Eðlilegur læknir

skottulaeknir.jpg
 
 
Hér eru töframenn og skottulæknar á hverju strái. Þessi var utan við hótelið mitt einn morguninn að selja mikilvæga læknisdóma við verkjum, náttúruleysi og mörgu fleiru. Hann einfaldlega tekur eðlur sem eru hér lifandi sallarólegar og sýður þær í potti – slátrar vitaskuld fyrst – og úr verður seyði svona gríðarlega kraftmikið. Ég tek við pöntunum en og mun að sjálfsögðu leggja á sem nemur kostnaði við flug milli Kelfavíkur og Rawalapindi!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband