Fćrsluflokkur: Evrópumál
Útgáfuhóf á Seltjarnarnesi
11.11.2011 | 11:51
Í dag klukkan 5 er útgáfuhátíđ í Bóksafni Seltjarnarness ţar sem fagnađ verđur endurútgáfu á bókinni Morgunn lífsins eftir Kristmann Guđmundsson. Jafnframt er Kristmann kynntur sem skáld mánađarins hjá Bókasafninu.
Ţađ er Lestu.is sem gefur bók Kristmanns út og hún kemur á sama tíma út sem hefđbundin bók, rafbók og hljóđbók. Ármann Jakobsson og Bjarni Harđarson verđa međ stutt erindi um skáldiđ.
Léttar veitingar
og allir velkomnir.
Evrópumál | Breytt 13.11.2011 kl. 18:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Kynblandna stúlkan og Valdimar munkur
11.11.2011 | 09:52
Hér eru saman í einni bók tveir vinsćlir amerískir reifarar frá fyrstu árum 20. aldar.
Annarsvegar Valdimar munkur eftir Kobb sem hefur veriđ endurprentuđ nokkrum sinnum á 20. öld og hinsvegar hin djarfa bók Armands um Kynblöndnu stúlkuna.
Bćkur ţessar voru prentađar í Reykjavík 1905 og 1906 og hafa hér veriđ bundnar saman í eitt í heimabandi sem er orđiđ lúiđ og velkt. Bókin (bćđi ritin) er blađheil og skemmtilegt söfnunareintak sem fćst á ađeins 3300 kr, https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=166841
Um bráđasóttina á Íslandi eftir Jón forseta
27.10.2011 | 11:11
Um bráđasóttina á Íslandi og nokkur ráđ viđ henni / samiđ eptir ýmsum skýrslum og gefiđ út af Jóni Sigurđssyni alţingismanni Ísfirđinga. Kaupmannahöfn 1873. 37 síđur.
Fágćtur gripur og sögulegur ţví fá mál urđu Jóni forseta eins erfiđ í stjórnmálastríđi hans innanlands eins og óeining landsmanna um ađgerđir vegna sauđfjárveikivarna.
Vel međ farinn, verđ 17.000 kr, https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=171139
Evrópumál | Breytt 8.11.2011 kl. 18:38 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Viđ völd án ţess ađ vera viđ stjórn!
9.8.2009 | 12:34
Ég sagđi ađ ríkisstjórnin vćri viđ völd án ţess hún sćti viđ stjórn, ţađ er tvennt ólíkt, sagđi Jói stóri og hvarflađi augunum milli fólksins. Hún lćtur allt sitja viđ ţađ sama.
(Guđbergur Bergsson: Hjartađ býr enn í helli sínum, Rv. 1982)
Ofanrituđ pólitísk rćđa kommúnista og fyllibyttu í bók Guđbergs Bergssonar frá 1982 á vel viđ í dag eins og svo margt í ţessari bók.
Ţađ er enginn vafi ađ Grindjáninn Guđbergur er eitt af bestu skáldum ţjóđarinnar en ég verđ ađ játa ađ hafa ekki náđ ţroska til ađ lesa hann fyrr en hálffimmtugur og er nú á góđri leiđ međ ađ lesa allt eftir karl ţennan.
Í bókinni Hjartađ býr enn í helli sínum er lýst af ótrúlegu nćmi hugarflćkjum, fordómum, sleggjudómum, daglegu lífi og skynjun okkar á ţví.
Og stuttur pólitískur kafli bókarinnar í einhverskonar trekanti heima hjá Jóa stóra og Jóa litla er međ slíkum ágćtum ađ tekur langt fram öllum Icesave-vađli daganna.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Vinsćlustu bćkurnar...
25.7.2009 | 20:52
Nú um stundir ferđast landinn um Ísland og ţykir ţá gott ađ grípa međ sér eina kilju í ferđalagiđ. Vinsćlustu kiljurnar hjá okkur eru ţessar: Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson, Óvinafagnađur og Ofsi eftir Einar Kárason, Bókaţjófurinn eftir Markus Zusak.
Ein bók er ţó hvađ vinsćlust hjá okkur og ţađ er vísnabókin ,,Ef vćri ég söngvari". Bókin er fallega myndskreytt af Ragnheiđi Gestsdóttur. Henni fylgir svo geisladiskur ţar sem allar vísurnar eru sungnar af Kór Kársnesskóla en stjórnandi hans er Ţórunn Björnsdóttir. Sannarlega góđ bók fyrir börnin.
Pólitískar bćkur hafa notiđ mikilla vinsćlda síđustu misserin. Bćkurnar sem tróna á metsölulistanum ţar eru: Sofandi ađ feigđarósi eftir Ólaf Arnarson, Hruniđ eftir Guđna Th. Jóhannesson og Hvíta bókin eftir Einar Má Guđmundsson.
Bćkur um ESB eđa ekki ESB eru einnig mjög vinsćlar og vinsćlust af ţeim bókum núna er ,,Hvađ er Íslandi fyrir bestu?" eftir Björn Bjarnason.
Upptalningu á vinsćlum bókum lýkur svo međ ţví ađ nefna Sandvíkur- Skruddu eftir Pál Lýđsson. Sunnlendingar sem og ađrir kaupa ţá bók enda fátt betra í sumarfríinu en ađ lesa gamansögur.
-eg
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Tröllkonutrog í Henglinum og hrekkjóttar vinnukonur
13.5.2009 | 20:06
Helgi Ívarsson frćđimađur í Hólum bloggađi aldrei en var seinustu árin afkastamikill í frćđagrúski. Eins og hér hefur veriđ sagt frá gefur Sunnlenska bókaútgáfan út lítiđ kver međ greinum eftir Helg. Hér eru sýnishorn ţessara skrifa, fyrst merkur ţjóđfrćđipistill af ćskuslóđum Helga:
http://bokakaffid.blog.is/blog/bokakaffid/entry/876588/
og hinsvegar smá brot innan úr lengri pistli ţar sem fjallađ er um matargerđ og hrekki
http://bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar/entry/876577
Meira síđar...Evrópumál | Breytt 14.5.2009 kl. 16:51 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Helgakver er í undirbúningi
12.5.2009 | 12:59
Sunnlenska bókaútgáfan undirbýr nú útgáfu á Helgakveri, bók sem hefur ađ geyma brot af ţví besta úr skrifum Helga Ívarssonar í Hólum í Stokkseyrarhreppi (1929-2009).
Helgi var međ merkustu frćđimönnum Árnesinga og eftir ađ hann hćtti búskap ritađi hann reglulega pistla í Sunnlenska fréttablađiđ undir dálkaheitinu Sagnabrot. Sagnabrot Helga urđu á ţriđja hundrađinu en í bókinni verđur ađeins birtur hluti ţeirra.
Áćtlađur útgáfutími er komandi haust. Fremst í Helgakveri verđur birtur listi yfir ţá sem vilja votta Helga virđingu sína međ ţví ađ gerast áskrifendur ađ bókinni. Fyrir nafnbirtingu greiđa áskrifendur 3300 krónur. Hćgt er ađ skrá sig í tölvupósti bokakaffid@sunnlenska.is eđa beint í athugasemdakerfi hér ađ neđan.
Evrópumál | Breytt 13.5.2009 kl. 19:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)