Löglaus uppboðsgerð stöðvuð

Í morgun var stöðvuð löglaus uppboðsgerð hjá nágranna mínum eins og lesa má um hér og sjá hér á myndbandi:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Njörður Helgason

Góður Bjarni!

Njörður Helgason, 23.4.2013 kl. 13:18

2 identicon

Heill og sæll Bjarni; sem og aðrir gestir, þínir !

Tek undir; með Nirði frænda mínum, alfarið.

Stórmannleg var; þín framkoma og annarra ýmissa, til liðveizlu við Pál - og hans fjölskyldu Bjarni, en lítilmannleg að sama skapi, Ólafs Helga Kjartanssonar;; manns, sem er illa innrættur að öllu upplagi, sem ég get vottfest af annarrs konar tilefnum reyndar, auk fjölda annarra, smámenni eitt; sem safnar glóðum Elds að höfði sér, hvern einsta dag, með óboðlegri framkomu sinni, í garð sinna samborgara, með óforsvarnalegum erindrekstri, í þágu glæpsamlegrar Banka Mafíunnar.

Ó.H. Kjartansson; mun uppskera fyllilega, eins og hann hefir til sáð, með margvíslegum og viðurstyggilegum illvirkjum sínum gagnvart lakar stöndugu fólki - en flaðrar eins og Hundspott upp um þá, sem betur mega, Helvízkt þræl beinið.

Tími Sýslumannanna; einna síðustu dreggja valdaskeiðs Noregs- og Danakonunga, ætti að vera löngu liðinn, hér á landi.

En; á meðan himpigimpi, eins og Ögmundur litli Jónasson, Klámkonungur Íslands; sjálfskipaður, fer með yfirboð Ólafs Helga og collega hans, er vart að vænta mikilla framfara, í umgengni valdstjórnar svokallaðrar, gagnvart almenningi, hér um slóðir.

Með beztu kveðjum; af utanverðu Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 13:53

3 identicon

Nú hefur uppboðið væntanlega verið vegna verðtryggðs láns, því á ég erfitt með að átta mig á því,afhverju þessi uppboð eru ekki stoppuð, meðan beðið er niðurstöðu dómsmála um lögmæti verðtryggingar,mér fróðari í lögum segja mér að meiri líkur enn minni eru á að verðtryggingin sé kolólögleg.

Flokkur Heimilanna vilja stoppa öll uppboð, þar til niðurstað fæst.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 14:39

4 identicon

Þetta er sýslumaðurinn sem stærir sig af flestum nauðungar uppboðunum á landinu!!! Fari hann n og n...

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 15:56

5 identicon

Flottur Bjarni... Að taka sýslumannsfíflið í gegn...

Sævar ÓliHelgason (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 16:32

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sköruglegur og flottur málflutningur..............

Jóhann Elíasson, 23.4.2013 kl. 17:02

7 identicon

Sæll og blessaður Bjarni minn.

Hafðu mikla og góða þökk fyrir alla hjálpina sem þú veittir mér og fjölskyldu minni. Stuðningurinn sem þú veittir mér við þessar erfiðu og niðurrífandi aðgerðir var mér ómetanlegur.

Kær kveðja, Páll B. Valgeirsson.

Páll Böðvar Valgeirsson (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 17:29

8 identicon

Sæll Bjarni Harðarson.

Þú ert góður granni svo ekki sé meira sagt.

Að svona framganga í þágu bankanna skuli enn í dag vera leyfð er auðvitað hneyksli, þetta er skjaldborgin?

Páll og fjölskylda eiga mína samúð og vona ég að það sé hægt að dæma þennan níð ef svo má kalla ólöglegan fyrir dómstólum, en Bjarni þú sýndir af þér mann í dag sem margir ættu að taka sér til fyrirmyndar.

Kveðja

Þórður Arnarson.

Þórður Örn Arnarson (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 17:48

9 identicon

Þessi framkoma sýslumanns er ekkert einsdæmi það þekki ég af eigin raun. Hann samþykkti meðal annars kyrrsetningakröfu Skattrannsóknarstjóra í allar skráðar eignir eignarhaldsfélags sem ég átti á þeim forsendum að mögulega væru tengsl á milli rekstur þess og Byrgisins þar sem ég starfaði. Þrátt fyrir andmæli mín (ég var mættur án lögfræðings) staðfesti hann kyrrsetningakröfuna og lét ógert að segja mér sem ólöglærðum manni að ég gæti kært úrskurðinn. Þegar ég svo seinna meir hafði samband við lögfræðing tjáði hann mér að þessi krafa væri með öllu ólögleg en þá var tíminn til að kæra löngu útrunninn.  Það kom síðan í ljós þegar ákært var í Byrgismálinu að ekkert fannst athugavert við rekstur eignarhaldsfélags míns og engin tengsl við starfsemi Byrgisins og ekki minnst einu orði á það í ákæruskjölum. Þessi kyrrsetningagjörningur varð því til þess að ég tapaði öllu eigin fé og öllum eignum fyrirtækisins til kröfuhafa á útsöluprís.

Við látum ekki bugast af þessu Palli minn, skömmin er sýslumanns og mun í minnum höfð löngu eftir hans daga.

Þinn gamli vinur

Jón Arnarr

Jón Arnarr (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 18:05

10 identicon

"Það liggur fyrir að um uppboðið er beðið á grundvelli lögformlegra gagna" segir sýslumaður,lögformlegra gagna sem eru komin fyrir Héraðsdóm (verðtryggingin) ekki eitt mál heldur tvö.

Ef ekki á að fresta uppboði, þegar hin lögformlegu gögn eru komin fyr dóm, hvenær á þá að fresta uppboði.

Þessa skúringu kaupi ég ekki, því allur vafi á aðvera neytenda í hag.

Jón Ólafur (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 21:30

11 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þessi sýslumaður er skömm Sjálfstæðisflokksins.

Sigurgeir Jónsson, 23.4.2013 kl. 21:44

12 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hann á að hafa vit á að segja sig úr honum.Að öðrum kosti hlýtur hann að verða rekinn úr flokknum nema Sjálfstæðisflokkurinn ætli sjálfur að sitja uppi með skömmina á kosningadaginn 27. apríl.

Sigurgeir Jónsson, 23.4.2013 kl. 21:47

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sýsli frændi minn hefur upp á sig nokkrar skammir ein er að hann bauð upp vitlausan sumarbústað, mál sem átti sér langan eftirmála.  Það má alveg rifja upp starfssemi þessa frænda míns. Meðal annar framgöngu hans sem embættismanns vegna ungs fólks sem hefur ratað í ógöngur vegna fíkniefna.  Skömminn hans er stór í þeim málum ekki bara á Selfossi heldur líka á Ísafirði.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2013 kl. 21:55

14 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

það var einhver á Selfossi mér að Sýsli þeirra væri kallaður Ólafur þvagleggur...

Vilhjálmur Stefánsson, 23.4.2013 kl. 22:20

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha já og ekki að ástæðulausu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2013 kl. 22:44

16 identicon

Ekki má nú gleyma því þegar Þvagleggurinn "bjargaði" barnaníðing frá þeim þeim örlögum að þurfa að sæta gæsluvarðhaldi, og þóttist vera að vernda fórnarlambið. http://www.visir.is/barnanid-i-eyjum--kallar-eftir-greinargerd-um-medferd-malsins/article/2011110709944

Þvagleggnum til varnar þá verður nú að taka fram að eins og FLOKKSPLEBBA kerfið er á Íslandi þá myndi ekki skipta máli þótt krakka greyið hefði sakað sjálfan Þvaglegginn um nauðgun, hann myndi samt halda starfi. 

Spurjið bara Stefán Eiríksson lögreglustjóra á Hverfisgötunni, og Ríkislögreglustjórann, félaga Þvagleggsins í Sjálfstæðisflokknum:

Einn heimildamanna DV segir áhugavert að bera meðferð máls umrædds lögreglumanns saman við málsmeðferð lögregluvarðstjóra á höfuðborgarsvæðinu sem í þrígang hefur verið kærður fyrir barnaníð. Sá var hvorki leystur undan vinnuskyldu né færður til í starfi á meðan málin voru til rannsóknar.http://www.dv.is/frettir/2013/2/11/logga-fekk-langan-starfslokasamning/

símon (IP-tala skráð) 24.4.2013 kl. 06:18

17 identicon

Sjálfstæðisflokknum til varnar, þá er hann ekki einn um ógeðin, og ekkert bendir til þess að VG/Samfó hafi önnur viðhorf til "menningarinnar" sem þrífst hjá sýslumanns og lögregluembættum. AMK þá gerði Ömmi ekki rassgat í bala, allir þessir menn hafa haldið vinnu. Ríkislögreglustjórinn nýbúinn að fá endurnýjað umboð til að halda áfram í sínu starfi, og það sem meira er, þá er ekki enn búið að reka nauðgarann úr Guðmundar og Geirfinns málinu, sem fyrir algjöra tilviljun er í vinnu hjá Stefáni á Hverfisgötunni, í góðum félagsskap, og sjálfsagt yfirmaður líka.

símon (IP-tala skráð) 24.4.2013 kl. 06:29

18 identicon

Boðskapurinn Bjarni Harðar: Þótt það sé flott hjá þér að vekja athygli á þessari hegðan sýslumanns, þá er nokkuð augljóst að það tímasóun, því fyrst ekkert er gert vegna þvagleggs, nauðgana og barnaníðingamála, þá fer enginn að gera neitt í einhverju pínu uppboðsmáli. Hann mun aldrei fá samviskubit og segja af sér; það mun enginn reka hann.

Svona er ástandið á "kerfinu" á Íslandi, og ekkert mun breytast fyrr en hreinsað er til - vel og vandlega. Það er ekki hægt að gera það nema að fólk viti almennt hversu SJÚKT kerfið er. 

Hvernig var þetta með Óla Biskup? Allir búnir að gleyma?

símon (IP-tala skráð) 24.4.2013 kl. 06:48

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er ótrúlegt að þessi maður skuli ennþá vera í embætti, hann á stóran þátt í að drepa niður son minn, fyrir það mun ég aldrei fyrirgefa honum.  Og sem betur fer fyrir mig og mína fór hann héðan og við tóku heiðarlegri og betri sýslumenn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.4.2013 kl. 08:43

20 identicon

Samkvæmt fréttum á Vísi bau sýslumaðurinn upp 47 eignir á Selfossi í gær, það svarar til þess að um 1500 eignir hefðu verið boðnar upp í Reykjavík á einum degi.

Hvergi er að sjá merki þess að staðið sé við að standa vörð um heimilin í landinu. Hrunadansinn dunar ótrauður áfram. 

Jón Arnarr (IP-tala skráð) 24.4.2013 kl. 09:26

21 Smámynd: hilmar  jónsson

Góður Bjarni..

hilmar jónsson, 24.4.2013 kl. 12:47

22 identicon

Þegar uppboð fer fram ber sýsla að kanna lögmæti þeirrar kröfu sem á að bjóða upp fyrir,þegar tvö mál eru komin fyrir Héraðsdóm (verðtryggingin) þá hlýtur að leika verulegur vafi um lögmæti kröfunnar, ég get ekki skilið þetta öðruvísi, þannig að sýsla bar að fresta,þar til niðurstaða fæst í málinu um verðtryggð lán,nú þurfa löglærðir, að segja til um hvað er rétt og hvað er rangt í þessu máli.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.4.2013 kl. 13:07

23 identicon

Þetta myndband er alveg hreint með ólíkindum...

Það er útilokað annað en að þetta verði ógilt...

Þvílík og önnur eins vinnubrögð...

Ég á varla orð!

Sigurður (IP-tala skráð) 24.4.2013 kl. 21:18

24 Smámynd: Sólrún Guðjónsdóttir

ég er bara hneyksluð á þessu uppboðum rétt fyrir kosningar

Sólrún Guðjónsdóttir, 24.4.2013 kl. 23:59

25 identicon

Ólafur Helgi ætti að leita sér aðstoðar við hæfi!!!

Stóðst þig vel Bjarni. Flottur!

Ömurlegt hvernig komið er fram við foreldra mína.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 25.4.2013 kl. 04:39

26 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Ég kynntist Páli Valgeirssyni í haust er leið þegar við dvöldumst samtímis á Reykjalundi. Ég er sannfærður um að þar fer drengur góður og ég sendi honum hugheilar baráttukveðjur í raunum hans.

Magnús Óskar Ingvarsson, 25.4.2013 kl. 14:06

27 Smámynd: Skeggi Skaftason

Þetta er efitt og leiðinlegt mál auðvitað, eins og öll svona mál.

En fólk getur ekki bara "gefist upp" á að borga af lánunum, eins og fram kemur í þessu vídeói. Hvað er langt síðan hætt var að borga af lánunum? Hefði skuldarinn ekki a.m.k. átt að borga hluta af afborgunum, það sem hann taldi sjálfur rétt og sanngjarnt?

Af hverju var annars mikið áhvílandi á húsinu sem þau eru búin að búa svona lengi í? Tóku þau aukalán með veði í húsinu? Hvert fóru þeir peningar?

Og til að það sé á hreinu, það er auðvitað EKKI kominn fram einhver raunverulegur lögfræðilegur vafi um lögmæti verðtryggingar, bara af því að einhverjir tveir aðilar hafa kosið að bera mál fyrir dómstóla. Það eitt og sér býr ekki til neinn vafa, ekki á meðan enginn dómur er fallinn.

Skeggi Skaftason, 26.4.2013 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband