Bretana heim og Ísland úr Nató!

Ráðaleysi ríkisstjórnarinnar er algert þessa dagana. Viðtalið við Geir H. Haarde í Kastljósinu varpaði skýru ljósi á það en ef við skoðum það sem þar var sagt og hefur verið sagt undanfarið þá er myndin svona:

Ísland reyndi af veikum mætti að semja við Rússa og Skandinava.

Hinir svokölluðu aðilar vinnumarkaðarins og þingmenn Samfylkingar gerðu háværa og miður gáfulega kröfu um að Ísland semdi tafarlaust við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn (IMF).

Breskir kratar ákváðu að nota Ísland til atkvæðaveiða og gerðu efnahagslega árás á landið sem kostar bæði íslenska hagkerfið og sparifjáreigendur í íslenskum bönkum hundruði milljarða. Sumir þessara sparifjáreigenda eru sjálfir breskir. Bretar heimta að íslenska þjóðin borgi innistæður Icesave sem eru um 600 milljarðar króna eða næstum eins og hálfsárs fjárlög.

Rússar og Skandinavar frétta af IMF blaðri nokkurra ráðamanna og ákveða því að bíða eftir að sjóðurinn skili skýrslu um Ísland og lána okkur svo...

IMF - sem Bretar og Hollendingar eiga báðir stjórnarmann í  -  gerir kröfu um að Ísland gangi frá sínum málum gagnvart Breskum stjórnvöldum - semsagt skuldsetji börn okkar fyrir 600 milljörðunum.

Dagarnir líða og Rússar og Norðmenn og Svíar og fl. fleiri bíða með peningapokana sína eftir IMF skýrslunni sem íslenskir kratar hafa blaðrað um svo vikum skiptir...

Filipus Grín fjárdólgur frá Bretlandi hugsaði sér gott til glóðarinnar og vildi kaupa hér allt fyrir slikk. Hann fékk það ekki og er farinn.

Í staðin eru komnir enn verri gestir - sem er samninganefnd Gordons Brown sem líka hugsar sér gott til glóðarinnar að láta íslendinga skrifa undir 600 milljarða víxilinn með hjálp þumalskrúfu IMF. Sem við megum alls ekki gera - en ég óttast að verði enda ekkert aðgerðaplan í sjónmáli.

Slíkt plan gæti verið:

 

  1. Senda bresku sendinefndina heim og vísa öllum ágreiningsmálum þjóðanna fyrir dómstóla. Það er vafamál að íslenska þjóðin skuldi að lögum innistæðueigendum Icesave krónu..
  2. Gera þá kröfu á IMF að hann skili a.m.k. greinagóðri skýrslu um Ísland enda landið stofnaðili að sjóðnum...
  3. Gera síðan þá kröfu á vinaþjóðir okkar að þær hjálpi okkar án skilyrða...
  4. Ganga úr Nató. Þegar gamlar bandalagsþjóðir skilgreina okkur sem hryðjuverkamenn og engin af þeim í stóru í Nató lyftir litla fingri þá er einfaldlega ekkert annað að gera...

Fyrir þessari leið þarf mikinn kjark og alls ekkert óðagot og það þarf standa fast á íslenskum hagsmunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Bara nokkuð gott hjá þér :)

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 22.10.2008 kl. 21:16

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Fínt innlegg.

Baldur Fjölnisson, 22.10.2008 kl. 21:54

3 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Ég hef grun um að meiri töggur hafi verið í Geir Hallgrímssyni en Geir Haarde. Ríkisstjórn þess fyrri bauð Bretum óhrædd byrginn í síðasta þorskastríði.

Sigurður Ingi Jónsson, 22.10.2008 kl. 21:55

4 Smámynd: Umrenningur

Góður að vanda enda með forgangsmálin á hreinu. Það er full þörf fyrir mann eins þig á þingi eins og á eftir að koma betur í ljós þegar landráðaliðið í samfó lætur sverfa til stáls.

Umrenningur, 22.10.2008 kl. 22:16

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sko Bjarni við erum þarna mjög sammála/Halli gamli XD

Haraldur Haraldsson, 22.10.2008 kl. 22:25

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Eina raunhæfa leiðin út úr svartholinu á hafnarbakkanum og í kringum Arnarhól er að nýta þetta svæði loksins í þágu þess eðlislæga og hefðbundna eðlis - nefnilega að breyta þessu í kombíneraða hóruhúss- og spilavítis einingu. Með góðri hárkollu og sminki mætti jafnvel kreista nokkrar evrur út úr núverandi óopinberum hórum á svæðinu á meðan þær endast.

Baldur Fjölnisson, 22.10.2008 kl. 22:25

7 Smámynd: Jónas Yngvi Ásgrímsson

Gott innlegg. Okkar fyrsta innslag í þetta mál allt gæti verið að tilkynna bretum að við viljum ekki sjá að þeir sjái um eftirlitsflugið hjá okkur. Ef það væri nægjalega hart orðað þá væru það skilaboð til "vina" okkar um að við getum staðið á eigin fótum. Að sjálfsögðu á síðan að senda þessa nefnd aftur heim með þau skilaboð að við hyggjumst ekki greiða skuldir þessara útrásarfélaga.

Ég sakna þess hins vegar að framámenn í okkar flokki viðurkenni mistök og biðist afsökunar. Lagaumhverfið var ekki nógu skýrt og eftirlitsaðilar unnu alls ekki vinnuna sína. Þetta var þingmönnum að kenna og síðustu ríkisstjórnum að mestu leyti. Ef Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hefðu staðið sig í stykkinu þá hefði þessi staða ekki komið upp og hefði Alþingi staðið síg líka þá værum við ekki í þeim sporum sem við erum í í dag. Þeir sem settu lögin höfðu bak við sig helling af starfsfólki í ráðuneytum, ráðuneytisstjóra, aðstoðarmenn og ráðgjafa. Enginn setti samt einhvern varnagla.

Jónas Yngvi Ásgrímsson, 22.10.2008 kl. 22:28

8 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það er þegar heilmikill bísness í að leiða hross og beljur undir menn þannig að mér finnst mjög líklegt að væri hægt að hala inn verulegan pening í ríkissjóð á Geira og Dabba og sæta sölumenn í ríkisstjórninni og hugsanlega jafnvel á þennan þarna asparagus frá Akureyri sem tröllríður blogginu hérna, hahahaha.

Baldur Fjölnisson, 22.10.2008 kl. 22:31

9 identicon

Jæja, Bjarni, það kom að því að við værum sammála um eitthvað

Bretana burt og IMF líka. 

Tökum kvótann til þjóðarinnar og nýtum hann
til að byggja upp gjaldeyrissjóð

Diesel (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 22:46

10 identicon

Mæl manna heilastur, Bjarni.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 22:49

11 Smámynd: Óskar Þorkelsson

sammála þér Bjarni að þessu sinni :)

Óskar Þorkelsson, 22.10.2008 kl. 22:51

12 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hvernig væri nú að taka Fiskveiðistjórnunarkerfið til endurskoðunar? Hef ekki áhyggjur af Bretum, þeir breytast ekki.

Víðir Benediktsson, 22.10.2008 kl. 23:27

13 Smámynd: Haukur Nikulásson

Það er ágætt að hafa skoðanabræður í Framsóknarflokknum í dag. Takk fyrir það!

Haukur Nikulásson, 23.10.2008 kl. 00:10

14 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Samfylkingin hefur gert út á þann pöpulisma að við getum hagað okkur eins og okkur sýnist í efnahagsmálum bara ef við köstum krónunni. Nú kann að vera einhver ávinningur í því engu að síður væru þeir "að kasta krónunni og spara eyrinn" ef auðlindirnar fylgja með.
Mér þykir miður að þessar raddir eru nú æ háværari í þínum flokki. Það var því ágætt að heyra þig í útvarpinu.

Tek undir með Víði vandamál við Breta eru hljóm eitt miðað við þau vandamál sem við  höfum skapað okkur sjálf með kvótakerfinu.

Sigurður Þórðarson, 23.10.2008 kl. 00:53

15 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Bjarni.

Það er rétt að þetta viðtal var ekki upp á marga fiska.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 23.10.2008 kl. 00:55

16 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gerðu það fyrir mig og aðra Sunnlendinga, Bjarni, að breytast ekki í kjána þegar mest á ríður. Ef þú veizt það ekki, þá hefur einmitt verið unnið (að frumkvæði Dana og Svía) í gegnum NATO að því að styrkja okkar málstað í Evrópu í þessu bölvaða Bretamáli. NATO er og hefur verið okkur hlífiskjöldur, þú átt ekki að láta þig dreyma um að hugsa svona stutt út fyrir nefið á þér. Ef þú ert hins vegar að láta skína í ódýrar hótanir eins og Davíð og Halldór voru með (og Albert Jónsson representeraði á konkret hátt með hurðarskellum sínum í Washington) gagnvart Bandaríkjamönnum vegna Varnarliðsins, þá verðfellirðu bara sjálfan þig eins og þeir gerðu, þjóðinni til tjóns og varnarleysis. Það ætti að senda þig í læri til Eistlands eða Úkraínu, Póllands eða Georgíu nokkra mánuði og svissa þér frá öllum þingstörfum á meðan.

Jón Valur Jensson, 23.10.2008 kl. 00:59

17 Smámynd: Sævar Einarsson

Jón Valur Jensson gerðu það fyrir mig að aldrei hætta að koma mér til að hlægja, ég tala nú ekki um á síðustu og verstu tímum. Hafa Svíar einhver ítök í NATO ? þeir eru ekki í NATO. Loksins er ég sammála þér Bjarni, við eigum ekki að láta Breta kúga almenning til að borga fyrir skuldir einkafyrirtækja Úrsögn út NATO strax og senda þessar samninganefndir heim og láta alþjóðadómstóla dæma um það hvort það sé hægt að draga alla íslensku þjóðina til ábyrgðar einkafyrirtækja. Síðan þarf að endurskoða þessi svokölluðu vinatengsl okkar við USA sem gleymdi því að Ísland er í Evrópu þegar þeir gerðu gjaldeyrisskiptasamninga við ýmis ríki Evrópu og þar á meðal Norðurlönd. Og UK sem gekk svo langt yfir strikið með því að beita fyrir sig hryðjuverkalögum gegn Landsbankanum eftir að FME tók yfir rekstur hans. Það sem þessi "vinaþjóð" okkar er búin að gera landinu tekur Íslendinga áratugi að endurheimta það traust sem við höfðum haft, viðskiptasambönd fyrirtækja til áratuga eru í uppnámi vegna aðgerða þeirra og hefur skemmt meira en nokkurn getur grunað, og síðast en ekki síst að þessi aðgerð leiddi svo falls Kaupþings banka. Við erum betur sett í samstarfi við PfP Þar eigum við raunbetri vini að ég tel, meðal ríkja í PfP eru Finnland, Svíþjóð og Írland http://en.wikipedia.org/wiki/Partnership_for_Peace

Sævar Einarsson, 23.10.2008 kl. 04:51

18 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Í gegn um þung ský stjórnmála og efnahags brýst Jón Valur Jensson, sólargeisli fyndninnar.

Ég er sammála því að við eigum að segja okkur úr Nató. En "krafa um hjálp án skilyrða" -- hvað er nú það? Eigum við að heimta hjálp og engar refjar? Ætli nágrannaþjóðir mundu láta undan því?

Vésteinn Valgarðsson, 23.10.2008 kl. 05:16

19 Smámynd: Sævar Einarsson

Ef IKEA færi á hausinn, myndu Svíar allir sem einn þurfa að borga þær skuldir? ég efast um að þeir myndu sætta sig við það. Það er glæpsamlegt að setja okkur afarkosti að að til að fá lán frá IMF verðum við að samþykkja að borga skuldir einkafyrirtækis.

Sævar Einarsson, 23.10.2008 kl. 05:25

20 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Lán frá IMF er auk þess köttur í sekk og við ættum ekki að sækjast eftir því heldur taka til fótanna.

Vésteinn Valgarðsson, 23.10.2008 kl. 05:34

21 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Láttu nú endilega athafnir fylgja orðum og legðu fram tillögu á Alþingi um úrsögn úr NATO. Ég er reyndar gjörsamlega ósammála þér um flest í þessum pistli, en bíð eftir að þú látir ekki sitja bara við orðin tóm.

Ágúst Ásgeirsson, 23.10.2008 kl. 06:13

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heyr, heyr.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.10.2008 kl. 10:05

23 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Svo er komið málum, að ég er því sammála, að segja land okkar úr NATO.

 ÞAðan hefur ekkert gott komið hin síðari ár og Kaninn kemur fram við okkur jafnveel verrr en sailorar komu fram við portkonur hér í denn.  Sailorarnir vinkuðu ó í kveðjuskini, eftir að lokið var bríma.

ÉG hef ætíð varað við Bretum og bent á þjóðareinkenni þeirra sem er stórbokkasakur og undirlægjuháttur, allt eftir, hvað á við hverju sinni.

Ingibjörg er búin að fá HANDLEIÐSLUNA fra´IMF sem hún bað um, það birtist í FT fyrir nokkru síðan.

item:  háir stýrivextir

item: fleyta Krónu eins fljótt og auðið er,

item:  Setja bönkum regluverk á við erlendis

item: Ekki semja við yfirþjóðlegt vald, þar sem hætta væri á, að missa orku og fiskveiðiaulindina, sem er það eina sem við eigum til þrautarvara.

item:  setja fákeppni strangar reglur(gæti hér verið átt við fjölmiðla líka?)

Sumsé, tak hér hönd Davíðs og gakk með honum áfram þa´leið sem farsælust er og til bata liggur.

Gott á Sollu

Miðbæjaríhaldið

vill að við segjum í sundur Stjórnmálasambandi við Breta hið fyrsta.

Bjarni Kjartansson, 23.10.2008 kl. 10:10

24 Smámynd: G. Valdimar Valdemarsson

Bjarni minn eigum við ekki að fylgja bara stefnu flokksins og láta af þessum upphrópunum.

G. Valdimar Valdemarsson, 23.10.2008 kl. 10:53

25 identicon

Sammála þessu.

Jahérna ef það á að fara að verða hægt að kjósa framsókn aftur.

Varla að maður treysti sér nema til að hvísla þau orð. 

Henrý (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 11:12

26 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er kannski rétt að bíða og sjá hvað kemur út úr þessum viðræðum öllum. Ef allt er eins og þú segir Bjarni, þá er ég sammála þér.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.10.2008 kl. 12:30

27 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Varðandi aðgerðaplanið;

Þá hefur IMF skilað skýrslum um Ísland með reglulegu millibili í gegnum tíðina.  Hér hefur mönnum bara ekki þótt þær nógu "greinargóðar".

Til vinaþjóðanna hefur væntanlega verið leitað um margra mánaða skeið en ekki fengis meiri aðstoð en þegar er í ljós komin.

Ísland ú NATO og herinn .  Ég veit ekki hvort að það bætir eitthvað ástandið.

Magnús Sigurðsson, 23.10.2008 kl. 13:34

28 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Vill Framsóknarflokkurinn að veiðiheimildir verði eign og umsjá ríkisins eins og Guðjón A Kristjánsson hefur talað um og eflaust leggur fram í þinginu?

Guðjón H Finnbogason, 23.10.2008 kl. 13:42

29 identicon

G. Valdimar:

Stutt innlit á bloggið þitt sýnir mér að þú ert lang kominn með ESB drauminn, "eigum við ekki bara að fylgja stefnu flokksins og láta af þessum upphrópunum" Gæti maður sagt við því.

Ég veit það ekki nákvæmlega hversu innvígður þú ert í leiðindabandalagið sem hefur náð að hrekja stóran hluta af "venjulegum" Framsóknarmönnum burt frá flokknum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. En þessi athugasemd þín bendir til þess að þú hafir að minnsta kosti lært aðferðafræðina.

Lykilatriðið í henni er: Gera lítið úr skoðunum annara, þangað til þeir gefast upp og hverfa frá.

Ég skrifaði athugasemd á eyjubloggið hjá Friðrik um daginn, þar var hann að höggva í sama knérunn og þú. Efnislega snýst hún um að nú er Framsóknarflokkurinn í stjórnarandstöðu. Ef það er ekki einu sinni leyfilegt að hugsa út fyrir kassann sem leiðindabandalagið teiknar hverju sinni þegar flokkurinn er í stjórnarandstöðu er flokkurinn dáinn. Svo einfalt er það.

Framsóknarmaður (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 14:36

30 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sem snýtt ur mínu Framsóknarnefi Bjarni.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.10.2008 kl. 15:01

31 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gamlir kommúnistar og framsóknarkommar eru nú í essinu sínu yfir því að telja sig geta sparkað NATO-aðild okkar, en þeim verður ekki kápan úr því klæðinu; enginn vilji er til þess á Alþingi. Ýmsir nytsamir og græskulausir sakleysingjar (Bjarni Kjartansson sver sig nú í þann hópinn) taka þó undir með hinum róttæku eða vilja nota hótanir sem vopn (það brást þó Davíð og Halldóri gagnvart Bandaríkjamönnum í Varnarliðsmálinu), enda eru margir gramir Bretum, og þeir tímar eru nú, þegar auðvelt er að æsa menn upp hugsunarlaust.

Vilja menn hafa landið varnarlaust, án hers og án varnarbandalags? Já, sannarlega vilja sósíalistar það (eins og Jenný og Vésteinn) og sökum Bandaríkjaandúðar aldrei verið heil brú í hugsun þeirra um íslenzkt varnaröryggi. Öðruvísi hugsa Finnar, Svíar, Danir og Norðmenn, sem allir halda uppi eigin landvörnum. Liðleskjur eru reyndar okkar eigin leiðtogar að gera ekkert í þá áttina -- gegn eindreginni hvatningu Jóns Sigurðssonar forseta (sjá hér í pistlum). En einir sér getum við ekki haldið uppi nægum landvörnum.

Í fljótfærni talaði ég um Svía og Dani í NATO, en nefnd viðleitni þeirra mun hafa verið í Evrópubandalaginu. (Ég hef heldur ekki orðið var við inngöngu Svía í NATO!)

Svo tek ég undir með G. Valdimar Valdemarssyni; vona að Bjarnarnir báðir sjái að sér!

Jón Valur Jensson, 23.10.2008 kl. 15:32

32 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Sammála þér Bjarni.   

Marinó Már Marinósson, 23.10.2008 kl. 15:53

33 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Bretarnir rúlla sjálfir á hausinn innan árs. Smærri hagkerfi sem hefur verið hreinsað innan úr fara á hausinn á næstu vikum og mánuðum, sbr. td. Ungverjaland, Eystrasaltslöndin, Úkraínu, Hvíta Rússland og Pakistan og fleiri. Síðan kemur fljótlega að Bretlandi, Ítalíu og Bandaríkjunum.

Gjaldþrot Íslands var alltaf fyrirsjáanlegur forleikur að stærri uppsetningum. Málin hafa verið login og svikin fram bæði hér og þar það lengi að skellurinn verður þeim mun bæði snöggur og harður þar og hér.

Baldur Fjölnisson, 23.10.2008 kl. 18:43

34 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Það er bara óþolandi, að núna liggja þessi bankastjórar og hlæja að okkur.  Við erum aular sem sáum ekki þegar verið var að ræna okkur.  Mér finnst að það ætti að skikka þessa menn að skila þessum miljörðum sem þeir ákváðu að borga hver öðrum, til ríkistjórnarinnar til að hægt sé að gera hreint fyrir okkar dyrum.  Þeir eiga að borga þetta en ekki sótsvartur almúginn.  Og sjáið nú, hvað er ekki verið að gera.  Borga þessum bankastjórum hærri laun en FORSETI ÍSLANDS er með.  Hvaða skilaboð eru þetta til okkar.  Eru önnur störf ekki eins merkileg eða jafn mikilvæg eða er ábyrgðin ekki meiri á öðrum störfum en þeim sem hafa með peninga að gera???? Hvað með þá sem hafa með líf okkar að gera? Eins og ljósmæður, læknar, hjúkrunarfræðingar???  Hvernig er með okkur kennarana??? Erum við einski nýtir??? Eða er það sem við gerum, eitthvað sem hver sem er getur gert???? 

Það er bara óþolandi, að einhverjir sem eru inni í fjármálum, séu taldir mikilvægari en aðrir starfsmenn.  Hvað með skúringarkonuna sem heldur öllu hreinu svo að starfsemi fyrirtækja getur gengið óáreitt.  Alltaf eru þær á lægstu laununum. 

Við þurfum að endurskoða forgangsröðunina hjá okkur og hjá ráðamönnum þjóðarinnar og öllum þeim sem kalla sig pólitíkusa.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 23.10.2008 kl. 18:46

35 identicon

LÝÐSKRUM!  VARÚÐ!  LÝÐSKRUM!

Hvað á að gera svo Bjarni minn góður?  Senda Þór og Tý upp Thames?  Við erum ekki í neinni stöðu fyrir svona fíflagang.  Þessi mál verða að leysast fyrir dómstólum eins æsingalaust og hægt er.  Þú ættir kannski að kíkja á Macchiavelli áður en þú öskrar á stríð.

Reiði þjóðarinnar á að fá útrás hér innanlands og til þess er löngu kominn tími.  Óvinir okkar búa hér!  Og einstaka Íslendingur í Bretlandi.

marco (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 21:30

36 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Fjármálaráðherrann er augljóslega nautheimskur og vissi fólk það nú fyrir en þagði þó en þetta dæmalausa símtal við Darling ætti að eyða öllum efa sem kynni að vera enn í einstaka tómhaus hvað það varðar. Hahahahaha. Hálfvitinn sem núverandi kálhaus leysti af er núna forsætisráðherra og löngu búinn að bulla sig út í horn þannig að aðeins blávinstrijaðar bellkúrfu íhaldsins tekur enn mark á honum. Er nú að furða að allt er farið á hvínandi hausinn með þessa strumpa við stjórn. LOL.

Baldur Fjölnisson, 23.10.2008 kl. 21:49

37 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Nú er nýtt Kaupþing nyr Landsbanki og Nýr Glitnir. Bjarni stofnaðu nýjan Framsóknarflokk með þessum áherslum og við flykkjum okkur undir fánan

Jón Aðalsteinn Jónsson, 23.10.2008 kl. 22:46

38 Smámynd: Sævar Einarsson

JVJ segir meðal annars "Ýmsir nytsamir og græskulausir sakleysingjar (Bjarni Kjartansson sver sig nú í þann hópinn) taka þó undir með hinum róttæku eða vilja nota hótanir sem vopn (það brást þó Davíð og Halldóri gagnvart Bandaríkjamönnum í Varnarliðsmálinu)"

Þú þarft ekki að kunna að kljúfa atóm til þess að sjá að Bandaríkjamönnum var skítsama um hernaðarlega staðsetningu Íslendinga vegna þess að þeir fengu aðgang að bakgarði Rússa í gegnum Pólland þegar það gekk í NATO 1999. Ef við segðum okkur úr NATO og myndum sem dæmi bjóða Rússum aðstöðu hér, þá myndi heldur betur breitast afstaða BNA.

Sævar Einarsson, 24.10.2008 kl. 00:31

39 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

Ég hef ekki fyrirfram myndaða skoðun á því hvort við eigum að segja okkur úr NATO eða ekki. Umræðan á rétt á sér en þetta þarf að íhuga í ró og næði, og við þurfum að halda stillingu okkar, þó okkur sé vitaskuld heitt í hamsi þessa stundina.

Gaman væri þó ef einhver keypti skoðanakönnun um afstöðu þjóðarinnar til aðildar að NATO í dag. Það skiptir máli hvernig spurningar eru orðaðar. Ég vil sjá spurningar í þessa veru:

  • Finnst þér að Ísland ætti að íhuga úrsögn úr NATO?
  • Breytti framkoma Breta ... afstöðu þinni til þessa máls?
Ef niðurstöðurnar yrðu svo eitthvað krassandi, þá yrði forvitnilegt að sjá, hvort það myndi valda titringi meðal annarra NATO-þjóða og e.t.v. auknum þrýstingi á Breta. Það er möguleiki, en ekki víst - kannski eru allir of uppteknir af öðrum hlutum. En mig rámar í að hafa lesið einhvern tíma að eftir þorskastríðin þá hefðu aðrar NATO-þjóðir beitt Breta þrýstingi um að semja við okkur.

Eins og ég segi, það er ekki víst að við getum endurtekið þann leik, enda getum við ekki ráðið viðbrögðum annarra. En skoðanakönnunin á rétt á sér hvað sem öðru líður. Hún tekur bara púlsinn hér og nú; kannski mælir hún að 50 % telji réttmætt að endurskoða aðildina, og kannski segir önnur könnun eftir 2-3 ár að 70 % vilji vera í NATO. Það er þá önnur saga.

En aftur að alvöru málsins. Nú kann einhverjum að þykja að ég sé að tala fyrir einhverjum leikaraskap, líkt og varð raunin með þessar innantómu hótanir þegar herinn fór. Það er ódýrt að gera skoðanakönnun miðað við það að stíga skrefið til fulls; og það er grafalvarleg ákvörðun sem við skulum ekki leika okkur með. Eins væri það mikið alvörumál ef við gengjum í ESB; samt eru margir að tala fyrir breyttri hugsun í þeim efnum. Ég er mjög efins um að aðild að ESB leysi okkar mál. Hins vegar eiga stjórnmálaskoðanir ekki að vera trúarbrögð. Það að vera eða vera ekki í NATO á ekki að vera eins og trúarbrögð; okkur leyfist að spyrja spurninga og velta málinu fyrir sér. Ef við ætlum að amast við slíku skoðana- og hugsanafrelsi þá eigum við stutt í að gerast Stóri bróðir sem þaggar allt niður. En þetta er efni í nýja grein; e.t.v. meira um það síðar.

Einar Sigurbergur Arason, 24.10.2008 kl. 00:31

40 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Djísös fokking kræst ... mér finnst raunhæfara að orða þetta svona

Finnst þér af umhverfisástæðum að erlendir eigendur ísl. ráðamanna ættu að nota baðmullarþráð í stað plastþráðs til að stýra leppum sínum.+

Og það skiptir mig ekki teljandi máli hvort hægt er að keyra hummer eða range rover um afturendann á þessu leppadrasli en kannsli er hægt að vera með skoðanakönnun um hvort þetta verði það útjaskað að jafnvel Boeing 747 eigi áfram greiða umferð um afturendann á fjármálaráðherrann og forsætisráðherrann.

Baldur Fjölnisson, 24.10.2008 kl. 00:39

41 Smámynd: Sævar Einarsson

Í ró og næði ? á hverjum degi sem líður brenna upp eigur okkar erlendis þökk sé Bretum, ef það er einhvertíman rétti tíminn til þess að íhuga úrsögn úr NATO þá er það núna ! það fengi NATO þjóðir með USA fremst í flokki til að berja Breta til hlýðni, það er mín skoðun og henni verður ekki haggað !

Sævar Einarsson, 24.10.2008 kl. 02:15

42 Smámynd: Sævar Einarsson

Einar Sigurbergur Arason ég smellti upp þessari könnunn hérna

Sævar Einarsson, 24.10.2008 kl. 02:26

43 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

Sævar - ég kíkti á hlekkinn þinn, ég sé ekki könnunina sem þú talar um. En svo það sé á hreinu þá var ég að tala um könnun sem virt og óháð fyrirtæki myndi vinna. Auðvitað væri hægt að spara fé á því að láta einhvern fjölmiðil byrja með þetta sem "spurningu dagsins" á vefnum, og fara út í vandaðri könnun aðeins ef ljóst væri að efasemdir um NATO færu stórlega vaxandi.

Þegar ég tala um að halda ró sinni, þá er mér full alvara. Ef þú ert að vinna á brunastað þá dugar ekkert fum. Snarræði getur bjargað miklu, en er eitthvað líkt með snarræði og óðagoti? Bara eitt - hraði og stress. Ef þú veist ekki hvað þú ert að gera, þá er hraði og stress ills viti. Það er einmitt þess vegna sem slökkviliðin gera í því að þjálfa sig, svo menn geti umhugsunarlítið brugðist rétt við í alvöruháska.

Þegar okkur er heitt í hamsi, þá er hætta á óðagoti. Við erum ekki eitthvað fullkomin, er það?

Við erum ekki þrautþjálfuð fyrir þessar aðstæður; ólíkt slökkviliðsmönnum sem koma að brennandi húsi. Flýtir og stress leiðir líklega til óðagots en ekki snarræðis. Með öðrum orðum: Við þurfum umræðuna fyrst. Ef við ætlum að vera með æsing, þá eru það skilaboð um að við þurfum lítið sem ekkert að ræða málin, niðurstaðan skal koma fyrst og svo má umræðan koma seinna þegar við erum komin úr NATO.

Mér eru það ekki trúarbrögð að Ísland eigi að fara úr NATO. Þegar við erum búin að segja okkur úr NATO, þá höfum við ekkert lengur að segja um hvað Bandaríkjamenn eða aðrar NATO-þjóðir gera í málunum á þeim vettvangi. Þess vegna segi ég: Ræðum þetta fyrst. Ísland var mun mikilvægara hernaðarlega á tímum Kalda stríðsins en það er nú. Það er því ekki öruggt að hótun nú um úrsögn virki.

Sem þýðir að áður en við ákveðum að hóta úrsögn úr NATO þá þurfum við að hafa fleiri forsendur á bak við slíka ákvörðun heldur en bara skyndiupphlaup vegna framkomu Breta. Við þurfum að vega og meta sem þjóð hvort við eigum heima í NATO eða ekki.

Hreinskilnislega sagt þá hef ég ekki gert þá spurningu upp við mig. Haldið þið góðir hálsar að almenningur í landinu hafi gert það?

Ef við látum aðgerðir okkar einkennast af upphlaupi, þá hámörkum við tjónið. En ef við látum festu og yfirvegun einkenna viðbrögðin, þá lágmörkum við skaðann. Hvort viljið þið?

Einar Sigurbergur Arason, 25.10.2008 kl. 03:47

44 Smámynd: Sævar Einarsson

Það er talað um að Ísland hafi verið prófsteinn á efnahagsbúkskap þjóðar, hvort þjóðin myndi standast það áhlaup eða ekki, svona nokkurskonar varnaðarorð til annarra ríkja um að stokka upp hjá sér ef illa fer hjá okkur. Íslendingar hafa verið misnotaðir á alþjóðavísu og þær þjóðir sem við héldum að væru okkar vinaþjóðir reyndust á ögurstund snúa við okkur baki og eða ráðast á okkar æru með smánar legum aðgerðum. Ég er sammála þér að fyrir mér eru það ekki trúarbrögð að Ísland eigi að fara úr NATO, en hvað höfum við að gera í þessu bandalagi þegar það virkar ekki ? Auðvitað áttu allir aðilar sem eru í NATO að bregðast við þessum aðgerðum Breta og benda þeim á að svona virki reglur hjá meðlimum NATO en var það gert ? ef það var gert þá hef ég ekki verið að fylgjast vel með. En ég segi það enn og aftur, að þetta útspil hjá Íslensku ríkisstjórninni burt séð frá þessu láni frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og það allt, þá mætti kannski bíða með þessa yfirlýsingu á meðan hjól efnahagslífsins fara að snúnast á nýjan leik og eðlileg gjaldeyrisviðskipti komast í lag, en þá væri það mjög sterkur leikur að íhuga að endurskoða þörfina á að vera í NATO. Ég er þess fullviss að Bandaríkjamenn myndu mislíka það mjög og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fá Íslenska ríkið ofan af þeirri hugmynd vegna þess að þá myndi opnast sá möguleiki fyrir t.d. Rússa að koma sér fyrir hér. Ég hef ekkert á móti Rússum, fínasta fólk, huggulegar stelpur, hávaxnar og orðnar skegglausar flestar, nema kannski Olga og Svetlana(grín síðan í denn um rússneskar konur í kúluvarpi), fínn vodki en kaffið afleitt og svo er þessi könnun hjá mér efst til vinstri á síðunni hjá mér

Sævar Einarsson, 25.10.2008 kl. 09:55

45 Smámynd: Sævar Einarsson

— ICELAND'S MOST WANTED —

GORDON BROWN
Wanted, alive and preferably in working order - for treason and severe plotting against the innocent Icelandic nation. Also wanted for sheep theft.
Tekið héðan 

Sævar Einarsson, 25.10.2008 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband