Eldri færslur
- Maí 2014
- Mars 2014
- Október 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 1325073
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Er Framtíðarlandið bananalýðveldi
22.3.2007 | 09:43
Framtíðarlandið er með undarlegustu fyrirbrigðum í íslenskum stjórnmálum og ganga um margt lengra en Vinstri grænir í því að eyðileggja málstað okkar umhverfissinna í þessu landi. Bæði eru öfgarnir slíkar og þá ekki síður vinnubrögðin. Sorglegt að sjá fólk eins og frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta setja nafn sitt hér við.
Sáttmálinn sem samtök þessi leggja fram er í þremur liðum og alls ekki slæmur.
1. Við höfum kjark til að byggja upp fjölbreytt og lifandi samfélag á Íslandi þar sem hugvit og sköpunargleði einstaklinga fær að njóta sín þeim sjálfum og öðrum til heilla.
2. Við sýnum komandi kynslóðum virðingu með því að láta lögfesta áætlanir um náttúruvernd áður en nokkuð frekar er aðhafst í orkuvinnslu.
3. Við öxlum ábyrgð á tímum viðsjárverðra loftslagsbreytinga í heiminum með því að fylgja alþjóðlegum skuldbindingum um losun gróðurhúsalofttegunda.
Þetta er að vísu frekar meiningarlaust og veikt. Ég hefði viljað sjá menn skrifa undir að þeir legðu sig fram í daglegu lífi á þann veg að vera umhverfisvænni. Eyddu minna bensíni, flokkuðu sorp og svo framvegis. Í fúlustu alvöru eru það þeir litlu hlutir sem telja í umhverfisvernd en ekki gapuxahátturinn.
En ballið byrjar fyrst hjá Framtíðarlandinu með langri og leiðinlegri greinargerð með þessum tillögum. Þar kemur hið hippokratíska faríseaeðli Andra Snæs og félaga grímulaust fram. Það hefur raunar fylgt hrokafullum trúarleiðtogum allra tíma að telja vafasama og einhliða túlkun hins heilaga orðs vera sitt aðal hlutverk. Hér er fákænn almúgi látinn skrifa undir játningu sem er eins og fyrr segir frekar meiningarlaus en farísearnir sjá svo um að túlka.
Í þeirri túlkun felst til dæmis að pólitískar ákvarðanir í landinu eiga að vera afturvirkar. Slíkt er reyndar ekkert einsdæmi í pólitískum ákvörðunum og gekk raunar svo langt í sæluríkjum sósíalismans að þar var sögunni ítrekað breytt. Í sæmilega vönduðum lýðræðisríkjum er hverskyns afturvirkni ákvarðana talin út úr öllu korti.
Það er þessvegna sem ég tel mig alveg geta skrifað undir sáttmálann og það þó róttækari væri til framtíðar litið. En ég get ekki fallist á þá afturvirku skilgreiningu í greinargerðinni að við getum talið okkur fært að banna eða stöðva einhliða framgang virkjana eða uppbyggingar sem þegar er komin af stað og réttmætar væntingar eru til meðal þeirra sem eiga að njóta.
Mér er í þessu frekast umhugað um að Þingeyingar fái óáreittir að byggja sitt álver á Húsavík. Það er ekki eðlilegt að slá þær væntingar niður með ákvörðunum sem eiga að ógilda fyrri samninga og það sem þegar er komið í gang. Þessi uppbygging getur skipt sköpum um afkomu byggðar á Norðausturhorninu þar sem byggð er í þröngri varnarstöðu.
Það er auðvitað heldur ekki hægt að stöðva með stjórnvaldsaðgerðum Straumsvík eða Urriðafoss en þar getum við vonast til að þeir sem leyfið hafi sjái að sér og haldi að sér höndum. Við sem teljum okkur umhverfissinna erum öll sammála um að það ástæða til að staldra við. Meira að segja hörðustu orkusölumenn eru farnir að sjá að það borgar sig að fara hægt. Langasjó eiga menn að láta óáreittan um ókomin ár og það er fráleitt að ráðast inn á fleiri af okkar dýrmætu hverasvæðum hér á suðvesturhorninu.
En það sem hefur verið leyft og það sem hefur verið ákveðið það verður að standa. Annars er þetta Framtíðarland okkar bara eitthvert bananalýðveldi! Viljum við það?
(Ps. Svona verður það. Myndinni hér að ofan er ætlað að varpa ljósi á kjör og vitsmunalíf bænda í íslensku bananalýðveldi... Ljósmyndari er Egill Bjarnason og er myndin tekin austur á Síðu. Fyrirsæta er dæmigerður íslenskur framsóknarmaður.)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.3.2007 kl. 18:11 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Tenglar
- X-J 2013 Regnboginn.is
- Jón fóstri
- Guðmundur djákni
- Tilveran í ESB
- Netbókabúð bókakaffisins
- Bloggsíða villikatta
- Bókablogg Sunnlenska bókakaffisins
- Heimssýn, - Ísland EKKI í ESB
- Egill Bjarnason ferðalangur
- Atli
- Harpa
- Vinstri vaktin gegn ESB
- AMX hægri fréttir
- Laugarás í Biskupstungum á fésbókinni Hér má finna gamla og nýja íbúa Laugaráss í Biskupstungum
- Smugan vinstri snú!
- Anna Björnsson
Bloggvinir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Ágústa
- Ævar Rafn Kjartansson
- Agnar Bragi
- Agnes Ásta
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Helga R. Einarsdóttir
- Á móti sól
- Andrés Magnússon
- Andrés.si
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Hólm Ármannsson
- Árni Matthíasson
- Árni Þór Sigurðsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Ása Björg
- Ívar Pálsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Rúnar Halldórsson
- Auður Eva Auðunsdóttir
- Egill Bjarnason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Margrét Annie Guðbergsdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Björn Emil Traustason
- Birkir Jón Jónsson
- Hommalega Kvennagullið
- Birna G
- Guðrún Olga Clausen
- Bjargandi Íslandi
- Björn Jóhann Björnsson
- Bleika Eldingin
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Guðmundur Bogason
- Bogi Jónsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Bwahahaha...
- Brjánn Guðjónsson
- Baldur Már Róbertsson
- SVB
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja Hjaltadóttir
- Bergþór Skúlason
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- busblog.is
- Charles Robert Onken
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Diesel
- Dofri Hermannsson
- Adolf Dreitill Dropason
- Anna S. Árnadóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Ágúst Dalkvist
- GK
- Bjarni Kjartansson
- Dunni
- Óskar Ingi Böðvarsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Gomez
- Einar Freyr Magnússon
- Einar Sigurbergur Arason
- Eiður Ragnarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Zóphonías
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Árnason
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Fannar frá Rifi
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Femínistinn
- Stefán Þórsson
- Jakob
- FLÓTTAMAÐURINN
- Gísli Foster Hjartarson
- Ritstjóri
- FreedomFries
- Friðjón R. Friðjónsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Björgvinsson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- FUF í Reykjavík
- Hlynur Sigurðsson
- Dóra litla
- Baldur Fjölnisson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gestur Halldórsson
- Gestur Guðjónsson
- Gísli Hjálmar
- Einar Ben Þorsteinsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Skákfélagið Goðinn
- Ingólfur H Þorleifsson
- Stafnhús ehf
- Götusmiðjan
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Ómarsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Magnússon
- gudni.is
- Guðrún Fanney Einarsdóttir
- Guðrún
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gulli litli
- Gunnlaugur Stefánsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Jón Erlendsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Gylfi Guðmundsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- halkatla
- Halldór Baldursson
- Hallur Magnússon
- Haukur Már Helgason
- Jóhann Ágúst Hansen
- haraldurhar
- Haraldur Haraldsson
- Héðinn Björnsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Reyr Ágústsson
- Heiða Þórðar
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Heiðar Sigurðsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Helgi Már Bjarnason
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Kristín Einarsdóttir
- Eiríkur Harðarson
- Heiðar Lind Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Helgi Sigurður Haraldsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hlynur Hallsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- HP Foss
- Krummi
- Hrannar Björn Arnarsson
- hreinsamviska
- Fulltrúi fólksins
- Hrólfur Guðmundsson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Hvíti Riddarinn
- Icelandic fire sale
- íd
- Ingimundur Kjarval
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
- Sævar Einarsson
- Elísa Arnarsdóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Svanur Jóhannesson
- Einar Vignir Einarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Sigurjónsson
- Jens Guð
- Jóhann G. Frímann
- jósep sigurðsson
- Jóhann Steinar Guðmundsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jón Finnbogason
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Jón Magnússon
- Jóhann Jóhannsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Valsson
- Bergur Thorberg
- Karl V. Matthíasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Vídó
- Kristján Jónsson
- Guðjón H Finnbogason
- Kolbeinn Karl Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Stjórnmál
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kolbrún Hilmars
- Karl Tómasson
- Kolbrún Ólafsdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Landvernd
- Lára Stefánsdóttir
- Heimir Eyvindarson
- Laufey Ólafsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Jónas Jónasson
- Pálmi Guðmundsson
- Gylfi Norðdahl
- Loopman
- Guðný Lára
- Guðjón Baldursson
- Edda Jóhannsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Magnús Jónsson
- Magnús Vignir Árnason
- Mál 214
- Alfreð Símonarson
- Máni Ragnar Svansson
- Björn Benedikt Guðnason
- Guðmundur Margeir Skúlason
- Steinar Immanúel Sörensson
- Gísli Tryggvason
- Níels Bjarki Finsen
- Jón Svavarsson
- Ólafur Björnsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Nordal
- Hundshausinn
- Guðmundur Örn Jónsson
- Óttar Felix Hauksson
- Páll Geir Bjarnason
- Páll Vilhjálmsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- percy B. Stefánsson
- perla voff voff
- Perla
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jóhann Birgir Þorsteinsson
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar L Benediktsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Rúnar Birgisson
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- ragnar bergsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Víðir Benediktsson
- Salmann Tamimi
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurjón Valgeir Hafsteinsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Gunnar Þór Ólafsson
- Egill Helgason
- Sigurður Jónsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Jóhann Waage
- Auðun Gíslason
- Óskar Þorkelsson
- Karl Hreiðarsson
- Halldór Sigurðsson
- Brynja skordal
- Hreiðar Eiríksson
- Hannes Friðriksson
- hilmar jónsson
- Snorri Hansson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Bogi Sveinsson
- Stefán Þór Helgason
- Stefanía
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- Þorsteinn Briem
- Steinn Hafliðason
- Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
- Samband ungra framsóknarmanna
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svanur Kári Daníelsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Sveinbjörn Eyjólfsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Sigursveinn
- Helgi Guðmundsson
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórir Kjartansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Tíðarandinn.is
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gísli Kristjánsson
- Þorleifur Ágústsson
- TómasHa
- Tómas Þóroddsson
- Reynir Hugason
- Trúnó
- Halldór Egill Guðnason
- Gaukur Úlfarsson
- Unnar Geir Þorsteinsson
- Ferðaþjónustan Úthlíð
- Vilhjálmur Árnason
- P.Valdimar Guðjónsson
- Valdimar Sigurjónsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Valsarinn
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vestfirðir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Guðfríður Lilja
- Gylfi Björgvinsson
- Vilhjálmur Árnason
- Sigurlaug B. Gröndal
- Aðalsteinn Bjarnason
- Aðalsteinn Júlíusson
- Andrés Kristjánsson
- Anna Einarsdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Arnþór Helgason
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Árelíus Örn Þórðarson
- Árni Haraldsson
- Árni Þór Björnsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Hafberg S.
- Barði Bárðarson
- Benóný Jónsson Oddaverji
- Bergur Sigurðsson
- Bergþóra Sigurbjörnsdóttir
- Birgir R.
- Birna G. Konráðsdóttir
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Jónsson
- BookIceland
- Braskarinn
- Carl Jóhann Granz
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Einarsdóttir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- ESB og almannahagur
- Eva G. S.
- Eygló Sara
- Eyþór Örn Óskarsson
- Friðrik Kjartansson
- Garún
- Gestur Janus Ragnarsson
- Gissur Þórður Jóhannesson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson
- Grétar Mar Jónsson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Markúsdóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Heiðarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Gústaf Níelsson
- Gylfi Gylfason
- Hafþór Baldvinsson
- Halla Rut
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Jónsson
- Haraldur Hansson
- Haukur Baukur
- Haukur Nikulásson
- Heimir Ólafsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjalti Tómasson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Hörður B Hjartarson
- Hörður Stefánsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Ingimundur Bergmann
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jóhann Pétur
- Jónatan Karlsson
- Jón Á Grétarsson
- Jón Árni Bragason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Bjarnason
- Jón Daníelsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Lárusson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Katrín
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kári Harðarson
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Kristinn Arnar Guðjónsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Magnús Jónasson
- Magnús Kristjánsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Már Wolfgang Mixa
- MIS
- Offari
- Ólafur Björnsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Bjarki Smárason
- Óskar Steinn Gestsson
- Paul Joseph Frigge
- Páll Helgi Hannesson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Raggi
- Ragnar G
- Ragnar Gunnlaugsson
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Reynir Jóhannesson
- Samstaða þjóðar
- Samtök Fullveldissinna
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- S. Einar Sigurðsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigrún Óskars
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Sigurjón Norberg Kjærnested
- Skuldlaus
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólrún Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Steini Palli
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Sveinn Björnsson
- Sædís Hafsteinsdóttir
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trausti Jónsson
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Urður bókafélag
- Vaktin
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Skagfjörð
- Varmársamtökin
- Vésteinn Valgarðsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vinstrivaktin gegn ESB
- ÞJÓÐARSÁLIN
- Þorri Almennings Forni Loftski
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þórarinn Lárusson
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Bragason
- Þórhallur Heimisson
- Þórhallur Heimisson
- Þráinn Jökull Elísson
Athugasemdir
sæll takk fyrir þetta
ég á svona hatt og deili með þér býsna mörgum af þínum þönkum
Haltu áfram á þessari braut.
Bragi
Bragi (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 09:59
Sæll og takk fyrir þínar hugleiðingar. Fannst rétt að árétta þó hérna að sáttmálinn fjallar ekki um að ekki eigi að verða af Álveri á Húsavík. Sáttmálinn fjallar um að bíða með það og aðrar stóriðjuframkvæmdir þangað til að búa er að skapa alhliða þroskað plan um framtíð og nýtingu náttúrunnar okkar.
Það hlýtur að vera kominn tími á að staldra við og skoða málin í heild áður en við höldum áfram að dúndra inn hér og þar í sveitarfélög innspítingum í formi Álvera eða annarra stórdramatískra framkvæmda, sem bera meira með sér lykt af samviksubiti yfir kvótasnauð og afturför í þeim plássum heldur en þroskuðum ákvörðunum byggðum á rökum.
Fáum hlutlausa fagaðila til að meta og ráðleggja okkur áður en við leyfum pólitíkusum (hvort sem er til hægri eða vinstri) að skipuleggja landið okkar frekar út frá eigin hugmyndum.
Baldvin Jónsson, 22.3.2007 kl. 11:00
Það er í anda Björns bónda, dóms og fjallkirkju, að lögleiða hér vændi. Þessi lögleysa finnst honum sniðug. Og skattleggur svo herlegheitin. Það er víða matarholan hjá Sjöllum og Framsókn, enda þótt þeir séu nú voða mikið á móti því að ríkið sé með nefið ofan í hvers manns koppi. En blautur er nebbinn á Bíbí og er kominn hefðarréttur á þá bleytu alla. Ekki datt honum í hug að gera það bara ólöglegt og refsivert að kaupa hér vændi, sem einfaldast og affarasælast var í málinu. Sænskar leiðir eru svo rosalega sossalegar eitthvað, óálandi og óferjandi öllum bjargráðum. Hér falbjóða erlendar dráttarvélar þjónustu sína nánast daglega á einkamálavefjum og kostar drátturinn 25 þúsund kall. Björn bóndi skattheimtumaður mætir síðan í dyrunum og innheimtir vaskinn, sem færi nú aldrei í vaskinn, og tekjuskattinn: "Ðö VAT is 6125 krónur, þenk jú verí möts for ðis prógramm, end dónt forgett tú pei ðí inkom tax, gúdbæ!"
Í athugasemdum með frumvarpinu um þetta idiótí segir meðal annars:
"Í öðru lagi er það sjónarmið, sem vegur mun þyngra, að þeir sem hafi viðurværi sitt af sölu kynlífs séu í flestum tilvikum illa settir andlega, líkamlega og félagslega. Þeir séu yfirleitt þolendur sjálfir, t.d. vegna fátæktar, fíkniefnaneyslu eða kynferðislegrar misnotkunar (samkvæmt upplýsingum Stígamóta hafa 6585% kvenna sem stunda vændi orðið fyrir einhvers konar kynferðislegu ofbeldi)."
Vatnsútflutningur héðan mun aukast gríðarlega á næstu árum, því meira en milljarð manna skortir vatn. Þessu hefur Framsókn ekki tekið eftir, því hún er öll í aqua vitae, lífsins vatni. Fjallagrös hafa verið tínd hér um aldir, enda þótt það hafi alveg farið framhjá Framsókn og Grasa-Gudda hafi ekki viljað ganga í flokkinn. Fjallalömbin, villibráðin okkar, lifa hér á rándýru timíani (blóðbergi) og eru verðlögð eftir því. Ætli báðir Framsóknarmennirnir geri ekki í brækurnar af hlátri yfir þessari firru og furðum öllum.
Klámskjóður nokkrar fengu ekki inni á hóteli hér á dögunum og þá fór landið á hliðina vegna þess að svo margir misstu spón úr aski sínum um land allt en nú eru störf í ferðaþjónustu allt í einu orðin einskis virði vegna þess að einhverjir í Hjálpræðishernum í Hafnarfirði heimta stærra álver! Er þetta trúverðugur málflutningur? Á nú að fara að flytja inn enn fleiri útlendinga, fleiri þúsund, ef ekki tugi þúsunda, til að vinna í ferðaþjónustunni, eins og gert var í fiskvinnslunni, og stækka og reisa ný álver fyrir Íslendingana?! Störf við stóriðju höfða mun meira til karla en kvenna og hér er ekkert atvinnuleysi. Er nú ekki löngu kominn tími til að leggja áherslu á konur í þessu landi? Hins vegar vinna bæði karlar og konur í ferðaþjónustunni, að sjálfsögðu. Ferðaþjónusta fer stórum vaxandi hér, árlegur vöxtur hennar er gríðarlegur og störfum í þessari þjónustu fjölgar um mörg þúsund á ári. Stóriðja og ferðaþjónusta fara ekki saman, því byggja þarf stórvirkjanir og stór raflínumöstur út um allar koppagrundir til að koma nauðsynlegri raforku til stóriðjuveranna, sem valda þar að auki mengun. Erlendir ferðamenn koma ekki hingað til að sjá slíka hluti. Það er nóg af þeim í þeirra heimalöndum. Þeir koma hingað til að njóta óspilltrar náttúru sem lítið er af í þeirra heimabyggð. Raflínur út og suður spilla öllum sjónlínum til fjalla og jökla og hvorki íslenskir né erlendir ferðamenn vilja sjá slíka hluti.
Gríðarlega mörg fyrirtæki njóta góðs af fjölgun ferðamanna hér með beinum hætti, til dæmis Flugfélag Íslands en hjá þeim var 8% fjölgun farþega í fyrra, einnig Icelandair, IcelandExpress, hótel, veitingastaðir og bílaleigur. Störf í ferðaþjónustu eru ágætlega launuð hér og með auknum fjölda ferðamanna hingað til lands yrði hægt að greiða enn hærri laun í ferðaþjónustunni, alveg eins og hægt yrði að greiða hærri laun í álverum ef eftirspurn eftir áli eykst. Hins vegar er alls óvíst hvernig hún verður í framtíðinni, því fyrr eða síðar verður farið að nota önnur efni í stað áls, ódýrari eða umhverfisvænni í framleiðslu. Auk þess verður að öllum líkindum skrifað undir nýtt alheimssamkomulag um losun gróðurhúsalofttegunda á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Danmörku árið 2009, eftir einungis tvö ár, og Kyoto-bókunin rennur út árið 2012. En að sjálfsögðu munum við halda áfram að nota hér rafmagn í einhverjum mæli, til dæmis tiltölulega ódýrt næturrafmagn til að hlaða rafbíla á nóttunum, en nú þegar hefur verið framleiddur rafbíll sem kemst upp í hundrað kílómetra hraða á nokkrum sekúndum. Þá mun Krossanesverksmiðjan og fleiri verksmiðjur framleiða umhverfisvænt eldsneyti fyrir fiskiskipaflotann okkar. Mengun af umferð og fiskiskipum verður því mun minni í framtíðinni en nú er, enda þótt umferðin komi til með að aukast.
Við þurfum ekki á frekari stóriðju að halda hérlendis. Hér búa einungis 304 þúsund manns og ef íbúunum fjölgar um 1% á ári, eins og árið 2004, verðum við orðin 320 þúsund eftir fimm ár. Á Húsavik er ekkert atvinnuleysi og þar vinna margir útlendingar vegna þess að innfæddir Húsvíkingar hafa flutt í burtu og búa nú til dæmis í Reykjavík, þar sem þeir hafa keypt húsnæði og öll þjónusta er mun betri en á Húsavík. Það er mjög hæpið að þeir færu að taka sig upp með allt sitt hafurtask, selja húsnæðið, segja upp vel launaðri vinnu og flytja aftur til Húsavíkur til að vinna í álveri, bæði hjónin. Það þarf mörg hundruð manns til að halda álveri gangandi. Ekki dytti Dalvíkingum í hug í einhverri alvöru að reisa hjá sér álver eða svipuð kompaní. Þeir hafa þar til dæmis Sæplast og fullkomið frystihús, sem greiðir góð laun, er með góðan aðbúnað og með marga Íslendinga í vinnu. Á Húsavík hafa menn til dæmis tekjur af hvalaskoðun og enginn veit hversu miklu meiri tekjur okkar af ferðamönnum yrðu ef við veiddum enga hvali, því þessar veiðar okkar eru mjög óvinsælar um allan heim. Hvers vegna þá að taka þessa áhættu með veiðunum þegar ávinningurinn er enginn og menn hlæja að þessari heimsku, sem jafnvel sjálfur fríherrann Munchhausen hefði verið stoltur af?! Hversu mikil eru ruðningsáhrif heimskunnar?
Hingað munu koma erlendir ferðamenn, hvort sem við viljum það eða ekki. Við getum ekki bannað þeim það. Við höfum gert alþjóðlega samninga um heimsviðskipti og slíkt gengi ekki. Þá myndu aðrar þjóðir geta bannað okkur að ferðast til sín og hætta að kaupa af okkur fisk. Við gætum hins vegar sett einhvers konar aðgangskvóta á erlenda ferðamenn hér til að vernda náttúruauðlindir okkar, svipað og við höfum sett kvóta á aðgang að sjávarauðlindum okkar. Ferðamenn yrðu þannig að greiða tiltölulega hátt gjald til að sjá til dæmis Gullfoss og Geysi. Sumir væru tilbúnir að greiða slíkt gjald en aðrir ekki. Einnig gætu til dæmis rútubílstjórar innheimt sérstakt gjald af sínum farþegum fyrir að keyra þá að Dettifossi. Ef einhverjum finnst slíkt fáránleg hugmynd má benda þeim á að ef 1% Kínverja kæmi hingað til Bing Dao, Snjóeyjunnar sem þeir kalla svo, yrðu það 13 milljónir manna á ári. Ef eitt prómill þeirra kæmi hingað árlega væru það 1,3 milljónir manna og velmegun vex nú gríðarlega ört í Kína og mörgum öðrum löndum í heiminum. Og ferðamennska vex einnig geysilega ört á hverju ári um veröld alla, þrátt fyrir hörmungar og stríð í ákveðnum heimshlutum. Út vil ek.
Erlendir ferðamenn eru farnir að koma hingað í stórum stíl allt árið. Þeir fá sín frí allan ársins hring, þegar vetur er hér, er sumar á suðurhveli jarðar og víða í Asíu er regntími en ekki vetur. Ferðamennirnir vilja til dæmis sjá norðurljósin hér á vetrin, þannig að þau eru nú þegar margseld, sjá snjó, fara á skíði og snjóbretti, keyra upp á jökla og skemmta sér í Reykjavík. Og á sumrin vilja þeir sjá hér til dæmis hvali, miðnætursólina, ganga á fjöll, sigla á flúðum, spila golf, njóta næturkyrrðarinnar og fuglasöngsins, óspilltrar náttúru. Raforkuver, stóriðjur og raflínur út um allar þorpagrundir er ekki óspillt náttúra. Haldi einhver slíkt er það misskilningur. Fyrir nokkrum áratugum voru grafnir djúpir skurðir um landið þvert og endilangt en nú er verið að fylla upp í þá aftur. Slíkt er að sjálfsögðu einnig hægt að gera í Hafnarfirði, ef mönnum sýnist svo, en norður í Svarfaðardal voru slíkir menn kallaðir Bakkabræður og fór mörgum sögum af þeim.
Erlendir ferðamenn hér voru um 400 þúsund talsins í fyrra og gjaldeyristekjur af þeim voru þá samkvæmt Seðlabanka Íslands um 47 milljarðar króna, um 155 þúsund krónur á hvern einasta Íslending, þar sem við erum nú 304 þúsund talsins, eða sjö milljörðum, 18%, meira en árið áður. Ferðamenn eyða hér um 100 þúsund krónum hver og einn að meðaltali, samkvæmt Ferðamálastofu, og um 20% fleiri ferðamenn komu til landsins fyrstu tvo mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Haldi ferðamönnum áfram að fjölga hér með sama hraða verða þeir orðnir ein milljón talsins eftir fimm ár, árið 2012. Þá yrðu tekjur af þeim orðnar um 100 milljarðar króna á ári, um 300 þúsund krónur á hvern Íslending, helmingi meiri en nú, fjölgi okkur Íslendingum um 1% á ári, eins og árið 2004, en þá verðum við orðnir um 320 þúsund eftir fimm ár. Afleidd störf í ferðaþjónustu eru að sjálfsögðu fjölmörg. Margir vinna til dæmis við leiðsögu, leigubíla- og rútuakstur, sölu á veitingahúsum, börum, skemmtistöðum, í bókabúðum og ullarverslunum. Samkvæmt launakönnun VR í fyrra voru til dæmis meðallaun í gestamóttöku um 200 þúsund krónur á mánuði, starfsfólks hótela, veitingahúsa og ferðaskrifstofa um 260 þúsund krónur, í samgöngum á sjó og landi og í flutningaþjónustu 280 þúsund krónur og í flugsamgöngum um 300 þúsund krónur á mánuði.
Steini Briem (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 12:12
Ég held nú að Steini verði að setja upp eigin blog síðu þetta er full langt komment að mínu mati og plís kallaðu EKKI konur dráttarvélar, alvega sama af hvaða þjóðerni sem þær eru það er LJÓTT
Ásdís Sigurðardóttir, 22.3.2007 kl. 13:24
Fagra Ísland, Framtíðarlandið og hvað þau öll heita þessi nýju samtök sýnast léttvæg. Fyrr gengi ég í MFÍK.
Gústaf Níelsson (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 14:19
Litið verður til danskra laga þegar kemur að því að heimta skatt af vændi. Með lagabreytingum sem gerðar voru á þingi um helgina varð löglegt að stunda vændi. Því er nauðsynlegt að greiða skatt af slíkri starfsemi. Steinþór Haraldsson, yfirlögfræðingur hjá Ríkisskattstjóra, segir að í Danmörku sé virðisauki af tekjum fólks í vændi um 24 prósent og líklegt að sama stefna verði tekin hér þó enn liggi það ekki ljóst fyrir.
Steinþór bendir á að margt í þessu máli geti verið flókið og bendir á nýlegan danskan dóm þar sem vændiskona fékk hluta af kostnaði við brjóstastækkun endurgreiddan þar sem sýnt þótti að það félli undir rekstrarkostnað.
Steini Briem (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 14:30
Ég er ekki sammála að þetta séu mikklir öfgar hjá þessum samtökum og mér sýnist líka Bjarni vera efins, fyrst segir hann:
"Bæði eru öfgarnir slíkir og þá ekki síður vinnubrögðin. Sorglegt að sjá fólk eins og frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta setja nafn sitt hér við."
En síðan þetta um sáttmálann:
"Þetta er að vísu frekar meiningarlaust og veikt"
Eitthvað bogið við þetta.
Eysteinn Ingólfsson, 22.3.2007 kl. 15:28
Heitir hinn óskráði ekki Steini Breim
Leifur Þorsteinsson, 22.3.2007 kl. 15:40
það er ekkert bogið við það að stefnuyfirlýsingin sjálf er veik, meiningarlaus og ófullkomin en túlkunin á henni í meðfylgjandi greinargerð öfgafull og á köflum vitlaus...
Bjarni Harðarson, 22.3.2007 kl. 15:51
Öfgar er kvenkynsorð í fleirtölu og því er rétt að tala um miklar öfgar. Rétt málfræði er mikilvæg.
Ingunn Snædal (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 17:00
Ég er innilega sammála þér Bjarni, fólk er orðið veruleikafyrt á þessu græna tali og öfgum sem því fylgja.þessi framganga hjálpar ekki Íslendingum ekki einu sinni 101.
Björn Emil Traustason, 22.3.2007 kl. 17:58
A þýðir atlotin þín,
B að í bölvun skín,
D fölsk ert og fáráð,
F-ið smá og forsmáð,
I-ið bara iss og piss,
S-ið þó ekkert diss,
VG-ið fögur fyrirheit,
heit ertu, ung og feit,
S-ið og VG-ið vildi fá,
ef velja þrjá stafi má.
Steini Briem (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 19:24
Andri Snær er strax kominn með forsetasvipinn (reyndar er hann andskoti líkur Jóni forseta) og græningjarnir Ómar og félagar horfa til hans með lotningu (eða er hann líkur Hitler?). Ég verð að viðurkenna að ég fæ hroll og er skíthræddur við svona sjarmöra með hrokafullan einræðissvip. En það er gaman að vera tilbeðinn af lýðnum ...
Ríkarður (Dufi) (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 10:04
Flottur pistill Bjarni og flott er myndinn
Agnes Ásta, 23.3.2007 kl. 10:16
Ég spái því að þetta undirskriftaplagg verði notað í óheiðarlegum tilgangi. Þ.e. að alverndunarsinnar veifi því málstað sínum til stuðnings. Og pólitískir vindhanar eins og Samfó og steinrunnu tröllin í VG túlki þetta sem stuðning við flokka sína. Ekki ætla ég að skrifa undir þetta.
Og það er dapurlegt hvernig Vigdís Finnbogadóttir lætur nota sig í dægurþrasinu. Úr því við þurfum endilega að hafa þetta embætti, sem mikill meirihluti þjóðarinnar telur að eigi ekki að vera pólitískt, þá finnst mér að skyldur fyrv. forseta eigi að vera í samræmi við réttindi þeirra. Ef Vigdís er tilbúin til þess að afsala sér réttindum sínum sem fyrv. forseti Íslands, þá er henni frjálst að haga sér eins og hún vill, en á meðan hún þyggur réttindin þá ber henni að sýna þeim hluta þjóðarinnar sem er ósammála henni þá virðingu að láta ekki nota "lógóið" sitt í pólitísku argaþrasi.
P.s. Þú þarft eitthvað að létta á síðunni þinni Bjarni, varla komandi orðið á hana því hún er svo þung. Gæti verið að fjöldi mynda af bloggvinum þínum sé að þyngja hana.
Gunnar Th. Gunnarsson, 23.3.2007 kl. 11:14
Hmm. Kampholts-Móri að terrorísera á Síðu .
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 12:35
Gamall íslenskukennari skrifar:
Bjarni minn. Öfgar eru kvenkyns. Sjá upphaf greinar um Framtíðarlandið
Sigurborg Hilmarsdóttir (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 14:53
takk fyrir þetta sigurborg
Bjarni Harðarson, 23.3.2007 kl. 18:10
Heill og sæll Bjarni
Vil skjóta inn athugasemd fyrst að þetta er nú að verða Laugvetnskur (er þetta ekki rétt skrifað:) spjallvefur. Þú ert ferskur og skemmtilegur í baráttunni. Finnst þó að þú farir stundum yfir strikið í dómhörku. Framsóknarflokkurinn er auðvitað að þreifa sig áfram í því hvernig hann geti náð í atkvæði. Finnst þó hart að sjá gamlan Maóista (eða Trotskýista) frá Laugarvatni, leita í smiðju til McCarthy og sjá vofur kommúnisma í hverju horni. Þar að auki líkt og hinn bandaríski kommaveiðari þá tvinnar þú umræðuna þeirri afstöðu að áhersla á vísindi, réttlæti og upplýsta umræðu sé afskaplega varhugaverð. Við gætum sameinast um að stofna grýlusafn en ekki draugasafn, sem fjallaði um þennan málaflokk. Þar væru ýmis skjöl og munir sem tengdust kommagrýlunni. Til dæmis hvernig var komið í veg fyrir sölu á verkum Laxness í US. Fannst ég verða að stoppa þig af áður en þú lýsir yfir formlegri inngöngu í herdeild Björns Bjarnasonar.
Gangi þér vel
Gunnlaugur B Ólafsson, 24.3.2007 kl. 14:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.