Af verðandi borgarstjóri og vísindalegum stjórnmálum!

REI málin halda áfram að gera stjórnmál á Íslandi ótrúverðug og almenningi er vitaskuld gróflega misboðið. Hin nýja skýrsla stýrihópsins staðfestir svo langt sem hún nær allar þær verstu grunsemdir og ásakanir sem fram komu í haust.svandis_svavarsdottir

Þegar mál þessi voru í hámæli hélt ég því fram að höfuðleikendum þessa máls bæri tafarlaust að segja af sér. Skýrslan nú staðfestir algerlega réttmæti þess og líklega er Vilhjálmur Þ. aleinn um þá skoðun að hann hafi stöðu til að taka aftur við stöðu borgarstjóra.

Það er síðan önnur saga að þau vinnubrögð eru umdeilanleg að skipa rannsóknarnefnd með þátttakendum í leikritinu sjálfu til þess að fara yfir málið. Pólitískt kjörnir fulltrúar að skoða sjálfa sig!

Ég er mikill talsmaður þess að menn afhenti ekki almenn pólitísk völd til embættismanna og þeirra sem telja sig óháða öllu og öllum. En í þessu tilviki eiga sjónarmið hinna pólitísku fulltrúa tæpast við og málflutningur þeirrar mætu konu, Svandísar Svavarsdóttur um samstöðustjórnmál er ekki mjög sannfærandi. Hún talar um þetta eins og einhver vísindi stjórnmálanna sem eigi að skila okkur framávið en hvernig sem ég velti þessu um í mínum kolli þá minna vinnubrögðin meira á samtryggingu og það í vægast sagt vondu máli. Samtryggingu sem Svandís þvældist eiginlega inn í vegna skammvinnrar setu í meirihluta og fékk þar eins og kerlingin forðum hlaup en ekkert kaup...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Við höfum séð þetta frá svipuðum "vinkli" Bjarni minn!

kv. Sigrún 

Sigrún Jónsdóttir, 7.2.2008 kl. 21:24

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sitt sýnist hverjum i þessu Rei máli,og þarna erum viðsko ekki sammála Bjarni/kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 7.2.2008 kl. 21:37

3 identicon

Við sveitarmennirnir megum hafa skoðun á sukki í borginni. Ekki hnifasettið á milli skoðana okkar.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband