Fáum við ESB útaf borðinu!?

Fjölmargir ESB andstæðingar hafa kokgleypt þá hugmynd að með einföldum aðildarviðræðum við ESB og síðan kosningum þar sem þjóðin hafnar aðild séum við að vinna pólitískri umræðu í landinu þann ómetanlega greiða að fá málið út af borðinu.

Gegn þessu eru óteljandi rök:

- ESB er aldrei út af borðinu, það er ekki reynsla Norðmanna þar sem ESB-sinnar eru sífellt að efna til ófriðar um málið þó kosið hafi verið tvisvar og sama er að segja úr Svíaveldi þar sem naumur meirihluti ESB-sinna sigraði aðildarkosningar.  Fullveldisbarátta smáþjóða er eins og mannréttindabarátta og önnur pólitík ævarandi barátta við heimsku og fordóma.

- Við getum ekki farið í aðildarviðræður nema meirihluti þings og ríkisstjórnin vilji í aðild. 

- Við getum ekki reiknað með að kosning um aðildarsamning verði kosning um aðild eða óbreytt ástand. ESB er ófeimið við að beita þrýstingi og því miður vafamál að Ísland hafi samningsstöðu til að segja nei ef landið sest að samningaborði. Við getum með aðildarumsókn hrint af stað atburðarás sem stórskaðar okkar samninga við ESB löndin eins og þeir eru í dag - og eru samt ekki of góðir.

-  ESB yfirráðastefnan er landvinningastríð. Ísland er gómsætur biti með auðlindir á við milljónaþjóð og skuldir sem eru ekkert miðað við auðlindirnar. ESB mun búa til "tilboð" sem er ekki hægt að hafna og taka það svo allt til baka á næstu árum þegar ríkjabandalagið þróast yfir í ríki! 

- Ísland getur hæglega breyst í afskekktan útkjálka. Öll hagkerfi hafa tilhneigingu til að draga fé, fólk og völd að einum miðlægum punkti. ESB er þar engin undantekning og sá miðpunktur verður álíka fjarlægur Raufarhöfn og Reykjavík...

 


Helgakver er í undirbúningi

 

helgi_ivarsson_sh



Sunnlenska bókaútgáfan undirbýr nú útgáfu á Helgakveri, bók sem hefur að geyma brot af því besta úr skrifum Helga Ívarssonar í Hólum í Stokkseyrarhreppi (1929-2009).

Helgi var með merkustu fræðimönnum Árnesinga og eftir að hann hætti búskap ritaði hann reglulega pistla í Sunnlenska fréttablaðið undir dálkaheitinu Sagnabrot. Sagnabrot Helga urðu á þriðja hundraðinu en í bókinni verður aðeins birtur hluti þeirra.

Áætlaður útgáfutími er komandi haust. Fremst í Helgakveri verður birtur listi yfir þá sem vilja votta Helga virðingu sína með því að gerast áskrifendur að bókinni. Fyrir nafnbirtingu greiða áskrifendur 3300 krónur. Hægt er að skrá sig í tölvupósti bokakaffid@sunnlenska.is eða beint í athugasemdakerfi hér að neðan.


Mynd af fátækt og ríkidæmi

kiddi_setta_kristbjorg_sjana.jpg

 

 

 

Á degi eins og þessum þegar  hvur maður á síns föður að hefna á versunni og má varla milli sjá af hvoru er meira heimskunni eða rigningunni er langsamlega best og skemmtilegast að blogga um langömmu sína sem stendur hér eins og bedvínaforingi í hópi síns fólks austur á Fáskrúðsfirði fyrir meira en hálfri öld síðan og kerlingarnar báðar tvær í stóískri ró þess sem vel veit að þetta fer einhvernveginn og ef illa þá allavega ekki verr en það en Kiddi frændi lítur prakkaralega framan í veröldina eins og það sé hann sem hafi laumast til að kroppa ofan í miðbikið á myndinni þannig að nú sér enginn hvað Kristbjörg systir hans er að hugsa þennan dag og týnt það andlitið sem fríðast var í þessu litla samkvæmi enda stúlkan sú kannski of skynsöm til að vera nokkuð að bæta hugsunum inn í þessa mynd sem kemur til okkar nú á tímum þegar menn hafa hugsað í hringi og halda að við séum fátæk í ríkidæminu rétt eins og þessar konur sem vissu sig ríkar í fátæktinni en samt voru þær báðar, Sjana hans Sjönu Björns sem er hér til hægri og langamma mín Setta allra kerlinga fátækastar í litlu fátæku plássi og máttu stundum éta slepjað saltket á útmánuðum en vonda soðningu um sumarmál og enginn kvartaði


Umskipti Steingríms Joð og það sem er utan ramma

Gamlar konur í Þistilfirði sögðu forðum þær sögur af umskiptingum að yfirleitt væru karlbörn úr þeirri hættu að um þau væri skipt af vondu álfafólki þá þau hafi verið blessuð og tekið tennur.

Ástæðan var sú að álfkonur þær sem stálu börnum þessum létu í staðin tannlausa gamla karla sem þær hnoðuðu saman ofan í barnsvögguna og því varð barnið sem tekið var að vera tannlaust einnegin. Í sögum þessum liggur sú speki að erfiðara sé að hnoða saman í barnsvöggu karli sem tenntur er en hinn sem engar hefur. Ekki þarf að taka fram að kvenbörn voru miklu síður í þessari hættu og jafnvel alls ekki enda kom þetta til þegar álfkonur vildu yngja upp hjá sér karlpening sinn.

Hitt er órannsakað hvort karlbörn sem aldrei hljóta almennilega guðsblessan né kristilegt innræti geti aftur komist í sama áhættuhóp við gamalsaldur þegar tennur fer gjarnan að þrjóta. Atburðir helgarinnar benda mjög til að svo sé því nú hefur gamall pólitískur refur norðan úr landi orðið að þeim umskiptingi í stjórnmálum að ekki dugar honum lengur að svíkja loforð sem gefin voru fyrir kosningar.

Loforð sem Steingrímur Joð gaf að þarflausu eftir kosningar, í sjónvarpsviðtali 27. apríl, er líka fokið út um gluggann en þá sagði Steingrímur að "...það væri utan ramma hinumegin að leggja strax fram umsókn." Nú kemur fram að það á að leggja fram umsókn í júlí og ef Steingrímur sjálfur kemur ekki í veg fyrir að umsókn verði lögð fram í þinginu þá er alveg greinilega komin upp ný staða í þeim fræðum sem fjalla um umskiptinga og athugandi að leitarmenn í Þistilfirði fari nú hóandi um kletta næst Gunnarsstöðum og finni okkar rétta og stefnufasta Steingrím aftur.

Hans er sárt saknað!


Hinn stefnufasti flokkur og sigurganga hans

vguhmer.gifMín spá er að hinir valdagírugu ráðherrar og ráðherraefni VG hafi nú bundið snöggan endi á sigurgöngu VG í íslenskum stjórnmálum.

 Flokkurinn sem var hinn stefnufasti er að verða að tækifærisinnuðum miðjuflokki þar sem hver höndin verður upp á móti annarri enda er Steingrímur J hættur að horfa einbeittur í augu fréttamanna líkt og hann gerði.

Lesa meira.

Birt á Smugunni en einnig hér


Davíð sem felldi heilt land

davidoddss.jpg

Davíð felldi Ísland, bankarnir voru vel í felstu ágætlega reknir, krosseignatengslin aðallega vandamálvegna viðbragða Davíðs Oddssonar og náhirðar hans. Engu skiptir að útrásarvíkingarnir voru eignalausir og þar af leiðandi ábyrgðarlausir, engar líkur á að stórfelldir fjármagnsflutningar Kaupþings til Íslands hafi skipt neinu máli því Kaupþingsmenn greiddu svo vel úr þeim málum. Við hrunið í haust stóð Jón Ásgeir sig áberandi vel og hefðu aðrir farið að dæmi hans hefði máske farið betur.

Þetta er meðal þess sem Ólafur Arnarson Clausen kemst að í úttekt sinni á hruninu, Sofandi að feigðarósi. Ólafur réðist í bókarskrifin eftir að ekki var fleiri spennandi verkefni að hafa hjá BaugsfyrirtækinuLandic Property. Ég skrifaði pistil um þessa bók Ólafs sem birtist á AMX í dag.


Máttlausar rangfærslur

Ef þjóðin er spurð í skoðanakönnun: Á Ísland að sækja um aðild að ESB svarar yfirgnæfandi meirihluti nei. 

Ef að kratastjórnin sem nú situr getur farið í aðildarviðræðum eftir forskrift RÚV án þess að sækja fyrst um aðild þá eru það mikil tíðindi og verður örugglega tilefni forsíðufyrirsagna í öllum blöðum álfunnar. Staðreyndin er að áður en farið er í aðildarviðræður þarf Alþingi og ríkisstjórn að taka ákvörðun um að vilja ganga í ESB. 

Í þremur könnunum Fréttablaðsins í febrúar, mars og apríl kom alltað það sama út, u.þ.b. 11 af hverjum 20 var andvígur umsókn á móti 9 sem voru því hlynntir eða 55% á móti 45%.

Þá má reyndar búast við að þessar tölur hafi skekkst lítillega síðustu vikurnar enda átt sér stað mjög kostnaðarsöm og um margt vel heppnuð áróðursherferð ESB-sinna undir forystu Benedikts Jóhannssonar hjá Talnakönnun þar sem því er blygðunarlaust haldið fram að þetta snúist um ESB eða dauða.

Það er samt nær lagi miðað við fréttir úr Evrópu þessa dagana að það sé einmitt ESB sem leggur sína dauðu hönd á hagkerfi aðildarlanda sinna.


mbl.is 61,2% vilja aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að innsigla stjórnleysi...

Sæt eru völdin og sætt er að henda hraunmola frá sér. Nú hafa kratar og VG fundið upp á þeim hrekk að henda ESB-vandræðunum í fang andstæðinganna. Það er enn svoldið að fullyrða hvað þessi leið felur í sér annað en að það hefur verið ákveðið að leggja upp með óstarfhæfa vinstri stjórn og meira stjórnleysi en þó náðist í henni Viðeyjarskottu Harða Geirs og er þá langt til jafnað.

Ef Framsóknarflokkur, Borgarahreyfing og einhver hluti Sjálfstæðisflokks draga Samfylkinguna að landi og styðja aðildarumsókn sem VG berjast á móti þá er ríkisstjórn VG og Samfylkingar búin að vera.

Það eru tvær leiðir til að stjórnin geti lifað.

Önnur er að tillagan um aðildarumsókn verði felld og kannski telja kratarnir sig geta haldið andlitinu þannig. Þetta er einfaldlega meirihluti þingsins og búið mál. Jóhönnu og Össuri getur örugglega hugnast slík refsskák enda hvorugt þeirra ESB-sinnar í hjarta sínu. En það þarf enginn að efast um að bæði Árni Páll, Björgvin G. og fjölmargir aðrir missa af því svefn og alla ró í sínum beinum. Það er nefnilega ljóst að Samfylkingin hefur þá látið frá sér möguleikann að mynda ESB-stjórn með SOB-samstarfi (þetta er ekki skammstöfun á neinu, heldur bara listabókstafir þriggja flokka!!).

Hin leiðin til að stjórnin lifi er að VG svíki feitt; láni Lilju Mósesdóttur og kannski einn tvo aðra yfir á ESB-vagninn sem verður þá fullskipaður með atbeina frá hálfum Framsóknarflokki, Borgarahreyfingu og kannski grönnum kvisti úr Sjálfstæðisflokki. Ef þetta gerist getur stjórnin lifað en VG hefur þá fórnað allri sinni pólitísku framtíð fyrir ráðherrastóla og þá er nú bleik brugðið...


Að skrifa eins og ESB-sinni

ESB umræðan í landinu er svo sannarlega í skotgröfum en samt verð ég alltaf jafn undrandi þegar ég les greinar frá hörðum ESB-sinnum þar sem ekki örlar á röksemdafærslum heldur er haldið uppi látlausum fúkyrðaflaumi og klifað á innihaldslausum sleggjudómum. Og þegar höfundar ná að tvinna svoleiðis saman án þess að komast nálægt því að vera fyndnir er ástæða fyrir okkur kaupendur Morgunblaðsins til að biðjast vægðar.

Þannig er ritstjórnargrein Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Morgunblaðinu í dag þar sem 70% af Sjálfstæðisflokki er afgreidd með hugtakinu „litla harðlínuklíkan." Víst er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn lítill miðað við það sem hann var en það er nú Morgunblaðið líka! Og að tala um að hinn almenni frjálslyndi armur Sjálfstæðisflokksins þurfi að snúa af sér litlu harðlínuklíkuna er ekki í neinu samræmi við hlutföllin í grasrót Sjálfstæðisflokksins. Síðasti landsfundur þar á bæ sýndi að LITLI hópurinn þar er sá sem Kolbrún kallar hinu frjálslyndu en heita Evrópukratar hjá almenningi.

Vinstri grænir eru afgreiddir sem óstjórntækur afturhaldsflokkur en fær einnig einkunnina þjóðlegur sem er líklega skammaryrði í munni Evrópukrata. Stefnumál VG er eitthvað sem skoppar úr munni þeirra, þeir missa út úr sér korteri fyrir kosningar og byggja málflutning sinn á andúð! Það er von að sá sem svona skrifar reikni með að andúð sé almennt hreyfiafl stjórnmálanna og að umræða geti ekki verið vitræn heldur skoppist hún út úr munni andstæðinganna.

Reyndar eru þau tvö mál sem Kolbrún tekur um gefna heimsku VG klaufalega valin. Annarsvegar sýndi Katrín Jakobsdóttir þann manndóm að viðurkenna fyrir kjósendum að framtíðin fæli í sér skattahækkanir, launalækkanir og upptöku eignaskatta. Hinsvegar upplýsti starfandi umhverfisráðherra efasemdum með olíufyrirætlanir á Drekasvæðinu. Býst einhver við að olíuleit verði hafin hér án þess að einhverjir efist um ágæti þess. Í Noregi hefur olíuleit verið umdeild, í hvert skipti, vegna umhverfismála og hagsmuna sjávarútvegs. En það er rétt sem greinarhöfundur tæpir á, í kosningabaráttunni voru líka vænir og ESB-sinnaðir frambjóðendur sem lofuðu seint og snemma að ríkið muni taka að sér að borga skuldir húseigenda í landinu og jafnfram að engar skattahækkanir séu í farvatninu.

Það eru skynsamir menn og það eru svoleiðis menn sem Kolbrún telur að Samfylkingin eigi nú að tala við.

Grein Kolbrúnar Bergþórsdóttur má lesa í Morgunblaðinu en líka hér:

http://bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar/entry/869273


Ráðstefna um Pál í Sandvík

pallyds200langMorguninn hefur farið í að fínslípa ræðu um fræðimanninn Pál Lýðsson í Sandvík en núna klukkan tvö hefst í Fjölbrautaskóla Suðurlands ráðstefna um þennan mikla vesír okkar Árnesinga.

Ráðstefnan um Pál er öllum opin, aðgangur ókeypis og dagskráin forvitnilega en um hana má nánar lesa hér, fraedslunet.is


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband