Eldri færslur
- Maí 2014
- Mars 2014
- Október 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af fíflagangi og fjallagrasapólitík
11.2.2007 | 23:06
"Afréttir landsins eru hluti af íslensku héruðunum og það er fráleitt að leggja þær byrðar á íslenskt landsbyggðarfólk að vera eins og uppstoppaðir frumbyggjar í landi sínu svo hagvaxtarfólk við Faxaflóa geti friðað vonda umhverfissamvisku."
Þessi setning er eftir sjálfan mig í umræðu um Kjalveg og hefur valdið miklum umræðum á bloggsíðu minni (www.bjarnihardar.blog.is/) Er verið að veitast að öllum þeim sem búa á hagvaxtarsvæðinu mikla, er spurt. Sjálfur bý ég á þessu sama horni landsins, Selfossi sem er í jaðri höfuðborgarsvæðisins.
Þegar ég tala um það fólk sem reynir að friða vonda samvisku í umhverfismálum þá á slík einkunn ekki við um neinn meirihluta, hvorki þar né hér.
En það er gikkur í hverri veiðistöð. Sjálfsskipað umhverfisverndarfólk hefur um langt árabil lagt sig fram um að hamast á móti selveiðum, hvalveiðum, frumbyggjum og allskonar lífsháttum framandi þjóða. Þó svo að öllum sé auðvitað ljóst að umhverfisógn heimsins er ekki sprottin upp hjá inúítum eða hvalföngurum heldur sóunarsamfélögum stórborga.
Eins er þessu farið hér á landi þó í smærri stíl sé. Ísland sem var næsta óspillt af öðru en torfkofum fyrir öld síðan ber nú æ meiri merki mengunar, mannvirkja og þeirrar spillingar umhverfisins sem fylgja nútímalegum lífsháttum. En þessi mengun er ekki mest áberandi á Austurlandi, ekki á Kárahnjúkum og ekki á Kili. Það vitum við öll sem augu höfum í höfðinu. Utan við fyrrnefnt Stór-Hveragerðissvæði eru menjar mannsins hóflegar og vel innan ásættanlegra marka. Landið er vitaskuld ekki eins og það sé ónumið en samt þannig að náttúran hefur yfirhöndina og við njótum hennar af því að hún er aðgengileg með vegum og húsum í hæfilegu magni.
Það að ætla að skilgreina stór svæði landsbyggðarinnar sem helgistaði þar sem samtíminn má ekki stíga fæti er fráleitt. Við Íslendingar eigum hvergi nema á Vatnajökli ósnortin víðerni sem ástæða er til að varðveita víðernisins vegna. Hvarvetna um byggð og afrétti eru einhverjar nútímalegar mannvistarleifar, s.s. vegir, hús, raflínur og fleira. Rökin fyrir varðveislu ósnortinna víðerna geta átt víða við á hinum norðlægu slóðum heims en einna síst á Íslandi. Við þurfum vitaskuld að varðveita náttúruperlur og eiga þjóðgarða. En hér á landi er aðeins hægt að tala um alvarleg umhverfisvandamál þar sem umsvif mannanna keyra úr hófi.
En þetta er hinum skinhelgu óþægilegt umræðuefni. Hér á okkar horni landsins þarf hagvöxturinn að hafa sinn gang með Sundabrautum og sorphaugum ofan í fallegum sveitanesjum, malbiki upp um Norðlingaholt, yfir Kristnitökuhraunið og niður um bakka Ölfusár. Tölum ekki um það, segir fólkið sem situr á Staksteinum Morgunblaðsins, sellum VG, ólgandi Framtíðarlandi og kannski líka hjá hinum nýlega uppdiktuðu hægri grænu. En gleymum ekki að þetta eru fámennar og mikið háværar klíkur. Alvöru grænir haga sér ekki svona.
En það er þessi spillta úrkynjun, sérgæska og skinhelgi sem ræður því að nú skal hamast á móti því að sunnlenskir og norðlenskir uppsveitamenn skoði kosti þess að tengja byggðir sínar með malbikuðum Kjalvegi. Það má auðvitað rökræða hvernig standa eigi að vegi þessum, eignarhaldi hans og staðsetningu. En að skilgreina allt svæðið millum dala í norðri og suðri sem helga reiti meðan við stígum villtan dans um gullkálfinn heima hjá okkur, það er fáheyrt. Að bera það á borð að milli þessara byggða sé betra að hafa vonda vegi til að draga úr umferð og umsvifum. Hagvöxtur landsbyggðarfólks eigi að einkennast af fíflagangi og fjallagrösum.
Hvenær náði svona fáheyrð ósvífni?
(Birt í Blaðinu laugardaginn 10. febrúar)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Tenglar
- X-J 2013 Regnboginn.is
- Jón fóstri
- Guðmundur djákni
- Tilveran í ESB
- Netbókabúð bókakaffisins
- Bloggsíða villikatta
- Bókablogg Sunnlenska bókakaffisins
- Heimssýn, - Ísland EKKI í ESB
- Egill Bjarnason ferðalangur
- Atli
- Harpa
- Vinstri vaktin gegn ESB
- AMX hægri fréttir
- Laugarás í Biskupstungum á fésbókinni Hér má finna gamla og nýja íbúa Laugaráss í Biskupstungum
- Smugan vinstri snú!
- Anna Björnsson
Bloggvinir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Ágústa
- Ævar Rafn Kjartansson
- Agnar Bragi
- Agnes Ásta
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Helga R. Einarsdóttir
- Á móti sól
- Andrés Magnússon
- Andrés.si
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Hólm Ármannsson
- Árni Matthíasson
- Árni Þór Sigurðsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Ása Björg
- Ívar Pálsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Rúnar Halldórsson
- Auður Eva Auðunsdóttir
- Egill Bjarnason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Margrét Annie Guðbergsdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Björn Emil Traustason
- Birkir Jón Jónsson
- Hommalega Kvennagullið
- Birna G
- Guðrún Olga Clausen
- Bjargandi Íslandi
- Björn Jóhann Björnsson
- Bleika Eldingin
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Guðmundur Bogason
- Bogi Jónsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Bwahahaha...
- Brjánn Guðjónsson
- Baldur Már Róbertsson
- SVB
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja Hjaltadóttir
- Bergþór Skúlason
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- busblog.is
- Charles Robert Onken
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Diesel
- Dofri Hermannsson
- Adolf Dreitill Dropason
- Anna S. Árnadóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Ágúst Dalkvist
- GK
- Bjarni Kjartansson
- Dunni
- Óskar Ingi Böðvarsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Gomez
- Einar Freyr Magnússon
- Einar Sigurbergur Arason
- Eiður Ragnarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Zóphonías
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Árnason
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Fannar frá Rifi
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Femínistinn
- Stefán Þórsson
- Jakob
- FLÓTTAMAÐURINN
- Gísli Foster Hjartarson
- Ritstjóri
- FreedomFries
- Friðjón R. Friðjónsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Björgvinsson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- FUF í Reykjavík
- Hlynur Sigurðsson
- Dóra litla
- Baldur Fjölnisson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gestur Halldórsson
- Gestur Guðjónsson
- Gísli Hjálmar
- Einar Ben Þorsteinsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Skákfélagið Goðinn
- Ingólfur H Þorleifsson
- Stafnhús ehf
- Götusmiðjan
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Ómarsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Magnússon
- gudni.is
- Guðrún Fanney Einarsdóttir
- Guðrún
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gulli litli
- Gunnlaugur Stefánsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Jón Erlendsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Gylfi Guðmundsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- halkatla
- Halldór Baldursson
- Hallur Magnússon
- Haukur Már Helgason
- Jóhann Ágúst Hansen
- haraldurhar
- Haraldur Haraldsson
- Héðinn Björnsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Reyr Ágústsson
- Heiða Þórðar
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Heiðar Sigurðsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Helgi Már Bjarnason
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Kristín Einarsdóttir
- Eiríkur Harðarson
- Heiðar Lind Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Helgi Sigurður Haraldsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hlynur Hallsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- HP Foss
- Krummi
- Hrannar Björn Arnarsson
- hreinsamviska
- Fulltrúi fólksins
- Hrólfur Guðmundsson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Hvíti Riddarinn
- Icelandic fire sale
- íd
- Ingimundur Kjarval
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
- Sævar Einarsson
- Elísa Arnarsdóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Svanur Jóhannesson
- Einar Vignir Einarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Sigurjónsson
- Jens Guð
- Jóhann G. Frímann
- jósep sigurðsson
- Jóhann Steinar Guðmundsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jón Finnbogason
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Jón Magnússon
- Jóhann Jóhannsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Valsson
- Bergur Thorberg
- Karl V. Matthíasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Vídó
- Kristján Jónsson
- Guðjón H Finnbogason
- Kolbeinn Karl Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Stjórnmál
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kolbrún Hilmars
- Karl Tómasson
- Kolbrún Ólafsdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Landvernd
- Lára Stefánsdóttir
- Heimir Eyvindarson
- Laufey Ólafsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Jónas Jónasson
- Pálmi Guðmundsson
- Gylfi Norðdahl
- Loopman
- Guðný Lára
- Guðjón Baldursson
- Edda Jóhannsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Magnús Jónsson
- Magnús Vignir Árnason
- Mál 214
- Alfreð Símonarson
- Máni Ragnar Svansson
- Björn Benedikt Guðnason
- Guðmundur Margeir Skúlason
- Steinar Immanúel Sörensson
- Gísli Tryggvason
- Níels Bjarki Finsen
- Jón Svavarsson
- Ólafur Björnsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Nordal
- Hundshausinn
- Guðmundur Örn Jónsson
- Óttar Felix Hauksson
- Páll Geir Bjarnason
- Páll Vilhjálmsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- percy B. Stefánsson
- perla voff voff
- Perla
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jóhann Birgir Þorsteinsson
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar L Benediktsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Rúnar Birgisson
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- ragnar bergsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Víðir Benediktsson
- Salmann Tamimi
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurjón Valgeir Hafsteinsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Gunnar Þór Ólafsson
- Egill Helgason
- Sigurður Jónsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Jóhann Waage
- Auðun Gíslason
- Óskar Þorkelsson
- Karl Hreiðarsson
- Halldór Sigurðsson
- Brynja skordal
- Hreiðar Eiríksson
- Hannes Friðriksson
- hilmar jónsson
- Snorri Hansson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Bogi Sveinsson
- Stefán Þór Helgason
- Stefanía
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- Þorsteinn Briem
- Steinn Hafliðason
- Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
- Samband ungra framsóknarmanna
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svanur Kári Daníelsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Sveinbjörn Eyjólfsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Sigursveinn
- Helgi Guðmundsson
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórir Kjartansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Tíðarandinn.is
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gísli Kristjánsson
- Þorleifur Ágústsson
- TómasHa
- Tómas Þóroddsson
- Reynir Hugason
- Trúnó
- Halldór Egill Guðnason
- Gaukur Úlfarsson
- Unnar Geir Þorsteinsson
- Ferðaþjónustan Úthlíð
- Vilhjálmur Árnason
- P.Valdimar Guðjónsson
- Valdimar Sigurjónsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Valsarinn
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vestfirðir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Guðfríður Lilja
- Gylfi Björgvinsson
- Vilhjálmur Árnason
- Sigurlaug B. Gröndal
- Aðalsteinn Bjarnason
- Aðalsteinn Júlíusson
- Andrés Kristjánsson
- Anna Einarsdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Arnþór Helgason
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Árelíus Örn Þórðarson
- Árni Haraldsson
- Árni Þór Björnsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Hafberg S.
- Barði Bárðarson
- Benóný Jónsson Oddaverji
- Bergur Sigurðsson
- Bergþóra Sigurbjörnsdóttir
- Birgir R.
- Birna G. Konráðsdóttir
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Jónsson
- BookIceland
- Braskarinn
- Carl Jóhann Granz
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Einarsdóttir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- ESB og almannahagur
- Eva G. S.
- Eygló Sara
- Eyþór Örn Óskarsson
- Friðrik Kjartansson
- Garún
- Gestur Janus Ragnarsson
- Gissur Þórður Jóhannesson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson
- Grétar Mar Jónsson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Markúsdóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Heiðarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Gústaf Níelsson
- Gylfi Gylfason
- Hafþór Baldvinsson
- Halla Rut
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Jónsson
- Haraldur Hansson
- Haukur Baukur
- Haukur Nikulásson
- Heimir Ólafsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjalti Tómasson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Hörður B Hjartarson
- Hörður Stefánsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Ingimundur Bergmann
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jóhann Pétur
- Jónatan Karlsson
- Jón Á Grétarsson
- Jón Árni Bragason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Bjarnason
- Jón Daníelsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Lárusson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Katrín
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kári Harðarson
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Kristinn Arnar Guðjónsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Magnús Jónasson
- Magnús Kristjánsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Már Wolfgang Mixa
- MIS
- Offari
- Ólafur Björnsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Bjarki Smárason
- Óskar Steinn Gestsson
- Paul Joseph Frigge
- Páll Helgi Hannesson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Raggi
- Ragnar G
- Ragnar Gunnlaugsson
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Reynir Jóhannesson
- Samstaða þjóðar
- Samtök Fullveldissinna
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- S. Einar Sigurðsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigrún Óskars
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Sigurjón Norberg Kjærnested
- Skuldlaus
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólrún Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Steini Palli
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Sveinn Björnsson
- Sædís Hafsteinsdóttir
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trausti Jónsson
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Urður bókafélag
- Vaktin
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Skagfjörð
- Varmársamtökin
- Vésteinn Valgarðsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vinstrivaktin gegn ESB
- ÞJÓÐARSÁLIN
- Þorri Almennings Forni Loftski
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þórarinn Lárusson
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Bragason
- Þórhallur Heimisson
- Þórhallur Heimisson
- Þráinn Jökull Elísson
Athugasemdir
Heyr heyr.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 11.2.2007 kl. 23:21
Góður. Til hvers er fögur náttúra ef einungis þeir sem eiga fjallabíla og flugvélar geta einir notið hennar. Eigum við hinir bara að láta okkur nægja að skrölta þetta á Corollunni yfir blásumarið með hljóðkútinn í snæri og rykfyllt farþegarýmið?
Halldór Egill Guðnason, 11.2.2007 kl. 23:56
Eins og oft áður Bjarni, þá er ég algjörlega sammála þér....
En þetta er vonandi lítill en hávær hópur...ég vona allaveganna að það sé tilfellið...
Fólk útá landi á að sjálfsögðu bara að hafa malarvegi innanbæjar og gömlu rafmagnsstaurana í hverri götu....eða ennþá betra... afhverju förum við ekki bara í torfkofana aftur og höfnum öllum nýjungum, alveg sama á hvaði sviði það er...
Nú þegar almenningur er enn að stinga leifarnar af þorramatnum úr tönnunum.... Gætu þá hörðustu afturhaldsseggirnir í landinu kannski hugsað sér að borða þorramat í öll mál ?
Ingólfur Þór Guðmundsson, 12.2.2007 kl. 04:16
Haltu áfram á þessum nótum þér mun vel farnast. Frábært.
Ekki við neinu að bæta. Ætla að styðja sjónarmið þín með mínum litla penna þegar þess verðr þörf.
Sigríður Laufey Einarsdóttir, 12.2.2007 kl. 07:49
Frábært innlegg. Ég hef beðið eftir því að einhver gæfi þessu liði undir sinn hvorn til að vekja það til veruleikans. "Snap out of it!"
Jón Steinar Ragnarsson, 12.2.2007 kl. 09:54
100% sammála
Ágúst Dalkvist, 12.2.2007 kl. 11:16
Ég vil minna á bloggsíðu mína þar sem ég fjalla um þetta mál. Það er fjarri mér að amast við því að malbikaður vegur liggi á milli Suðurlands og Norðurlands ef það er sú leið sem getur sætt ólík sjónarmið. En það er ekki sama hvernig sá vegur er.
Fyrirmynd af því hvernig hægt er að sætta sjónarmið má sjá í erlendum þjóðgörðum og fyrir norðan Þingvallavatn. Vegurinn við Bolabás var gerður þannig að hellt var malbiki ofan í slóðann sem fyrir var og hann lagfærður þannig að hann hrindi af sé vatni og auðvelt sé og þægilegt er að fara þessa leið án stórfellds hávaða.
Vegurinn frá Tjaldmiðstöðinni um Bláskógaheiði austur að Gjábakka er þannig úr garði gerður að hann fellur vel inn í landslagið og býður upp á rólegan ferðahraða í þægilegri umferð. Þar þjóta ekki stórir flutningatrukkar um með ærandi hávaða.
Þetta fordæmi vil ég hafa í huga á Kili ef sætta þarf sjónarmið. Ef núverandi vegur yrði lagfærður og sett ofan á hann malbik sem lyftir honum ca fet upp fyrir umhverfið þar sem þess er þörf vegna vatnsrennsis yrði kominn þar svipaður vegur og norðan Þingvalla.
Kynslóðir framtíðar gætu fjarlægt malbikið ef þær vildu það. Hugmynd Norðurvegar um Kjalveg snýst um gerólíkan veg sem þyrfti að ryðjast í gegn um svæði austan Hvítár og norðaustan við Blöndulón sem nú eru að mestu ósnortin. Einnig þyngja mjög og breyta umferð um Biskupstungnabraut.
Þetta á að verða há og fyrirferðarmikil hraðbraut með miklum umferðardyn stórra flutningabíla.
Nú er þeim málflutningi óspart beitt að umhverfisverndarfólk við Faxaflóa vilji fá verksmiðjur og mannvirki til sín en láta landsbyggðarfólk éta það sem úti frýs eða naga fjallagrös.
Ekkert er fjær sanni. Næstu vikurnar fer fram stórorrusta um það að bægja frá áformum um risaverksmiðju í hlaðvarpa þéttbýlisins sem mun hafa í för með sér kraðak verksmiðja, háspennulína og virkjana allt frá ysta hluta Reykjanesskagans að Hellisheiði og í viðbót stórfellda umhverfisbreytingu í hjarta Suðurlands.
Þeir sem vinna við nútíma ferðaþjónustu þurfa á fjölbreyttri menntun og verkþekkingu að halda, - kunna skil á tungumálum, sögu landsins, náttúrufræði, jarðfræði, almennum samskiptum o.s.frv. landsbyggðin á stórfellda möguleika á þessu sviði.
Kjölur býður upp á fagra öræfakyrrð og dramatíska sögu Reynistaðabræðra, Höllu og Eyvindar. Það er vel hægt að opna aðgengi að slíkri perlu og njóta góðs af þjónustu fyrir ferðafólk á þessum slóðum án þess að steypa þungri hraðaumferð á fyrirferðarmikilli hraðbraut um þetta svæði.
Ein lítil viðbót: Með því að gera veginn sléttan verður hann mun aðgengilegri en nú er fyrir nýjustu rúturnar sem eru með loftfjöðrunarbúnaði sem þolir ekki þvottabretti og miklar holur.
Raunar er Kjölur ekki heflaður nema einu sinni á sumri svo mér sé kunnugt. Þetta undratæki, hefillinn, gæti lagað mikið áður en malbik yrði sett á leiðina.
Ómar Ragnarsson, 12.2.2007 kl. 12:11
Hjartanlega sammála þér Bjarni H. Sumir segja að þetta sé hávær minnihlutahópur og ég hef lengi verið þeirrar skoðunar. En Samt er farinn að læðast að mér sá grunur að upp sé kominn múgæsingur sem Ómar Ragnarsson og Andri Snær eru að mestu ábyrgir fyrir og að fjöldinn á bak við þá sé að verða óhugnanlega stór. Einnig segja sumir að þetta sé bara af hinu góða, þ.e.a.s. að umræðan leiði af sé góða hluti og það má vel vera. En samt tel ég að rök umhverfissinna (hvað erum við hin?) séu oft svo hrikalega hæpin og að lokum verði þau allri vitrænum umræðum um umhverfismál einungis til tjóns. Komi hreinlega óorði á umhverfissamtök og Árni Finnson er auðvitað holdgerfingur þessa. Ómar Ragnarsson gerði sjónvarps innslag fyrir nokkrum árum þar sem hann talaði af miklum eldmóð um kosti þess að gera uppbyggða hálendisvegi. Í dag segist hann vera annarar skoðunar vegna nýrra upplýsinga! Hverjar skyldu þær nú vera? Hann segir í athugasemd hér fyrir ofan að betra sé að byggja veginn bara upp um 50 cm. og veghefill sé töfraorðið.
Tlgangurinn með uppbygðum veg með varanlegu slitlagi er að losna við snjó og minnka viðhald. Gera veginn arðbæran. Guðrún Pétursdóttir toppaði held ég bullið í Silfri Egils í gær þegar hún sagði að hávaðinn frá flutningabílunum heyrðis í fjallakyrrðinni tugi og jafnvel hundruði kílómetra.
Ég tel að uppbyggður vegur yfir Kjöl og helst Sprengisand líka, lagður varanlegu slitlagi, sé ein besta einstaka aðgerð til öryggis vegfarenda um þjóðveg 1 með því að dreifa umferðarþunganum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 12.2.2007 kl. 13:36
Sæll Bjarni,
Takk fyrir þessa umræðu sem er löngu orðin þörf. Loksins kemur þú með skynsöm rök í umhverfismálum sem eru laus við allar öfgar. Umræða umhverfisverndarsinna af höfuðborgarsvæðinu fer örugglega mjög í taugarnar á mörgum landsbyggðarbúanum enda hafa niðurstöður kannanna sýnt að ríkisstjórnarflokkarnir hafa meira fylgi í landsbyggðarkjördæmunum heldur en á suðvesturhorninu. Það segir manni það að umræða VG, framtíðarlandsfólks og annarra fellur víðar í grýttan jarðveg en fólk heldur.
Umræðan um umhverfismál er einnig of einhæf, eins og fram kom í grein eftir Unni Brá Konráðsdóttur sem skipar 5. sætið á lista Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Umræðan snýst eingöngu um virkjanir og álver, en þeir sem upplýstir eru vita að umhverfismál er mun stærri málaflokkur en svo hér á landi. Og það sem umræðan snýst um, fyrst og fremst, eins og þú kemur inná í greininni, er sú að svæðið utan stór-höfuðborgarsvæðisins eigi að einkennast af einhvers konar kyrrstöðu - torfkofarómantík þar sem allt er friðað. Kannski erum við landsbyggðarbúar að misskilja okkar hlutverk í íslensku þjóðfélagi og ættum að dusta rykið af lopapeysum og sauðskinnsskóm, sem annars eru klæði góð .....
Það yrði menningarlegt stórslys fyrir hinar dreifðu byggðir landsins ef íhaldssöm vinstri stjórn myndi komast til valda sem stendur í vegi fyrir framförum og umbótum sökum tilfinningasemi og slæmrar umhverfissamvisku.
Og í lokin vil ég beina nokkrum spurningum til umhverfissinnaðra höfuðborgarsvæðisbúa: Flokkið þið rusl? Notið þið almenningssamgöngur (eða eru 2 eða fleiri bílar á heimilinu)? Eigið þið sparneytna bíla? Sparið þið vatn og rafmagn? Ef þið getið ekki svarað neinu af þessu játandi, byrjið fyrst á því að taka til í eigin garði áður en þið farið að hamast í umhverfisvernd á afskekktum svæðum Íslands! Til áréttingar er vert að benda á að í Bláskógabyggð, mínu heimahéraði, er mikill meirihluti íbúa sem flokkar rusl og lifir skv. þessum gildum (Vistvernd í verki). Samt erum við sökuð um að vera umhverfisterroristar með því að vilja leggja nýjan Gjábakkaveg og fá góða tengingu um Kjöl.
Á höfuðborgarsvæðinu má sundurskera allt og umróta öllu - jafnvel er ekki sagt múkk um Hellisheiðarvirkjun - hún er greinilega ekki nógu afskekkt.
Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steini.
Sigrún Lilja Einarsdóttir (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 13:45
Gaman að sjá Silfrið í gær Bjarni. Makalaust hvaða bulli er hægt að ausa yfir mann s.s. að hægt sé að heyra í bíl í fleiri hundruð kílómetra fjarlægð á hálendinu. Það er svona eins og ef maður væri staddur í Nýjadal þá myndi maður bæði heyra í Akureyringum og Reykvíkingum.
Gunnlaugur (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 15:27
Alvöru grænir eru það hinir fjölmörgu framsóknarmenn í dag,Bjarni?
Þorkell Sigurjónsson (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 18:18
Það er nú bara verið að tala um Kjalveg í þessu sambandi. Ég veit ekki til þess að nokkur meirihluti sé á móti Sundabraut, eða tvöföldun þjóðvegarins á milli Selfoss og Akureyrar. Bættir vegir hafa hins vegar leitt til þess að margt fólk á landsbyggðinni keyrir nú mun lengri vegalengd en áður til að kaupa í matinn og fleira, til dæmis frá Hvammstanga til Reykjavíkur, Dalvík til Akureyrar og Húsavík til Akureyrar. Verslun á minni stöðunum hefur því minnkað mikið vegna bættra samgangna og ekki eru nú allir hrifnir af því. Og ekki eykst verslunin á Blönduósi ef þjóðvegurinn yrði styttur í Húnavatnssýslunni, enda hafa margir á þeim bæ sett sig upp á móti þessum samgöngubótum.
Eiríkur Kjögx (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 19:50
Með betri pistlum sem ég hef lengi lesið, vona að sem flestir lesi og vonandi taki til sín þeir sem við er átt, þingmen, Sigurrós, Bryndís og fleiri slíkir sem elska náttúru landsins ekki meir en svo að geta ekki verið þar nema dagstund, þá er nóg komið og viðkomandi flýta sér til byggða svo unnt sé að lýsa upplifuninni á reykfylltu kaffihúsi. Hvar var þetta lið þegar Orkuveitan fyllti Hengilssvæðið af staurum og línum og eyðilagði eitthvert fegursta útivistarsvæði landsins, ég spyr???. Þá hafði þetta lið einhver völd til að láta verkin tala en gerði ekki. Er hægt að taka mar´k á þessu fólki??? Nú þegar aðrir ráða þá er mótmælt.
Valbjörn Steingrímsson, 14.2.2007 kl. 14:12
Alveg sammála Bjarni. Það er rétt að þetta er lítill alltof hávær 101 hópur sem er að mestu á bak við þetta.
Þessi sami hópur er líka á bak við það að byggja tónlistarhús á kostnað skattgreyðenda.
Enda eru þetta allt ákveðnar týpur svo sem : listamenn, skáld, kennarar og besservissarar.
Ég veit þetta af því að ég er alla daga umkringdur þessu fólki eins og þú veist.Mér hefur ekki tekist að koma vitinu í það en kannski tekst þér betur upp.
Kv,
Örn Johnson
Örn Johnson (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 16:33
Mér finnst að í þessari færslu komi fram nokkuð vanmat á gildi fíflskapar. Af honum hefur bæði hlotist ágætur hagvöxtur og allgóð skemmtun. Annars er hægt að sýna fram á að menn geti sigrast á þyngdakraftinum með því að líma brauðsneið með sultu á bak kattar. Ef þessum samlímingi er hent upp í loftið verður togstreita milli tveggja ófrávíkjanlegra náttúrulögmála, sem eru annars vegar að kötturinn lendi á fótunum og hins vegar að brauðsneiðin lendi með sultuna niður. Þetta getur ekki farið nema á einn veg. Fyrirbærið lendir alls ekki. Á sama hátt mun ófrávíkjanlegt lögmál á háværasti minnihlutinn hefur upp raust sína til samþykkis ef heimtaður er fjórbreiður vegur með tvær akreinar í hvora átt og andmælir kröftuglega ef stungið er upp á mannvirkjagerð þar sem aðeins á að vera hægt að komast á upphækkuðum jeppum. Þessi minnihluti mun því verða kjaftstopp og ekki koma upp orði ef stungið er upp á fjórbreiðum vegi yfir hálendið. Best væri að hafa tvær af fjórum akreinum á Kili og hinar tvær á Sprengisandi. Sultubrauðskötturinn getur svo svifið yfir Hofsjökli og hávaðamennirnir gapað kjaftstopp í sínum náttúrulegu heimkynnum í 101 Reykjavík.
Atli (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 20:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.