Eldri færslur
- Maí 2014
- Mars 2014
- Október 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Heimskan í góðærinu
22.4.2007 | 19:20
Og án þess að eftir væri tekið komu 12 þúsund ný störf og miklu fleiri. Þenslan, góðærið og hagvöxturinn hefur verið langt fram úr öllum vonum í stjórnartíð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks síðastliðin 12 ár. Og hvað með það, segir þjóðin.
Doðinn gagnast íhaldinu...
Það þarf nefnilega sterk bein til að þola góða daga og óumflýjanlegur fylgifiskur hóglífisins er heimskan. Og samt ekki venjuleg heimska þess sem heimalinn er heldur meðvitundarleysi og firring þess sem alla daga hefur fullar hendur fjár. Engum þykir þá til um þau gæði sem fengin eru hvort sem það er nægilegt atvinnuframboð eða aukinn kaupmáttur. Afleiðingin er pólitískur doði.
Það eru nokkur misseri síðan ég heyrði á tal nokkurra ungmenna um pólitík. Flest í þeim hópi voru undrandi á jafnöldrum sem væru úr hófi pólitísk. Sjálf töldu þau sig ekki vera það og þegar ég truflaði samræðurnar og spurði hvað þau kysu þá í sínu hlutleysi kom svarið blátt áfram. Sjálfstæðisflokkinn. Það er furðu ríkjandi og nær raunar langt út fyrir okkar íslenska veruleika að það að kjósa stærsta flokkinn jafnist á við hlutleysi. Með því að styðja hinn ráðandi stóra flokk er bátnum ekki ruggað. Með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn leggur hinn hlutlausi, óvirki og hugsunarlausi kjósandi blessan sína yfir ríkjandi ástand og gefst valdinu í hlýðni.
Það þarf því engan að undra að í gegndarlausum hagvexti og góðæri undanfarinna ára fitni íhaldið og jaðri nú við að vera meirihlutaflokkur á öllu Suðvesturhorni landsins þar sem mangið og gullslátturinn er mestur.
...en firringin kommunum
En góðærið kallar líka á firringu og andóf sem stríðir gegn heilbrigðri skynsemi og heilbrigðri sjálfsbjargarviðleitni. Góðæri hefur alltaf kallað á slíkan æringjahátt. Í firringunni er að finna fylgisaukningu Vinstri grænna sem boða þjóðinni fjallagrasapólitík þar sem aðeins skal eytt og einskis aflað. Aðeins gerðar kröfur á aðra en enginn skyldi gera neinar á sig sjálfan. Samfylkingin fylgir VG fast á eftir með kröfum sínum um ótakmarkaða samneyslu og stopp-áróður gagnvart atvinnuvegunum.
Það er raunar ekkert nýtt við það að skynsemin lúti í lægra haldi á fjáraflatímum. Þenslan elur á vitleysu en í hennar skjóli vill líka margt verða útundan. Framsóknarflokkurinn hefur eftir mætti reynt að halda hlífiskildi yfir byggðum sem standa höllum fæti og yfir þjóðfélagshópum sem staðið hafa höllum fæti þrátt fyrir að samstarfsflokkurinn hafi þar á köflum viljað heyja stríð. Þar þarf að gera betur og mörg verkefni óleyst. Þessum vandamálum verða ekki gerð betri skil í nýrri Viðeyjarskottu Íhalds og Samfylkingar þar sem saman fer blind markaðstrú og ómannlegur blýantskratinn.
Skynsemin er í Framsókn
Sjálfum hefur mér oft þótt minn Framsóknarflokkur dulítið hallærislegur. Hvorki eins töff og frjálshyggjugaurarnir eða vígmóðir kommar. En einmitt þessi jarðbundnu hallærislegheit eru mælikvarðinn á að flokkur þessi er afl skynseminnar,- líkt og í lífsins dansi að það hallærislega iðulega skynsamlegast.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Tenglar
- X-J 2013 Regnboginn.is
- Jón fóstri
- Guðmundur djákni
- Tilveran í ESB
- Netbókabúð bókakaffisins
- Bloggsíða villikatta
- Bókablogg Sunnlenska bókakaffisins
- Heimssýn, - Ísland EKKI í ESB
- Egill Bjarnason ferðalangur
- Atli
- Harpa
- Vinstri vaktin gegn ESB
- AMX hægri fréttir
- Laugarás í Biskupstungum á fésbókinni Hér má finna gamla og nýja íbúa Laugaráss í Biskupstungum
- Smugan vinstri snú!
- Anna Björnsson
Bloggvinir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Ágústa
- Ævar Rafn Kjartansson
- Agnar Bragi
- Agnes Ásta
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Helga R. Einarsdóttir
- Á móti sól
- Andrés Magnússon
- Andrés.si
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Hólm Ármannsson
- Árni Matthíasson
- Árni Þór Sigurðsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Ása Björg
- Ívar Pálsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Rúnar Halldórsson
- Auður Eva Auðunsdóttir
- Egill Bjarnason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Margrét Annie Guðbergsdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Björn Emil Traustason
- Birkir Jón Jónsson
- Hommalega Kvennagullið
- Birna G
- Guðrún Olga Clausen
- Bjargandi Íslandi
- Björn Jóhann Björnsson
- Bleika Eldingin
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Guðmundur Bogason
- Bogi Jónsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Bwahahaha...
- Brjánn Guðjónsson
- Baldur Már Róbertsson
- SVB
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja Hjaltadóttir
- Bergþór Skúlason
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- busblog.is
- Charles Robert Onken
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Diesel
- Dofri Hermannsson
- Adolf Dreitill Dropason
- Anna S. Árnadóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Ágúst Dalkvist
- GK
- Bjarni Kjartansson
- Dunni
- Óskar Ingi Böðvarsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Gomez
- Einar Freyr Magnússon
- Einar Sigurbergur Arason
- Eiður Ragnarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Zóphonías
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Árnason
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Fannar frá Rifi
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Femínistinn
- Stefán Þórsson
- Jakob
- FLÓTTAMAÐURINN
- Gísli Foster Hjartarson
- Ritstjóri
- FreedomFries
- Friðjón R. Friðjónsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Björgvinsson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- FUF í Reykjavík
- Hlynur Sigurðsson
- Dóra litla
- Baldur Fjölnisson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gestur Halldórsson
- Gestur Guðjónsson
- Gísli Hjálmar
- Einar Ben Þorsteinsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Skákfélagið Goðinn
- Ingólfur H Þorleifsson
- Stafnhús ehf
- Götusmiðjan
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Ómarsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Magnússon
- gudni.is
- Guðrún Fanney Einarsdóttir
- Guðrún
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gulli litli
- Gunnlaugur Stefánsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Jón Erlendsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Gylfi Guðmundsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- halkatla
- Halldór Baldursson
- Hallur Magnússon
- Haukur Már Helgason
- Jóhann Ágúst Hansen
- haraldurhar
- Haraldur Haraldsson
- Héðinn Björnsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Reyr Ágústsson
- Heiða Þórðar
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Heiðar Sigurðsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Helgi Már Bjarnason
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Kristín Einarsdóttir
- Eiríkur Harðarson
- Heiðar Lind Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Helgi Sigurður Haraldsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hlynur Hallsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- HP Foss
- Krummi
- Hrannar Björn Arnarsson
- hreinsamviska
- Fulltrúi fólksins
- Hrólfur Guðmundsson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Hvíti Riddarinn
- Icelandic fire sale
- íd
- Ingimundur Kjarval
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
- Sævar Einarsson
- Elísa Arnarsdóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Svanur Jóhannesson
- Einar Vignir Einarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Sigurjónsson
- Jens Guð
- Jóhann G. Frímann
- jósep sigurðsson
- Jóhann Steinar Guðmundsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jón Finnbogason
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Jón Magnússon
- Jóhann Jóhannsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Valsson
- Bergur Thorberg
- Karl V. Matthíasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Vídó
- Kristján Jónsson
- Guðjón H Finnbogason
- Kolbeinn Karl Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Stjórnmál
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kolbrún Hilmars
- Karl Tómasson
- Kolbrún Ólafsdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Landvernd
- Lára Stefánsdóttir
- Heimir Eyvindarson
- Laufey Ólafsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Jónas Jónasson
- Pálmi Guðmundsson
- Gylfi Norðdahl
- Loopman
- Guðný Lára
- Guðjón Baldursson
- Edda Jóhannsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Magnús Jónsson
- Magnús Vignir Árnason
- Mál 214
- Alfreð Símonarson
- Máni Ragnar Svansson
- Björn Benedikt Guðnason
- Guðmundur Margeir Skúlason
- Steinar Immanúel Sörensson
- Gísli Tryggvason
- Níels Bjarki Finsen
- Jón Svavarsson
- Ólafur Björnsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Nordal
- Hundshausinn
- Guðmundur Örn Jónsson
- Óttar Felix Hauksson
- Páll Geir Bjarnason
- Páll Vilhjálmsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- percy B. Stefánsson
- perla voff voff
- Perla
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jóhann Birgir Þorsteinsson
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar L Benediktsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Rúnar Birgisson
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- ragnar bergsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Víðir Benediktsson
- Salmann Tamimi
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurjón Valgeir Hafsteinsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Gunnar Þór Ólafsson
- Egill Helgason
- Sigurður Jónsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Jóhann Waage
- Auðun Gíslason
- Óskar Þorkelsson
- Karl Hreiðarsson
- Halldór Sigurðsson
- Brynja skordal
- Hreiðar Eiríksson
- Hannes Friðriksson
- hilmar jónsson
- Snorri Hansson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Bogi Sveinsson
- Stefán Þór Helgason
- Stefanía
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- Þorsteinn Briem
- Steinn Hafliðason
- Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
- Samband ungra framsóknarmanna
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svanur Kári Daníelsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Sveinbjörn Eyjólfsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Sigursveinn
- Helgi Guðmundsson
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórir Kjartansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Tíðarandinn.is
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gísli Kristjánsson
- Þorleifur Ágústsson
- TómasHa
- Tómas Þóroddsson
- Reynir Hugason
- Trúnó
- Halldór Egill Guðnason
- Gaukur Úlfarsson
- Unnar Geir Þorsteinsson
- Ferðaþjónustan Úthlíð
- Vilhjálmur Árnason
- P.Valdimar Guðjónsson
- Valdimar Sigurjónsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Valsarinn
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vestfirðir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Guðfríður Lilja
- Gylfi Björgvinsson
- Vilhjálmur Árnason
- Sigurlaug B. Gröndal
- Aðalsteinn Bjarnason
- Aðalsteinn Júlíusson
- Andrés Kristjánsson
- Anna Einarsdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Arnþór Helgason
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Árelíus Örn Þórðarson
- Árni Haraldsson
- Árni Þór Björnsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Hafberg S.
- Barði Bárðarson
- Benóný Jónsson Oddaverji
- Bergur Sigurðsson
- Bergþóra Sigurbjörnsdóttir
- Birgir R.
- Birna G. Konráðsdóttir
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Jónsson
- BookIceland
- Braskarinn
- Carl Jóhann Granz
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Einarsdóttir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- ESB og almannahagur
- Eva G. S.
- Eygló Sara
- Eyþór Örn Óskarsson
- Friðrik Kjartansson
- Garún
- Gestur Janus Ragnarsson
- Gissur Þórður Jóhannesson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson
- Grétar Mar Jónsson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Markúsdóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Heiðarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Gústaf Níelsson
- Gylfi Gylfason
- Hafþór Baldvinsson
- Halla Rut
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Jónsson
- Haraldur Hansson
- Haukur Baukur
- Haukur Nikulásson
- Heimir Ólafsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjalti Tómasson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Hörður B Hjartarson
- Hörður Stefánsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Ingimundur Bergmann
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jóhann Pétur
- Jónatan Karlsson
- Jón Á Grétarsson
- Jón Árni Bragason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Bjarnason
- Jón Daníelsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Lárusson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Katrín
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kári Harðarson
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Kristinn Arnar Guðjónsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Magnús Jónasson
- Magnús Kristjánsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Már Wolfgang Mixa
- MIS
- Offari
- Ólafur Björnsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Bjarki Smárason
- Óskar Steinn Gestsson
- Paul Joseph Frigge
- Páll Helgi Hannesson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Raggi
- Ragnar G
- Ragnar Gunnlaugsson
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Reynir Jóhannesson
- Samstaða þjóðar
- Samtök Fullveldissinna
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- S. Einar Sigurðsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigrún Óskars
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Sigurjón Norberg Kjærnested
- Skuldlaus
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólrún Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Steini Palli
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Sveinn Björnsson
- Sædís Hafsteinsdóttir
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trausti Jónsson
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Urður bókafélag
- Vaktin
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Skagfjörð
- Varmársamtökin
- Vésteinn Valgarðsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vinstrivaktin gegn ESB
- ÞJÓÐARSÁLIN
- Þorri Almennings Forni Loftski
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þórarinn Lárusson
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Bragason
- Þórhallur Heimisson
- Þórhallur Heimisson
- Þráinn Jökull Elísson
Athugasemdir
Já Bjarni, margur verður af aurum api
Helga Auðunsdóttir, 22.4.2007 kl. 19:39
Hvur andskotinn, nú hefurðu aftur sett einhvern fjandann útí kaffið Bjarni......Skynsemi hvað....Já það er hallærislegt að svíkja flest kosningaloforðin kosningar eftir kosningar og Framsókn er miklu meira en "dulítið hallærislegur" flokkur fyrir vikið.....
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.4.2007 kl. 21:06
Góð grein hjá þér hérna Bjarni, en ég er að velta því fyrir mér hvar þú fékkst myndina af mér nívöknuðum eftir áramótafylliríið síðasta ?Kveðja frá íhaldinu í Reykjavík
Magnús Jónsson, 22.4.2007 kl. 21:56
Ég vona að engin ættingi minn lesi þetta. Amma mín heitinn var í veislu fyirr nokkrum áratugum ásamt öðrum ættingjum. Í veislunni var lögrfræðingur nokkur sem ömmu minni leist afar vel á, hún mændi nánast á hann allt kvöldið og dáðist af mælsku hans en sneri sér svo allt í einu að einum syni sínum og sagði nánast í ásökunartón; "Óskar, af hverju ert þú ekki lögfræðingur?". Spurning mín er hinsvegar þessi: "Bjarni, af hverju ertu ekki formaður Framsóknarflokksins".
Benedikt Halldórsson, 22.4.2007 kl. 22:27
Íhaldsfleytan fiskar vel,
Framsókn hlýtur straffið.
En Bjarni Harðar ber sig vel
og bætir víni í kaffið.
Árni Gunnarsson, 22.4.2007 kl. 22:34
Snilldar vísa Árni
Magnús Vignir Árnason, 22.4.2007 kl. 22:37
Kjósendur eru fífl! Er það það sem þú ert að reyna að segja okkur? Það þarf ekki mikla útsjónarsemi til skilja þennan pistil þinn þannig. Kannski þú ættir að sleppa kaffinu!
Auðun Gíslason, 22.4.2007 kl. 22:55
Bjarni minn skynsemina er líka að finna hjá okkur Frjálslyndum.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 23.4.2007 kl. 01:05
Ég tek undir með Benedikt, af hverju ert þú ekki formaður framsóknar? Þú hefur sjarmann til að "fiska vel"
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 23.4.2007 kl. 05:19
Ég deili þeirri skoðun með þér Bjarni að oft eru hallærislegheitin hinn skynsamlegasti kostur, tek t.d. klárlega kjötbollur fram yfir kavíar standi ég frammi fyrir slíku vali. Málið er bara að framsóknarflokkurinn hefur í mörg ár keppst við að afneita hallærislegheitunum og hangið utan í valdamestu klíkunni. Í stað jarðbundinna manna í lopapeysum eru komnir litgreindir ungliðar á Hummer jeppum. Minnir um margt á amerískar unglingamyndir þar sem einn úr nördahópnum fer í litun og klippingu og fær inngöngu í flottustu klíkuna, afneitar sínum gömlu gildum og gerir meira gagn en ógagn þegar allt er talið. Í Hollywood hamingjusömu endanna fer það þó iðulega svo að nördinn snýr aftur til uppruna síns og allir verða glaðir. Ég sé því miður engin merki um að það verði raunin með framsókn.
Heimir Eyvindarson, 23.4.2007 kl. 08:36
Ég held að vinsældir sjallanna séu svona svipaðar og þegar nýtt lið nær titlinum í enska boltanum, þá er alltaf einhver hóður sem segist halda með þeim, einfaldlega af því að þeir eru bestir, og þegar annað lið nær þeim titli þá er skipt um uppáhald.
Margir kjósa Sálfstæðið af því að það er stærsti flokkurinn og ekki af neinni annari ástæðu, þessvegna vildu vinstri menn, með stofnun samfylkingarinnar sameina alla sem á vinstri vægnum voru, til að eiga möguleika á því óvissu fylgi.
Ég hef reynt að fá marga félaga mína og vini til að segja mé, hversvegna X-D og fátt hefur verið um svör, því miður. Ég gæti ekki í sjálfu sér fundið að því við neinn ef að hann gæti sagt mér afhverju......
En hvað um það
Ég er allavega Nörd.............
Eiður Ragnarsson, 23.4.2007 kl. 09:26
Framsókn lofaði nú fleiru en 12000 störfum t.d. barnakortinu fræga. Hvað varð um það? Sniðugt að tengja skynsemi og framsókn ég fór strax að hugsa um trabant.
hildur (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 09:56
Framsókn lofaði nú fleiru en 12000 störfum t.d. barnakortinu fræga. Hvað varð um það? Sniðugt að tengja skynsemi og framsókn ég fór strax að hugsa um trabant.
hildur (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 09:57
Fín grein Bjarni, sammála að margt skynsamlegt megi finna í hallærislegheitum Framsóknar.
Það er nánast öruggt að ég kysi Framsókn og væri framsóknarmaður ef ekki væri fyrir landbúnaðarstefnu flokksins, sem Jón Baldvin lýsti svo ágætlega í Silfri Egils og heimfærði réttilega uppá Vinstri Græna. Það er ekki hægt að binda okkur Íslendina lengur á þessa landbúnaðarpólitík og um leið og Framsókn fattar það þá fær flokkurinn 25% fylgi.
Nú vantar komment til að sannfæra mig um að mér sé óhætt að kjósa Framsókn, þrátt fyrir landbúnaðarmálin.
Baráttukveðjur
Ólafur H. Guðgeirsson
Ólafur H. Guðgeirsson (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 11:09
Ef Guðni myndi "lofa" að taka ekki þetta ráðuneyti að sér oftar? Myndi það eitthvað duga? Eða bara hætta að horfa á "Silfrið" og Jón B.?
Helga R. Einarsdóttir, 23.4.2007 kl. 13:40
Ég varð fyrir töluverðum vonbrigðum að lesa þetta hjá þér, bjóst við betra af þér en að þú tækir þátt í áróðrinum um að VG sé alltaf á móti, vilji bara eyða en ekki afla. Þegar skoðaðar eru stefnuskrár flokksins sést að það er hreint ekki rétt. Margar tillögur þar að ýmsu í stað álvera, hvað ýmsir aðrir kjósa að ignorera með látum.
Við viljum bara ekki setja öll eggin í sömu állituðu körfuna. Ekki er ég aðdáandi Microsoft en þúsund sinnum frekar vildi ég fá hingað netþjóna þeirra (eða þá Google, eins og vinur minn sem er í framboði í Reykjavík suður er með á sinni stefnuskrá) heldur en að hrúga niður einu álskrímslinu í viðbót. (eða voru það tvö? þrjú?)
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 23.4.2007 kl. 14:14
þú ert glögg hildur að fatta að þetta slagorð okkar, skynsemin ræður er arfur sem ég hlaut frá trapantárum mínum en ég átti tvo slíka eðalvagna á mínum ungdómsárum og líkaði vel. varðandi landbúnaðarstefnuna ólafur: undir forystu framsóknarflokksins hafa verið unnin stórvirki í þá veru að lækka tolla, minnka beinan stuðning við greinina og auka hagkvæmni. þetta hefur skilað því að við erum nú komin með verðlag sem er svipað noregi og nálægt danmörku. þetta er ekkert sem hægt er að gera í einu vetfangi og ekki vilji til þess hvorki í okkar góða flokki né með þjóðinni en ég er sannfærður um að með skynsemina að vopni takist að auka hagræðingu í þessari grein enn meira... já og hildigunnur, kæra vinkona, það eru að koma kosningar og auðvitað gagnrýna flokkarnir hvorn annan. og ekki viljum við setja ekki öll egg í sömu álkörfuna...
Bjarni Harðarson, 23.4.2007 kl. 19:15
eitt er að ljúga upp á flokka og annað að krítísera það sem verið er að gera en maður er ósammála.
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 24.4.2007 kl. 12:31
Hildigunnur!
Gott þetta hjá að opna umræðun aum að ljúga upp á flokka. Ég get bæstum fullyrt að það hefur ekki verið logið eins miklu neikvæðu upp á einn stjórnmálaflokk eins og logið hefur verið upp á Framsókn.
Hallur Magnússon, 24.4.2007 kl. 13:11
Sæll Bjarni minn. Mikið hefði framsókn nú verið nær að halda hlífiskildi yfir öðru en íhaldinu síðustu kjörtímabil t.d. almenningi í Darfur og víðar þó þar sé kannske ekki jafnmikil auðæfi að finna og í Írak. Merkilegt hvað þið hafið látið teyma ykkur langt í viðleitni íhaldsins að útrýma ykkur. Ert þú ekki annars í sama flokki og þeim framsóknarflokki sem hefur verið hækja íhaldsins síðustu árin
Þórbergur Torfason (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 17:47
Þetta er góð spurning Þórbergur. Bjarni er kannski skráður í framsóknarflokkinn, en í mínum huga tilheyrir hann alls ekki flokknum. Til þess er allt of mikið í hann spunnið
Heimir Eyvindarson, 24.4.2007 kl. 18:25
Ólafur H. Guðgerisson
ég skrifa þetta til þín af því að ég vona að þú kjósir rétt. Einnig til annara sem skilja ekki landbúnað.
Ég held að fólk sem tali illa um landbúnaðinn einfaldlega skilji hann ekki og mest allur fréttaflutningur um hann er tóm tjara. Til dæmis var sagt í Silfrinu að það færu 16 milljarðar á ári í landbúnaðinn, sem er alls ekki rétt, það fer miklu minna. Inní þeirri tölu er líka greiðslur til Hólaskóla og skólans á Hvanneyri, sem eru skólar á háskólastigi og mundi þeim væntanlega verið haldið áfram hvort sem landbúnaður er styrktur eða ekki. Held líka að greiðslur til Landgræðslunnar og Skógræktarinnar sé líka í þessari tölu. Landbúnaðarstefnar snýst ekki bara um landbúnað heldur einnig um byggðarstefnu. Hvar væri svæðið milli Þjórsár og Hafnar í Hornafirði ef ekki væri Landbúnaður? Þar er enginn höfn. Greiðslur sem fara til niðurgreiðslur á verði til neytenda (beingreiðslur til bænda, mjólk og lambakjöt) skíla sér margfalt til baka til þjóðarinnar í formi skatttekna og stuðlar að byggð um landið.
Fólk sem er fúlt útaf háu matvælaverði, ég skil það vel. En það er ekki landbúnaðarstefnunni að kenna. Heldur fákeppni á markaði. Haldið þið virkilega að matvælaverð muni lækka ef tollar yrðu afmundir? Ekki eru lyfín ódýr, eða fötin? ekki eru tollkvótar á þeim! Er ekki miklu betra að halda landinu öllu í byggð og skyrkja landbúnaðinn með sjálfbærum hætti heldur en að leyfa stórkaupmönnum að flytja inn hvað sem er og láta okkur borga hvað sem er. Hver segir að kaupmaðurinn flytji inn gott og velætanlegt kjöt og mjólkurafurðir, þegar landbúnaður hefur verið þurrkaður út á Íslandi. Landbúnaður í formi mjólkur og lambakjöts lifir ekki á beingreiðsla. Íslendingar eru heppnir að hafa hreinar og góðar landbúnaðarafurðir, án sjúkdóma og stera, sem notaðir eru víða og eru sumstaðar leyfilegir.
Björgvin (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 00:04
Ólafur H. Guðgerisson
ég skrifa þetta til þín af því að ég vona að þú kjósir rétt. Einnig til annara sem skilja ekki landbúnað.
Ég held að fólk sem tali illa um landbúnaðinn einfaldlega skilji hann ekki og mest allur fréttaflutningur um hann er tóm tjara. Til dæmis var sagt í Silfrinu að það færu 16 milljarðar á ári í landbúnaðinn, sem er alls ekki rétt, það fer miklu minna. Inní þeirri tölu er líka greiðslur til Hólaskóla og skólans á Hvanneyri, sem eru skólar á háskólastigi og mundi þeim væntanlega verið haldið áfram hvort sem landbúnaður er styrktur eða ekki. Held líka að greiðslur til Landgræðslunnar og Skógræktarinnar sé líka í þessari tölu. Landbúnaðarstefnar snýst ekki bara um landbúnað heldur einnig um byggðarstefnu. Hvar væri svæðið milli Þjórsár og Hafnar í Hornafirði ef ekki væri Landbúnaður? Þar er enginn höfn. Greiðslur sem fara til niðurgreiðslur á verði til neytenda (beingreiðslur til bænda, mjólk og lambakjöt) skíla sér margfalt til baka til þjóðarinnar í formi skatttekna og stuðlar að byggð um landið.
Fólk sem er fúlt útaf háu matvælaverði, ég skil það vel. En það er ekki landbúnaðarstefnunni að kenna. Heldur fákeppni á markaði. Haldið þið virkilega að matvælaverð muni lækka ef tollar yrðu afmundir? Ekki eru lyfín ódýr, eða fötin? ekki eru tollkvótar á þeim! Er ekki miklu betra að halda landinu öllu í byggð og skyrkja landbúnaðinn með sjálfbærum hætti heldur en að leyfa stórkaupmönnum að flytja inn hvað sem er og láta okkur borga hvað sem er. Hver segir að kaupmaðurinn flytji inn gott og velætanlegt kjöt og mjólkurafurðir, þegar landbúnaður hefur verið þurrkaður út á Íslandi. Landbúnaður í formi mjólkur og lambakjöts lifir ekki á beingreiðsla. Íslendingar eru heppnir að hafa hreinar og góðar landbúnaðarafurðir, án sjúkdóma og stera, sem notaðir eru víða og eru sumstaðar leyfilegir.
Björgvin (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 00:11
Það má vera að ég skilji ekki landbúnað - er ættaður úr Mýrdalnum af góðu framsóknarheimili og var þar í sveit á hverju sumri þar til ég var orðinn átján ára að mér datt í hug að finna mér aðra sumarvinnu.
Ég skil hins vegar alls ekki þá afstöðu að halda því fram að landbúnaður, kjöt- og mjólkurframleiðsla, geti ekki þryfist án niðurgreiðslna og ríkisstuðnings. Íslenskir bændur framleiða frábæra vöru sem stenst samanburð og samkeppni við hvaða lífrænt ræktuðu vöru sem er. Markaður fyrir vörur sem eru framleiddar með þeim hætti sem íslenskir bændur framleiða sínar vörur er einhver mest spennandi og mest vaxandi markaður á vesturlöndum í dag. Það sem íslenska bændur vantar er frelsi frá ríkisstyrkjum, tollavernd og pólitískum afskiptum svo þeir fari virkilega að beita sér í hagkvæmri framleiðslu og hugmyndaríkri markaðssetningu. Það er svo sem ofnotuð klisja að benda á hvernig fjármálageirinn blómstrar hérlendis eftir að pólitískum afskiptum lauk, en ég hef þá trú að íslenskur landbúnaður muni taka sambærilegann sprett um leið og ríkið sleppir krumlunni af greininni.
Ég á einnig vont með að skilja af hverju framsóknarmenn leggja ofurkapp á að verja handónýta landbúnaðarstefnu meðan flokkurinn hefur allt til að bera til að ná árangri ef menn einbeita sér að styrk flokksins en hætta að velta sér uppúr göllunum. Styrkurinn felst til dæmis í afstöðu flokksins til Evrópumála, styrk, reynslu og persónu Jóns Sigurðssonar og frábæru starfi Jónínu Bjartmarz.
Ég hallast helst að því að kjósa flokkinn því ég vil umfram allt tryggja að hún haldi áfram sem umhverisráðherra. En það dregur vissulega úr að flokksmenn kjósa að berjast harðast fyrir máli sem er tapað í stað þess að berjast fyrir málum sem skila árangri.
Baráttukveðjur
Ólafur H. Guðgeirsson
Ólafur H. Gugeirsson (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 11:47
Það má vera að ég skilji ekki landbúnað - er ættaður úr Mýrdalnum af góðu framsóknarheimili og var þar í sveit á hverju sumri þar til ég var orðinn átján ára að mér datt í hug að finna mér aðra sumarvinnu.
Ég skil hins vegar alls ekki þá afstöðu að halda því fram að landbúnaður, kjöt- og mjólkurframleiðsla, geti ekki þryfist án niðurgreiðslna og ríkisstuðnings. Íslenskir bændur framleiða frábæra vöru sem stenst samanburð og samkeppni við hvaða lífrænt ræktuðu vöru sem er. Markaður fyrir vörur sem eru framleiddar með þeim hætti sem íslenskir bændur framleiða sínar vörur er einhver mest spennandi og mest vaxandi markaður á vesturlöndum í dag. Það sem íslenska bændur vantar er frelsi frá ríkisstyrkjum, tollavernd og pólitískum afskiptum svo þeir fari virkilega að beita sér í hagkvæmri framleiðslu og hugmyndaríkri markaðssetningu. Það er svo sem ofnotuð klisja að benda á hvernig fjármálageirinn blómstrar hérlendis eftir að pólitískum afskiptum lauk, en ég hef þá trú að íslenskur landbúnaður muni taka sambærilegann sprett um leið og ríkið sleppir krumlunni af greininni.
Ég á einnig vont með að skilja af hverju framsóknarmenn leggja ofurkapp á að verja handónýta landbúnaðarstefnu meðan flokkurinn hefur allt til að bera til að ná árangri ef menn einbeita sér að styrk flokksins en hætta að velta sér uppúr göllunum. Styrkurinn felst til dæmis í afstöðu flokksins til Evrópumála, styrk, reynslu og persónu Jóns Sigurðssonar og frábæru starfi Jónínu Bjartmarz.
Ég hallast helst að því að kjósa flokkinn því ég vil umfram allt tryggja að hún haldi áfram sem umhverisráðherra. En það dregur vissulega úr að flokksmenn kjósa að berjast harðast fyrir máli sem er tapað í stað þess að berjast fyrir málum sem skila árangri.
Baráttukveðjur
Ólafur H. Guðgeirsson
Ólafur H. Gugeirsson (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.