Nauðgun á íslenskri náttúru!

Auðvitað er ég eins og Flosi Ólafsson og allir aðrir karlmenn á Íslandi svag fyrir klámi. Annars væri eitthvað að mér. En ég geri mér grein fyrir að bakvið kynlífsiðnað heimsins stendur hrottaleg glæpastarfssemi mansals, eiturlyfja, mannfyrirlitningar og kúgunar.

Og þegar ég sé kynbræður mína og réttsýna menn um margt reyna að mæla því bót að Ísland verði vettvangur þessarar iðngreinar er mér nóg boðið. Einn af kostum Íslands sem við höldum í vegna fámennis og velmegunar er að hér er ekki sjáanlegur kynlífsiðnaður. Það er vitaskuld til einhver slík starfssemi og verður alltaf, - því miður. En ef við erum samstíga í okkar góða landi gegn slíkri starfssemi getum við haldið verulega aftur af þessari tegund glæpa. Það hve margir vilja nú sjá í gegnum fingur sér með þessa starfssemi er mér áhyggjuefni. Hafa menn gleymt að landið á dætur!

Í landi þar sem heiðarlegum borgurum leyfist ekki að byggja hænsnakofa uppi í sveit eða eiga kött án þess að skrá hann hjá hinu opinbera, er auðvitað út í hött ef eru til þau stjórntæki sem duga til að koma í veg fyrir umrædda ráðstefnu erlendra klámkónga. Ætlun þessara manna er að nota íslensk fjöll og íslenska náttúru sem leiktjöld fyrir klámmyndir. Ég trúi ekki öðru en því að hægt sé að koma í veg fyrir aðra eins nauðgun á okkar fagra landi.

Með þessu er ég ekki að taka undir það öfgafyllsta sem haldið er fram í baráttu gegn kynlífsiðnaði. Ég tel til dæmis alveg mögulegt að einhverjar heilbrigðar konur stundi vændi og leik í klámmyndum af fúsum og frjálsum vilja. En ég er jafn sannfærður um að fjölmargar konur gera þetta af nauðung fátæktar og vímuefnaneyslu og eigi sökum kúgunar litla sem enga möguleika á að rífa sig undan lífi sem er þeim þó heilt helvíti. Eigendur þessa iðnaðar eru ekki venjulegir heiðarlegir kapítalistar heldur gangsterar og glæponar.

Mér er sagt þessir tignu gestir komi á Hótel Sögu í byrjun mars og geri þaðan út í sínar reisur. Dagana á undan ætlum við Framsóknarmenn að halda flokksþing í sama hóteli sem enda er mörgum okkar frammara mikill uppáhaldsstaður,- sjálf Bændahöllin. En ef hótelhöldurum á Sögu er alvara með að hýsa þetta pakk,- þá hugnast mér nú einhvernveginn betur að við verðum bara á Loftleiðum með flokksþingið...


mbl.is Ung vinstri-græn harma að íslensk fyrirtæki taki á móti klámframleiðendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Njörður Lárusson

Ó land vors guðs, og guðs vors lands.  Hingað komi ekki siðspillt svín úr bæli spillingar. Þrátt fyrir að hér í landi voru hreinu sé búsett þjóð hórunnar, sú sem leggst undir hvern sem er, hvort sem heitir USA eða ESB.  Hvort sem hentar betur, fá nærbuxur þjóðarinnar að fjúka með ljóshraða, eftir hentugleikum stórþjóða. Við ættum nú ekki annað eftir en að glata síðustu leifunum af sjálfsvirðingunni í klofið á einhverjum kvikmyndaframleiðeindum.  SVEI þessu !!!

Njörður Lárusson, 16.2.2007 kl. 22:45

2 Smámynd: halkatla

geggjaður pistill ég er sammála hverju orði og hef trú á því að Framsókn taki þessu ekki þegjandi og hljóðalaust

halkatla, 16.2.2007 kl. 22:49

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Gott mál Bjarni.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 16.2.2007 kl. 22:52

4 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Ég spyr, hvernig áttu hótelhaldararnir að vita að þetta væru klámkóngar og drottningar þegar þau pöntuðu herbergi. Mér skilst að það hafi bara verið bókuð herbergi en engir ráðstefnusalir. Á hótelstarfsfólk að spyrja væntanlega gesti um við hvað þeir starfa áður en þeir taka við pöntun frá þeim? Ég  efast um að þessir gestir hafi gefið upp starfsheitið ,,porno dog". Auðvitað er þetta óttalegur viðbjóður og allt það, en á víkingasveitin að elta fólkið og passa upp á að það fari nú ekki að gera dodo einhversstaðar úti í guðsgrænni íslenskri náttúrunni í þessum skítakulda sem er nú að vænta á þessum árstíma? 

Gísli Sigurðsson, 16.2.2007 kl. 23:06

5 Smámynd: Njörður Lárusson

Heilagur andi, mun væntanlega koma í veg fyrir að þessum sóðaheilum muni hugkvæmast nokkuð óhreint, hér í landi hins óspillta hreinleika.....lofaður sé Drottinn....................................

Njörður Lárusson, 16.2.2007 kl. 23:30

6 identicon

Ofsalega finnst mér óviðeigandi að annarssætisframbjóðandi fjalli um klám sem eðlislægt áhugamál karla. Kannski ekki skrítið að Framsóknarflokkurinn hafi ekki meira fylgi en raun ber vitni...

Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2007 kl. 23:37

7 Smámynd: Bjarni Harðarson

kæra sóley - ég er oft óviðeigandi og þá yfirleitt fyrir hreinskilni. en það er ekki rétt að ég hafi sagt að klám væri eðlislægt áhugamál karla. ég sagði hitt,- að ég væri svag fyrir því sem er sletta og þýðir veikur fyrir og það er allt annar hlutur - ég er semsagt eins og allir karlmenn veikur fyrir myndum af beru vel vöxnu kvenfólki - en nánar ætla ég alls ekki að tala um það enda er það óviðeigandi.  varðandi það sem gísli skrifar hér að ofan: ég vorkenni hótelhaldara bara ekki neitt að henda fólki sem er ódó út - en þetta mál snýst alls ekki um það að bannað sé að gera dodo úti í guðsgrænni náttúrunni,- það má og það er vel hægt að vetri til!

Bjarni Harðarson, 17.2.2007 kl. 00:30

8 identicon

Það er eins með íslendinga alla daga... ef lesa á grein í bílablaði um bíl á þá að blanda saman dánartíðni og mengun í umfjöllun bílsins eða saumavél í hannyrðablaði, á að blanda inn í umræðuna hversu lengi plast er að eyðast í náttúrinni? Eða á blað með stelpum að blanda umræðu um kynsjúkdóma og aðra óværu í umræðu um vel skapaðan líkama konu! Tökum dæmi...

Talandi um bíla þá er nýji sportarinn frá Dodge (dánartíðni á íslandi í umferðinni er u.þ.b. 10 á hverja 100þ íbúa) þessi guli nokkuð reffilegur og skilar ekki nema um 300 hesöflum (en dánartíðni í danmörku er u.þ.b. 5 á hverja 100þ íbúa) hefur pláss fyrir tvo fullorðna og tvo smærra vaxna í afturæti. Þá má reykspóla upp einum dekkjagangi á ca 15l af 100 oktana benzini (en eitt austurlenkst álver mengar álíka mikið og allar akstursíþróttir í júni 06´) sem kostar 127 kr á líterinn. En gula kagganum er einmitt att í samkepni við nýja sportaran frá Pontiac (verkföll í bílaverksmiðjum í USA hafa kostað bandarískan iðnað hundruði miljóna $ á síðustu öld) Hún notar skálastærð D (hefur fengið lekanda 5sinnum) elskar að ganga í Gstreng (notar 5 kg af meiki á ári) ........ bla bla bla...

Klánmiðnaðurinn sem þú vilt kalla svo heitir á ensku Adult entertainment og ef ekki væri fyrir Adult entertainment og frjálsræði sem ríkir í þeim málum í almennt siðmenntaðri þjóðum en á íslandi, þá værir þú mjög líklega ekki að blogga, þú gætir ábyggilega ekki keypt vörur á netinu og þú gætir örugglega ekki vistað video á netinu, því að allt sem heitir framfarir á netinu er einmitt Adult entertainment að þakka. Þú værir annaðhvort einmanna nöldurseggur út í horni eða værir að prjóna mórauða trefla meðan þú góndir á Flint Flinstone í svarthvítu!

Það að blanda saman barnaklámi, nauðungarvændi, mannsali og jafnvel hörmungum þeim sem amreískir terroristar hafa komið af stað í heiminum og neytt fjölda fólks til að stunda vændi sér til framdráttar MÁ EKKI LÍKJA SAMAN VIÐ strípihneigð, exobishionist og öðrum þeim þörfum fólks af báðum kynjum við að fáánægju af því að láta horfa á sig ríða, fá kikk úr því að láta aðra ríða makanum sínum meðan horft er á og gæti ég lengi talið áfram. Ætlar þú að segja þessu fólki að það sé ábyrgt fyrir því að geymskutlan sprakk í loft upp eða? (þetta síðasta er bara jafn fáranlegt og öll umræðan á íslensku um það fólk sem er að koma til að skemmta sér í einum af sínum reglulegu ferðum sem það fer í og er þessi hópur bara brot af þeim þúsundum sem starfa við Adult entertainment.)

Vissir þú að það er 100% meiri líkur á að þú fáir vírus á tölvuna þína þegar þú þvælist um á leikjasíðum en þeim síðum sem selja adult entertainment. Það er ekki þeim að kenna í bransanum að óprúttnir aðilar setja upp vírusa á tölvuna þína þegar þú getur sjálfum þér um kennt að kunna ekki að vafra um netið á öruggum slóðum en hangir á meðal sorpsins og ráfar um og á þeim slóðum sem IQ þitt gefur tilefni til.

Það að blanda saman Adult entertainment og barnaklámi lýsir best fávisku þess sem það gerir. Rannsóknir sýna að konur eru 30% þeirra sem varfa um og skoða/kaupa adult entertainment á netinu. Engar heimildir gefnar upp, það er þitt að hafa vit á að vafra á réttum stöðum á réttum tíma!


Ég gleymdi að innskrá mig (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 01:18

9 identicon

Þvílíkir asnar geta Íslendingar verið!   Hví að blása þetta þing svona upp, með eintómum for- og sleggjudómum?   Þetta gæti aðeins gerst hér á Íslandi af siðuðum löndum hins vestræna heims að allt fari á annan endan þó 170 manneskjur, konur og karlar hittist til að ræða saman.  

Þá vil ég mótmæla því Bjarni, að íslenskir karlar séu svagir fyrir klámi, skv. minni skilgreiningu á klámi, því það er eitthvað sem er ljótt.   Erótík, þ.e.a.s. þar sem áhersla er lögð á það fallega er allt annað mál.   

Einnig skil ég ekki hvað þú átt við Bjarni, þegar þú segir að þessir gestir séu tignir.   Kannski af því að þú ert svagur fyrir klámi?  

Svo finnst mér það koma úr hörðustu átt að sk. feministar, reyndar þeir öfgafullu (sem yfirleitt skemma annars góðan málstað), séu að nota þetta mál til að vekja athygli á sínum málstað - það veikir hann aðeins, því þær fara með fleipur einar; margir af stærri framleiðendum og "stjörnum" klámiðnaðarins eru konur.   Það er alveg jafn mikið til af konum og körlum sem eru perrar.

B.M. Ingason (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 05:43

10 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Góð hugmynd hjá þér Bjarni, að færa flokksþing Framsóknar. Að vísu gæti það aukið fylgi flokksins sem væri slæmt en það væri mjög sterkt ef ekki einu sinni bændaflokkurinn sjálfur vildi funda á sama hóteli og klámbransinn. Klámbransi sem nb. gerir út á að daðra við barnaklám og ofbeldi. 

Ingibjörg Stefánsdóttir, 17.2.2007 kl. 09:55

11 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Sammála, það sem verra er að konur eru teknar með valdi dópaðar upp til þess þær séu meðfærilegri í kynlífsiðnaðinum.

Auðvitað verður að flytja þingið í Hótel Loftleiði. Nógar eru

"Gróurnar frá Leiti"til að bera illgirni og ósannindi fyrir fólk. "Ólyginn sagði mér" var orðtak Gróu frá Leiti. Framsókn á víst nógu erfitt fyrir þótt hún lendi ekki í kynlífsiðanaðinn með "Gróu frá Leiti."

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 17.2.2007 kl. 10:55

12 identicon

Næst... bókabrennur í boði feminsta félags Íslands. Þar á eftir verður ruslalýður hengdur á Ingólfstorgi, kannski fá hausar að rúlla í kjölfarið. Allir velkomnir. Síðan eru nornabrennur, einnig sem að galdrakallar verða brenndir í kjölfarið.

Feminstar á Íslandi.

Þetta er auðvitað næsta rökrétta skref, ekki satt ? 

