum rökum þem þvættingi og rök eingöngu til þess fallin að hræða fólk frá því að taka skynsamlega ákvröðun í málinu.

Aulindindirnar okkar er eitt stærsta málið í ESB umræðunni. Fiskimiðin... einnig landbúnaðurinn. Þetta er það sem hefur strandað á í umræðunni aftur og aftur.

Ef þú veist eitthvað betur ... ert með einhverjar upplýsingar um ESB sem við hin vitum ekki... endilega komdu þeim til ríkisstjórnarinnar svo við getum leist þetta mál í skipti fyrir öll :)

ThoR-E, 30.3.2009 kl. 11:35

38 identicon

Það er látið í veðri vaka að þetta snúist um auðlindir eins og heitt vatn og rafmagn, sem er þvættingur. Hvað varðar fiskinn í sjónum þá er farið eftir veiðireynslu þjóða, og þar siglum við lygnan sjó og þurfum ekki að hafa áhyggjur. Ef við þyrftum að semja eitthvað þá er það nú þannig að við fengum eitthvað í staðin. Hvað er svona slæmt við það?

Valsól (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 13:13

39 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta "eitthvað í staðinn".... hver borgar fyrir það?

"There is no such thing as a free lunch!"

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.3.2009 kl. 13:47

40 Smámynd: Hlédís

Tek undir með Gunnari

Hvers vegna er þvættingur að ræða auðlindir Íslands í tengslum við EB-aðild? - Hvað, t d,  væri svo þetta "eitthvað í staðinn"?  Euros?  - Halda menn við virkilega að við fáum ókeypis Euros í EB?

Hlédís, 30.3.2009 kl. 13:59

41 identicon

Það eru engir samningar í boði, hafa aldrei verið og verða ekki þegar kemur að stjórn fiskveiða innan ESB.

"þvættingur" aldeilis ekki og vísa ég meintum þvættingi til föðurhúsa.

sandkassi (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 15:43

42 Smámynd: ThoR-E

Þau eru nú nokkur löndin innan ESB sem ástandið er bara ekki nokkuð betra en hér á landi. Nokkur lönd innan ESB hafa þurft að leita til Alþjóða gjaldeirissjóðsins, þar á meðan sennilega Bretland.

Að halda það að ekkert hefði komið uppá hér á landi ef við hefðum verið í ESB er tómt bull.

Ég segi allavega nei takk við ESB ... sem og 60-70% Íslensku þjóðarinnar .. sem betur fer.

ThoR-E, 30.3.2009 kl. 16:28

43 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Auk þess er stöðugt verið að endursemja reglur innan ESB. Það sem gildir í dag, gildir e.t.v. ekki á morgun.

 Í dag gildir svokölluð veiðireynsluregla, sem ætti að tryggja okkar skipum veiðiréttinn í okkar lögsögu. Mér skilst að margar þjóðir vilji breyta þeirri reglu af því hún þjónar ekki hagsmunum þeirra. Með inngöngu í ESB geta útlendingar keypt íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og hvað er það annað en að missa auðlind úr höndunum á okkur? Eða líður jafanðarmönnunum í Samfylkingunni betur ef kvótagreifarnir eru ESB-menn?

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.3.2009 kl. 16:39

44 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Skrítið. Engir samningar í boði. Samt hefur ekkert aðildarríki gert eins samning. Hvernig ætli standi á því?

Páll Geir Bjarnason, 30.3.2009 kl. 21:20

45 identicon

Það eru engir samningar í boði varðandi fiskveiðistjórnun.

Þess eru dæmi að smáríki séu undanþegin en það er í þeim tilfellum þar sem að sama sem engar fiskveiðar eru stundaðar hvort eð er.

Íslendingar falla ekki undir þá skilgreiningu. 

sandkassi (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 02:52

46 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ástæðan fyrir áhuga  útsendara ESB á Íslandi, sem öðru hvoru koma fram í fjölmiðlum hér er sá, að þá telja þeir sig fá Norðmenn inn í kjölfarið. Ísland og Noregur veiða um 70% alls sjávarafla í Evrópu. Þarna liggja miklir hagsmunir fyrir ESB og samtökin vilja sneið af þessari köku.

Það er næsta víst.

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.3.2009 kl. 05:48

47 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Ég endurtek:

Skrítið. Engir samningar í boði. Samt hefur ekkert aðildarríki gert eins samning. Hvernig ætli standi á því?

Páll Geir Bjarnason, 31.3.2009 kl. 22:26

48 identicon

Þú getur endurtekið mál þitt að vild, það breytir engu. Það eru engir samningar í boði varðandi undanþágu frá fiskveiðistjórnun ESB.

Þú getur t.d. gúglað fjöldamörgum tilsvörum Ollie Rehn um þetta mál.

sandkassi (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 01:19

49 Smámynd: Hlédís

" Samt hefur ekkert aðildarríki gert eins samning."  Skrifar Páll Geir. Eins og hvað?

Hlédís, 1.4.2009 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband