ESB sinnar nota sér öngþveiti

Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri grænir og Framsóknarflokkur hafa allir á einhverjum tímapunkti haldið fram þeirri stefnu að bera ætti mögulega aðildarumsókn undir þjóðaratkvæði áður en ráðist yrði í að leggja aðildarumsókn fram. Þá hefur Borgarahreyfingin á stefnuskrá sinni að auka beint og milliliðalaust lýðræði.


Jafnfram er ljóst að um árabil hafa þeir sem harðastir eru gegn aðild að ESB barist gegn því að setja málið á dagskrá með þjóðaratkvæði um aðildarumsókn. Það réttlætir ekki að tillaga um aðildarumsókn skuli nú lögð fram án aðkomu þjóðarinnar.

Í því öngþveiti sem nú ríkir í íslenskum stjórnmálum hafa nokkrir af áköfustu ESB talsmönnum þjóðarinnar sætt því færi að halda fram nauðsyn þess að leggja aðildarumsókn fram í flýti en jafnvel þó leggja ætti umsókn fram á þessu ári er vel tími til að leyfa þjóðinni að segja hér álit sitt í almennri atkvæðagreiðslu. Raunar er vafamál að slík atkvæðagreiðsla taki lengri tíma en það annars tekur Alþingi að afgreiða þingsályktun um aðildarumsókn. Þau rök að ekki gefist hér tími til að efna loforð um beint lýðræði í þessu veigamikla máli halda því ekki við nánari skoðun. Þá hafa komið fram þau rök að ekki liggi fyrir nægilegar upplýsingar til að þjóðin geti tekið afstöðu en slík rök hlytu þá jafnt að eiga við um atkvæðagreiðslu þá sem framundan er á hinu háttvirta Alþingi. Staðreyndir málsins eru að enginn getur greitt atkvæði með aðildarumsókn nema hjá hinum sama sé nokkur vilji til að Ísland renni saman við ESB og fyrir slíkri atkvæðagreiðslu liggja nægilegar upplýsingar.


Engin nauðsyn er að gefa kosningum um aðildarumsókn langan frest kosningabaráttu enda ekkert mál hlotið viðlíka umfjöllun á liðnum árum.

Miklu skiptir í þessu sambandi að umsókn um aðild að ESB gengur þvert gegn meginreglum og stefnu Stjórnarskrár lýðveldisins. Því er mikilvægt að Alþingi stígi ekki slíkt skref án þess að hafa annað tveggja breytt Stjórnarskránni með lögformlegum hætti eða hafi tryggan meirihluta landsmanna að baki sér áður en farið er í aðildarviðræður.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband