Bónusfáninn á þinghúsinu...

Var staddur á Austurvelli í gær þegar Bónusfáninn var dreginn að húni á þaki Alþingishússins. Þó svo að lögbrot við mótmælaaðgerðir heilli mig sjaldan þá sé ég enga ástæðu til að liggja á því að framtakið heillaði mig. Ég er ekki að prísa lögbrotið en öfugt við frekar karakterlaust eggjakast í veggi hússins þá var þetta gerningur með boðskap. Listræn mótmæli sem hvert okkar getur túlkað á sinn hátt og ég hef séð ýmsar tilraunir í þá veru hér á netinu.

- þingmenn eru svín og þessvegna er dreginn bónusfáni að húni

- þingið er afgreiðslubúð og þessvegna með búðarfána

- bónusfáninn er orustufáni og þá líklega byltingarmanna ef ég skil kollega minn í þinginu rétt...

Sú túlkun sem stendur upp úr er samt að þarna sé komin táknræn lýsing á því sem gerðist á Íslandi. Við létum útrásarvíkingana, Baugsmenn jafnt og aðra, ráðskast með landið, efnahag þess og framtíð barna okkar með gefa þessum drengjum algerlega lausan tauminn. Í raun og veru var ríkisvaldið undir hæl útrásarvíkinga árum saman og því fór sem fór. ´

Og ég leyfi mér að efast um að hægt sé að túlka þetta ástand sem snjallari hætti en einmitt því að draga Bónusfána að húni yfir þaki löggjafarvaldsins...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thee

Er ekki kominn tími aðgerða hjá ykkur sem sitja á þingi. Fólk er að tapa aleigu sinni ykkar vegna. Mín þrjú börn sem ekki eru fjárráða eru að fá milljóna skuldabréf frá ykkur ráðamönnum og embættismönnum vegna algjörs vanhæfis ykkar. Það eru komnar nýjar stjórnir í bankanna því hinar voru ekki hæfar en hvað um ykkur? Eruð þið hæfir?

Thee, 9.11.2008 kl. 12:24

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þessari skilgreiningu þinni er ég sammála Bjarni.. svona skildi ég þennan gjörning líka..

en afhverju eru alþingismenn svona hljóðir þessa dagana ? 

Óskar Þorkelsson, 9.11.2008 kl. 12:27

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Ég gat frekar skilið það þannig fyrst þjóðfáninn var dreginn niður og Bónusfáninn upp að Ísland sé í raun ekki lengur til.  Við erum Bónusland...

Axel Þór Kolbeinsson, 9.11.2008 kl. 12:30

4 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Já, kannski er hægt að segja það Axel Þór.  Komu ekki hingað til landsins einhverjir sem ætluðu að verlsa á brunaútsölu banka og annað hér?? 

Kannski er það í boði Bónus???

Ég held að við þurfum að fara að draga upp um okkur buxurnar og mótmæla og gera uppþot ef það er það eina sem dugar til að fá svör eða eitthvað gert. Ég er svo sem ekki að tala um bruna, brjóta glugga og kveikja í bílum, heldur láta heyra svo vel í okkur að ekki er hægt annað en að taka til við að hlusta á okkur og segja okkur hvað er í gangi.  Kannski krefjast nýrra kostninga?? 

Hvað væri hægt að gera til að mótmæla svo kröftuglega?? Leggja öll störf niður einn dag til að það hafi áhrif á samfélagið allt?? fara á bílum fyrir framan stjórnarráðið og flauta bílflautum? 

Hvað dettur okkur í hug, kannski að fara fyrir framan bæjarskrifstofur sveitafélaga í öllum sveitafélögum með mótmæli, tónleika. Leggja niður störf þann daginn til að allir geti verið með og til að ríkisstjórnin sjái að okkur er alvara. 

Ég er ekki að vonast eftir illdeilum, skemmdum og látum.  Meira svona í anda Gandi en hriðjuverka.

Hvernig ætli það yrði, ef enginn mætti í Bónus eða aðrar verslanir einn daginn, hvorki til að vinna eða versla?? Enginn mætti í póstinn til að flokka hann eða bera hann út??  Eða í skólana eða bara í hvaða starf sem er?? Enginn mætti einn daginn og allir væru saman á einum stað og funduðu.  Töluðu saman um hvað VIÐ viljum.

Kannski er þetta bara að bera út óhroða og leiðindi, en við Íslendingar verðum bara að gera eitthvað.  Eitthvað meira og annað en að sitja fyrir framan tölvuna og BLOGGA.  Koma með eitthvað sem skipitir máli og hefur áhrif. 

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 9.11.2008 kl. 12:52

5 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Kristín.

Þetta eru góðar hugmyndir hjá þér varðandi hvernig á að standa að mótmælum.  Hinsvegar vantar okkur að skerpa á mótmælunum, þ.e. hverju er verið að mótmæla.  Hvar liggur hnífurinn í kúnni?

Á meðan mótmæli snúast um það að "mótmæla ástandinu" þá á ég erfitt með að taka þátt.  Að mótmæla einhverju hálfskilgreindu ástandi er að mínu mati ekki nægilega sannfærandi.

Persónulega tel ég að góð byrjun væri að hætta viðskiptum við stóru bankanna og flytja viðskiptin yfir í sparisjóða sem hafa ekki haft bolmagn til að taka þátt í þeirri vitleysu sem stóru bankarnir gátu.

Einnig þurfum við að spyrja okkur sjálf hvort okkar hegðun hafi ekki átt á einhvern hátt ýtt undir hvernig málin þróuðust.  Nú er staðan t.d. þannig að nær allar matvöruverslanir landsins eru í eigu fárra aðilla.  Hvað varð um kaupmannin á horninu og litlu verslanirnar á landsbyggðinni sem voru í eigu sjálfstæðs fólks?  Afhverju eru hinar og þessa keðjur og stórmarkaðir að ganga af litlu verslununum dauðum?

Við þurfum nefninlega líka að skoða það hvernig við viljum að landið okkar sé.  Viljum við að fáir einstaklingar sitji að öllum auðnum?  Ef ekki, eigum við þá ekki að styðja við það sem er mótvægi þess, eins og litlar skjálfstæðar verslanir?

Ef ég gæti verslað annarstaðar en í Bónus þá myndi ég gera það, en gallinn er sá að í mínu bæjarfélagi dó sjálfstæð verslun þegar Bónus opnaði sína verslun, og fólk flykktist þangað til að versla.

Axel Þór Kolbeinsson, 9.11.2008 kl. 13:57

6 Smámynd: Thee

Axel

Óhæfar stofnanir sem áttu að fylgjast með. Hunsaðar aðvaranir, spilling stjórnmálamanna, lélegt upplýsingaflæði. Bankaráð aftur orðin pólitískir bitlingar. Einkavinavæðing, vinir og vandamenn ráðnir í störf. Gegndarlaus sóun á almannafé. Skætingur í stjórnmálamönnum þegar þeir eru spurðir frétta. Þeir koma ekki á almenna borgarafundi. Hugsanleg skuldabréf fyrir börnin okkar og þeirra börn. Tilraunir til einkavæðingar á undirstöðum samfélagsins.  Og það er hægt að telja lengi áfram.

Bjarni þú færð stóran plús fyrir að vera einn af þeim fáu í þinni stöðu sem hefur athugasemdakerfið opið.

Thee, 9.11.2008 kl. 14:21

7 identicon

Kannski er Bónus eitt besta dæmið um félag sem aldrei fór í útrás. Hélt sér eingöngu við Ísland. Verslun sem hugsaði vel um neytandann. Opnaði nýjar lágvöruverðsverslanir í hverjum kaupstaðnum af öðrum. Bætti þar með lífskjörin í hinum dreifðu byggðum landsins.

Hvað heldur þú Bjarni að heyrðist í sunnlendingum ef Bónus á Selfossi myndi verða að loka? Hefur þú aldrei velt því fyrir þér hvað Bónus hefur sparað kjósendum þínum og öðrum sunnlendingum mikla fjármuni?

Nú þegar við þurfum að hugsa vel um budduna þá er Bónus það fyrirtæki sem ætti að fá allan okkar stuðning.

Bjarni, skammastín!

RT (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 17:12

8 Smámynd: Óskar Þorkelsson

RT þekkir greinilega ekki sögu Bónus.. ekkert annað fyrirtæki á meiri sök á gjaldþrotum íslanskra iðnfyrirtækja úti á landi með skefjalausum kröfum um lægri og lægri verð eða innflutning ella.. svo var flutt inn líka í beinni samkeppni við íslenska framleiðendur sem gátu ekki með nokkru móti keppt við þessi niðurgreiddu verð að utan.. hvað ætli mörg fyrirtæki á suðurlandi hafi farið á hausinn vegna þessa ? 

Óskar Þorkelsson, 9.11.2008 kl. 17:55

9 Smámynd: Theódór Norðkvist

RT hlýtur að vera að grínast. Veit hann/hún ekki hver á Bónus? Skyldu peningarnir sem voru settir í að slátra fjölmiðlafrelsi á landinu hafa komið úr veltu Bónusverslananna?

En ég vil koma eftirfarandi skilaboðum til Bjarna og hvetja hann til að beita sér, þar sem hann er með hreinna borð sem nýr þingmaður en flestir samflokksmenn hans á þingi:

Staðan.

  • Þjóðargjaldþrot.
  • Verðlaus gjaldmiðill.
  • Tugþúsunda atvinnuleysi í uppsiglingu.
  • Hætta á 30-40 þúsund manna fólksflótta úr landi. Ríkissjóður verður af tug milljarða skatttekjum, fyrir utan allt annað.
  • Ungt fólk sem hefur lokið eða er að ljúka námi mun ekki setjast að hér þegar það sér fram á skuldsetningu fram á grafarbakkann og rýrari lífskjör.
  • Hætta á verri óeirðum en í gær.
  • Aukin glæpatíðni vegna fátæktar og basls.
  • Hætta á að auðlindir landsins lendi í höndum erlendra lánardrottna gömlu bankanna.

Verkefnin eru næg.

Theódór Norðkvist, 9.11.2008 kl. 17:57

10 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Ég er ánægð með að sjá undirtektir við umræðu mína og langar til að hnekkja á því sem ég vil ná fram.  Ég vil fá nýja ríkisstjórn og ef við getum ekki krafist þess með samstöðu hvers annars, þá  erum við linasta þjóð sem upphefur verið.  Hvar er VÉR MÓTMÆLUM ALLIR???? Við þurfum þannig mótmæli. Látum barna börn okkar ekki lesa um það í sögutíma sem þau læra á ensku eða einhverju öðru tungumáli, að við gáfumst upp, þegar forfeður okkar héldu á spöðunum og fóru til Danaveldis til þess að koma sjálfstæðinu í höfn.

Ég fer ekki af því, við þurfum að mótmæla stjórnvöldum sem virðast vera að selja sál sína. Hverjum, veit ég ekki en ég veit það að við erum með í kaupunum.  Ef ekki fer eitthvað að skýrast betur kem ég til með að leggja harðar að því að við hjónin með 3börn flytjum af landi brott.  Ég er bara ekki tilbúin að yfirgefa landið strax, því ég veit að VIÐ sem þjóð getum staðið saman. 

Ég er ekki með fleiri ráð til að mótmæla, en mér líst vel á þá hugmynd að við öll förum til Sparisjóðanna og leggjum fé okkar þangað inn. 

Sjálf hef ég verið hjá Sparisjóð Mýrarsýslu síðan ég var krakki. Það er ekkert sem getur fengið mig til að skipta um banka.  En það var samt nálægt því í vetur, þegar KB-banki keypti hluta í SPM. 

En ég er fegin að það glæpafyrirtæki hélt eignaréttinum ekki lengi.  Ég hef aldrei verið hrifin af því fyrirtækinu, þar sem mér fannst þeir vera gráðugir og falskir.  Þeir voru ekki til að hjálpa þeim sem þurftu á því að halda og margir fóru illa út úr viðskiptum við þá. 

Á meðan ég hélt trausti mínu við SPM og er að fá mjög góða þjónust og hef fengið síðan ég man eftir mér.  Þar er persónan höfð í fyrir rúmi en ekki hversu ríkur þú ert.  Auðvitað þurfa allir bankar pening, en sumir hugsa um að halda lítilmagnanum á floti og hjálpa honum.

Þannig hefur SPM alla vega hugsað um mig. 

Nei, það er ekki hægt að hætta að versla í Bónus þar sem fjárhagur fjölskyldunnar er minkandi en við verðum að gera þá eitthvað annað.  Til að þeir fái að finna fyrir því líka.

Jú, þetta er rétt, Bónus hefur verið erfiður við fyrirtæki og er ennþá í dag.  Ég bý nú á Flúðum þar sem garðyrkja er aðal búgreinin og eru þeir margir í þumalskrúfu Baugsfeðga og meiga ekki heyra þá nefnda þá æsast þeir upp reiðir og pirraðir. 

Vð erum líklega ennþá að láta kúga okkur, en á annan hátt en Danirnir gerðu.  Það er hart að okkar eigin landar skulu fara þannig með samlanda sína.

Svo ég vitni nú aftur í Íslandssögu, þá hefði Egill Skallagrímsson ekki unað við ef Íslendingur hefði ætlað að kúga hann og koma honum um koll.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 9.11.2008 kl. 18:30

11 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

RT ætti bara að skoða söguna:

http://www.baugurgroup.is/Um-Baug-Group/Saga

Axel Þór Kolbeinsson, 9.11.2008 kl. 18:33

12 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Kristín, mér þykir leitt að segja þér það að Borgarbyggð samþykkti að selja SPM til Nýja Kaupings.

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/11/07/nyi_kaupthing_banki_kaupir_stofnfe_sparisjods_myras/

Axel Þór Kolbeinsson, 9.11.2008 kl. 18:36

13 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Já, ég veit það og ég var ekki hress með það.  Það var og er í eina skiptið sem mér datt það í hug að færa mig yfir í annan Sparisjóð.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 9.11.2008 kl. 18:40

14 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

En mig langar til að setja svolítið hérna inn sem ég var að fá í tölvupósti.  Ég myndi setja það inn á mína síðu en ég get ekki sett neitt inn á hana eins og er, það er eitthvað að tölvunni hjá mér. En þetta er málið:

Skilgreining á mismunandi fjármálakerfum og þjóðum - svo þú skiljir loks....:

  > Sósíalismi
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra
  >
  > Kommúnismi
  > Þú átt 2 kýr
  > Ríkið tekur báðar og gefur þér mjólk
  >
  > Fasismi
  > Þú átt tvær kýr
  > Ríkið tekur báðar og selur þér mjólk
  >
  > Nasismi
  > Þú átt 2 kýr
  > Ríkið tekur þær báðar og skýtur þig svo
  >
  > Skrifræði
  > Þú átt 2 kýr
  > Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo
  > niður mjólkinni
  >
  > Hefðbundinn kapitalismi
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú
  > hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein.
  >
  > Súrrelaismi
  > Þú átt tvo gíraffa
  > Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám
  >
  > Bandaríska fyrirtækið
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar
  > kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komasat að því hvers vegna hún datt
  > niður dauð
  >
  >
  >
  > ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði, með veði í
  > gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á
  > markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar til baka og skattaívilnanir vegna
  > einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki
  > í Karibahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur
  > réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með
  > eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til að þóknast
  > ónefndum stjórnmálamanni og átt þá 9 kýr. Rétturinn að nautinu er seldur
  > almenningi í hlutafjárútboði.
  >
  >
  > Franskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð... vegna þess að
  > þú vilt eiga þrjár kýr
  >
  > Japanskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða
  > tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju
  > "Kúman", sem nær vinsældum um allan heim.
  >
  > Þýskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í hundrað ár, éta einu sinni í
  > mánuði og mjólka sig sjálfar
  >
  > Ítalskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
  >
  > Rússneskt fyrirtæki
  > Þú átta 2 kýr
  > Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr
  > Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr
  > Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr Þú hættir að
  > telja og opnar aðra vodkaflösku
  >
  > Svissneskt fyrirtæki
  > þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun. Þú rukkar eigendurna
  > fyrir geymsluna
  >
  > Kínverskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og
  > blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttamanninn sem sagði frá stöðunni
  > eins og hún er í raun og veru.
  >
  > Indverskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Þú tilbiður þær
  >
  > Breskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Báðar eru með gin- og klaufaveiki
  >
  > Ástralskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Bissnessinn gengur vel
  > Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það
  >
  > Ný-Sjálenskt fyrirtæki
  > Þú átt 2 kýr
  > Sú til vinstri er asskoti löguleg
  >
  > Írakst fyrirtæki
  > Allir virðast eiga fjölda kúa
  > Þú segir öllum að þú eigir enga
  > Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast svo inn í landið ´
  >
  > Að lokum
  > Þú átt engar kýr, en býrð að minnsta kosti í lýðveldi?!
  >
  > Sent af hlýhug - til upplýsinga og skýringa á heimsmálum. Til hamingju með
  > að veröldin skuli ekki þurfa að hafa hrætt, óupplýst, greindarrýrt og
  > árásargjarnt leikskólabarn mikið lengur í Hvíta húsinu!

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 9.11.2008 kl. 18:41

15 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Já, ég skil.  Þetta vissi ég ekki (Var að skoða fréttina).  Umræðan var sú að Borgarbyggð ætlaði að kaupa þann hluta sem KB- banki átti.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 9.11.2008 kl. 18:44

16 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Egg og skyr hafa aldrei skaðað neinn að ráði!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 9.11.2008 kl. 21:55

17 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Leikið ykkur ekki að eldinum þið getið misst stjórn á honum og eftir því sem fleiri fikta við hann er hættan meiri og ég spái því ef þið mótmælendur farið ekki að kæla ykkur þá fuðrar eldurinn og enginn ræður við hann og þá verður annað áfall sem ekki má gerast við búum í siðlent

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 9.11.2008 kl. 22:08

18 Smámynd: Ingvar

Bónusfáninn er tákn um vinnubrögð Baugsfeðga. Það er nefnilega ekki alveg rétt að þeir hafi orðið ríkir á því að selja vörur ódýrt. Þeir hafa oftast knúið birgja í verðum, lofað þeim miklum viðskiptum og síðan notað fyrsta tækifæri til þess að stinga þá í bakið með því að versla við aðra eða flytja vörurnar sjálfir inn. Baugur á nefnilega Aföng sem er stærsta heldverslun landsins. Fjöldi innlendra framleiðenda hafa farið í þrot eftir viskipi við Bónus. Nefni sem dæmi. SÖ kjötvörur, Remax kjötvörur, Kjötvinslan Höfn,Borganes kjötvörur, Nýbrauð, Samsölubrauð, Ferskar kjötvörur, Meleyri, Kaupfélag Vopnafjarðar svo nokkur séu nefnd.

Baugur var í viðskptum við alla bankanna og þeir eru farnir og baugur er með viðskipti við Íslenska ríkið og það er stutt í að það fari á hausinn.

Ríkisbankarnir verð að losa sig við skuldir og hlutabréf í fyrirtækjum Baugs hið fyrsta.

Kv

Ingvar

Ingvar, 9.11.2008 kl. 22:25

19 Smámynd: Óskar Þorkelsson

góða samantekt hjá þér Ingvar en ekki tæmandi.. því fyrirtækin eru svo mörg að það væri til að æra óstöðugan ef hann ætti að muna það allt.. 

Grænmetisbændur.. kartöflubændur td..  

Óskar Þorkelsson, 9.11.2008 kl. 22:29

20 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Já, ég hef sagt það.  Þessi fyrirtæki fengu að finna fyrir þumalskrúfu Baugsfeðga.  Ég er nú Borgnesingur, þó svo ég búi á Flúðum.  Mamma mín vann við að framleiða Borgarnes-Pizzur.  Baugsfeðgar vildu fá Pizzuna svo ódýrt að fyrirtækið sem þá var Mjólkursamlagið, hefði þurft að borga með sér til að koma þeim í sölu í Bónus.

Bara svona til að halda áfram að æsa æstan múginn

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 9.11.2008 kl. 22:37

21 identicon

Mér finnst það augljóst að Bónusflaggið sé skírskotun til athugasemda Ragnheiðar Ríkarðsd. og fl. um að þingmenn séu áhrifalausir og séu í raun eins og afgreiðslufólk á kassa. Undrast oft dómgreindarleysi Alþingismanna.

Bjarni Kristjánsson (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 23:12

22 identicon

Ólafur Ragnar dró Bónusfánann að húni á Alþingishúsinu þegar hann tók völdin af þingmönnum að ósk Bónusfeðga.  Fáninn hefur bara ekki verið sýnilegur þar fyrr en nú.  Gjörningurinn um helgina var ekki táknrænn, bara staðfesting gamalli athöfn.

Högni Högnason (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 08:38

23 identicon

Bjarni,

Ég var líka niðri í bæ að mótmæla. Fannst líka meinfyndið að sjá Bónusfánann dreginn að húni. Sá svo að eitthvað var á seyði bak við Alþingishúsið og gekk þangað.  Það sem ég sá vakti athygli mína.

Fánamaðurinn sat upp á þaki með andlitið hulið, en stigann vantaði hálfa leið. Tveir lögreglumenn, Geir Jón og aðstoðarmaður virkuðu ráðvilltir.  Vegna þess að fánamaðurinn komst ekki niður myndaðist umsetursástand og mikil reiði magnaðist hjá þeim sem fylgdust með.

Þetta voru greinilega mistök hjá löggunni, þeir hefðu þurft að tryggja að fánamaðurinn kæmist niður strax, áður en  allt náði suðupunkti. Dramanu lauk svo með því að borgarar tóku stigann af löggunni og hjálpuðu manninum niður. Hann strauk síðan.

Fánamaðurinn ber hinsvegar nokkra sök. Með því að bera grímu og strjúka svo af vettvangi breytti hann borgaralegri óhlýðni í hrekk. Það að flagga bónusfánanum á Alþingishúsinu er hnyttin yfirlýsing og eftir slíkan gjörning eiga menn að láta lögregluna taka sig. Það er einmitt mergurinn málsins í borgaralegri óhlýðni. Menn eiga að ganga hnarreistir og stoltir í fang lögreglunnar, eins og sá sem veit að réttlætið er hans megin.

(Það er ekki eins og hann hafi þurft að óttast dóm) .

Niðurstaða mín er löggan-0, fánamaður-0. Báðir klikkuðu.  

Það vantaði bara Ómar Ragnarsson (sem var að mótmæla á Austurvelli) til að koma og syngja: "Komdu niður - komdu niður, ...."

H.

Halldór (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 09:11

24 identicon

Bíddu hægur, ert þú ekki alþingismaður? Ég á bara ekki til eitt einasta orð. Fannst þér það heilla þig að Bónusfáninn var dreginn að húni á alþingishúsinu, er ekki í lagi heima hjá þér? Ég finn flórlyktina af þér í gegnum lyklaborðið hjá mér svo mikill er daunninn, þú ert nú meira fjósið.

Óskar Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 09:24

25 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Já, Bjarni, það er slæmt þegar fólk fer að finna flórlykt í gegnum lyklaborðið.  Ég held að það sé kominn tími til að þrífa hjá sér.  Nei, Bjarni það er sama hvort maður er þingmaður eða lögmaður eða fjósamaður, fólk hefur sínar skoðanir og tilfinningar.  Meira að segja lögmenn brjóta lögin af hverju má þingmaður ekki sjá eitthvað táknrænt út úr því að setja Bónusfánann að húni Alþingis?

Það er ekki eins og ríkisstjórnin sem heilög, en mér þykir þó Alþingi vera það sem stofnun.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 10.11.2008 kl. 09:33

26 Smámynd: Baldvin Kristjánsson

já, blessuð sé minning heildsalanna, kaupfélagsins og kaupmannsins á horninu (sem verslaði við heildsalana).

Hefur enginn ykkar, sem gerið athsemdir við Bónus, gert sér grein fyrir því að fyrirtæki eiga að halda niðri kostnaði, með öllum ráðum. Að öðrum kosti verður allt jafn fáránlega brenglað og það var á Íslandi fram undir 1990. Drullulélegar pizzur og marinerað svínakjöt á grillið eins og kom úr borgarnesi, skyr eins og það var í kaupfélaginu fram undir 1985 og bráðum fáum við Álafoss úlpurnar til baka.

Fyrirtæki eiga að halda niðri kostnaði með öllum tiltækum ráðum. Fólk á að mennta sig og gera kröfur til hagkvæmni og gæða. En ráða svo sjálft hvar það notar peningana sína og vera virkt í upplýstu samfélagi. Ef þið viljið búa á Ströndum, eigið þið rétt á því en um leið eigið þið ekki rétt á að ríkið hlaupi undir bagga og opni sjúkrahús á staðnum.

Fólk á líka að bera ábyrgð á sínum hlut í þessu rugli, hér hefur allt flotið í efnahagslegu sukki, lýðræðið orðið að velmegunarsjúkdómi og landinn orðinn spikfeitur af vínberjunum. Minnir orðið á sögurnar af Rómarbúum.

Hverja kaus meirihluti þjóðarinnar í síðustu 5 kosningum - og á hvaða forsendum?

Baldvin Kristjánsson, 10.11.2008 kl. 11:57

27 Smámynd: Marinó Óskar Gíslason

Ég get ekki séð að um lögbrot sé að ræða. Þjóðin á þetta hús og menn voru bara að flagga á sínu eigin hús. Þessir pótentátar sem þar húka innan húss eiga engan einkarétt á því.

Marinó Óskar Gíslason, 10.11.2008 kl. 11:58

28 Smámynd: Baldvin Kristjánsson

Sæll Bjarni

Ert þú til í að upplýsa hvernig þér hefur orðið ágengt við að fá bókhald stjórnmálaflokkanna upp á borðið?

með kveðju frá Grænlandi

Baldvin Kristjánsson, 10.11.2008 kl. 12:56

29 identicon

Bjarni, þú hefur stöðugt vaxið í áliti hjá mér fyrir skeleggar skoðanir og tjáningu þína, en nú lentirðu á slöngu í slönguspilinu mikla og fórst niður um nokkra reiti. Hvernig getur alþingismaður verið sammála eggjakasti og saurgun á Alþingishúsið? Dómari á Hæstarétt? Ráðherra á Stjórnarráðið? Yfirmaður í lögreglunni á hús lögreglunnar? Af því að þetta var „gerningur með boðskap“ og „Listræn mótmæli“!

Það gildir einu hve örvæntingafullt fólk er vegna ástandsins, alþingismaður á ekki að hvetja til atlögu að eigin löggjafarstofnun, sem einmitt semur lög sem fara á eftir til þess að hindra þá ólöglegu gjörninga sem þú leggur blessun þína yfir. Hvatning til skrílsláta bætir ekki samfélagið.

Börnum voru rétt eggin til þess að kasta á ráðandi öfl, hverskonar fyrirmynd er það? Fimm ára frændi minn átti víst líka að kasta en þau þáðu ekki eggin sem dreift var.

Getur þú ekki samið við eggjabændur um ódýr fúlegg til þess að grýta vinnustað þinn í lístrænu samþykki þínu?

Ívar Pálsson (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 14:59

30 Smámynd: Bjarni Harðarson

takk fyrir mjög góða umræðu. ég vil leiðrétta að ég hafi lagt blessan mína yfir eggjakast eða önnur lögbrot,- það geri ég ekki, lestu aftur ívar. já og varðandi bókhald stjórnmálaflokkanna þá er það hvað framsókn varðar nú allt uppi á borðinu og ég hygg að eftir lagabreytingar seint á síðasta kjörtímabili séu möguleikar flokkanna til pukurs í þessum efnum minni engir. hvað varðar eldri reikninga,- þar get ég alveg viðurkennt að flokkarnir mega gera hreint fyrir sínum dyrum og styð kröfur um að þeir geri það.

Bjarni Harðarson, 10.11.2008 kl. 16:53

31 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Að sjálfsögðu skipta aðferðir mótmælenda máli.  Það sem skiptir þó almestu máli er þó sá boðskapur sem mótmælendur vilja koma á framfæri.

Varðandi einangrun og þögn þingsins hefði ég haldið að það væri vandamál þingmanna sjálfra.  Það er jú einn af veigamestu þáttunum í mótmælum fólks - aðgerðarleysi löggjafar- og fjárveitingavaldsins.

Ég t.a.m. var að mótmæla því að ný löggjöf standi fyrir dyrum um lögboðna tekjuskiptingu.  Atvinnuleysisbætur verða tekjutengdar.  Það fólk sem hefur haft tekjur undir 315.000 krónur fær 220.000 í atvinnuleysisbætur fyrstu 3 mánuðina.  Hinir sem hafa haft laun undir 220.000 krónur fá  158.000 kr. í atvinnuleysisbætur.

Suðurland er eitt af láglaunasvæðunum og þar afar margir á launum undir 220.000 krónum á mánuði og fá því 158.000 í atvinnuleysisbætur.

Kannski var fólk að mótmæla því að þingmönnum þess, sem það trúði og treysti fyrir sínu, skuli ekki standa sig í vinnunni. 

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 10.11.2008 kl. 21:05

32 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sammála þér Bjarni. Með því að merkja Alþingi sem hóru auðvaldsins tókst þessum piltum að koma nákvæmlega réttu skilaboðunum á framfæri. Þetta var "borgaraleg óhlýðni" af bestu sort, þ.e. án ofbeldis eða skemmdarverka beinlínis. Og húmor í lagi!

Guðmundur Ásgeirsson, 11.11.2008 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband