Eldri færslur
- Maí 2014
- Mars 2014
- Október 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 1324935
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Davíð á förum og öþrifaráð Geirs...
5.8.2008 | 14:59
Helgin er búin að vera góð - hef mest staðið í búðinni minni og afgreitt latté, djöflatertur og eina og eina bók. Seldi meðal annars bókina um Drauma - Jóa sem er stórmerkilegt rit úr safni Djúpalækjar-Kristjáns...
Eyjan er að verða minn uppáhaldsfréttavefur og þar sé ég að forsætisráðherra er enn að ansvítast út í stjórnarandstöðu og almenning fyrir að krefjast aðgerða af ríkisstjórninni. Orðrétt af Eyjunni en svosem ekki bein tilvitnun í Geir:
Hann segir mikilvægt að fólk gangi ekki með þá grillu í höfðinu að það sé hægt að grípa á vanda sem steðjar að með örþrifaráðum upp á dag hvern.
Í framhaldinu þakkar Geir það aðgerðarleysi stjórnarinnar að vöruskiptajöfnuðurinn er nú í bata. Veit ekki hvort þetta er skynsamlegt útspil hjá forsætisráðherra sem verst nú allri gagnrýni með svona svörum. Það er auðvitað rétt að örþrifaráðin eru aldrei góð og stöðugar stjórnvaldsaðgerðir orka tvímælis. En eitthvað má nú milli vera. Stjórnin hefur boðað aðgerðir alveg síðan á aðalfundi Seðlabanka Íslands í vetur leið. Og það er ekki farið beinlínis hratt yfir en kannski telur eforsætisráðherra að það lykti um of af örþrifaráðum að gera hlutina hratt og skörulega.Eitthvað ku þó í farvatninu.
Mínar heimildir segja reyndar að nú liggi fyrir nýtt stjórnarfrumvarp um Seðlabankann og samkomulag liggi fyrir um að skáldið Davíð fari á eftirlaun á komandi vetri.
Kannski Geir verði skörulegri foringi á eftir, hver veit!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Tenglar
- X-J 2013 Regnboginn.is
- Jón fóstri
- Guðmundur djákni
- Tilveran í ESB
- Netbókabúð bókakaffisins
- Bloggsíða villikatta
- Bókablogg Sunnlenska bókakaffisins
- Heimssýn, - Ísland EKKI í ESB
- Egill Bjarnason ferðalangur
- Atli
- Harpa
- Vinstri vaktin gegn ESB
- AMX hægri fréttir
- Laugarás í Biskupstungum á fésbókinni Hér má finna gamla og nýja íbúa Laugaráss í Biskupstungum
- Smugan vinstri snú!
- Anna Björnsson
Bloggvinir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Ágústa
- Ævar Rafn Kjartansson
- Agnar Bragi
- Agnes Ásta
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Helga R. Einarsdóttir
- Á móti sól
- Andrés Magnússon
- Andrés.si
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Hólm Ármannsson
- Árni Matthíasson
- Árni Þór Sigurðsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Ása Björg
- Ívar Pálsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Rúnar Halldórsson
- Auður Eva Auðunsdóttir
- Egill Bjarnason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Margrét Annie Guðbergsdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Björn Emil Traustason
- Birkir Jón Jónsson
- Hommalega Kvennagullið
- Birna G
- Guðrún Olga Clausen
- Bjargandi Íslandi
- Björn Jóhann Björnsson
- Bleika Eldingin
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Guðmundur Bogason
- Bogi Jónsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Bwahahaha...
- Brjánn Guðjónsson
- Baldur Már Róbertsson
- SVB
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja Hjaltadóttir
- Bergþór Skúlason
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- busblog.is
- Charles Robert Onken
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Diesel
- Dofri Hermannsson
- Adolf Dreitill Dropason
- Anna S. Árnadóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Ágúst Dalkvist
- GK
- Bjarni Kjartansson
- Dunni
- Óskar Ingi Böðvarsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Gomez
- Einar Freyr Magnússon
- Einar Sigurbergur Arason
- Eiður Ragnarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Zóphonías
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Árnason
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Fannar frá Rifi
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Femínistinn
- Stefán Þórsson
- Jakob
- FLÓTTAMAÐURINN
- Gísli Foster Hjartarson
- Ritstjóri
- FreedomFries
- Friðjón R. Friðjónsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Björgvinsson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- FUF í Reykjavík
- Hlynur Sigurðsson
- Dóra litla
- Baldur Fjölnisson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gestur Halldórsson
- Gestur Guðjónsson
- Gísli Hjálmar
- Einar Ben Þorsteinsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Skákfélagið Goðinn
- Ingólfur H Þorleifsson
- Stafnhús ehf
- Götusmiðjan
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Ómarsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Magnússon
- gudni.is
- Guðrún Fanney Einarsdóttir
- Guðrún
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gulli litli
- Gunnlaugur Stefánsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Jón Erlendsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Gylfi Guðmundsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- halkatla
- Halldór Baldursson
- Hallur Magnússon
- Haukur Már Helgason
- Jóhann Ágúst Hansen
- haraldurhar
- Haraldur Haraldsson
- Héðinn Björnsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Reyr Ágústsson
- Heiða Þórðar
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Heiðar Sigurðsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Helgi Már Bjarnason
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Kristín Einarsdóttir
- Eiríkur Harðarson
- Heiðar Lind Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Helgi Sigurður Haraldsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hlynur Hallsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- HP Foss
- Krummi
- Hrannar Björn Arnarsson
- hreinsamviska
- Fulltrúi fólksins
- Hrólfur Guðmundsson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Hvíti Riddarinn
- Icelandic fire sale
- íd
- Ingimundur Kjarval
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
- Sævar Einarsson
- Elísa Arnarsdóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Svanur Jóhannesson
- Einar Vignir Einarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Sigurjónsson
- Jens Guð
- Jóhann G. Frímann
- jósep sigurðsson
- Jóhann Steinar Guðmundsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jón Finnbogason
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Jón Magnússon
- Jóhann Jóhannsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Valsson
- Bergur Thorberg
- Karl V. Matthíasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Vídó
- Kristján Jónsson
- Guðjón H Finnbogason
- Kolbeinn Karl Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Stjórnmál
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kolbrún Hilmars
- Karl Tómasson
- Kolbrún Ólafsdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Landvernd
- Lára Stefánsdóttir
- Heimir Eyvindarson
- Laufey Ólafsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Jónas Jónasson
- Pálmi Guðmundsson
- Gylfi Norðdahl
- Loopman
- Guðný Lára
- Guðjón Baldursson
- Edda Jóhannsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Magnús Jónsson
- Magnús Vignir Árnason
- Mál 214
- Alfreð Símonarson
- Máni Ragnar Svansson
- Björn Benedikt Guðnason
- Guðmundur Margeir Skúlason
- Steinar Immanúel Sörensson
- Gísli Tryggvason
- Níels Bjarki Finsen
- Jón Svavarsson
- Ólafur Björnsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Nordal
- Hundshausinn
- Guðmundur Örn Jónsson
- Óttar Felix Hauksson
- Páll Geir Bjarnason
- Páll Vilhjálmsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- percy B. Stefánsson
- perla voff voff
- Perla
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jóhann Birgir Þorsteinsson
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar L Benediktsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Rúnar Birgisson
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- ragnar bergsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Víðir Benediktsson
- Salmann Tamimi
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurjón Valgeir Hafsteinsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Gunnar Þór Ólafsson
- Egill Helgason
- Sigurður Jónsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Jóhann Waage
- Auðun Gíslason
- Óskar Þorkelsson
- Karl Hreiðarsson
- Halldór Sigurðsson
- Brynja skordal
- Hreiðar Eiríksson
- Hannes Friðriksson
- hilmar jónsson
- Snorri Hansson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Bogi Sveinsson
- Stefán Þór Helgason
- Stefanía
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- Þorsteinn Briem
- Steinn Hafliðason
- Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
- Samband ungra framsóknarmanna
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svanur Kári Daníelsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Sveinbjörn Eyjólfsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Sigursveinn
- Helgi Guðmundsson
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórir Kjartansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Tíðarandinn.is
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gísli Kristjánsson
- Þorleifur Ágústsson
- TómasHa
- Tómas Þóroddsson
- Reynir Hugason
- Trúnó
- Halldór Egill Guðnason
- Gaukur Úlfarsson
- Unnar Geir Þorsteinsson
- Ferðaþjónustan Úthlíð
- Vilhjálmur Árnason
- P.Valdimar Guðjónsson
- Valdimar Sigurjónsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Valsarinn
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vestfirðir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Guðfríður Lilja
- Gylfi Björgvinsson
- Vilhjálmur Árnason
- Sigurlaug B. Gröndal
- Aðalsteinn Bjarnason
- Aðalsteinn Júlíusson
- Andrés Kristjánsson
- Anna Einarsdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Arnþór Helgason
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Árelíus Örn Þórðarson
- Árni Haraldsson
- Árni Þór Björnsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Hafberg S.
- Barði Bárðarson
- Benóný Jónsson Oddaverji
- Bergur Sigurðsson
- Bergþóra Sigurbjörnsdóttir
- Birgir R.
- Birna G. Konráðsdóttir
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Jónsson
- BookIceland
- Braskarinn
- Carl Jóhann Granz
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Einarsdóttir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- ESB og almannahagur
- Eva G. S.
- Eygló Sara
- Eyþór Örn Óskarsson
- Friðrik Kjartansson
- Garún
- Gestur Janus Ragnarsson
- Gissur Þórður Jóhannesson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson
- Grétar Mar Jónsson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Markúsdóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Heiðarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Gústaf Níelsson
- Gylfi Gylfason
- Hafþór Baldvinsson
- Halla Rut
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Jónsson
- Haraldur Hansson
- Haukur Baukur
- Haukur Nikulásson
- Heimir Ólafsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjalti Tómasson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Hörður B Hjartarson
- Hörður Stefánsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Ingimundur Bergmann
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jóhann Pétur
- Jónatan Karlsson
- Jón Á Grétarsson
- Jón Árni Bragason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Bjarnason
- Jón Daníelsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Lárusson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Katrín
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kári Harðarson
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Kristinn Arnar Guðjónsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Magnús Jónasson
- Magnús Kristjánsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Már Wolfgang Mixa
- MIS
- Offari
- Ólafur Björnsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Bjarki Smárason
- Óskar Steinn Gestsson
- Paul Joseph Frigge
- Páll Helgi Hannesson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Raggi
- Ragnar G
- Ragnar Gunnlaugsson
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Reynir Jóhannesson
- Samstaða þjóðar
- Samtök Fullveldissinna
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- S. Einar Sigurðsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigrún Óskars
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Sigurjón Norberg Kjærnested
- Skuldlaus
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólrún Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Steini Palli
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Sveinn Björnsson
- Sædís Hafsteinsdóttir
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trausti Jónsson
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Urður bókafélag
- Vaktin
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Skagfjörð
- Varmársamtökin
- Vésteinn Valgarðsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vinstrivaktin gegn ESB
- ÞJÓÐARSÁLIN
- Þorri Almennings Forni Loftski
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þórarinn Lárusson
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Bragason
- Þórhallur Heimisson
- Þórhallur Heimisson
- Þráinn Jökull Elísson
Athugasemdir
Verðum við ekki öll betur sett þegar Davíð er farinn (á eftirlaun eða bara hvert sem vera skal)?
Ég er byrjaður að hlakka til . . . . .
Benedikt Sigurðarson, 5.8.2008 kl. 15:01
Skyldi nú vera komið að því að skipa Seðlabankanum dýralækni?
Árni Gunnarsson, 5.8.2008 kl. 15:07
Davíð og Ólafur forset eiga eitt sameiginlegt. Andstæðigar þeirra verða (geð)veikir í hvert sinn sem fréttir berast af þessum fjandmönnum.
Ég skal fúslega viðurkenna að ég er Ólafs maður. En ég ber ekkert hatur til Davíð. Mér finnst hann bara minna mig á feitan fjallapa.
Dunni, 5.8.2008 kl. 16:24
Ég vona að Benedikt njóti þess og eigi betra líf þegar Davíð er farinn á eftirlaun.
Steinn Hafliðason, 5.8.2008 kl. 17:34
Merkilegt með Bloggheima að menn hafa einungis tvær skoðanir á mönnum og málefnum. Ef menn eru til vinstri í stjórnmálum eru allir hægri menn fífl og aular og ekki eru skoðanir flestra hægri manna á vinstri stjórnmálamönnum gæfulegri.
Ég er mikill aðdáandi Davíðs Oddsonar og tel hann einn merkilegasta - ef ekki merkilegasta - stjórnmálamann, sem við Íslendingar höfum eignast.
Samt sem áður er ég þeirrar skoðunar að Ólafur Ragnar Grímsson sé stórgáfaður maður og hafi að flestu leyti staðið sig með afbrigðum vel sem forseti.
Ekki ber ég heldur brigður á greind og heiðarleika Steingríms og Ögmundar hjá VG, en þar eru á ferðinni miklir stjórnmálaskörungar og mannvinir, þótt ekki sé ég þeim sammála nema endrum og eins.
Davíð hefði átt að sleppa þessari ferð sinni í Seðlabankann og fara á eftirlaun. Þau á hann margföld inni hjá íslensku þjóðinni fyrir áratuga störf í hennar þágu.
Guðbjörn Guðbjörnsson, 5.8.2008 kl. 17:57
Ef til vill verður þá fljótlega hægt að miða við fyrir og eftir Davíð.
Gissur.
Gissur Jóhannesson k.t.131228 3689. (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 18:34
Davíð á eftirlaun??
nei takk, Davíð er frábær og einn sá besti stjórnmálamaður sem við höfum haft . Og það væri óskandi að þeir væru fleirri .
Og hann er frábær í því starfi sem hann er í dag
Kristín (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 21:48
Sæll Bjarni.
Mér hefur funndist eins og Geir sé algjörlega búinn á því, líkt og Haldór forðum, og vænlegast hjá honum að draga sig í hlé. Eg tel að ef Geir ætli að sitja áfram þá þurfi hann að hreinsa út alla stjórnendur Seðlabankans og skipa honum einn bankastjóra er hefur til þess tilskylda menntun. Auk þess skipa nýtt bankaráð, og láta kunnáttu og reynslu þar´sitja í fyrirúmi, en ekki skipa afdankaða stjórnmálamenn, eða flokkssnata eins og viðgengist hefur illu heilli. Einning tel ég að hann ætti að stokka upp ráðherralistan sinn og skipta út Birni, Árna og Einari og jafnvel fleirum, og ´skipa í þeirra stað Bjarna Ben, Illuga, og Kristjáni, jafnfram að taka á sig rögg og draga stórlega úr ríkisútgjöldum. Það gengur ekki deginum lengur að forsætisráðherra sé milli steins og sleggju og í einhverskonar gíslingu hjá hluta flokksbræðra sinna.
haraldurhar, 5.8.2008 kl. 22:05
Hver er þessi haraldurhar?
Mér finnst hann tala gáfulega!
Helga R. Einarsdóttir, 5.8.2008 kl. 22:50
ja takk, Davíð farinn á eftirlaun.
MAGNUS FINNUR HAUKSSON (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 23:01
Eg verð nú bara að segja sama og Helga hér á undan/þessi nafni minn segir bara allt sama og eg hefði sagt!!!!! stal senunni!!!!/Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 5.8.2008 kl. 23:24
Það sem að Davíð skilur eftir sig?
Aðilaskýrsla vegna dómsmálsins R30/2006, Héraðsdómi Suðurlands.
27.1./ 2008
Forskriftin “Aths” ásamt skáletruðum texta hér eftir eru athugasemdir Guðmundar Þórarinssonar Kt: 290571-4489 við geðskoðun Sigurðar Páls Pálssonar og Láru björgvinsdóttur geðlækna.
Rétt er að hafa í huga að hér er á ferðinni mál sem að tengist héttsettum starfsmanni LSH (Gunnlaugi Geirssyni Prófessor).
Allir þeir geðlæknar sem að koma að málinu, utan Magnús Skúlason geðlæknir, eru tengdir vinnustað "fórnarlambsins" í málinu (Gunnlaugu LSH). Í dag liggur fyrir dómur mannréttindadómstólsins sem að kveður á um að læknar á LSH geti ekki komið að máli sem að tengist starfsmanni á LSH sem matsmenn, án þess að stofna hlutleysi málsins í hættu.
Í þessu máli urðu tengsl viðkomandi starfsmanna LSH við fórnarlamb málsins til þess að einstaklingur sem að starfsfólk Réttargeðdeildarinnar á Sogni fann ekkert athugavert við, var vistaður þar í rúmlega ár.
Eftirfarandi er því kynning á því hvernig flokksveldið á Íslandi ekki bara getur virkað heldur virkar i gegnum spillingu og tengsl manna í millum.
Gjörið svo vel,,, og hafið ælupoka við hendina.
Í geðmati stendur: Aðspurður um fyrri atburði sem leiddu síðar til ákæru og dóms segir Guðmundur að þá hafi hann verið í neyslu. Erfitt er þó að fá fram með vissu hve mikil hún var.
Aths: Guðmundur tók skýrt og greinilega fram við geðskoðun að sú neysla hefði verið orðin ákaflega lítil (c.a 4 tilvik í mánuði), og reyndar kom það fram við blóðrannsókn skömmu eftir líkamsárás undirritaðs á Gunnlaug Geirsson Prófessor að magn amfetamíns í blóði Guðmundar var undir læknisfræðilega ákvörðuðum skammti 80/ng/ml, hér er því rangt haft eftir.
Í geðmati stendur: Man eftir einhverju sinni að hafa verið vakandi af neyslu og þá orðið hálf sturlaður.
Aths: Hér er rétt að komi fram að þetta einstaka tilvik átti sér stað á árunum milli 1996 og 1998 en ekki fyrir ári, hálfu ári eða í gær.
Í geðmati stendur: Hann viðurkennir að hann hafi planlagt að sitja fyrir Gunnlaugi Geirssyni. Hann skilst þó þannig að upphaflega hafi hann ætlað sér að tala við Gunnlaug, fá hann til að breyta afstöðu sinni en byrjað að hrista hann til þegar Gunnlaugur greip í hann. Þetta er hinsvegar vandmetin lýsing hjá Guðmundi (sjá annars dómsskjöl).
Aths: Það var ekki Sigurðar og Láru að meta áreiðanleika frásagnar af málinu, hvorki úr fyrri skýrslum eða hér í þessu mati og er tilgangurinn með þessarri athugasemd hér því óljós.
Í geðmati stendur: Guðmundur er enn mjög reiður Gunnlaugi Geirssyni og telur hann hafa sýnt sér og barninu gífurlega óvirðingu.
Aths: Rétt er að það kom fram að ég teldi að mér og barninu hefðu verið sýnd óvirðing, en það kom hvergi fram að ég væri Gunnlaugi mjög reiður. Hitt er annað að fram kom skýrt og greinilega og meðal annars skriflega að ég teldi að Gunnlaugi væri vorkunn af því að vera eins og hann er (óheiðarlegur), að af honum stafaði óværa í Íslensku samfélagi og er þá átt við spillingu hans í opinberu starfi, og jafnframt það að verða fyrir barðinu á þeirri spillingu og Gunnlaugi væri svona líkt og að stíga í volgan kattarskít. Það gysi upp skítalykt í smástund en að maður nuddaði einfaldlega eða skolaði af sér skítinn og héldi svo áfram sína leið.
Í geðmati stendur: Guðmundur greinir einnig frá því að hann hafi talað við fulltrúa lögreglu Katrínu Hilmarsdóttur vegna málsins. Guðmundur er enn mjög ósáttur við hennar viðbrögð og athugun í málinu.
Aths: Katrín Hilmarsdóttir kom fyrst að málinu þegar ég reyndi að kæra Gunnlaug Geirsson fyrir skjalafals, þá neitaði hún mér um að tekin yrði af mér skýrsla og neitaði mér jafnframt um að leggja fram gögn í málinu á þeim forsendum að ég hefði ekki lagt fram gögn í málinu. Slíkt framferði heitir brot í opinberu starfi. Síðan sækir hún líkamsárásar málið gegn mér fyrir hönd ríkisins.
Í geðmati stendur: Hann segir hana vera nýnasista og telur föður hennar hafa verið siðblindan og ruglaðan. Segir einnig að hún sé heimsk (Sigríður)
Aths: Ég sagði matsmönnum að Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir væri nýnasisti sem hún og virðist vera skv netsíðum hennar en föður hennar sagði ég hafa verið veikann, ruglaðann og sennilega siðblindann í því skyni að varpa ljósi á það hvað hugsanlega gæti amað að Sigríði með því að halda barninu okkar frá því að njóta réttar síns. Ég sagði hinsvegar ekki að Sigríður væri heimsk, heldur sagði ég að fólk í kringum mig hefði haldið því fram við mig að hún væri kannski bara svona heimsk, á þessu er töluverður munur, annarra orð eru ekki mínar fullyrðingar.
Í geðmati stendur: 15) Þjóðfélagið á sök á þessu afbroti. Svar: Ósatt. (Innskot þetta er athyglisvert svar því að það talar gegn raunverulegri andúð hans á kerfinu.
Aths: Hérna er um hreinann tilbúning að ræða því að hvergi kom nokkurntímann fram að ég hefði andúð á kerfinu, það kom hinsvegar fram að ég hefði megna andúð á verkum sumra þeirra manna er starfa í hinu svokallaða kerfi og á þessu tvennu er reiginmunur.
Í geðmati stendur: 19) Ég hefði ekki framið þennan verknað ef að mér hefði ekki verið ögrað af þolandanum. Svar: Satt. Fannst Gunnlaugur hafa verið fáskiptinn og með leiðinlegt skap.
Aths: Hérna vantar inn í að ekki einasta var maðurinn hrútleiðinlegur og fáskiptinn heldur kaus hann að svara ekki tveimur lögfræðingum mínum (erlendis og hérlendis), hundsaði u.þ.b. 8 símtöl frá mér, neitaði að leiðrétta ákveðið misræmi í skjölum tengdum faðernismálinu og neitaði jafnframt að setja sig í samband við kollega sína erlendis ef að þeir gætu hugsanlega leiðrétt þennan mismun, þá höfðu áður komið fram af Gunnlaugs hálfu óverðskuldaðar og óviðeigandi athugasemdir um geðheilsu mína.
Í geðmati stendur: Ég er hræddur um að fólk muni aldrei taka mér vel vegna þessa atburðar. Svar: Ósatt. Bætir við að honum finnist margir hafa skilið sig og hvatt sig áfram í málinu.
Aths: Hér vantar inn í að ég tók það fram að flestir vina minna, kunningja og ættingja trúa því einnig að ég sé faðir barnsins í málinu.
Í geðmati stendur: 34) Ég ætti ekki að refsa sjálfum mér fyrir það sem ég gerði. Svar: Óljóst svar.
Aths: Hér er rangt farið með, það kom fram að ég teldi að ég ætti ekki að refsa mér og reyndar er það svo að ég hrósa mér af því sem ég gerði, þ.e ég tel mig ákaflega stoltann af því.
Í geðmati stendur í kaflanum áfengi og fíkniefni: Hann hefur a.m.k einusinni tekið kókaín á sl mánuðum.
Aths: Það sem fram kom í viðtali var að ég hefði keypt efni sem að ég taldi vera kókaín vegna þess að mig hefði langað til þess að rifja upp “gamla dópistatakta” og viljað lyfta mér eitthvað aðeins upp, tekið inn afar lítið magn af því, orðið veikur af því (uppköst og ógleði) og þá fleygt því og þar með hefði sú neyslutilraun farið út um þúfur. Það kom ekki fram að ég hefði tekið inn Kókaín að minnsta kosti einusinni, heldur einusinni á undanförnum mánuðum.
(Þegar þessar athugasemdir eru ritaðar átti ofangreind neysla sér stað fyrir u.þ.b. 7-8 mánuðum síðan).
Í geðmati stendur: Hann segist hafa sektarkennd yfir því að vera dópisti.
Aths: Hér er rangt haft eftir, það kom fram í viðtölum að ég hefði haft sektarkennd yfir því að hafa verið dópisti á þeim tíma sem að ég var á kafi í neyslu fíkniefna, fyrir þónokkrum árum síðan.
Í geðmati stendur: Lyf sem hann tekur nú amfetamín sem hann fær uppáskrifað hjá lækni sem hann segist þó aldrei hafa hitt. Byrjaði á því í september 2006. Hann tekur þetta nokkuð óreglulega að sögn og helst um helgar en hann segir það hjálpa sér að einbeita sér að náminu. Með því drekkur hann bjór til að róa sig.
Aths: Hér bæði vantar inn í og er rangt haft eftir. Náminu hátta ég þannig að ég fer amfetamínlaus í skólann á virkum dögum vegna þess að ég er með fylgiröskun með ofvirkninni sem að kallast felmtursröskun sem að lýsir sér í óþægilega miklum hjartslætti ásamt skelfingartilfinningu og kemur eingöngu yfir mig við inntöku á amfetamíni. Í þessu vill ég ekki lenda á skólatíma (ástand þetta er ekki talið hættulegt einungis mjög óþægilegt). Síðan þegar kemur að heimanáminu um helgar að þá tek ég amfetamínið svo sem ávísað er og meira þegar þolið tekur að aukast seinnipart annar og það sem að ég get þá notað til þess að halda ofangreindu felmtursástandi í skefjum á meðan amfetamín áhrifin vara er bjór, hinn kosturinn eru róandi lyf s.s diasepamlyf (Mogadon) og á þeim hef ég ekki nokkurn einasta áhuga auk þess sem að jafnframt því að virka vel gegn felmtursröskun þykir mér bjór bragðgóður.
Í geðmati stendur: BPRS: Próf þetta er notað sem hjálpartæki við geðskoðun. Því er sérstaklega ætlað að fá fram sturlunarlík einkenni hjá sjúklingnum.
Í stuttu máli má segja að viss merki komu fram um hugsanir sem bent gátu til ranghugmynda og ranghugmynda kerfa.
Aths: Hvaða merki um ranghugmyndir og ranghugmyndakerfi voru þetta? Hvernig var prófið framkvæmt? Það kemur hvergi fram en ofangreindri niðurstöðu er hinsvegar slett fram út í bláinn án nokkurs rökstuðnings.
Í geðmati stendur: Við urðum ekki vör við neina fjandsemi gagnvart okkur en hinsvegar var hún mjög greinileg gagnvart þeim sem að hann var enn ósáttur við (t.d Gunnlaug Geirsson og Katrínu Hilmarsdóttur).
Aths: Ég lét það álit mitt berlega í ljós í viðtölunum að ég áliti ofangreindar manneskjur illa innrætt fífl sem að ættu ekkert erindi í opinbera stjórnsýslu, það að álíta einhverja manneskju illa innrætta, siðspillta og jafnvel heimska er ekki það sama og að sýna fjandskap í hennar garð. Að sýna fjandskap hlýtur að teljast það að vilja meiða einhverja manneskju eða gera henni illt. Það kom aldrei fram í viðtölunum og gerir ekki enn, hér er því verið að gera mér upp tilætlan.
Í geðmati stendur: Persónuleikapróf: Notuð var fyrst stutt útgáfa (Standardised Assesement of Personality (8 Spurningar) og spurningar lesnar upp fyrir móður hans þar sem Guðmundur hafði áður neitað að svara persónuleikaprófi.
Aths: Ég hlýt að frábiðja mér þessháttar vitleysu, geðskoðun þessi gekk út á það að meta geðhagi mína en ekki túlkun móður minnar á þeim. Hvaða niðurstöðu hefði ég mátt vænta úr persónuleikaprófi þessu ef að ég hefði gleymt að vaska upp þann daginn, eða það sem verra er neitað að skreppa út í búð eftir sígarettum handa henni? Þess utan að þá þykir hverjum sinn fífill fagur svo að niðurstaðan úr persónuleikaprófi á mér framkvæmdu á einhverjum öðrum stenst enga skoðun.
Innskot: Að því er vikið í geðmatinu að ég tali gamaldags Íslensku (forníslensku), mér leikur ögn forvitni á að vita hvort að hér er átt við vandað málfar eða hvort að hér sé átt við ég gangi um bæinn talandi á máli Jónsbókar eða Snorra Eddu?
Í geðmati stendur: Guðmundur hefur visst innsæi og dómgreind á eigin hegðun, á samskipti við fólk og sín vandamál. En alls ekki varðandi faðernismálið. Hann upplifir enn að hafa verið beittur miklu óréttlæti.
Aths: Sjáum nú til ef að ég hefði ekki upplifað óréttlæti eftir að hafa upplifað það að Gunnlaugur Geirsson kæmi fram við mig og barnið mitt eins og andlegur nauðgari, eftir að hafa mátt dúsa í 17 mánuði í gæsluvarðhaldi og á Réttargeðdeild að ósekju og síðan haldið í gíslingu dómskerfis í heilt ár eftir að hafa losnað af réttargeðdeildinni, þá hlyti ég klárlega að vera vangefinn.
Hafandi í huga að hausinn á mér á að vera fullur af þeirri ranghugmynd að Gunnlaugur Geirsson hafi falsað tiltekinn skjöl, þeir sem að eru með ranghugmynd upplifa hana nefnilega sem raunveruleika, ekki satt?
Í geðmati stendur: mini prófið spyr ekki sérstaklega um hugvilluröskun (delusional disorder). Enginn vafi er á því að Guðmundur Hefur uppfyllt og uppfyllir enn einkenni þessa heilkennis samkvæmt ICD 10.
Aths: Rétt er að benda á hér að ICD 10 er ekki próf eða skilgreining á hugvilluröskun heldur kóða og númerakerfi. Þar sem að ég hef ekki enn gengist undir eitt einasta próf sem að hefur getað skilgreint hjá mér hugvilluröskun að þá vill ég vinsamlegast biðja matsmenn um að halda menntakjaftæðinu fyrir sjálfa sig þar sem að hæpið er að dómari megi vera að því að kynna sér hvað ICD 10 er, minna þá á CODEX ETHICUS og jafnframt að læknisleyfi geta verið brothætt ef að ekki er varlega farið í viðsjálli veröld.
Í geðmati stendur: Við fyrstu sýn virðist hann ekki hafa geðrofseinkenni en alveg er ljóst að hann er óeðlilega fixaður enn á faðernismálið. Þar koma fram hugsanir sem örugglega eru á mörkum ranghugmynda eða þráhyggju eða overvalued ideas.
Aths: Hérna virðast matsmenn vera að vitna í greiningu á Paranoid queerulans (Hugvilluröskun) en hún fer einmitt fram með þeim hætti að útilokunaraðferð er beitt á ofangreindar hugsanir þ.e.a.s greindar eru í sundur ranghugmyndir, overvalued ideas eða þráhyggja í því skyni að fá fram hina raunverulegu greiningu.
Hér virðist allar þessar hugsanir “nokkuð örugglega” vera á ferðinni hjá mér í því skyni að ég sé “nokkuð örugglega” paranoid queerulans. Eitt vantar þó og það er þetta: Samkvæmt fræðunum er eitt af því fyrsta sem að geðlækninum er uppálagt að fá fram og það er einfaldlega hvort að sjúklingurinn hefur á réttu að standa eða ekki.
Því er þeirri spurningu varpað hér fram hvort að matsmennirnir hafi staðið fyrir því að kynna sér hvort að það geti verið að Gunnlaugur Geirsson sé einfaldlega ómerkilegur skjalafalsari og að málið sé í raun ekki flóknara en sú staðreynd?
Í geðmati stendur: Guðmundur mætti einn í 2. viðtal. Það gekk ágætlega framan af en í lokin neitaði hann að svara spurningum á persónuleikaprófi. Komu þá fram greinileg vænisýki viðbrögð hjá Guðmundi.
Aths: Nú er það svo að ég hafði kynnt mér áreiðanleika þessarra svokölluðu persónuleikaprófa á meðan ég dvaldi á Sogni og kom þar í ljós að próf þessi eru í besta falli umdeild innan fræðanna og virðist niðurstaða þeirra helst ráðast af því hver fer yfir þau.
Þetta bar ég fyrir mig og sagði matsmönnum að ég kærði mig ekki um málsmeðferð byggða á slíkri ónákvæmni. Þetta ber ekki vott um vænisýki heldur löngun til þess að ná fram sem réttustum niðurstöðum mér í hag. En á því hef ég skýlausan rétt samkvæmt öllum leikreglum í réttarsal.
Þá er kannski rétt að benda hér á að hér hafa matsmenn ekki haft fyrir því að rökstyðja álit sitt. Þ.e.a.s. í hverju lýsti sér þessi ætlaða vænisýki mín?
Í geðmati stendur: Hann er enn sár og telur sig hafa verið misrétti beittan. Erfitt er að meta innsæi Guðmundar en telja verður að innsæi hans á eigin hegðun sé eðlilegt en ekkert eða lítið innsæi sé á þær sjúklegu hugmyndir sem hann virðist hafa miðað við þær staðreyndir sem að liggja fyrir í dag.
Aths: Þær staðreyndir sem að liggja fyrir eru þessar: Gunnlaugur Geirsson var beðinn að athuga eigin sök varðandi það hvort hann hefði falsað niðurstöður blóðrannsóknar eða ekki, hann komst að þeirri niðurstöðu að hann sjálfur væri ekki sekur um neitt misjafnt. Þrátt fyrir það varð hann tvísaga um það fyrir dómi með hvaða hætti hann framkvæmdi prufurnar, slíkt telst á lögreglumáli vera grunsamlegt. Þá eru ónefnd ófá atriði önnur tengd þessu máli sem að lögreglu ber að rannsaka sem hugsanleg afbrot.
Í geðmati stendur: Guðmundur virðist hafa haft gott af dvölinni á Sogni og viðtölunum við Magnús.
Aths: Víst er að Magnús er viðræðugóður en hvaðan kemur sú fullyrðing að ég álíti mig hafa haft gott af dvölinni á Sogni, jafnframt því að ég telji mig hafa verið órétti beittan út allt málið?
Er það sannfæring matsmanna hér að manneskja sem að telur sig hafa verið lokaða inni í fangelsi og á geðveikrahæli svo mánuðum skiptir að ósekju, telji sig hafa haft gott af vistinni?
Er það almenn skilgreining innan geðlæknisfræðinnar að því meiri órétti sem að viðkomandi manneskja telur sig hafa verið beitta að því sáttari verði hún við lífið og tilveruna?
Í geðmati stendur: Þversögnin í máli Guðmundar virðist sú að meðhöndlandi læknir álítur að þegar fyrir rúmu ári síðan að þó að hann hafi hugvilluröskun sé hann í raun ábyrgur gerða sinna eða eigi að vera það.
Aths: Það hefur hvergi til þessa dags komið fram í máli Magnúsar Skúlasonar að ég sé haldin hugvilluröskun og tel ég réttast að Magnús sé einfaldlega spurður út í þessa fullyrðingu matsmanna.
Í geðmati stendur: Fram kom hinsvegar einnig í fyrra vottorði Magnúsar að Guðmundur hefði ekki innsæi á sjúkleika sinn.
Aths: Aftur tel ég rétt að Magnús staðfesti þessi orð matsmanna eða ekki.
Hvað niðurlag þessa svokallaða geðmats varðar að ég þurfi á áframhaldandi meðferð og öryggisgæslu að halda og að ég eigi að halda mig frá neyslu að þá svarast þessu til.
Ég þarf ekki á nokkurri geðmeðferð að halda og hef aldrei þurft.
Í fíkniefnaneyslu er ég ekki en ég nota amfetamín við nám og gefur það góða raun utan áðurgetinna aukaverkana, það er fjandinn fjarri mér að ég ætli að fara að leggja námið á hilluna í því skyni að uppfylla ímyndaða nauðsyn einhverra framhjáfarandi geðlækna.
Bjór ætla ég ekki að hætta að drekka vegna þess einfaldlega að hann heldur frá aukaverkunum af amfetamíninu (felmtursröskun). Hitt er kannski rétt að minnast á að amfetamíntegund ein svonefnt metamfetamín (Lyfjah: Desoxyn) býður ekki upp á slíka aukaverkun, það þekki ég af eigin raun.
Af gefnu tilefni skal það ítrekað hér að vegna fyrri meðferðar á máli mínu bæði af hálfu þeirra matsmanna er áður hafa komið að málinu og eins vegna fyrri dómaframkvæmdar í því fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og Hæstarétti Íslands að þá tel ég áríðandi að fram fari lögreglurannsókn á starfsháttum Gunnlaugs Geirssonar Prófessors og því hvort að hann beitir tengslum sínum innan læknasamfélagsins og dómskerfis í því skyni að ná fram ranglátum niðurstöðum í málum honum tengdum og sé svo hvort að hann geti þá ekki einnig verið sekur um skjalafals í umræddu faðernismáli mínu, og jafnvel hugsanlega öðrum málum honum viðkomandi.
Þá vill ég einnig benda á að mál þetta tengist ekki bara mér eða Gunnlaugi heldur einnig saklausu barni, sem að vill svo til að líkist mér alveg óheyrilega mikið, hver er réttur þessa barns gagnvart Gunnlaugi Geirssyni?
Einnig tek ég fram að ég álít að það réttarhald sem að á sér stað nú í málinu R30/2006 sé ólöglegt og stangist á við Mannréttindasáttmála Evrópu. Ég tel að í þessu máli nú sé ég ekki að njóta réttlátrar málsmeðferðar, að til málsins hafi hvorki verið skipaðir óvilhallir matsmenn né meðdómendur og að það hafi í reynd verið bæði óþarft og óheimilt að skipa til þess matsmenn eða framhalda málinu með frekari hætti vegna fyrri vistunar minnar á réttargeðdeild, sem að ég álít einnig að hafi verið ólögleg og geng svo langt að segja að hún hafi verið með eindæmum gróft brot á þeim alþjóða mannréttinda samningum sem að Ísland er aðili að.
Ég álít jafnframt að í stað þess að reyna að framhalda málinu, með viðlíka hætti og hér er reynt að gera að þá hefði átt að biðja mig afsökunar og greiða mér skaða og miskabætur vegna óþarflega langs gæsluvarðhalds í málinu og vistun að ósekju á réttargeðdeild.
Þá tel ég rétt að sú skoðun mín komi hér fram að Gunnlaug Geirsson Prófessor tel ég hættulegan réttaröryggi á Íslandi á meðan að hann gengur um sem frjáls maður og er ég þá hvorki að rita hér með hefnigirni eða langrækni í huga, heldur einungis að greina frá skoðun minni sem að byggð er á því hvernig þetta mál allt hefur þróast.
Afsökunarbeiðni myndi ég sætta mig við frá Dómsmálaráðherra vegna málsins ásamt loforði um að hann sæi til þess að viðlíka ógeðfelld brot og á mér voru framin í kjölfar líkamsárásar minnar á Gunnlaug Geirsson yrði ekki unnt að framkvæma aftur á nokkrum einasta borgara þessa lands.
Lagagreinar varðandi brot í opinberu starfi eru skýrar og verði vart við misbeitingu líkt og raunin hefur verið í þessu máli ætti að beita viðurlögum þeirra lagagreina af fullum þunga í stað þess að menn reyni að sópa skarna yfir skít hvers annars í slíkum málum.
Þá er kannski rétt að minnast á að það var viss ástæða fyrir því að málið var áður ekki kært til Hæstaréttar (misskilningur hjá fyrri lögmanni mínum). Ef að sá misskilningur hefði ekki verið fyrir hendi að þá hefði hið fyrra mál til losunar frá réttargeðdeild verið kært þangað umsvifalaust vegna þess að skilyrðin sem að þar voru á mig sett hefði ég aldrei samþykkt, hvorki heilbrigður eða galinn.
Að þessu sögðu er þá rétt að víkja að því að þau skilyrði sem að matsmenn stinga upp á í lok geðmats verða aldrei nokkurntímann samþykkt af mér eða mínum. Og ekki nein skilyrði ef að út í það er farið.
Þá tel ég rétt að mati þeirra Sigurðar og Láru verði vísað í heild sinni frá dómi og þeim gert að biðja mig afsökunar vegna þeirra órökstuddu ósanninda og aðdróttana um geðheilsu mína er koma þar fram, jafnframt því verði þau ávítt vegna óvandaðra vinnubragða sinna við gerð matsins.
Matið sem slíkt álít ég einfaldlega ekki papírsins virði og algjörlega ósæmandi af viðkomandi matsmönnum er heita eiga menntaðir í læknisfræðum og hafa skuldbundið sig til þess að koma fram af heiðarleika og nærgætni í gegnum störf sín.
Virðingarfyllst:
Guðmundur Þórarinsson.
Kt: 290571-4489
Sóleyjarrima 3,
112 Reykjavík.
____________________________________________
Guðmundur Þórarinsson (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 02:34
Davíðisminn er búinn að skaða landið og þjóðina, stela af henni eigum og bendla okkur við stríðsrekstur. Mikið verð ég feginn þegar þessi maður hefur fallið í gleymsku. Það sem mér er minnisstæðast frá þessum umrædda sjálfsökumanni, er þegar hann sagði um fátæka að Íslendingum þætti svo gaman að fá eitthvað fyrir ekki neitt. Þetta gat þessi vinsæli maður látið út úr sér þegar hann var spurður um biðraðir hjá Mæðrastyrksnefnd. Ég skil ekki hvernig fólk getur hafið þetta fyrirbrigði upp til skýjanna.
Valsól (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 13:19
Kannski áttu að halda þig við latté-ið og djöflaterturnar :)
kv. sigm.
-sigm. (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 16:37
Hvern andskotann er ég að meina??
Það sem að mannkynið á við að etja í dag er spilling og sérhagsmunagæsla sem að færist einfaldlega stöðugt í vöxt.
Hver ber ábyrgð á því að við búum hér við dómskerfi sem að er svo gjörspillt að það nær engu tali og lögreglu og ríkissaksóknara sem að snúa blinda auganu hiklaust að alvarlegum mannréttindabrotum framkvæmdum af dómurum sem að þjóna í "réttarríkinu".
HVernig stendur á því að Hæstarréttardómarar sem að verða ítrekað uppvísir að því að brjóta alþjóða sáttmála sem að Ísland er aðili að halda vinnunni??
Hvern andsk kemur
kemur það málinu við?
Hverjir hafa borið ábyrgð á því undanfarin ár að skipa dómara í embætti?
Er flóran í þeim hópi einsleit, eða nær hún yfir alla breidd þjóðfélagsins?
Hvurn andsk kemur þér það við að það sé hægt að taka einstakling sem að ekki er með geðsjúkdóm og loka hann inni á geðveikrahæli mánuðum saman og hóta honum með lyfjagjöf fyrir dómi.
Hvern andsk kemur allt þetta málinu við?
Segum nú sem svo að ég hefði ekki orðið uppvís að líkamsárás heldur hefði ég verið pólitískur andstæðingur einhvers?
Wake up and smell the coffee, þetta er Ísland í dag.
Kv: G.Þ.
Guðmundur Þórrinsson (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.