Af ótímabærum eftirmælum

Það er langt síðan mér datt í hug að dauðinn muni vitja manns með þeim hætti að einn daginn lesi maður um sig dánarfregnir og þvínæst minningagreinar. Ekkert viss um þetta frekar en annað varðandi eilífðarlífið - en rétt að útiloka ekkert. Þessvegna fer ég helst ekki út á morgnana nema gá fyrst hvort ég sé nokkuð sjálfur á minningasíðum Moggans.

Og velti öðru hvoru fyrir mér hvernig tilfinning það verður og hvernig eftirmælin verða yfirleitt um annan eins striga og ég óneitanlega er. Mér hefur aftur á móti aldrei dottið í hug að ég fengi einhvern forsmekk að þessu sprellilifandi. En svo varð.

Eftir að hafa með stuttri tilkynningu sagt af mér þingmennskuí morgun var mér stórlega létt. Fullur tilhlökkunar raunar að mega frekar selja bækur en að sitja á maraþonfundum á aðventunni. Þar sem símtöl tóku drjúgum af nóttinni lagði ég mig um hádegisbil og svaf í um þrjá tíma.

Og - vaknaði við mínar eigin minningagreinar og eftirmæli og skjall og heillaóskir og samúðarkveðjur og hughreystingar og jafnvel lofgerðir. Item áskoranir um að hætta við að segja af mér. Þó mér þyki sjálfum margir mæla hér langt um efni fram um mitt ágæti þá vil ég koma á framfæri þakklæti og biðst velvirðingar á að hafa hvorki náð að svara öllum tölvupóstunum, sms-unum né símtölunum. Við erum að tala um nokkur hundruð rafræn boð - og svo öll hin sem eru borin mér af lifandi fólki. Semsagt takk.

En bara til að fyrirbyggja allan misskilning. Ég sé ekki eftir að hafa sagt af mér, ég er ekki að fara að hætta við að hætta, ég er ekki í rusli yfir ástandinu en kannski svolítið eins og kötturinn, eirðarlaus og uni mér helst við dundur í eldhúsinu. Þar erum við saman, ég og kötturinn sem ég gruna alltaf um að vera krati...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dunni

  Skil þig.

Dunni, 11.11.2008 kl. 18:49

2 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Þú fórst illa að ráði þínu Bjarni minn - en gerðir það eina rétta í stöðunni.  Ég setti inn smá færslu um málið í dag - minnug góðra daga sem við áttum saman í blaðamennskunni hér á árum áður.

Gangi þér vel framvegis.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 11.11.2008 kl. 18:56

3 Smámynd: Björn Birgisson

Synd hvernig fór. Þú ert talsmaður gamalla og góðra gilda. Nú eiga þau upp á pallborðið á nýjan leik, en talsmönnum þeirra á þingi hefur fækkað um einn. Sárafáir eftir, því miður. Lifðu heill með bókunum þínum og fjölskyldunni.

Björn Birgisson, 11.11.2008 kl. 18:59

4 identicon

Langaði nú bara að senda þér kveðju og stuðning. Veit að þú hefur vaxið frekar en hitt í augum almennings og það kemur okkur ekki á óvart sem kannast við þig.

Elín Esther Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 19:38

5 identicon

Ef ég má nota nútíma talsmáta, shit happens! En þessi litli skítur þinn er náttúrulega bara óbærilegur léttleiki tilverunnar, miðað við allann þann flór ŕáðamanna okkar þjóðar sem að svífur yfir höfðum Íslendinga þessa síðustu dagana. Von mín er að þessi drengskapur þinn, að segja af þér, muni hafa þau áhrif á að fordæmi skapast með þeim hætti að stærri höfuð fjúka.
Ég kem í bókabúðina,
Einar

einar (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 19:52

6 identicon

Flott hjá þér að axla ábyrgð, vildi að það gerðu fleiri

Guðrún (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 20:21

7 Smámynd: Eyþór Árnason

...haltu áfram að blogga og vertu góður við köttinn. Kveðja.

Eyþór Árnason, 11.11.2008 kl. 20:47

8 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Ég skrifaði eina "minningargrein" um þig Bjarni, en sé nú að það hefur verið óþarfi að vorkenna þér, fyrst þú átt svona góðan kött. Kær kveðja, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 11.11.2008 kl. 20:55

9 identicon

Jæja...núna hefur þú tækifæri til að gera einu bestu bókabúð landsins að enn betri bókabúð.  Hlakka til að renna við hjá þér og kíkja í hillurnar.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 20:58

10 identicon

Bíðið nú við aðeins............................hvar á Bjarni heima? Selfossi. Litháen..............hvers konar fréttir hafa verið um letta og Lettland?

Virðist eins og einhvers konar endurspegling, lögregla að kanna morð í sambandi við afmælisveislu. Er það tilviljun að afmælisveisla kemur upp í greinum sem skrifaðar eru hér? Er á landinu fullt af glæpafólki í þágu Sjálfstæðisflokksins a la Bush-administrationen sem svona tilviljanir eru. Það bréf sem er skrifað er í október, hver hefur aðgang ?  Á að reyna að koma úlgu í stjórnarandstöðuflokka? Bruninn á kjúklingabúinu? Er það Framsóknarflokkurinn, þar sem um landbúnað er að ræða? Hversu algjörlegar eru hleranirnar og eftirlitin hér á landi í þágu ríkjandi Sjálfstæðisflokks? Þannig mætti athuga í þágu hverra lögregla vinnur. Eru vopn dómsmálaráðherra notuð til að farga öðrum flokkum? Mætti fara að athuga hvernig á þessu stendur og á meðan verður stjórnarandstaða og þeir sem gagnrýnir eru í garð Sjálfstæðisflokksins að vera varsamir.

 Hverra ferða fer Valgerður, pirruð yfir því að þurfa að bera ábyrgð á einkavæðingunni.

ee (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 21:32

11 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Gangi þér vel hvað sem þú gerir og hvar sem þú ert.

Skilaðu kveðju til Elínar og klappaðu kettinum. kv.

Helga R. Einarsdóttir, 11.11.2008 kl. 21:33

12 identicon

Bjarni þú gerðir stórmistök með því að segja af þér.  Allt það sem kemur fram í þessu bréfi er satt.  Þú hefðir átt að standa við það.  Þessi kona er ekki stórnmálamaður henni má líkja við Söru Palin varaforsetaefni í Bandaríkjunum (fáfróð).  Hún var dubbuð upp á sínum tíma sem utanríkisráðherra, en hafði ekki hundsvit á utanríkismálum og var síðan sett út í horn þegar samningar stóðu við bandaríska varnarliðið sem síðan yfirgaf Ísland. 

Sigurður Hreinsson (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 21:37

13 identicon

Ath.: Athugasemdir hér ofan skrifaðar í sambandi við frétt um Bjarna: http://eyjan.is/blog/2008/11/11/bjarni-hefur-sagt-af-ser-thingmennsku-politiskur-hiti-hljop-med-mig-i-gonur/

ee (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 21:38

14 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Já, þarna komstu með það, mig hefur stundum grunað þetta en ekki þorað að hafa orð á því: Að  kettir geta verið viðsjálverðir.

Sigurður Þórðarson, 11.11.2008 kl. 21:40

15 identicon

Hefðir átt að láta slag standa,og leyfa Valgerði hinni spilltu að væla.

Jenzen (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 21:51

16 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Þetta með köttinn.   Það er alltaf gott að hafa jafnvægi á heimilinu.  Gangi þér vel. 

Marinó Már Marinósson, 11.11.2008 kl. 22:03

17 Smámynd: HP Foss

Ljóti kötturinn það!


Vont að missa eina þingmanninn sem veit hvar Skaftárhreppur er á landinu.

Gangi þér allt í haginn, kaffibollann á ég inni hjá þér.
Kveðja- Helgi

HP Foss, 11.11.2008 kl. 22:06

18 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Bjarni. Ég hugsa að þú geta treyst kettinum fyrir eldhúsinu og þú ættir að koma þér að öðrum verkefnum.. þín er þörf þó þú kjósir að losa þig frá þingstörfum. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.11.2008 kl. 22:18

19 identicon

Hey, Bjarni þú rokkar .. fínt.

Skipta bara svo um flokk eða stofna nýjan!

LS.

LS (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 22:39

20 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ljótt að missa svona ferilskrá Valgerðar frá sér.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.11.2008 kl. 22:53

21 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvurn andskotann gerðirðu eiginlega ? Var þetta nokkuð nema sannleikurinn ?

Halldór Jónsson, 11.11.2008 kl. 23:03

22 Smámynd: Svavar Alfreð Jónsson

Njóttu þín nú vel á aðventunni og mættu margefldur og upptendraður til leiks á nýju ári.

Svavar Alfreð Jónsson, 11.11.2008 kl. 23:09

23 identicon

Sæll frændi.

Þegar ég sá póstinn frá þér í gærkvöldi hugsaði ég nú strax "Helvíti var þetta slysalegt hjá Bjarna...", en ætli þú hafir ekki eftir að senda afritið á alla fjölmiðla spilað eins vel úr þessu og hægt var. Fínt viðtalið við þig hjá Morgunblaðinu.

Það held ég líka að það sé ólíkt skemmtilegra að reka bókabúð en að sitja þingfundi. 

Ég legg til að kötturinn fái bara þurrfóður á næstunni. 

Máni Atlason (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 23:15

24 Smámynd: Magnús Þór Friðriksson

Hef aldrei kosið Framsókn og reikna varla með því að ég taki upp á því á gamals aldri, en ég tek ofan fyrir þér að setja þetta fordæmi með afsögn þinni. Ef fleiri færu að taka slíka ábyrgð á gjörðum sínum eins og þú gerðir, þá væri tómlegt um að lítast við Austurvöllinn...

Verður þú samt ekki með í slagnum í vor?? (reikna með kosningum)

Magnús Þór Friðriksson, 11.11.2008 kl. 23:28

25 identicon

Kjáni geturðu verið drengur, ég segi nú ekki meir. En þín verður þó minnst fyrir þær sakir að þú felldir ríkisstjórn Framsóknar og Íhalds í beinni sjónvarpssendingu og rýmdir þannig til fyrir kommunum við kjötkatlana. Lát huggast, Bjarni, þín bíður glæsilegur frami hjá Frjálslyndum :)

Baldur Hermannsson (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 23:44

26 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll félagi Bjarni. Hvet þig sem fyrst að snúa til þings sbr blogg mitt
í dag, með pólitískri pælingu......

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.11.2008 kl. 00:24

27 identicon

Þetta er nú bara grátlegt .Þú áttir ekki að hætta þú ert góður pólitíkus

Anna (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 00:54

28 identicon

Líklega eru allir kettir kratar. Maður veit a.m.k. aldrei hvar maður hefur þá.

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 09:30

29 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ef þú hefðir bara sent þetta skrattans bréf undir þínu nafni kinnroðalaust, þá væri allt í fínu nema Valgerður hefði sennilega ekki dansað við þig á næsta balli.

Það er auðvelt að túlka nafnlausu sendinguna sem undirferli, en þar sem þú tókst fulla ábyrgð á þeim mistökum, þá muntu eiga þér pólitískt líf eftir þetta. Kannki verðurðu sterkari en ella fyrir vikið og öðrum til fyrirmyndar og eftirbreytni.

Gangi þér vel, Bjarni

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.11.2008 kl. 11:00

30 identicon

Gangi þér vel í framtíðinni félagi, ,,þinn tími mun koma‘‘ eins og kellingin sagði. Þú gerðir tvennt sem ég dáist að, 1. Þú sagðir satt.  2. Þú sýndir mikið hugrekki með að seigja af þér. Þetta með ,,köttinn“ æ já já ég bið bara að heilsa honum eins og hinir.

Sigurður G. Marinós. (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 11:41

31 identicon

Þvílkt vesen Bjarni að missa þig og sitja uppi með kellinguna - oj barasta... *afsakið meðan ég æli*

Imba sæta (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 12:30

32 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mali minn, sem er gamaldags kommúnistaköttur, biður að heilsa eirðarlausa kettinum. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 13.11.2008 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband