Bloggfćrslur mánađarins, febrúar 2012

Multan escort service

escort- Ţú mátt ekki vera hér og alls ekki einn á ferđ. Mjög hćttulegt.

Lögreglan sem tók á móti mér hér í Multan var kurteis og almennileg en frekar ţreytandi. Svona eins og lögreglur viđ skyldustörf eru. Eftir tvćr nćtur í ţessum smábć í miđju landinu var einfaldlega beđinn um ađ fara. Ekki vegna ţess ađ ég hefđi gert neitt af mér heldur vegna gruns um ađ síđustu tveimur evrópumönnum sem hingađ komu hafđi veriđ rćnt af Islamistum. Og ég er á förum!

 Frásagnir um mannránin eru reyndar frekar óljósar og misvísandi en um ţetta hafđi ég ekki hugmynd ţegar ég keypti lestarmiđann í Lahore síđasta sunnudag. Taldi reyndar ađ Multan vćri einmitt fjćr óróasvćđum en margir stađir ađrir.

En ţađ var ekki allt búiđ. Fyrir nú utan ađ svćđiđ vćri stórhćttulegt ađ mati lögreglunnar ţá var ég snarólöglegur í landinu ţar sem ekki var nein vegabréfsáritun í íslenska vegabréfinu. Ţađ var ekki fyrr en ég gúgglađi fyrir ţeim alţjóđlega síđu um vegabréfsáritanir sem sýndi ađ ţađ vćri ekki mín prívathugmynd ađ ég ţyrfti ekki vegabréfsáritun. Ţá loksins fóru mennirnir og ég gat hallađ mér enda klukkan orđin hálfeitt ađ nóttu. multan1

En ţeir voru samt ekki alveg ánćgđir og vildu fá stađfestingu á ţessu frá íslenskum yfirvöldum (!) svo ég skrifađi utanríkisráđuneytinu heima en ţađ hefur allavega ekki enn svarađ, tveimur dögum síđar. Lögreglan hér skilur ekki svona seinagang en ég sagđi ţeim ađ ég ţekkti ţetta, hefđi unniđ í ráđuneyti.

multan2Ţessa ţrjá daga hér í Multan hef ég haft "escort" ţjónustu Pakistanska hersins međ mér hvert sem ég fer og ekki fćrri en ţrjá viđ hóteliđ mitt. Síđdegis í gćr var ég svo settur í stofufangelsi, mátti ekki fara útaf hótellóđinni, hvorki ţá né í morgun og međ harmkvćlum ađ ég mćtti svo kaupa mér lestarmiđa út úr bćnum. stofufangelsi_multan

Svolítiđ fyndin og einkennileg lífsreynsla, einkanlega ţar sem flest bendir til ađ hiđ meinta mannrán hafi ekki veriđ annađ en strok tveggja ferđamanna undan ţeim leiđindum ađ vera escortađir. En ég ákvađ ađ vera stilltur! (Surprise, surprise).

Ţessi smábćr (4 millj. íbúa ađeins) hefđi viđ ađrar ađstćđur verđskuldađ lengra stopp, sérstaklega fyrir Flóamann. Ţetta er eiginlega hálfgerđur Selfoss, veđur ákjósanlegt og bćjarbúar vinsamlegir.

Neđsta myndin sýnir hóteliđ ţar sem ég dvaldi, sú efsta escort drenginn minn, hinar götulíf.


« Fyrri síđa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband