Afi sem var 'á mat' á Ormsstöðum

bjarnisaem.jpgÍ kreppunni miklu um 1930 vann Bjarni Sæmundsson afi minn sumarpart við brúargerð í Grímsnesinu með mági sínum Jóni Dagssyni brúarsmið. Þeir smíðuðu brú yfir þar sem heitir held ég Grjótá skammt frá Eyvík og voru þar í vist meðan á brúarsmíði stóð.

Þetta var í miklu atvinnuleysi og brúarsmíði kærkomin vinna fyrir fátæka menn. Hvort það var í beinu framhaldi eða með smá útúrdúrum lífsins að þá var afi atvinnulaus rétt seinna en fékk þá að „vera á mat" milli sláttar og vertíðar hjá góðu fólki á Ormsstöðum sem er bær rétt undir Hestfjalli.

Að vera á mat merkti einfaldlega að hann vann kauplaust en fékk mat og húsaskjól þennan tíma. Það er innan við öld síðan þetta var en stór hluti heimsins býr enn við fátækt og öryggisleysi sambærilegt því sem mætti afa mínum þetta síðsumar, líklega árið 1932. Nú er aftur kreppa á Íslandi og atvinnuleysi. Það ríður á að velferðarkerfið okkar haldi þannig að fátækir og atvinnulausir Íslendingar þurfi ekki að selja vinnu sína slíku verði sem algengt var fyrir tæpum 80 árum.

Þó að þetta sé blogg um afa minn er það ekki síður um pólitík - sem er raunar langt því frá að vera andlausari eða ómerkilegri en ýmsar aðrar tíkur og bráðnauðsynleg núna á ögurtímum.

(Söguna sagði mér Emma Kolbeinsdóttir úti í Bónus í Hveragerði núna áðan. Emma er fædd í Eyvík árið 1923 og býr þar. Myndin er af Bjarna afa sem hafði mig í miklu uppáhaldi en hann dó 1973, gamlaður mjög en þó ekki nema sjötugur að aldri.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: HP Foss

...og er þá líklega systir Önnnu Kolbeinsdóttur, en hún var gift Sigurði Pálssyni, vörubílsstjóra í Reykjavík, sem var fæddur og uppalinn á Seljalandi í Fljótshverfi, sonur Páls Bjarnasonar sem var bróðir Helga Bjarnasonar á Núpum en hún Magga amma mín er einmitt dóttir þess Helga á Núpum. 

Já, svona er þetta nú, Anna er afar viðræðugóð og ættfróð kona sem ég kynntist í seinni tíð, bakar góðar pönnukökur og gott brauð.

Ég hef taugar til Eyvíkur, bara í gegnum Önnu en hef þó ekki komið þangað.

Kveðja- Helgi

HP Foss, 5.3.2009 kl. 16:41

2 Smámynd: Bjarni Harðarson

... og það er sama Bjarnanafnið hjá afa hennar ömmu þinnar og okkur Bjarna afa sem sagt er frá hér að ofan en Bjarni faðir Páls og Helga bjó á Keldunúpi og var Bjarnason Bjarnasonar sem var þriðji maður frá Jóni Bjarnasyni á Núpsstað en hann var langafi Steinunnar á Steinsmýri (hún var nefnilega dóttir Bjarna sáttamanns í Skaftafelli) en sonur Steinunnar þeirrar var Bjarni í Garðsauka afi Bjarna Sæmundssonar afa míns svo þetta eru ekki nema 8 liðir og alltaf þessir Skaftfellsku Bjarnar í stóru hlutverki. Jú, það verður að játast að ættfræði er skemmtilegri en pólitík. Kær kv. frændi!

Bjarni Harðarson, 5.3.2009 kl. 17:10

3 identicon

Nú kíki ég á islendingabok Bjarni. Svona sögur eru hverra krónu virði. Og gáðu að því hvað þetta er stutt síðan.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 07:24

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hlakka til þess að lesa meira af þessu tagi frá þér, Bjarni (þykist hafa loforð), en endilega vertu fyrstu upptekinn í því sem þú ert að gera.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 6.3.2009 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband