Eldri færslur
- Maí 2014
- Mars 2014
- Október 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Að fatta misskilninginn...
28.5.2008 | 09:46
Það var samstaða á Alþingi um það að halda inni í grunnskóla- og leikskólalögum ákvæðum um að kennslan skuli byggja á kristinni menningararfleifð. Það er misskilningur að með þessu sé Alþingi að leggja blessun sýna yfir trúboð í skólum eða ganga gegn trúfrelsi.
Sjálfur er ég trúleysingi og utan allra trúfélaga en barðist samt fyrir því í þinginu að þetta ákvæði héldist inni. Ástæðan er einföld. Með því erum við að leggja lóð á vogarskálar þeirrar hófsemi og umburðarlyndis sem ríkt hefur í trúmálum á Íslandi. Hófsemi sem er dýrmætara en allt því ekkert böl er eins vont og böl trúarofstækisins. Slíkt böl fer nú vaxandi um heim allan, ekki bara í löndum spámannsins í austri heldur ekki síður í guðs eigin landi vestra, Ameríkunni, þar sem þó ríkir lagalega algert hlutleysi í trúmálum.
Það að henda hinni kristnu menningararfleifð og hinu kristna siðgæði út úr skólastarfinu er raunverulega atlaga við þann hófsama og umburðarlynda kristnidóm sem hér hefur ríkt. Á því munu engir græða nema ofsatrúarprestar á borð við vin minn Gunnar í Krossinum.
Þar fyrir utan er okkur mikilvægt að kannast við sjálf okkur, uppruna okkar, sögu og rætur. Það getur enginn skilið vestrænar bókmenntir síðustu 1000 ára nema kunna skil á persónum á borð við Nóa, Lazarus og Golíat kallinum. Meira um þetta í þingræðu hér.
Baráttan gegn kristnidómsfræðslunni er þessvegna misskilin barátta sem mun engum skemmta nema skrattanum og þeim sem mest vilja útmála pínslir helvítis í skelfilegum eldmessum. Það ánægjulega er að þingmenn Vinstri grænna sem margir hverjir eru líkt og ég efasemdarmenn í trúmálum hafa fattað þennan misskilning. Fyrir það tek ég ofan fyrir þeim þó ég skilji vel að róttækir ungir sósíalistar og talsmenn trúleysis vilji sumir annan veg...
Ung VG lýsa yfir óánægju með þingmenn VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:49 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Tenglar
- X-J 2013 Regnboginn.is
- Jón fóstri
- Guðmundur djákni
- Tilveran í ESB
- Netbókabúð bókakaffisins
- Bloggsíða villikatta
- Bókablogg Sunnlenska bókakaffisins
- Heimssýn, - Ísland EKKI í ESB
- Egill Bjarnason ferðalangur
- Atli
- Harpa
- Vinstri vaktin gegn ESB
- AMX hægri fréttir
- Laugarás í Biskupstungum á fésbókinni Hér má finna gamla og nýja íbúa Laugaráss í Biskupstungum
- Smugan vinstri snú!
- Anna Björnsson
Bloggvinir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Ágústa
- Ævar Rafn Kjartansson
- Agnar Bragi
- Agnes Ásta
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Helga R. Einarsdóttir
- Á móti sól
- Andrés Magnússon
- Andrés.si
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Hólm Ármannsson
- Árni Matthíasson
- Árni Þór Sigurðsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Ása Björg
- Ívar Pálsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Rúnar Halldórsson
- Auður Eva Auðunsdóttir
- Egill Bjarnason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Margrét Annie Guðbergsdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Björn Emil Traustason
- Birkir Jón Jónsson
- Hommalega Kvennagullið
- Birna G
- Guðrún Olga Clausen
- Bjargandi Íslandi
- Björn Jóhann Björnsson
- Bleika Eldingin
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Guðmundur Bogason
- Bogi Jónsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Bwahahaha...
- Brjánn Guðjónsson
- Baldur Már Róbertsson
- SVB
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja Hjaltadóttir
- Bergþór Skúlason
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- busblog.is
- Charles Robert Onken
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Diesel
- Dofri Hermannsson
- Adolf Dreitill Dropason
- Anna S. Árnadóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Ágúst Dalkvist
- GK
- Bjarni Kjartansson
- Dunni
- Óskar Ingi Böðvarsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Gomez
- Einar Freyr Magnússon
- Einar Sigurbergur Arason
- Eiður Ragnarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Zóphonías
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Árnason
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Fannar frá Rifi
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Femínistinn
- Stefán Þórsson
- Jakob
- FLÓTTAMAÐURINN
- Gísli Foster Hjartarson
- Ritstjóri
- FreedomFries
- Friðjón R. Friðjónsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Björgvinsson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- FUF í Reykjavík
- Hlynur Sigurðsson
- Dóra litla
- Baldur Fjölnisson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gestur Halldórsson
- Gestur Guðjónsson
- Gísli Hjálmar
- Einar Ben Þorsteinsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Skákfélagið Goðinn
- Ingólfur H Þorleifsson
- Stafnhús ehf
- Götusmiðjan
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Ómarsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Magnússon
- gudni.is
- Guðrún Fanney Einarsdóttir
- Guðrún
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gulli litli
- Gunnlaugur Stefánsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Jón Erlendsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Gylfi Guðmundsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- halkatla
- Halldór Baldursson
- Hallur Magnússon
- Haukur Már Helgason
- Jóhann Ágúst Hansen
- haraldurhar
- Haraldur Haraldsson
- Héðinn Björnsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Reyr Ágústsson
- Heiða Þórðar
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Heiðar Sigurðsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Helgi Már Bjarnason
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Kristín Einarsdóttir
- Eiríkur Harðarson
- Heiðar Lind Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Helgi Sigurður Haraldsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hlynur Hallsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- HP Foss
- Krummi
- Hrannar Björn Arnarsson
- hreinsamviska
- Fulltrúi fólksins
- Hrólfur Guðmundsson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Hvíti Riddarinn
- Icelandic fire sale
- íd
- Ingimundur Kjarval
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
- Sævar Einarsson
- Elísa Arnarsdóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Svanur Jóhannesson
- Einar Vignir Einarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Sigurjónsson
- Jens Guð
- Jóhann G. Frímann
- jósep sigurðsson
- Jóhann Steinar Guðmundsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jón Finnbogason
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Jón Magnússon
- Jóhann Jóhannsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Valsson
- Bergur Thorberg
- Karl V. Matthíasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Vídó
- Kristján Jónsson
- Guðjón H Finnbogason
- Kolbeinn Karl Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Stjórnmál
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kolbrún Hilmars
- Karl Tómasson
- Kolbrún Ólafsdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Landvernd
- Lára Stefánsdóttir
- Heimir Eyvindarson
- Laufey Ólafsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Jónas Jónasson
- Pálmi Guðmundsson
- Gylfi Norðdahl
- Loopman
- Guðný Lára
- Guðjón Baldursson
- Edda Jóhannsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Magnús Jónsson
- Magnús Vignir Árnason
- Mál 214
- Alfreð Símonarson
- Máni Ragnar Svansson
- Björn Benedikt Guðnason
- Guðmundur Margeir Skúlason
- Steinar Immanúel Sörensson
- Gísli Tryggvason
- Níels Bjarki Finsen
- Jón Svavarsson
- Ólafur Björnsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Nordal
- Hundshausinn
- Guðmundur Örn Jónsson
- Óttar Felix Hauksson
- Páll Geir Bjarnason
- Páll Vilhjálmsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- percy B. Stefánsson
- perla voff voff
- Perla
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jóhann Birgir Þorsteinsson
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar L Benediktsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Rúnar Birgisson
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- ragnar bergsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Víðir Benediktsson
- Salmann Tamimi
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurjón Valgeir Hafsteinsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Gunnar Þór Ólafsson
- Egill Helgason
- Sigurður Jónsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Jóhann Waage
- Auðun Gíslason
- Óskar Þorkelsson
- Karl Hreiðarsson
- Halldór Sigurðsson
- Brynja skordal
- Hreiðar Eiríksson
- Hannes Friðriksson
- hilmar jónsson
- Snorri Hansson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Bogi Sveinsson
- Stefán Þór Helgason
- Stefanía
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- Þorsteinn Briem
- Steinn Hafliðason
- Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
- Samband ungra framsóknarmanna
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svanur Kári Daníelsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Sveinbjörn Eyjólfsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Sigursveinn
- Helgi Guðmundsson
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórir Kjartansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Tíðarandinn.is
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gísli Kristjánsson
- Þorleifur Ágústsson
- TómasHa
- Tómas Þóroddsson
- Reynir Hugason
- Trúnó
- Halldór Egill Guðnason
- Gaukur Úlfarsson
- Unnar Geir Þorsteinsson
- Ferðaþjónustan Úthlíð
- Vilhjálmur Árnason
- P.Valdimar Guðjónsson
- Valdimar Sigurjónsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Valsarinn
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vestfirðir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Guðfríður Lilja
- Gylfi Björgvinsson
- Vilhjálmur Árnason
- Sigurlaug B. Gröndal
- Aðalsteinn Bjarnason
- Aðalsteinn Júlíusson
- Andrés Kristjánsson
- Anna Einarsdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Arnþór Helgason
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Árelíus Örn Þórðarson
- Árni Haraldsson
- Árni Þór Björnsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Hafberg S.
- Barði Bárðarson
- Benóný Jónsson Oddaverji
- Bergur Sigurðsson
- Bergþóra Sigurbjörnsdóttir
- Birgir R.
- Birna G. Konráðsdóttir
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Jónsson
- BookIceland
- Braskarinn
- Carl Jóhann Granz
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Einarsdóttir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- ESB og almannahagur
- Eva G. S.
- Eygló Sara
- Eyþór Örn Óskarsson
- Friðrik Kjartansson
- Garún
- Gestur Janus Ragnarsson
- Gissur Þórður Jóhannesson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson
- Grétar Mar Jónsson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Markúsdóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Heiðarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Gústaf Níelsson
- Gylfi Gylfason
- Hafþór Baldvinsson
- Halla Rut
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Jónsson
- Haraldur Hansson
- Haukur Baukur
- Haukur Nikulásson
- Heimir Ólafsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjalti Tómasson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Hörður B Hjartarson
- Hörður Stefánsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Ingimundur Bergmann
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jóhann Pétur
- Jónatan Karlsson
- Jón Á Grétarsson
- Jón Árni Bragason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Bjarnason
- Jón Daníelsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Lárusson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Katrín
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kári Harðarson
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Kristinn Arnar Guðjónsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Magnús Jónasson
- Magnús Kristjánsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Már Wolfgang Mixa
- MIS
- Offari
- Ólafur Björnsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Bjarki Smárason
- Óskar Steinn Gestsson
- Paul Joseph Frigge
- Páll Helgi Hannesson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Raggi
- Ragnar G
- Ragnar Gunnlaugsson
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Reynir Jóhannesson
- Samstaða þjóðar
- Samtök Fullveldissinna
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- S. Einar Sigurðsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigrún Óskars
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Sigurjón Norberg Kjærnested
- Skuldlaus
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólrún Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Steini Palli
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Sveinn Björnsson
- Sædís Hafsteinsdóttir
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trausti Jónsson
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Urður bókafélag
- Vaktin
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Skagfjörð
- Varmársamtökin
- Vésteinn Valgarðsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vinstrivaktin gegn ESB
- ÞJÓÐARSÁLIN
- Þorri Almennings Forni Loftski
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þórarinn Lárusson
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Bragason
- Þórhallur Heimisson
- Þórhallur Heimisson
- Þráinn Jökull Elísson
Athugasemdir
Hér gengur ekki hnífsblað milli skoðana okkar Bjarni.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 10:08
Hver er að berjast gegn kristinfræðikennslu og hvernig í ósköpunum tengist þessi lagaklausu þeirri kennslu? Þarna er verið að tala um starfshætti skóla en ekki námsefni? Og hvað yfirhöfuð þýðir þessi klausa?
Óli Gneisti (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 10:09
Bjarni, nú er ég verulega svekktur. Eftir fund okkar á mánudag er ekki möguleiki á að þú sért að misskilja þetta. Hér er um hreina og klára rangfærslu að ræða af þinni hendi.
Matthías Ásgeirsson, 28.5.2008 kl. 10:12
Það væri gaman að vita hvað greinargerðin, sem væntanlega fylgdi með frumvarpinu, segir um hvað af hinni kristnu menningararfleifð þjóðarinnar skuli lagt til hliðsjónar við skólastarf á Íslandi. Þar er nefnilega af nógu að taka. Bæði góðu og slæmu.
Gæti ég til dæmis vísað í Passíusálmana og krafist þess að þeir verði hafðir til hliðsjónar við umfjöllun um málefni Austurlanda nær? Eða að vinna í málefnum samkynhneigðra nemenda byggi á umfjöllun samtíðarmanna okkar í prestastétt eða bréfi Páls til Rómverja? Mér dytti það ekki í hug, en ég þekki fólk gripi tækifærið fegins höndum.
Getur verið að þetta sé bara merkingarlaus klausa sem hefur þann tilgang einn að friða kristna og særa villutrúarmenn og vantrúaða? Ef það er engin alvara á bak við lagasetninguna, þá verð ég að benda á að svona lagatextar geta verið gífurlega skaðlegir.
Sjálfur er ég kirkjurækinn þjóðkirkjumaður sem gerir sér grein fyrir því að sérréttindi mín og minna líka standast ekki nútíma hugmyndir um jafnræði þegnanna.
Grímur (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 10:19
Tek undir með Óla. Hér er verið að tala um starfshætti en ekki námsefni. Við þokumst með þessari klausu nær því sem þú ert hræddur við, ekki fjær því. Sorglegt. Virkilega sorglegt.
Jón Stefánsson, 28.5.2008 kl. 10:43
Lesser evil is still evil.
Sagan mun dæma gjörðir ykkar og fáfræði.. sorgarstund í íslandssögunni.
Ég ætla að koma þessu út á veraldarvefinn, erlendis.. það mun vera hlegið að þessum "rökum"; íslam-d í dag
DoctorE (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 11:04
Bjarni hvernig byggist kennsla á kristinni menningararfleifð? Hvernig er það í framkvæmd? Hefði ekki verið markvissara að setja þetta inn í aðalnámskrá ef þetta á að snúast um námsefnið og kennsluna?
Og enn heyrir ég manna sem á að vera upplýstur um þessi mál fullyrða að barist sé gegn kristinfræðslu í skólunum. Þvílíkt og annað eins Bjarni. Var verið að fara fram á að kristinfræðslu væri hætt? Hver gerði það og hvenær?
En sem sagt með því að setja slagorð inn í lög um starfshætti grunnskóla er búið að tryggja að öfgafull trúarbrögð ná ekki fótfestu hér á landi. Engar frekari skilgreiningar á framkvæmd þessarar óljósu hugmyndar. Þessi rök þín standast ekki. Heiðarlegra hefði verið að þú segðir bara að styrkja þyrfti ríkiskirkjuna enn frekar og að börnum þessa lands verði innrætt með markvissum hætti hófsöm kristni sem á að virka sem bólusetning við trúarofstæki.
Hvað um að ganga bara beint til verks og banna trúarofstæki. Trúareftirlitsstofnun Ísland. Stofnun hefur verið sett laggirnar fyrir minna tilefni. Ef markmiðið er að útrýma trúarofstæki að þá er rétt að ráðast bara gegn því markvisst.
Þú afeitrar ekki heróínneytanda með því að gefa honum brennivín, og þó íslenskt væri.
Arnold Björnsson (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 11:12
Bjarni við erum þarna sammála kristin gyldi eru góð og þörf frá vöggu til grafar/Kveðja Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 28.5.2008 kl. 11:27
Bjarni, hver berst gegn kristindómsfræðslu? Ekki eru það siðmennt eða vantrú. Ég veit ekki um neinn. Ég veit varla um nokkurn mann sem vill ekki kenna kristin gildi heldur.
Ég vil að kennd séu kristinfræði. Það þýðir hins vegar ekki að skólar landsins eigi að mótast af kristinni arfleið.
Sérðu annars mikinn uppganga trúaröfga í löndum eins og Svíþjóð og Frakklandi, þar sem ríkisvaldið er ávallt sekúlar, og skilið hefur verið milli ríkis og krikju? Ætlar þú alltaf að nefna USA eingöngu til samanburðar? Þingræða þín var afleit. Mér þótti það miður, því mér hefur ávallt fundist þú lang bestur þingmanna framsóknar, og einkum hefur mér þótt gaman af því þegur þú hefur tekið VG stöku sinnum á beinið.
Sindri Guðjónsson, 28.5.2008 kl. 20:37
Það eru ýmsar birtingarmyndir veraldar-og guðleysishyggju sem hafa með réttu eða röngu verið kallaðar ágengar því sumir meðlima hennar vilja ýta öllum birtingarmyndum trúarbragða út úr hinu sýnilega samfélagi og þeir líta svo á að réttur til guðlasts sé sjálfsagður en það er a.m.k. á skjön við norræna lagahefð. Þessi hugmyndafræðilegi straumur er ekki nýr af nálinni en hann virðist hin síðustu ár hafa þróast og mótast og fengið á sig sína núverandi mynd í Bandaríkjunum og svo virðist sem þarlendir trúleysingjar finni í honum andsvar við ágengum boðunaraðferðum ýmissa sértrúarsafnaða og starfsaðferða þeirra þar í landi. Sumir trúleysingjarnir virðast t.d. ganga út frá því sem staðreynd að Guð sé ekki til og því sé hægt að afgreiða allt tal um guð sem bull. En á sama tíma virðast þeir ekki átta sig á að þannig eru þeir að taka afstöðu sem er sambærileg við trú að því leyti að þegar aðir játa Guði þá hafna þeir eða afneita Guði. Þetta fólk telur sig því eðlilega og alls ekki trúað þó erfitt sé fyrir það að neita því að þau taki afstöðu til Guðs.
Þessi hugmyndafræðilegi straumur liggur að sjálfsögðu líka hingað til lands og hefur tekið á sig ýmsar myndir. Að sumu leyti sver málflutningur þeirra sig í ætt við starfsaðferðir sumra sértrúarsafnaða, þ.e. að þeir byggja málflutning sinn að hluta til á því að halda á lofti hneykslismálum í stóru trúfélögunum og ef engin ný hneyksli eru til að hamra á þá er farið aftur í aldir og fundið eitthvað þar.
Það er líka staðreynd að margt fólk hefur trúarlegar þarfir og þannig mun það verða áfram. Heppilegast er að það fólk sem hér býr finni að komið sé til móts við þær þarfir í sinni eigin menningu og sinni eigin menningararfleifð en síður í bandarísku nýtrúarhreyfingunum frá síðustu tveim öldum og alls ekki íslam eða ágengri trúleysishyggju. Þú ert því alveg á réttri leið Bjarni. Þú og þeir þingmenn sem þetta studdu hafið fetað vandrataða en alveg rétta leið.
Ragnar Geir Brynjólfsson, 28.5.2008 kl. 22:06
Kristin arfleifð íslenskrar kirkju, er enn verri en kristið siðgæði. Jesú kom nefnilega fram með margt nýtt, sem gekk þvert gegn kenningum gamla testamentisins, svo sem um kærleika. Arfleifð kirkjunnar, þar á meðal hinnar íslensku, er hins vegar sneisafull af fordómum, dómhörku, græðgi og kúgun, þvert á nokkurn kærleika. Nægir þar að nefna Stóradóm, galdrabrennur, bannfæringar, kúgun kvenna og það hvernig kirkjan sölsaði undir sig mikið af eignum og tók margvíslegan þátt í kúgun almennings. Þetta er hluti af hinni kristnu arfleifð, sem við viljum ekki byggja skólastarf á. Rétt er að geta þess að margir þjónar kirkjunnar stunduðu kærleiksverk, en það er ekki hægt að benda bara á þau og horfa framhjá öllum hinum, þegar talað er um kristna arfleifð.
Þetta innskot um „kristna arfleifð íslenskrar menningar“ er komið frá Sigurði Kára og var samþykkt sem breytingatillaga frá meirihluta allsherjarnefndar milli 1. og 2. umræðu. Þetta er mótleikur fyrir það að menntamálaráðherra tók út „kristilegt siðgæði“ úr grunnskólalögunum. Vísun í „kristilegt“ siðgæði var fellt út til þess að standast mannréttindasáttmála Evrópu og bullið sem sett er inn í staðinn er til þess að sneiða fram hjá þeim vanda og troða trúarbrögðum inn aftur. Önnur gildi sem talin eru upp í sömu lagagrein getum við vel fallist á, þar á meðal ákvæðið um að byggja á kærleika.
„Trúarleg arfleifð“ er auðvitað bara arfleifð Ásatrúar og Kristinnar kirkju, svo það er ekki til neinna bóta að breyta þessu þannig. Þessi trúarbragða skírskotun á einfaldlega ekki við. Það er full þörf á að fræða skólabörn um okkar trúarlegu arfleifð og draga þar ekkert undan. Hins vegar á hún alls ekki að vera grundvöllur skólastarfs, eins og þarna er verið að troða inn.
Andrés Rúnar Ingason, 29.5.2008 kl. 00:18
Enn undarlegra er hversu þrálátt menn vilja halda einhverjum kristilegum hugtökum nálægt börnum og skólakerfinu. Það dytti engum í hug að setja inn lagaklausu þess efnis að dómstólar landsins skyldu mótast af kristilegu siðgæði eða byggjast á kristinni menningararfleið,.
Kæmi eitthvað þessu líkt í lög er varða t.d. lögregluna yrðu margir til að mótmæla harðlega. Deilur um "auga fyrir auga" myndur rísa þegar aðgerðir lögreglunnar yrðu metnar og hvort lögreglukórinn ætti að syngja fleiri sálma á tónleikum sínum. Vegagerð Íslands skyldi starfa skv. kristnum gildum, sem og spítalar landsins.
Hvers vegna ætti menntunarkerfið eitt að mótast af þessari arfleið? Væri ekki bara betra að sleppa þessu rugli yfirhöfuð?
Kristján Hrannar Pálsson, 29.5.2008 kl. 09:22
Nú hafa komið fram ansi margar vel orðaðar og skynsamlegar gagnrýnisraddir. Er von á svari frá Bjarna?
Freyr Bergsteinsson, 29.5.2008 kl. 09:52
Þar að auki er beinlínis villandi að bera Ísland saman við Bandaríkin þegar kemur að trúmálum og þjóðkirkju. Nær væri að bera landið saman við t.d. Frakkland eða Holland.
Kristján Hrannar Pálsson, 29.5.2008 kl. 12:42
sæll freyr og þið öll. úr því að svo fallega er beðið um svar! í mínum huga er það dæmi um ofstæki að segja að afþví að kirkjan brenndi hér menn eða prestar börnuðu vinnukonur eigi ekki að byggja menntun á kristilegri menningararfleifð. við getum með sömu rökum hafnað því að vera íslendingar eða menn yfir höfuð því saga mannsins er heilt yfir frekar grimm og það á við um okkar land líka. staðreyndin er aftur móti sú að við erum menn og erum fædd inn í kristna menningararfleifð með kostum hennar og göllum. við getum valið að vera trúuð og valið að vera trúlaus en við getum ekki valið að vera ekki hluti af hinni kristnu menningararfleifð í samfélagi þjóðanna. allt slíkt er hroki gagnvart sögunni og menningunni. já og kristján, vitaskuld er allt okkar lagaumhverfi og siðgæði stofnana okkar bæði lögreglu og þessvegna vegagerðar af því að þú talar um hana - gegnsýrt af sögunni og þar með hinni kristnu menningararfleifð okkar.
Bjarni Harðarson, 29.5.2008 kl. 12:46
Bjarni viltu vera svo vænn að svara þessu sem ég spurði þig hér að ofan.
Bjarni hvernig byggist kennsla á kristinni menningararfleifð? Hvernig er það í framkvæmd? Hefði ekki verið markvissara að setja þetta inn í aðalnámskrá ef þetta á að snúast um námsefnið og kennsluna?
Læt þetta duga í bili.
Arnold Björnsson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 13:11
Aumt var það.
Bjarni, hver berst gegn kristindómsfræðslu?
Matthías Ásgeirsson, 29.5.2008 kl. 13:24
Kommon Bjarni, svaraðu spurningunum.
Óli Gneisti (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 13:25
strákar mínir - þolinmæðin er nú ekki ykkar sterkasta hlið. en svo ég svari spurningu arnolds björnssonar sem ég á einfaldlega svoldið erfitt með að taka alvarlega og þessvegna sleppti ég henni fyrr. ef semsagt ágreiningurinn snýst aðeins um það hvar í lagabókstafnum hin kristna menningararfleifð á að vera,- lögum, reglgerðum eða námsskrá,- þá erum við ekki að deila um nein grundvallaratriði. hin umdeilda lagaklásúla er svohljóðandi: Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi. hvað af þessu vilja menn taka úr lögunum og setja í aðalnámskrá eða kannski reglugerðir... það er hægt að deila um þetta en frekar barnalegt að færa deiluna í sandkassaleik um það hvar í lagacorpus einstök atriði skuli vera. reyndar vildum við í stjórnarandstöðunni hafa í þessari upptalningu mannréttindi líka en það var kannski bara einhver misskilningur hjá okkur!!! ykkur finnst sjálfsagt að mannréttindin eigi bara líka að vera í aðalnámskrá. málið er að sem þingmaður kem ég ekki að samningu námskrár en get beitt áhrifum mínum við setningu venjulegra laga - og já ég beiti mér fyrir að menn kannist við sjálfa sig og sinn uppruna þar...
Bjarni Harðarson, 29.5.2008 kl. 13:37
Bjarni, þú hefur ekki ennþá svarað því hverjir séu að berjast gegn kristinfræðikennslu. Þú ert hins vegar búinn að staðfesta að þessi klausu um menningararfleifð er innihaldslaus.
Óli Gneisti (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 13:44
Það er algeng og endurtekin mýta að ríkiskirkjan sé eitthvað hófsöm í trúmálum. Það er hún sannarlega ekki og lítið mál að færa rök fyrir því. <a href="http://www.google.com/custom?hl=en&cof=&domains=www.vantru.is&q=r%C3%ADkiskirkjan&btnG=Search&sitesearch=www.vantru.is">Það hefur enda margsinnis verið gert</a>.
Önnur mýta er sú að ríkisrekin kirkja verði löt og sljó og allt fjármagnið sem streymir til hennar sjái til þess að þegnarnir losni við ofstæki og yfirgang í trúmálum. Þetta er ekki nema að litlu leyti rétt. Ríkiskirkjan hefur t.d. undanfarin misseri ekki verið neitt sérlega löt við að herja á grunn- og leikskóla landsins til að hirða til sín sálir og sóknargjöld. Í stað goðsagnarinnar um hófsemi og umburðarlyndi sjáum við frekju og yfirgang. Kirkjan stundar ekkert umburðarlyndi en krefst hins vegar skilyrðislauss umburðarlyndis annarra á forsendum stjórnarskrár, nánar tiltekið klausu sem er alger tímaskekkja.
Og hver eru svo svörin þegar þessi ofstækisfulla stofnun er gagnrýnd. Sjaldnast eru þau málefnaleg, miklu fremur eru reynt að gera gagnrýnandann tortryggilegan með því að gera honum upp annan málflutning en hann í raun hefur. Það er sorglegt að sjá Bjarna Harðarson taka við því kefli og bera upp á þá sem berjast gegn trúboði í skólum að það þeir séu á móti kennslu í kristnum fræðum. Enn sorglegra er að sjá hann beita þessari rökvillu aftur aftur og ítrekað þrátt fyrir að hann hafi verið leiðréttur. Því spyr ég: <a href="http://www.vantru.is/2005/05/06/00.00/">Hvort er Bjarni Harðarson lygari eða hálfviti?</a>
Birgir Baldursson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 13:52
Þú segir í blogginu hér að ofan að "kennslan skuli byggja á kristinni menningararfleifð" Ef þetta snýst um kennslu að þá þarf þetta að vera í námskrá en ekki þessari lagaklasu í lögum um starfshætti leik- og grunnskóla. Er það ekki alveg augljóst? Það er því þú sem ert ekki með á nótunum Bjarni.
Og Bjarni, hver berst gegn kristindómsfræðslu?
Arnold Björnsson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 14:14
Bjarni, þú segir að starf lögreglu og dómstóla sé hvort eð er gegnsýrt af kristinni menningararfleifð - atriði sem ég er algerlega ósammála reyndar - en þyrfti þá að taka það sérstaklega fram í lögum? Lagabókstafur á að vera skýr og án allra vafaatriða, og á þeim forsendum vil ég þetta ákvæði út úr því.
Kristján Hrannar Pálsson, 29.5.2008 kl. 14:22
Í kjölfarið finnst mér rétt að benda á færslu eftir Svan Sigurbjörnsson, lækni, sem ég tel að Bjarni hefði gott af því að lesa.
http://svanurmd.blog.is/blog/svanurmd/entry/553351/
Bestu kveðjur
Kristján Hrannar Pálsson, 29.5.2008 kl. 14:25
Til að gæta allrar sanngirni getur auðvitað vel verið að Bjarni sé hvorki að fara vísvitandi með rangt mál (lygari) né að hann skilji ekki út á hvað barátta okkar gengur (hálfviti). Líklegast þykir mér að hann hafi einfaldlega ekki haft fyrir því að ljá málflutningi okkar eyra heldur kosið að trúa einfaldlega því sem aðrir fullyrða um okkar, t.a.m. kirkjunnar menn.
Bjarni, það er ekki góð pólitík að kynna sér ekki málflutning þeirra sem maður gagnrýnir. Það er frekar sloppí að taka bara upp á arma sína orðið á götunni og halda því á lofti án allrar rýni. Nú hafa fjölmargar greinar verið skrifaðar um þessi mál á Vantrú og því hægt að gera þá lágmarkskröfu að menn kynni sé það fyrst áður en farið er að fullyrða eitthvað um það í hverju þær skoðanir felast.
Birgir Baldursson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 14:27
Ég leyfi mér að vitna í ræðu greinarskrifara sem hann flutti á Alþingi fimmtudaginn 22. maí sl., en þar sagði hann m.a.:
Fyrst greinarskrifari er svo áfjáður að festa áhrif kristinnar arfleifðar og kristins siðgæðis í lög, þá hlýtur hann að geta útskýrt með nákvæmum hætti í hverju þessi áhrif eru fólgin og með hvaða hætti þessi ákvæði muni bæta skólastarf í framtíðinni. Ef ekki, þá er þessi lagasetning óskýr og óskýr lög eru engum til góðs. Lög sem hver og einn getur túlkað eftir eigin geðþótta eru vond lög. Eftir að hafa verið spurður í tvígang, gat Guðni Ágústsson skilgreint 'kristið siðgæði' í Kastljósi þannig, eftir að hann hafði verið spurður í þriðja sinn; "af því það er svo fallegt!" Eftir að hafa fengið þrefalt tækifæri til að svara spurningunni var þetta svarið. Við gætum kannski fundið málamiðlun í því að lögfesta að skólastarf eigi að vera fallegt? Ég vona altént að Bjarni hafi skýrari svör en formaðurinn. Ef ekki, hvar liggur þá móðgunin?
Þá var fyndið að sjá Bjarna agnúast út í baráttu vantrúaðra og trúlausra fyrir veraldlegum leik- og grunnskólum þar sem hann sagði okkur tala fyrir hönd fárra. Samt liðu ekki nema nokkrar mínútur uns hann tók sér það leyfi að fullyrða hvernig hugur trúlausra sé stemmdur gagnvart kirkjunni:
Það hlýtur afar gott að hafa svona rosalega mikið rétt fyrir sér meðan allir hinir asnarnir vita ekkert í sinn haus! Hver er þarna að tala fyrir hönd annarra og fullyrða um hluti sem ekki er hægt að fullyrða um? Hvað þá að hægt sé að fullyrða að trúlausum líði vel í kirkju í "því hófsama og afslappaða andrúmslofti" sem þar er að finna. Í mínum huga eru þetta hálfgerð refhvörf. Eiginlega algjör.
Hvað varðar baráttu mína gegn kristinfræðikennslu í skólum, þá kannast ég ekki við hana meðan sú kennsla fer fram á hlutlægum og faglegum grunni í formi trúarbragðafræði. Það talar enginn gegn uppfræðslu um kristna trú eða aðra trú ... við tölum gegn kristniboði og kristilegri innrætingu í skólum.
En spurning mín hér að framan stendur. Ég hlakka til að sjá svar við henni!
Óli Jón, 29.5.2008 kl. 15:39
hér vantar ekki stóru orðin og ég tel mig hvorki betri né verri fyrir það að vera af ofstækismönnum kallaður lygari og hálfviti - varðandi hina meintu spurningu þá er því einfaldlega til að svara að þeir taka hana til sín sem eiga! og hafa gert.
Bjarni Harðarson, 29.5.2008 kl. 15:53
afsakið málvillu, átti að vera svona: hér vantar ekki stóru orðin og ég tel mig hvorki betri né verri fyrir það að vera af ofstækismönnum kallaður lygari og hálfviti - varðandi hina meintu spurningu þá er því einfaldlega til að svara að þeir taka til sín sem eiga! og hafa gert.
Bjarni Harðarson, 29.5.2008 kl. 16:00
Hvað ertu að tala um Bjarni? Þú hlýtur að geta svarða þessari spurningu. Hver er að berjast gegn kristindómsfræðslu í skólum?
Arnold Björnsson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 16:09
Köllum þennan gjörning réttu nafni: Virðingarleysi, það er það sem þetta er, sagan mun dæmi ykkur fyrir þetta.
DoctorE (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 17:05
Bjarni, eru þetta einu viðbrögð þín, að draga fram gamla þreytta ofstækisstimpilinn? Segðu okkur frekar hvort:
1. Þér sé fyrirmunað að skilja muninn á fræðslu og trúboði
2. Þú horfir viljand fram hjá því sem búið er að útskýra fyrir þér.
3. Einhver þriðja ástæða.
Endilega útskýrðu hvers vegna þú gengur fram með þeim hætti sem sjá má hér að ofan. Verðu þig gagnrýninni í stað þess að veifa gömlum skítugum druslum.
Birgir Baldursson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 20:42
Ég er ekki talsmaður Bjarna en leyfi mér að blanda mér í umræðuna í þeirri von að geta eitthvað liðkað til um sátt. Kristján Hrannar spyr:
Vegna þess að það er hefð fyrir því að skólastarf mótist af einhverri hugmyndafræðilegri sýn ólíkt t.d. vegagerð eða slökkviliði eins og dæmi eru tekin um.
Arnold Björnsson spyr:
Þetta er útfærsluatriði hvers skóla fyrir sig í skólanámsskrá sem allir grunnskólar eiga núna að gera, reyndar lúta fyrirmælin í lögunum ekki að námsskrá heldur frekar að hugmyndafræðilegri sýn. Þessu þarf að gera greinarmun á.
Matthías og Arnold spyrja:
Ég tel að hér sé of mikið gert úr orðalagi Bjarna um fræðslu og kennslu en blessunarlega hafa veraldarhyggjumenn ekki lagst gegn henni af neinum þunga, eins og hér hefur komið fram í athugasemdum, heldur einbeitt sér gegn trúarinnrætingu - sem er skiljanleg afstaða. Það má þó finna dæmi þar sem talað er um kristindómsfræðslu, t.d. Hér:
Birgir skrifar:
Gott og vel en Vantrú er kannski ekki endilega það sem Bjarni var að tala um. Hún er frekar einn þátturinn í málefnabaráttu trúleysingja en þeir eru ekki allir meðlimir í Vantrú. Það er vitað mál að þeim viðhorfum hefur verið haldið á lofti í umræðu undangenginna mánaða og missera að trú eigi að vera einkamál en ekki mál sem snerti samfélagið. Trúna eigi að stunda inni á heimilunum. Það þarf nú varla að leita lengi til að heyra þeim viðhorfum haldið á lofti. Vera má að Vantrú hafi ekki gengið hart fram í þeirri baráttu. Ég held að menn geri mistök með því að fara svona nákvæmlega í saumana á orðalagi þingmanna sem þurfa oft að velja orð í flýti til að tjá hugsun sína.
Óli Jón skrifar:
Lögin Óli Jón eru ekki nákvæm fyrirmæli um kennslu eða námsskrá heldur almenn sýn eins og ég hef sagt áður. En þó svo væri þá er það ekki alþingismanna að útfæra þessa sýn nánar. Það á að vera hlutverk skólanna að útfæra þessi gildi inn í sína starfsemi. Síðari hluti spurningarinnar er samt athyglisverður, þ.e. með hvaða hætti þessi ákvæði muni bæta skólastarf í framtíðinni. Ég hygg að þeir alþingismenn sem lögin sömdu geti svarað því og reyni ekki að svara fyrir þá en ég get ímyndað mér að hugmynd þeirra sé að viðurkenna meginstrauma íslenskrar menningar og rætur hennar og að þeir álíti að þessi viðurkenning muni reynast vel í þeim áskorunum sem skólakerfið þarf óumflýjanlega að mæta í framtíðinni. Hinn hugmyndafræðilegi grundvöllur á að vera akkeri og kjölfesta skólanna þegar gefur á bátinn.
Lifið heilir.
Ragnar Geir Brynjólfsson, 29.5.2008 kl. 21:55
Bjarni, þeir sem eru ásakaðir um lygar að ástæðulausu eiga einfalda útgönguleið, þeir benda á hvernig þeir hafi í raun verið að segja sannleikann. Í þessum athugasemdiþræði er síendurtekin spurning (hver er að berjast gegn kristinfræðikennslu) sem þú gætir svarað ef þú værir ekki að ljúga en þú hefur ekki gert það.
Ég ætla á næstunni að leggja mig fram við að reyna að hitta þig í eigin persónu og þá muntu ekki komast hjá því að svara fyrir þetta.
Óli Gneisti (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 03:19
Þið eruð ekkert skárri en Jón Valur og Co - takið ekkert svar gilt nema ykkar eigið.
Barði Barðason (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 11:35
Barði, hvar hefur Bjarni svarað spurningunni?
Óli Gneisti (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 12:39
kæri óli - ráðlegg þér að lesa pistla á t.d. vefnum vantrú og hætta þessum barnalega malanda á minni heimasíðu.
Bjarni Harðarson, 30.5.2008 kl. 20:23
Bentu mér á pistil á Vantrú þar sem sagt er að eigi að hætta að fræða börn kristinfræði. Það eina sem við höfum beðið um er að trúboð sé tekið út úr skólum.
Er barnaskapurinn kannski fólginn í því að ætlast til að fá heiðarlegt svar frá þér? Þú ert orðinn innvígður og innmúraður og gerir þitt til að styðja flokkslínuna óháð réttu og röngu. Sorglegt.
Óli Gneisti (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 21:06
Ragnar, þú gengur of langt til að verja Bjarna - þú rembist.
Ég átti fund með Bjarna Harðarsyni á mánudag. Þar útskýrði ég ítrekað fyrir honum að trúleysingjar væru ekki að berjast gegn kennslu um kristindóm, kristinfræðikennslu. Ég mætti til hans sem einn af "talsmönnum trúleysis".
Við vorum ósammála um margt, en ég taldi ljóst að þessi skilaboð hefðu komist til skila. Við erum ekki að berjast gegn kennslu um kristni, enginn hefur verið að gera slíkt. Ekki Vantrú, ekki Siðmennt og ekki nokkur trúleysingi sem ég hefði rætt við eða orðið var við á netinu.
Ég kvaddi Bjarna með þeim orðum að ég treysti honum til að leiðrétta þennan misskilning næst þegar hann heyrði þessu haldið fram.
Samt endurtekur Bjarni ósannindin hér innan við tveimur sólarhringum eftir fund okkar.
Þetta er gríðarlega óheiðarlegt af Bjarna. Ég gat alveg fyrirgefið honum dylgjur og ósönn ummæli í þingræðu, en að hann skuli endurtaka leikinn eftir að ég hafði farið yfir málið með honum sínir einbeittan brotavilja.
Það skiptir Bjarna ósköp einfaldlega ekki nokkru máli hvort hér er farið satt og rétt með. Þetta snýst um pólitík, hann er þingmaður í kristilegum flokki og hann spilar eftir flokkslínunni. Hann afsakar sig með því að þetta séu skoðanir hans. "Skoðanir". Nei, þetta eru ósannindi. Bjarni getur haft þá skoðun að rangt sé að berjast gegn kristinfræðikennslu, ég væri líka sammála honum, en hann getur ekki haft þá skoðun að slík barátta hafi átt sér stað og "talsmenn trúleysis" séu á bak við hana.
Ég gekk út af fundi Bjarna á mánudagskvöld fullviss um að hann væri maður orða sinna, traustur einstaklingur. Ég hafði enga ástæðu til að halda annað. Ég vissi að við værum ósammála um ýmislegt, Bjarni er sanntrúaður á mátt og mildi ríkiskirkjunnar. Ég myndi jafnvel segja að hann væri ofsatrúaður að því leyti, því ekki hefur hann góð rök í því máli, en það er allt önnur umræða.
Í ræðu sinni á Alþingi sem Bjarni vísar í máli sínu til stuðnings talaði hann með mikilli fyrirlitningu um hroka trúleysingja sem halda því fram að Gvuð sé ekki til og vísaði þá væntanlega til Gvuðs kristinna manna, því við vitum að mennirnir hafa fundið upp ótal gvuði.
Bjarni Harðarson hefur aldrei minnst einu orði á þann hroka trúmanna sem halda því fram að Gvuð sé til. Það segir sig sjálft að sú afstaða hlýtur að vera nákvæmlega jafn hrokafull og hin.
Nei, Bjarni drullaði bara yfir annan hópinn enda þarf hann að spila með liðinu - hinum kristna Framsóknarflokki. Hann spilar sína stöðu vel.
Matthías Ásgeirsson, 30.5.2008 kl. 23:23
Hver er að berjast gegn kristindómsfræðslu í skólum?
Sævar (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 15:08
Auðsvarað: Engin
Þórður Ingvarsson (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 03:58
Mér sýnist af öllu að þú skammist þín fyrir það að hafa misst trúna, og sért að reyna að bæta það upp með því að tryggja kristnu trúboði aðgang að grunnskólum.
Hvers vegna þarf ,,kristin arfleifð" að standa í grunnskólalögum? Er ekki augljóst að menning okkar hefur eitthvað mótast af kristinni arfleifð síðan árið 1000? Þarf að skrifa það í lög skólanna?
Síðan hvenær er það hófsamt að nefna sérstaklega kristna arfleifð? Er það nokkuð annað en vandræðaleg og óverðskuldug tillitsemi í garð ríkiskirkjunnar, sem vill helst hafa beint aðgengi í skólana? Persónulega finnst mér það merki um meira hóf að nefna engin trúarbrögð sérstaklega í grunnskólalögum.
LegoPanda, 1.6.2008 kl. 13:12
Ef við eigum að halda í "kristna arfleið", er þá ekki allt í lagi að leggja áherslu á það í kristinfræðikennslu að aðfarirnar við að troða kristni upp á landann hafi ekki alltaf verið fallegar? Og hversu blóðug slóð kristninnar er?
Annars er hin góða arfleið okkar, manngildi og dugnaður, og hefur ekkert með kristni að gera.
Margrét St Hafsteinsdóttir, 4.6.2008 kl. 01:16
Sæll Bjarni.
Alltaf gott að sjá að þú heldur þinni sannfæringu. Hins vegar þarf gífurlega mikla trú ,til að trúa ekki á neitt.Gruna þig um að ef ég bæði þig þá myndirðu koma með mér á samkomu, þó svo það væri einungis af forvitni. Framsóknarmennsku fylgir þó mikil þrjóska, sem er nauðsynleg og margskemmtileg oft og haltu fast í hana. Varð endilega að koma með smá komment, þar sem rifjuðust upp gamlar minningar um rökfærslu þína fyrir trúleysi þínu.
Kveðja Jenný Gísladóttir
Kveðja Jenný
Jenný Gísladóttir (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 05:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.