Jón Frímann (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 15:26

13 identicon

Býr ekki bæði gott og illt í okkur öllum ? Snýst málið ekki um að rækta það góða ? Ef maður hefði verið þjóðverji staddur í Þýskalandi á 4. áratug liðinnar aldar eða serbi staddur í Bosníu fyrir ekki svo mörgum árum, hefði maður þá ekki skotið einhvern ? Fer það ekki bara eftir einhverjum kringumstæðum hvað þættir í fari manns koma fram ? Eða er hægt að rækta það góða til efla siðferðisþrekið og veita því illa viðnám ? Er það ekki eins með kynhvötina ? Býr ekki eitthvert villidýr í okkur (sem er svagt fyrir klámi) ? Getum við ekki líka ræktað þann þátt í okkur þannig að til farsældar leiði ?

Guðmundur Stefánsson (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 15:41

14 Smámynd: Jón Örn Marinósson

Nú reynir á hvort menn komi til dyranna eins og þeir eru klæddir. Ég veit ekki um þig, Bjarni, en hvað mig varðar þá þótti mér klám ekki síður gefandi og seiðandi en Mozartsónötur þegar ég var að vaxa úr grasi og uppgötvaði áður dulinn öfl fyrir innan buxnastrenginn. (Bæ ðu vei: Mozart var afskaplega klámfenginn í samtölum og bréfaskriftum og átti það til að þóknast ekki femínistum þegar myrkrið lagðist yfir Vínarborg. En hann hefði sjálfsagt verið velkominn til Íslands.) Og eftir að ég varð fulltíða karlmaður, faðir og fyrirvinna, hefur klám, sem svo er kallað, verið einstaka sinnum notaleg katarsis í grámyglu hvunndagsins -  eins og replikkur úr Sjeikspír eða kafli úr Síbelíussin­fóníu. Og nú á ég að fitja upp á nös og neita fólki, sem ég hef notfært mér til ánægjuauka einstaka sinnum (eins og stundum einir íslenskir forstjórar og framkvæmdastjórar á viðskiptaferðum í hótleherbergjum erlendis), á að neita þessu fólki um að koma til Íslands og halda þar einhverja fundarnefnu eða árshátíð. Sá yðar sem syndlaus er..... Ég á afskaplega erfitt með að vera svona illur út í þetta eins og femínistarnir úr því að ég - einn Íslendinga ef marka má umræðuna - á þessu fólki ýmsar prívatstundir að þakka síðan ég fann fyrir kynþroska. Ef ég hræki í áttina að þeim er ég um leið að hrækja á svolítinn part af sjálfum mér og nokkrar ástríðu­sprengdar málsgreinar í ævisögu minni. Ég skil málsrök femínísta, ég á dætur.... og samt verð á að viðurkenna að mér varð það á einstaka sinnum í eina tíð, áður en ég varð náttúrulaus (guði sé lof miðað við tíðar­andann) að hafa ánægju af ertandi nektarögrun. Ég geri mér grein fyrir að þarna tíðkast þrælkun og misnotkun. Hún mun tíðkast líka að mér skilst t.d. við appelsínutínslu í Kalíforníu. Heimur mannsins er þannig heimur. Ef þarna eru barnakláms­ófreskjur á ferð og aðrir stórglæpamenn er sjálfsagt að reyna að hefta för þeirra hingað - en annars skulum við taka þessu með ró og þroska. Ég held að Framsóknarmenn geti haldið sitt þing á Sögu eins og hingað til. Mig grunar að sumt af því fólki, sem boðað hefur komu sína hingað á hina margrómuðu klámstefnu, hafi lagt til efni í djarflegar sjónvarpsrásir sem hótelgestir á Sögu hafa notið fram að þessu, jafnvel Framsóknarmenn.  

Jón Örn Marinósson, 17.2.2007 kl. 18:40

15 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mig langar til að eiga hér innlegg með því að vísa til þessarar færslu  á bloggsíðu minni,   http://nimbus.blog.is/blog/nimbus/entry/125363.   Sjálfsagt er að rannsaka hvort kynferðisbrotendur gegn börnum séu að koma til landsins en við verðum  samt svona yfirleitt að kannast við klámhundinn inni í okkur sem enginn getur afneitað nema með  hræsni eða bælingu.  Á síðunni hennar Önnu Karenar sem hér er að athugasemda að ofan eru komment frá einhverri Ásdísi sem eru vel þess virði að lesa vegna þeirra sjónarmiða sem þar koma fram  þó menn þurfi ekki að vera sammála þeim.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2007 kl. 18:49

16 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki tókst þetta nú vel. En hér kemur þetta: http://nimbus.blog.is/blog/nimbus/entry/125363/

Sigurður Þór Guðjónsson, 17.2.2007 kl. 18:51

17 Smámynd: Sigurjón

Ég geri orð Jóns Arnar hér að ofan að mínum.  Gætum hófs í ásökunum.

Sigurjón, 18.2.2007 kl. 05:22

18 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Hvað hefur Lofteiðahótel gert af sér til að verðskulda svona hótun ?

Að frammsóknarmenn ,fjölmenni þar ( í þessu tilviki , er fjölmenni afstætt hugtak ).
eiga framsóknarmenn ekki hestahallir út um allt land ?

Halldór Sigurðsson, 18.2.2007 kl. 23:40

19 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

Ég hugsa nú að við ættum akkúrat að fara okkur hægt í það að ráðast á hótelin.

Við Íslendingar höfum nú boðum verra fólki enn þessu uppá gistingu og jafnvel kokteil boð á kostnað skattgreiðanda... nærtækasta dæmið var þegar forseti eða þingforseti Kína kom hingað í heimsókn.

Við hefðum betur átt að leiða hann fyrir dómara í stað þess að bjóða honum kokteil, annar eins harðstjóri hefur líklega aldrei stigið fæti á íslenska grundu, ekki nema Saddam sjálfur hafi mætt hérna í einhverja óopinbera veislu.

Eru allir farnir að snúast á sveif með Frjálslyndum, og ætla að fara að velja úr, hverjir eru nógu góðir til að stíga fæti á okkar ástkæra land ? ? ?

Ingólfur Þór Guðmundsson, 19.2.2007 kl. 01:46

20 Smámynd: Rúnarsdóttir

And the crowd went absoloutly bananas! ...

Rúnarsdóttir, 19.2.2007 kl. 08:30

21 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

Pistill tileinkaður meðal annars þér, Bjarni minn !

ingo.blog.is

Ingólfur Þór Guðmundsson, 19.2.2007 kl. 18:03

22 Smámynd: Ár & síð

Það er eiginlega svolítið brosleg hugmynd að mótmæla með því að flytja flokksþingið á hótel Loftleiðir því eigendur þess munu flytja alla klámhjörðina til Íslands.

Ár & síð, 19.2.2007 kl. 19:04

23 identicon

Í umhverfismat með partýið. Hér má ekki taka upp skóflu öðruvísi en að fara með skurðræsknið í umhverfismat. Hví ættu erlendir gestir, tignir eða ótignir, ekki að fara með þau spjöll sem ætlunin er að vinna á ímynd landsins í umhverfismat? Reiðvegi þyrfti að skilgreina sérstaklega þó.

Helga Sigrún (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 01:41

24 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Slæmt umtal er betra en ekkert umtal. Ég held að flokksþing Framsóknarmanna geri ekkert fyrir ferðaiðnaðinn. Fínt að nýta hótelin á þessum árstíma. Og lögreglan þarf ekki einu sinni að eyða púðri í eftirlit með því hvort þetta fólk sé að gera "do do"fyrir framan vefmyndavélar, feminstar og kvenréttindafélögin verða örugglega á gæjum allstaðar. Þau munu fylgjast með þessu af áfergju.

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.2.2007 kl. 13:01

25 identicon

Kannski mætti eyða minni tíma í að argast út í fólk sem vill koma hingað á árshátíð og huga frekar að því hvernig megi bregðast við skemmdarverkamönnum líkt og þessum Earth Liberation Front samtökum.

S (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 14:41

26 identicon

Ég held að þetta mál veki nú fyrst og fremst upp spurningar og þær nokkrar.

Er það svona sem við viljum að önnur lönd vinni gangvart okkur?

Þar sem hvalveiðar eru ólölegar þá ætti að meina okkur að aðgang að hótelum erlendis vegna þess að við stundum þær?

Eða hugsanlega að flokka okkur niður vegna vinnu okkar sem er ekki ólögleg hér?

Viljum við eiga viðskipti við hótel sem neitar viðskiptavinum um viðskipti og þau eru ekki talin í smápeningum?

Og þessi ákvörðun hefur áhrif á mörg minni fyrirtæki um sunnanvert landið og má reikna tapið í miljónum.Er það svona sem samstarfaðilar í ferðaþjónustu eiga að vinna?

Hvar eigum við að fá peninga ef við neitum gjaldeyrir frá fólki sem á nóg af peningum?(Og ekki má virkja og byggja stóriðju til að skapa gjaldeyrir)

Og viljum við stjórnmálamenn sem beita áhrifum sínum í svona mál sem snertir meira afkomu fleiri manna hér á suðurlandi og víðar en ímyndaðar hugmyndir um hugsanleg lögbrot þeirra?

Sigurjón k G (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband