Styrkleiki og veikleiki í senn

Eðli Framsóknarflokksins er sáttahyggjan og í henni felst bæði styrkleiki og veikleiki. Þessvegna gerðist það að meðan Halldór var formaður var fullt af fólki innan flokksins sem barðist af einurð gegn ESB stefnunni og þegar Guðni komst til valda hafði þessi hópur hægar um sig. En ESB sinnarnir geystust fram og sáttahjarta Framsóknar fannst það bara sanngjarnt að þannig fengju bæði sjónarmiðin sinn sess. Í þessu getur verið fólginn styrkleiki, t.d. í samstafi við aðra flokka en til lengri tíma þó meiri veikleiki þess sem veit fyrir vikið aldrei í hvorn fótinn hann á að stíga.

Í anda þessa eðlis ætla ég nú á hádegi á laugardegi að skjóta fram ákveðinni spá um úrslitin, algerlega ábyrgðarlaust og meira til gamans gert enda flokksþing þetta mest til aðhláturs eftir skilyrðapakkann sem settur er fyrir ESB.

ESB sinnarnir munu nú draga sig til hlés og veita hinum leyfi til að samþykkja tvöfalda atkvæðagreiðslu formanns, þrátt fyrir skiljanlega baktjaldaandstöðu Páls. Í framhaldinu verður svo annaðhvort Höskuldur eða Sigmundur Davíð kosinn formaður og flokkurinn er jafn patt og áður.

En ég ætla ekki að veðja neinu...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Við erum ekki að "lesa" þetta alveg eins Bjarni......

En úr því að þú vilt ekki veðja neinu, gef ég ekki upp mína spá

Sigrún Jónsdóttir, 17.1.2009 kl. 14:01

2 identicon

Það er ólíkt þér Sigrún? Ég er spennt eins og "hálf" þjóðin. En er léleg spákona. Hver útfarastjórinn verður kemur svo í ljós á morgun..

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 14:15

3 Smámynd: Sigurður Jónsson

Ætlar ekki Flokkseigandafélagið að sjá til þess að Páll Magnússon verði formaður?

Sigurður Jónsson, 17.1.2009 kl. 16:45

4 Smámynd: Björgmundur Örn Guðmundsson

Haha Bjarni minn. Einhvern veginn held ég nú að það sért þú sem sért aðhláturefni.

Allar þessar eftirá skýringar þínar og einlægur áhugi þinn á því að nýða Framsóknarflokkinn eru einfaldlega augljósar.

Þú skeist upp á bak þegar þú varst gripinn við það að stinga eigin flokksfélaga í bakið.

90% flokksfélaga voru sammála og þeir sendu skýr skilaboð um ESB málin.

Vandamál þitt er augljóst. Þú ert sammála okkur en getur ekki verið það þar sem þú hefur bundið skó þína með lími við afturhaldið í íslensku þjóðfélagi.

Framsóknarflokkurinn er að færast meira til upprunans, nær samvinnu og manngildis og það sjá það allir.

Ég er stolltur af því að taka þátt í því að koma flokknum í nýja sókn til handa Íslandi.

Einbeittu þér að þínu bókakaffi, þinn tími er liðinn.

Kv.Frá fulltrúa á flokksþingi Framsóknarflokksins

Björgmundur Örn Guðmundsson, 17.1.2009 kl. 16:54

5 identicon

Það er einmitt þetta sem er svo aðlaðandi við Framsóknarflokkinn eða það sem Bjargmundur hefur til málanna að leggja! Tómt skítkast..

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 17:46

6 Smámynd: Björgmundur Örn Guðmundsson

Það er lágmark þegar reynt er að gera lítið úr skoðunum mínum að þá sé rétt farið með mafnið manns.

Hallgerður mín, ég segi sannleikann og ef þú telur að sannleikurinn sé skítkast þá er illa farið fyrir þér.

Framsóknarmenn hafa snúið bökum saman til hjálpar íslenskri þjóð og hvort sem fólk sættir sig við það eður ei þá er baráttan fyrir nýju Íslandi hafin og hún fellst ekki í að rífa niður heldur byggja nýtt.

Samvinna og manngildi er yfirskrift flokksþingsins og það er ekki manngildi eða samvinna að stinga eigin samherja í bakið.

Kv.

Björgmundur Örn Guðmundsson, 17.1.2009 kl. 18:28

7 identicon

Ekki veit ég hvort þetta er sérlega aðlaðandi hjá Framsóknarmönnum einum. Þessi tjáningarmáti, sem stundum er nefndur skítkast, er bara ALLTAF og ALLS STAÐAR jafn tignarlegur, traustvekjandi og styrkjandi!!!

 Hins vegar brá mér í brún þegar ég sá að blessaður maðurinn undirritaði sem: fulltrúi á flokksþingi Framsóknarflokksins.

Ekki góð auglýsing; ekki gott "publicity; ekki merki um sóma og sæmd; ekki glúrið; ekki kúl; ekki viturlegt;

Þetta var nú allt fullt af ekki. Er þá ekki  rétt að koma með eitthvað sem þarf ekki að setja ekki fyrir framan:

 "Guð hjálpi þjóðinni, ef þetta er sýnishorn af munnsöfnuði og talsmáta væntanlegra pólitíkusa". - þá fer ´maður ósjálfrátt að hugsa um sálina að baki.

Helga Ág.

Helga Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 18:31

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sammála Helgu!

Hrönn Sigurðardóttir, 17.1.2009 kl. 19:38

9 identicon

Bjarni, Þú segist ætla að stofna nýjan flokk. Allt í lagi með það. En eftir það sem á undan er gengið, telur þú þig hafa þann trúverðugleika sem til þarf ? Ég er ekki viss um að fólki finnist það. Getur þá ekki verið beinlínis slæmt fyrir málstaðinn að hafa þig í liðinu?

Birgir Stefáns (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 21:18

10 identicon

Ja, hérna! Nú þykir mér stungin tólg!

Ef eigandi þessarar bloggsíðu gæti skaðað málstað eða flokka, ja líttu þá allt í kring í Íslensku þjóðfélagi. Mér virðist margir af þeim sem lengst hafa náð, vera í fullri vinnu við að bregðast trausti okkar.

En hann Bjarni ýtti á takka - og sagði í framhaldi af því af sér .

Hvernig í veröldinni ætti hann að njóta minna trausts/skaða málstaði,viðo þær aðstæður sem hér ríkja: "enginn segir af sér, enginn hefur gert mistök og enginn ætlar að segja okkur neitt"!

Við vitum öll hvað hann gerði. Punktur; basta. Við finnum svo bara út  með því  meðal gripsviti, sem íslensk alþýða virðist almennt hafa, hvort við viljum kjósa hann, eða láta takkann og heiðarlega afsögn rýra manngildi hans í huga okkar. Svo einfalt er það nú.

Ja margt hef ég nú séð svartara en ofanskráð, í islenskum stjórnmálum. O sei, sei já.

Svo má endalaust velta fyrir sér frá ýmsum sjónarhornum hvort við séum nú almennt að leita eftir háheilögu fólki , sem aldrei hafi orðið neitt á - og búi þ.a.l. við talsvert þröngan kost hvað varðar skoðanamyndun og skilning - til sjávar og sveita (það finnst mér alltaf svo flott niðurlag!!!).

Helga Ág.

Helga Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:00

11 identicon

Eg er búinn að fylgjast með og hafa skoðanir á þjóðmálum í liðlega

fimmtíu ár, flokkarnir hafa allir skift um formerki og vikið frá sinni

hugsjón og eru ekki lengur það sem þeir voru áður, við kjósum

þá samt,,er rétt að vona að framsóknarflokkurinn verði að þeim

flokki sem hann var þegar Jónas frá Hryflu stjórnaði honum,

takist það verður ekki vandasamt að kjósa

Helgi Sæmundsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:56

12 identicon

Ég er hjartanlega sammála orðum Helgu Ágústsdóttur.

Björgmundur, Bjarni sagði af sér þingmennsku í kjölfar þess sem hann gerði. Þeir stjórnmálamenn og yfirmenn stofnana á vegum ríkisins, sem hér hafa ráðið ríkjum og sofið hafa á verðinum hafa hvorki beðið þjóðina afsökunar né sagt af sér.

Líttu þér nær maður! Í öðru orðinu ætlar þú, sem fulltrúi framsóknarflokksins, að hjálpa íslenskri þjóð og byggja nýtt Ísland þar sem samvinna og manngildi eru lögð til grundvallar. Í hinu orðinu slærðu Íslendinginn niður sem þó viðurkennir og ber sína ábyrgð. Hvar er kærleikurinn og hógværðin ?????

Sigurlaug

Sigurlaug Angantýsdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 23:42

13 identicon

Mikið er ég sammála Björgmundi að fagurhjal skilar okkur engu, það þarf að tala hreint út.

Sannleikurinn er hins vegar, að Bjarni gerðist sekur um að ætla stinga flokksfélaga sinn í bakið með leynimakki. Hafði flokksfélagi hans leyft sér að hafa aðra skoðun á ESB-aðild en hann.

Hvernig er hægt að hampa slíkum manni sem geymir slíkan karakter?

Einhvern tíma hefði slíkt verið kallað skítlegt eðli.....

Hermann Sigmarsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 07:12

14 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Björgmundur, þú talar um að stinga annan mann í bakið innan Framsóknarflokksins. Þú veist greinilega ekki mikið um vinnubrögðin hjá þínum flokki, viljir þú meina að Bjarni hafi gert slíkt þá vil ég benda þér á að þessi vinnubrögð hafa verið stunduð í mörg ár í flokknum þínum. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn eða neitt nafn hér, en ég tel mig vita betur. Gangi þér vel að byggja upp flokkinn þinn aftur. Og ég vona ykkar vegna að Páll Magnússon verði ekki kosinn formaður Framsóknarflokksins, því þá mun spillingin halda áfram hjá flokknum. Björgmundur þá kannski eftir átta þig einhvern daginn.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 18.1.2009 kl. 10:20

15 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Og sá sem verður kosinn í dag sem formaður Framsóknarflokksins, verður pottþétt hann Páll Magnússon. Þetta er mín tilfinning þar sem ég held að ekkert mun breytast hjá Framsókn.

Lifið heil. 

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 18.1.2009 kl. 10:24

16 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Ég var mjög ánægð með þig sem fulltrúa Framsóknarflokksins,mér fannst miður þegar að þú sagðir af þér,en svo ég komi mér að kjarna málsins að þá finnst mér dapurleg þegar gert er lítið úr sínum gamla flokki ,flokksfélögum og samstarfsmönnum.Ég get alveg skilið að þú hafir ef einhverjum ástæðum viljað segja þig úr flokknum,en vinsamlegast láttu það þá næga, ekki gera lítið úr verkum þeirra sem standa enn á bak við mörg málefni sem þú barðist fyrir.Ég tel að Framsóknarflokkurinn sé að reyna að bæta sig og þú sem fyrrv.framsóknarmaður ættir að vera ánægður með það en ekki að reyna að gera lítið úr því.Ég er ekki skráð í Framsóknarflokkinn eða neytt svol.og hef ekki neinna hagsmuna að gæta .Gangi þér sem allra best í því sem þú tekur þér fyrir hendur Bjarni,Kær kveðja Katrín

Katrín Ósk Adamsdóttir, 18.1.2009 kl. 12:10

17 Smámynd: Bjarni Harðarson

takk fyrir góða umræðu - þó reyndar finnist mér varla merkilegt að velta sér upp úr því hvort einhverjum finnist ég óhæfur og slæmt að hafa mig í liði. ég væri varla stjórnmálamaður ef engum fyndist það - spurning sem ég spyr mig áður en ég býð mig fram er hvort einhverjum finnist ég eigi að gera það og helst nógu mörgum til að ég hafi brautargengi. ég mun velta því fyrir mér kæru birgir og björgmundur og hermann - vonandi að aðrir geri slíkt hið sama! -b.

Bjarni Harðarson, 18.1.2009 kl. 12:10

18 identicon

Bjarni, mega þá samflokksmenn þínir í framtíðinni eiga von á bakstungum þegar þú verður þeim ósammála? Er ekki meiri drengskapur að koma hreint fram við fólk og segja sína skoðun í stað þess að nota leynimakk og 3. aðila til þess?

Auðvitað ertu velkominn að reyna fyrir þér í öðrum stjórnmálaflokkum, ég skil bara ekki að þú hafir verið gerður að einhverjum píslarvætti í þessu máli gegn Valgerði, auðvitað er þi lagi að vera ósammála öðrum en að nota til þess þau meðul sem þú notaðir lýsir þinum innri manni ansi vel og vona að aðrir opni augi sín og sjái það einnig.

Með kveðju

Hermann Sigmarsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 15:39

19 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Jæja, ég var að vakna eftir næturvakt, og hlustaði á fréttir kl:17.00 og búið að kjósa nýjan formann Framsóknar. Ég hef greinilega ekki verið með réttar tilfinningar fyrir formanns-kostningunum hjá Framsóknarflokknum. Ég fagna því að Páll Magnússon náði ekki kjöri sem formaður.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 18.1.2009 kl. 17:19

20 identicon

SPÁIN RÆTTIST NEMA HVAÐ ÞAÐ BÆTTIST MJÖG VIÐ ÞANN LISTA SEM MUN VERÐA AÐHLÁTURSEFNI EFTIR ÞETTA "ÞING"

ÞÁ Á FINNUR OG CO.AFTUR FORMANN Í HINUM BROTTNUMDA FRAMSÓKNARFLOKKI

VERÐI ÞEIM AÐ GÓÐU.

jon ingi gislason (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 18:45

21 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Ég er nú ekki alveg þetta vel að mér um vinskap manna innan Framsóknarflokksins. Þú segir nokkuð Jón Ingi, ég hef aldrei verið hrifin af Finni. Og hefði satt að segja vilja sjá Höskuld sem formann Framsóknar. Ég vona bara að fólk fari að átta sig á því að við þurfum ekki á meiri spillingu að halda hér á landinu okkar. Ég vil fara að sjá breytingar á þann veg að ungar barnafjölskyldur t.d. geti dregið fram lífið en þurfi ekki að lifa á innan við 50 þús.krónum á mánuði til að framfleyta sér og börnunum sínum. Ég veit um nokkur þannig dæmi.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 18.1.2009 kl. 21:41

22 identicon

Klaufaskapur var það hjá þér að veðja ekki þokkalegri summu ...

Atli (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband