Einstaklega göfugt nes

Sem barni þótti mér Langanes alltaf frekar asnaleg tota út úr landinu, alltof montið á kortinu miðað við hvað það er mjótt. En nú hefir mér í fyrsta sinn hlotnast að eyða nokkrum dögum á nesi þessu og tek aftur alla fordóma mína. Fá nes eru jafn göfg og Langanesið í látlausri fegurð sinni, djúpviturri kyrrð og andagt. 

Við Elín fórum á honum Yngra Rauð eins og langt og hjólin báru okkur áfallalaust en gengum frá bænum Höfn þvert yfir heiðar og mýrlendi, endalaus grjót og mosa, bungur og kvompur sem lyktuðu af íslenskri mýri, lambaspörðum og austrænni naumhyggju. Beygðum stundum og gengum svo beint eða aðeins austar en það. Í fjarska sá ég Brandkrossa á sundi til Noregs og skálaði við hann í neskaffi. 

Eftir 10 kílómetra tramp þar sem reyndi á ökkla í vegleysum komum við að heimreiðinni að Skálum sem er stórt sjópláss við ysta haf, engan veg og enga höfn. Fyrst sáum við tvilembu, þá herstöð, síðan bæ Jóhanns bónda og nokkuð frá flæðarmáli var bryggja sem aldrei náði sambandi við sjó. Þar voru og grunnar að kotum og höllum þannig að staðurinn minnti helst á Sviðinsvík. Austan við bryggjuna var svolítið stjórnargrjót og manndrápslending.

Eftir að hafa hvílt þar örmagna bein og étið nesti gengum við til baka og vorum undir kvöld komin að bílnum en líka að fótum fram - gömlu hróin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 5.8.2011 kl. 11:51

2 Smámynd: Eyþór Örn Óskarsson

Þér fatast ekki í ferðalýsingunum Bjarni minn - alltaf gaman að lesa og hlusta.................

Eyþór Örn Óskarsson, 5.8.2011 kl. 14:36

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er einmitt svona sem vel læsir göngumenn segja frá.

Og við, þessir framsóknarmenn af gamla skólanum eru flestum öðrum betur læsir á vegleysur eyðibyggðanna.

Auðna og þróttur oft má sjá

eru fljótt á þrotum.

Gakktu hljótt um garða hjá

gömlum tóftarbrotum. (Eftir Ólínu Jónasdóttur) 

Árni Gunnarsson, 5.8.2011 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband