Eldri færslur
- Maí 2014
- Mars 2014
- Október 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Reiðin er mikil meðal Framsóknarmanna
6.10.2007 | 13:42
Svandís Svavarsdóttir VG segist í viðtali við Mbl. að hún finni fyrir mikil reiði meðal almennings vegna viðskiptanna sem átt hafa sér stað með þekkingu og auðlind Orkuveitu Reykjavíkur. Þessa reiði finna fleiri en vinstri grænir. Ég get bara tekið undir með Svandísi og sjálfur hefi ég orðið var við þessa reiði og það held ég að allir í okkar góða þingflokki Framsóknar hafi orðið. Bæði meðal Framsóknarmanna í Reykjavík og líka utan Reykjavíkur. Vegna afskipta okkar manna verða nógir til að kenna flokknum í heild um og það er mjög miður og ég get fullyrt að aðferðafræði eins og sú sem þarna á sér stað er mjög fjarlæg venjulegu framsóknarfólki að ekki sé dýpra tekið í árina.
Ég hef reyndar ekki rætt þetta persónulega við hlutaðeigandi trúnaðarmenn Framsóknarflokksins í borginni en á undanförnum dögum hafa fjölmargir hringt, framsóknarmenn hvarvetna og það eru sömu viðbrögðin allsstaðar. Við erum reið og okkur sárnar sú framganga sem hér á sér stað. Það er sárt að sjá verðmæti sem eiga að vera í sameign margra vera með þessum hætti mulin undir gróðaöflin. Ég er alls ekki að tala um það að við megum vel í útrás, ég er að tala um kaupréttarsamninga, milljónagróða upp úr vösum almennings o.s.frv.
Það er líka sárt fyrir alla þá sem unnið hafa að endurreisn og orðstý Framsóknarflokksins undanfarnar vikur og mánuði heyra af þessum atburðum og þarf svosem ekki fleiri orð um það að hafa. En ég fullyrði líka að ekkert af þessu var rætt á vettvangi flokksins á landsvísu og er öðrum en tilteknum fulltrúum okkar í borgarstjórnargeiranum óviðkomandi.
En þetta verður rætt á vettvangi flokksstarfsins,- svo mikið er víst! Ég hef eiginlega sjálfur verið of bit til að blogga um þetta fyrr en núna.
Finnur fyrir mikilli reiði í samfélaginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Tenglar
- X-J 2013 Regnboginn.is
- Jón fóstri
- Guðmundur djákni
- Tilveran í ESB
- Netbókabúð bókakaffisins
- Bloggsíða villikatta
- Bókablogg Sunnlenska bókakaffisins
- Heimssýn, - Ísland EKKI í ESB
- Egill Bjarnason ferðalangur
- Atli
- Harpa
- Vinstri vaktin gegn ESB
- AMX hægri fréttir
- Laugarás í Biskupstungum á fésbókinni Hér má finna gamla og nýja íbúa Laugaráss í Biskupstungum
- Smugan vinstri snú!
- Anna Björnsson
Bloggvinir
- Ólafur Björn Ólafsson
- Ágústa
- Ævar Rafn Kjartansson
- Agnar Bragi
- Agnes Ásta
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Sigrún Jónsdóttir
- Helga R. Einarsdóttir
- Á móti sól
- Andrés Magnússon
- Andrés.si
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Hólm Ármannsson
- Árni Matthíasson
- Árni Þór Sigurðsson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Ása Björg
- Ívar Pálsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Rúnar Halldórsson
- Auður Eva Auðunsdóttir
- Egill Bjarnason
- Axel Þór Kolbeinsson
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Baldvin Jónsson
- Margrét Annie Guðbergsdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Björn Emil Traustason
- Birkir Jón Jónsson
- Hommalega Kvennagullið
- Birna G
- Guðrún Olga Clausen
- Bjargandi Íslandi
- Björn Jóhann Björnsson
- Bleika Eldingin
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Guðmundur Bogason
- Bogi Jónsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Bwahahaha...
- Brjánn Guðjónsson
- Baldur Már Róbertsson
- SVB
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja Hjaltadóttir
- Bergþór Skúlason
- Rögnvaldur Hreiðarsson
- busblog.is
- Charles Robert Onken
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Davíð
- Davíð Logi Sigurðsson
- Diesel
- Dofri Hermannsson
- Adolf Dreitill Dropason
- Anna S. Árnadóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Ágúst Dalkvist
- GK
- Bjarni Kjartansson
- Dunni
- Óskar Ingi Böðvarsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Egill Jóhannsson
- Egill Gomez
- Einar Freyr Magnússon
- Einar Sigurbergur Arason
- Eiður Ragnarsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Kristján Eldjárn Þorgeirsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Zóphonías
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Karl Gauti Hjaltason
- Eysteinn Jónsson
- Eyþór Árnason
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Fannar frá Rifi
- Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
- Femínistinn
- Stefán Þórsson
- Jakob
- FLÓTTAMAÐURINN
- Gísli Foster Hjartarson
- Ritstjóri
- FreedomFries
- Friðjón R. Friðjónsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Björgvinsson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- FUF í Reykjavík
- Hlynur Sigurðsson
- Dóra litla
- Baldur Fjölnisson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gestur Halldórsson
- Gestur Guðjónsson
- Gísli Hjálmar
- Einar Ben Þorsteinsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Skákfélagið Goðinn
- Ingólfur H Þorleifsson
- Stafnhús ehf
- Götusmiðjan
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Ómarsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Magnússon
- gudni.is
- Guðrún Fanney Einarsdóttir
- Guðrún
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gulli litli
- Gunnlaugur Stefánsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Jón Erlendsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Þór Gunnarsson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Gylfi Guðmundsson
- Pjetur Hafstein Lárusson
- halkatla
- Halldór Baldursson
- Hallur Magnússon
- Haukur Már Helgason
- Jóhann Ágúst Hansen
- haraldurhar
- Haraldur Haraldsson
- Héðinn Björnsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiðar Reyr Ágústsson
- Heiða Þórðar
- Björn Heiðdal
- Heimssýn
- Heiðar Sigurðsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Helgi Már Bjarnason
- Kaleb Joshua
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Kristín Einarsdóttir
- Eiríkur Harðarson
- Heiðar Lind Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Helgi Sigurður Haraldsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hlynur Hallsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- HP Foss
- Krummi
- Hrannar Björn Arnarsson
- hreinsamviska
- Fulltrúi fólksins
- Hrólfur Guðmundsson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Hvíti Riddarinn
- Icelandic fire sale
- íd
- Ingimundur Kjarval
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
- Sævar Einarsson
- Elísa Arnarsdóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Svanur Jóhannesson
- Einar Vignir Einarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Sigurjónsson
- Jens Guð
- Jóhann G. Frímann
- jósep sigurðsson
- Jóhann Steinar Guðmundsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Jón Finnbogason
- Jónína Brynjólfsdóttir
- Jón Magnússon
- Jóhann Jóhannsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Valsson
- Bergur Thorberg
- Karl V. Matthíasson
- Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Vídó
- Kristján Jónsson
- Guðjón H Finnbogason
- Kolbeinn Karl Kristinsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Stjórnmál
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Helga Guðmundsdóttir
- Kristín Magdalena Ágústsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Kolbrún Hilmars
- Karl Tómasson
- Kolbrún Ólafsdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Landvernd
- Lára Stefánsdóttir
- Heimir Eyvindarson
- Laufey Ólafsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Jónas Jónasson
- Pálmi Guðmundsson
- Gylfi Norðdahl
- Loopman
- Guðný Lára
- Guðjón Baldursson
- Edda Jóhannsdóttir
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Magnús Jónsson
- Magnús Vignir Árnason
- Mál 214
- Alfreð Símonarson
- Máni Ragnar Svansson
- Björn Benedikt Guðnason
- Guðmundur Margeir Skúlason
- Steinar Immanúel Sörensson
- Gísli Tryggvason
- Níels Bjarki Finsen
- Jón Svavarsson
- Ólafur Björnsson
- Ólafur fannberg
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Nordal
- Hundshausinn
- Guðmundur Örn Jónsson
- Óttar Felix Hauksson
- Páll Geir Bjarnason
- Páll Vilhjálmsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- percy B. Stefánsson
- perla voff voff
- Perla
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jóhann Birgir Þorsteinsson
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar L Benediktsson
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Rúnar Birgisson
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- ragnar bergsson
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Víðir Benediktsson
- Salmann Tamimi
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Þórhallur V Einarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigurður Jón Hreinsson
- Sigurður Hólmar Karlsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurjón Valgeir Hafsteinsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Gunnar Þór Ólafsson
- Egill Helgason
- Sigurður Jónsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Jóhann Waage
- Auðun Gíslason
- Óskar Þorkelsson
- Karl Hreiðarsson
- Halldór Sigurðsson
- Brynja skordal
- Hreiðar Eiríksson
- Hannes Friðriksson
- hilmar jónsson
- Snorri Hansson
- Sóley Tómasdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Bogi Sveinsson
- Stefán Þór Helgason
- Stefanía
- Steingerður Steinarsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- Þorsteinn Briem
- Steinn Hafliðason
- Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
- Samband ungra framsóknarmanna
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svanur Kári Daníelsson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Sveinbjörn Eyjólfsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Sigursveinn
- Helgi Guðmundsson
- Þóra Sigurðardóttir
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórir Kjartansson
- Þórólfur S. Finnsson
- Tíðarandinn.is
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gísli Kristjánsson
- Þorleifur Ágústsson
- TómasHa
- Tómas Þóroddsson
- Reynir Hugason
- Trúnó
- Halldór Egill Guðnason
- Gaukur Úlfarsson
- Unnar Geir Þorsteinsson
- Ferðaþjónustan Úthlíð
- Vilhjálmur Árnason
- P.Valdimar Guðjónsson
- Valdimar Sigurjónsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Valsarinn
- Vefritid
- Vér Morðingjar
- Vestfirðir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Guðfríður Lilja
- Gylfi Björgvinsson
- Vilhjálmur Árnason
- Sigurlaug B. Gröndal
- Aðalsteinn Bjarnason
- Aðalsteinn Júlíusson
- Andrés Kristjánsson
- Anna Einarsdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Arnþór Helgason
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Árelíus Örn Þórðarson
- Árni Haraldsson
- Árni Þór Björnsson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásta Hafberg S.
- Barði Bárðarson
- Benóný Jónsson Oddaverji
- Bergur Sigurðsson
- Bergþóra Sigurbjörnsdóttir
- Birgir R.
- Birna G. Konráðsdóttir
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Jónsson
- BookIceland
- Braskarinn
- Carl Jóhann Granz
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Einarsdóttir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- ESB og almannahagur
- Eva G. S.
- Eygló Sara
- Eyþór Örn Óskarsson
- Friðrik Kjartansson
- Garún
- Gestur Janus Ragnarsson
- Gissur Þórður Jóhannesson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson
- Grétar Mar Jónsson
- Guðbjörg Hrafnsdóttir
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Markúsdóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Heiðarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Gústaf Níelsson
- Gylfi Gylfason
- Hafþór Baldvinsson
- Halla Rut
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Jónsson
- Haraldur Hansson
- Haukur Baukur
- Haukur Nikulásson
- Heimir Ólafsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjalti Tómasson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Hörður B Hjartarson
- Hörður Stefánsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Ingimundur Bergmann
- Ingvi Rúnar Einarsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Ísleifur Gíslason
- Jack Daniel's
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jakob Þór Haraldsson
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jóhann Pétur
- Jónatan Karlsson
- Jón Á Grétarsson
- Jón Árni Bragason
- Jón Baldur Lorange
- Jón Bjarnason
- Jón Daníelsson
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Lárusson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Katrín
- Katrín Mixa
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Kári Harðarson
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Kristinn Arnar Guðjónsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Magnús Jónasson
- Magnús Kristjánsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Már Wolfgang Mixa
- MIS
- Offari
- Ólafur Björnsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Bjarki Smárason
- Óskar Steinn Gestsson
- Paul Joseph Frigge
- Páll Helgi Hannesson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Raggi
- Ragnar G
- Ragnar Gunnlaugsson
- Ragnar Stefán Rögnvaldsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Reynir Jóhannesson
- Samstaða þjóðar
- Samtök Fullveldissinna
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- S. Einar Sigurðsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigrún Óskars
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Fannar Guðmundsson
- Sigurður Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Sigurjón Norberg Kjærnested
- Skuldlaus
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Sólrún Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Steini Palli
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Sveinn Björnsson
- Sædís Hafsteinsdóttir
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trausti Jónsson
- Trausti Traustason
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Urður bókafélag
- Vaktin
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Skagfjörð
- Varmársamtökin
- Vésteinn Valgarðsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vinstrivaktin gegn ESB
- ÞJÓÐARSÁLIN
- Þorri Almennings Forni Loftski
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þórarinn Lárusson
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Bragason
- Þórhallur Heimisson
- Þórhallur Heimisson
- Þráinn Jökull Elísson
Athugasemdir
Eruð þið báðir reiðir?
Björgvin Valur (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 14:01
Bjarni - blessaður vertu ekki með þessa hræsni maður. Þú reitir mann til enn meiri reiði með þessu bulli þínu. Þið frammarar eruð með alla fingur á kafi í þessari nammidollu sérhagsmunapots og spillingar með eignir almennings. Ætlar þú að segja að þið hafið engan kontról á því sem Björn Ingi er að gera? Ykkar maður í borgarstjórn og jafnframt í stjórn Orkuveitunnar. Af hverju er hann búinn að bora sig inn þar? Þú veist það vel. Hafir þú ekki vitað það, þá ættir þú að sjá það núna.
Og kemur þú af fjöllum vitandi hver er innsti koppur í búri í orkufjárfestingabralli Glitnis? Árni Magnússon fyrrverandi félagsmálaráðherra. Svo er bróðir hans gerður stjórnarformaður Landsvirkjunar nokkrum mánuðum síðar og það með bolabrögðum - um svipað leyti og Björn Ingi sest í stjórn OR. Mér varð beinlínis óglatt þegar ég sá að Valgerður varaformaður þinn hreykti sér af því í sjónvarpinu að þetta með REI hefði nú eiginlega allt henni að þakka - hefði hafist vegna þess að hún hafði verið í Kína á fundum með einhverjum vafasömum pappírum austur þar í því mikla "lýðræðis" og "mannréttindaríki".
Talar þú aldrei við formann þinn og sveitunga á Selfossi - Guðna Ágústsson? Hvað segir hann um þessa hluti? Hann þegir út á við, en hefur hann líka þagað um þessi mál við þig?
Magnús Þór Hafsteinsson, 6.10.2007 kl. 14:29
Mér varð óglatt af því að lesa þessa færslu Bjarna Harðarsonar.
Guðmudur Guðmundsson (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 14:46
Í þessu máli er bara að sjóða svolítið uppúr í græðgisvæðingarpottinum. Allt undir fölsku flaggi og hátíðlegu tali um blessaða útrásina. En að baki liggur að mínu mati þaulhugsað plan þeirra sem eiga orðið allt á Íslandi nema orkufyrirtækin. Þegar þeim sem framkvæma verkið er svo heitið tugmilljóna gróða í kaupréttarsamningum og bitlingum, vantar ekki starfslið. Kæmi mér ekki á óvart að allur þessi málatilbúnaður eigi sér það djúpar rætur, að aumingja gamla góða Villa sé um megn að skilja alla fléttuna.
Þórir Kjartansson, 6.10.2007 kl. 14:51
Hef enga ástæðu til að efast um að þú meinir það sem þú ert að segja í ljósi kynna okkar, þú hefur fram til þessa verið sjálfum þe´r samkvæmur. Vona að það séu fleiri hugsandi innan raða flokksins þíns og að þess sjái merki.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 6.10.2007 kl. 15:14
Hef enga ástæðu, fremur en Anna, að ætla að höfundur þessarar síðu skrifi hér af fullri einlægni. Svo er alveg með ólíkindum hvað fólk leyfir sér í dónaskap hér í bloggheimum. Er ekki hægt að segja skoðun sína, á aðeins huggulegri máta.
Takk fyrir færslu Bjarni.
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 15:29
Híhí, þarna varð mér á í messunni. Hér á auðvitað að standa að ég hafi enga ástlæðu, fremur en Anna, að ætla að höfundur þessarar síðu skrifi EKKI hér af fullri einlægni
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.10.2007 kl. 15:31
Sæll Bjarni. Varð ofsareiður og lét það í ljós á bloggi mínu í
gærkvöldi. Takk fyrir þitt innlegg........
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 6.10.2007 kl. 16:03
Takk fyrir þetta blogg Bjarni. Ég held að það sé síst orðum aukið að þessi vinnubrögð ofbjóða Framsóknarmönnum. Við verðum að fá fram einhverja umræðua um þetta mál. Ég hef skrifað bæði Birni Inga og hafið umræðu um þetta á póstlista Framsóknarmanna.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 6.10.2007 kl. 17:06
Þakka þér kærlega fyrir þessi orð Bjarni minn! Ég var farin að halda þingmenn okkar ætluðu ekkert að tjá sig um þetta mál.
kv. Sigrún
Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 17:15
Ég held að vinnubrögð Björns Inga séu ósköp venjuleg framsóknavinnubrögð. Ég er nú samt svo vitlaus að ég trúi því sem þú skrifar en það kemur þá í ljós seinna hvort ég hafi rangt fyrir mér. Held að þú sért nokkuð samkvæmur sjálfum þér þó þú sért framsóknamaður. Núna bíð ég bara eftir því að formaðurinn þinn láti ljós sitt skína. Ef formaðurinn fordæmir vinnubrögð Björns Inga merkir það að það eru að verða breytingar á Framsóknarflokknum, ef ekki þá er þetta sami gamli spillingar og afturhaldsflokkurinn. Og þegar eitt heilt epli er innanum fullt af skemdum eplum skemmist það fljótt.
Sigurður H. Einarsson (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 17:53
Hverjir hafa verið að vinn að "endurreisn og orðstý" flokksins þíns undanfarna daga? Eru það mennirnir sem slógu af Álverið í Helguvík? Ekki held ég að þessir fáu framsóknarmenn sem eftir eru á suðurnesjum geti tekið undir það? Er það endurreisn á orðstí að gefa fyrrverandi kosningatjóra framsóknarí reykjavík tugi milljóna á silfurfati eins og gert var þegar REI varð til? Skrýtin endurreisn það. Held að nær væri að segja að þið væruð að halda þeim spillingarkyndli sem Alfreð Þorsteinsson risarækja framsóknar hélt svo hátt og svo skært á lofti um árabil í Reykjavík.
Því miður fyrir framsókn held ég að fólk sjái enga betrun í spilunum hjá ykkur, þrátt fyrir að vera komnir í stjórnarandstöðu á þingi. Flokkurinn lyktar illilega af spillingarstækju undanfarina stjónarára, bæði í landsmálum og borginni. Held að þá lykt verði erfitt að hreinsa. Alveg sama hvaða spillingarmál koma upp, verður alltaf hægt að segja "þetta var nú ekkert, munið þið ekki hvað Alfreð gerði!", eða "þetta var nú ekkert, munið þið ekki hvar þessi framsóknarmaðurinn eða hinn endaði í stjórnkerfinu eða borgarapparatinu". Því miður fyrir þig Bjarni minn ertu háseti á skútu sem er illa mönnuð með skaddað stýri og laskaða vél. Bátsferðir á slíkum skútum eru yfirleitt ekki til fjár.
Jóhann (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 18:28
Sæll Bjarni. Það er naumast. Samkvæmt nokkrum frjálslyndum skoðunum hér á blogginu, þ.e. þeir sem eru að setja inn athugasemdir, virðist aftakann gegn Framsókn vera enn í gangi.
En burt séð frá því. Þakka þér fyrir að koma fram og segja þína skoðun. Held að "við öll" hér sem erum að svara Bjarna, getum verið sammála með það að það sé gott að þingmaður flokksins komi fram og segi sína skoðun.
Bjarni. Ég vil benda á bloggfærslu mína um þessi Orkuveitumál... Kannski einhverjum bregði? Sjáum til....
Kveðja,
Sveinn Hjörtur , 6.10.2007 kl. 20:27
Heill og sæll, Bjarni !
Eins; og ég gat um, fyrir stundu, á spjallsíðu þess ágæta og hrekklausa drengs; vinar okkar, Guðmundar Jónasar, fyrir stundu; þá eigið þið; að REKA Valgerði Sverrisdóttur og þennan skelmi, Björn Inga Hrafnsson, úr flokki ykkar, eigi ykkur að hlotnast einhver trúverðugleiki, að nýju; meðal þjóðar okkar.
Svo einfalt er það ! Betri ráð; getum við, fylgismenn þungavigtarsveitar Frjálslynda flokksins ekki gefið ykkur, um stund.
Mbk. / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 21:20
Sæll Bjarni.
Það fækkaði um einn í flokknum við þessa aðgerð. Þetta er ekki hægt að svona skuli viðgangast.
Einar Vignir Einarsson, 6.10.2007 kl. 21:45
".....Það er líka sárt fyrir alla þá sem unnið hafa að endurreisn og orðstý Framsóknarflokksins undanfarnar vikur og mánuði heyra af þessum atburðum". Ekki sýnist manni nú aðgerðin vera að heppnast vel Bjarni, þessi sem setti inn færsluna hér að framan er í það minnsta hættur og farinn frá ykkur. Held að framsóknarflokkurinn ætti bara að taka annan fund niður á hverfisgötu og athuga hvað sé hægt að gera. Ef einhver árangur ætti svo að nást væri vænlegast til árangurs að senda Valgerði í lagningu eða annað metnaðarfullt verkefni á meðan á fundi stendur og sjá hvort þið náið ekki að koma með betri aðgerðaráætlun en unnið er eftir þessa dagana, hún er hræðileg og skilar ykkur engu öðru en fylgi undir 5% á næstu vikum og mánuðum, ef fylgið nær því þá.
Johann (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 22:08
Góð færsla Bjarni. Nauðsynlegt að halda uppi umræðu um þetta mál
Marta B Helgadóttir, 6.10.2007 kl. 22:13
Það eru ekki allir Framsóknarmenn sem eru í Framsóknarflokknum, frekar en rottur verða ekki hestar þótt í hesthús komi.
Það á við Björn Inga, Finn Ingólfsson, Halldór Ásgrímsson, bræðurna Árna og hinn þarna, og fleiri.
Þetta eru ekki alvöru Framsóknarmenn sem standa vörð um landsbyggðina. Þeir ættu að vera í Sjálfstæðisflokknum.
HP Foss, 6.10.2007 kl. 22:41
Bjarni....það er því miður rétt sem sagt er að áhrifamenn í Framsóknarflokknum hafa ítrekað misnotað aðstöðu sína í einkavæðingu ýmissa stofnana ríkis undanfarin ár. Heldur þú að Finnur Ingólfsson td hafi unnið alla þessa milljarða í lottó. Ef þú hefur trúað því þá er þér vafalaust fyrirgefinn barnaskapurinn
Jón Ingi Cæsarsson, 6.10.2007 kl. 23:45
Voðalega bull er þetta hja ykkur flestum. Það eru væntalega fullgild rök fyrir þessu og hvað segið þið svo eftir ca 4ár þegar Or. selur sinn hlut fyri kanski 40-60 milljar? Hvar er spillingin, ég er viss um að þið sem búið í Reykjavík sláið ekki hendinni á móti þeim peningum þegar þeir koma en það ættu þið að gera annað er hræsni. Það er mikið talað um spillingu hér hjá framsóknarmönnum en framsóknarmanna verður minnst seina meir sem sá flokkur sem mest barðist fyrir atvinnusköpun og fjölgun starfa síðan 1995.
Guðmundur Geir Sigurðsson, 6.10.2007 kl. 23:56
Sælir
Oddviti flokksins þarf að sitja fyrir svörum varðandi þetta mál. Það er alveg á hreinu. Fyrir hverju stendur hann? Maður spyr sig...sennilega bara fyrir sjálfan sig og engan annan.
mbk.
Ólafur Sveinn Haraldsson (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 00:19
Hér liggur " fiskur undir steini " pólítiskur fiskur.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 7.10.2007 kl. 01:20
Nú er mál að anda í gegnum nefið, fóstri.
-sigm. (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 05:36
"ég get fullyrt að aðferðafræði eins og sú sem þarna á sér stað er mjög fjarlæg venjulegu framsóknarfólki að ekki sé dýpra tekið í árina."
Már Högnason (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 06:59
Heimurinn væri betri, ef allir Framsóknarmenn væru eins og þú Bjarni! Góður!
Júlíus Valsson, 7.10.2007 kl. 09:21
Fyrr má nú aldeilis fyrrvera. Engin smá viðbrögð.
En hvers vegna sögðu Framsóknarmenn ekkert þegar fyrri skunkar flokksins voru að störfum og rökuðu til sín fjármunum með svipuðum hætti og gerst hefur í þessu REI-OR máli?
Sigurður Sigurðsson, 7.10.2007 kl. 12:25
Sæll
Mér finnst nauðsynlegt að forysta Framsóknarflokksins tjái sig um málið en reyni ekki að þagga vandræðaleg mál eins og Halldór og Davíð gerðu. Þessi grein þín og síðan viðbrögð formannsins eru alveg hárétt.
Góðar kveðjur að norðan, Alex Björn.
Alex Björn (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 17:09
Vel mælt Bjarni - af okkar fyrri kynnum trúi ég því að þú meinir þetta.
Gangi þér vel á þínum vettvangi
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 7.10.2007 kl. 21:07
Vér mótmælum allir!!!!/Halli Gamli
Haraldur Haraldsson, 7.10.2007 kl. 21:48
Nú er svo, að ég er allsenginn Framsóknarmaður, heldur þjóðernissinnaður Sjálfstæðismaður, sem sagt íhald af hinni þjóðlegu gerð, sem nokkuð þekktust hér í eina tíð.
Þú ritar þetta innlegg þitt af ástríðu og vonandi hjartahreinleika sveitapiltsins.
Enn er svo, að ég er eldri en tvævetur í þjóðmálum og hef fylgst vel með í um það bil hálfa öld. Fékk brá'ungur mikinn áhuga á pólitíkk, enda móðir mín afar pólitísk og réttsýn kona, svona af hinu fallega Miðbæjaríhaldsfólki, með sterkum tengslum Vestur á firði. Pabbi einnig mjög hreinskiptinn íhaldsmaður, líkt og flestir í mínu núnefndu ,,nærumhverfi".
AUðvitað veit ég, að það hafa verið ær og kýr mjög margara Framsóknarmanna, að brúka hið opinbera, til að ná fram óskum sínum og auka sinn persónulega hga.
ÞEtta hefur kristaliserast hin síðari ár, svosem, þegar Finnur og Ólafur véluðu út Kaupþing og Búnaðarbankann með afskaplega hæpnum aðferðum og að margra manna yfirsýn, -lygi, -um grundvallarspurningar í þeim efnum, svo sem aðkomu ,,kjölfestufjárfesta" útlendra.
Nafni okkar lét af störfum við Glitni banka, hvar hann var dyggur þjonn eigenda þess banka. Síðar varð hann formaður stjórnar í REI og hélt þar áfram, að þjóna sínum fyrri herrum. FL grúppueienda, Glitniseigendum, svo sem Baugsfeðgum.
Vitað er, að Finnur Ingólfs og fleirri athafnamenn, hafa verið að gera hosur sínar grænar fyrir orkufyrirtækjunum og svo mjög var þeim framá um það, að fundi var komið á við Gulla, hvar reynt var með fagurgala og þrýstingi, að komast með táfestu inn í OR. Það tókst ekki en Bingi og þeir bræður synir Magnúsar Bjarnfreðs, hafa nú verið bertri en öngvir í aðstoð við þessa menn.
EF skoðuð eru spor sumra framámanna ukkar Framsóknarmanna í meðferð á Samvinnufélögunum og sjóðum þar, er í það minnsta virkilega mikil ástæða til, að fara varlega í viðskiptum við þuma þeirra.
Vonandi eru viðbrögð þín, naffni minn og þíns skelegga formanns, vísbending um, að eitthvað fari nú að sjást til sólar innan Framsóknarflokksins og aftur komist menn þar að, sem í raun og sannleika, bera fyrir brjósti, hag almennings og að Samvinnuhugsjónin sé eitthvað annað en fyrirsláttur í öflun auðs í eigin garð.
Með hjartqahreinni ósk um alger umskipti í framgangi forystumanna þess gamla Bændaflokks, hvar þjóðhollir menn eittsinn áttu sæti.
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 7.10.2007 kl. 22:19
Gæti það verið að skálkurinn Björn Ingi Hrafnsson,flýi yfir í sjálfstæðisflokkinn fljótlega,þangað hafa sumir skálkar flúið.
Er sammála því sem að var ritað hér í pistli að Framsóknarflokkurinn er ekki í pólítík,hann er flokkur gangstera .
Jensen (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 23:12
Bara vísa til bloggsíðu minnar í kvöld til stuðnings þér félagi Bjarni......
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.10.2007 kl. 00:40
...fundu þeir helli í hömrum nokkurum og þar mann dauðan og stóð hjá honum munnlaug full af blóði...
Stefán Steinsson (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 08:36
Og hvað ætla bloggverjar að gera í þessu óréttlæti?Bara að blogga um það og ræða þessi mál yfir öllara í vina hópi?Hvernig væri að við Íslendingar færum að láta hendur standa fram úr ermum og efna til almennilega mótmæla.Við erum að verða langþreytt á,að búa við,okur,græðgi,misrétti og áhugaleysi stjórnvalda á að taka á málum.Er þetta ekki fólkið sem kosið er af fólkinu,treyst til að breyta rétt og af sinni bestu sannfæringu,sem er að bregðast hlutverki sínu.Burtu með þetta lið því þetta er ekkert annað en lið. Það er líka eftirtektarvert að meirihlutinn í borgarstjórn steinheldur kj...i.Voru þau öll send í kjálkavírbindingu eða hvað?Er ánægð með þig Bjarni að tjá þig þó um þetta mál.
Ragnabi (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 09:30
Á nú ekki til orð, Hvaða dónaskapur er þetta eiginlega,
er nú ekki hægt að fara diplómata- leiðina við að segja sína meiningu,
hún má alveg jaðra við dónaskap, en ekki útyfir það.
Bjarni Harðarson ég hef alltaf haft gaman af því að hlusta á þig,
þú ert vel máli farinn og vel gefinn maður.
Vill bara segja þér að ég tel þig vera trúverðugan.
Ég er sama sinnis og Bjarni Kjartansson
og tek undir óskir hans um betri bændaflokk svo til sóma verði.
Það mætti svo sem margt og mikið breytast.
Hættum þessu karpi og leysum málin.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.10.2007 kl. 09:47
Björn Ingi Hrafnsson er fyrir mér einsog Geitungur: kemur fram á ólíklegustu stöðum og er öllum til ama og leiðinda þar sem hann skýtur upp kollinum.
En það sem er sýnu verra; hann getur verið stórhættulegur!
Gísli Hjálmar , 8.10.2007 kl. 22:01
Það ætti ekki að vera mikið mál að gera svona hundahreinsun í Framsókn með úttekt á spillingu. Finnur Ingólfsson, Alfreð Þorsteinsson og nú síðast Björn Ingi Hrafnsson hafa ægishjálm yfir aðra framsóknarmenn þegar kemur að spillingu. Alfreð þarf ekkert að ræða. Allir vita hans verklag. Finnur Ingólfs komst fyrst inn í pólitíkina með þvi að fella Guðmund G. í frægu prófkjöri þar sem Finnur notaði vægast sagt sóðaleg vinnubrögð. Síðan rak eitt hneykslið annað hjá þeim ágæta manni. Punktinn yfir i ið var svo þegar hann leysti til sín hundruðir milljóna gegnum gamla sambandsauðinn í tryggingafélagi.
Björn Ingi hefur þrátt fyrir stutt stopp í pólitík náð undraverðum árangri í spillingu. Strax að loknum síðustu borgarstjórnarkosningum komu upp umræður um háttalag pits. Raðandi sér og sínum á kjötkatlana. Nú síðast fór fyrrum kosningastjóri hans, bæði í prófkjörinu og kosningunum mikinn og fékk að skammta sér hlutabréf fyrir ekki neitt, sjálftaka upp á tugi milljóna eða meira.
Ég veit ekki hvað framsókn þurfi að gera til að ná aftur trausti fólks. Líklega myndi afsögn Björns Inga hjálpa mikið til við að snúa við þessari þróun.
Johann (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 09:08
Spillingarpjakkar eiga bara ekkert erindi í þjóðmálin..Björn Ingi á bara ekki að líðast. Það hreinlega stendur stimplað á enni mannsins með stórum stöfum..Spilling/eiginhagsmunir.
Hver vill svona gutta í þjóðmálin??? Sendum hann á sjóinn og leyfum honum að fiska sinn eigin afla með sínum eigin höndum. Nei annars..ætli hann tæki ekki bara allan kvótann með sér??
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.10.2007 kl. 18:24
Kæri Bjarni,
var þetta dropinn sem fyllti mælinn, til að þú áttaðir þig og sért orðinn þreyttur á spillingunni í Framsóknarflokknum?
Sigurður Þórðarson, 10.10.2007 kl. 00:17
Framsóknarflokkurinn var eitt sinn þjóðlegur og heiðarlegur framsóknarflokkur. Síðustu ár hefur hallað undan fæti.
Undanfarið hafa famsóknarmenn ekki haft fyrir því að segjast reiðir út í spillingu. Þvert á móti hafa þeir þagað þunnu hljóði um umdeildar athafnir manna eins og Gunnlaugs Sigmundssonar, Jóns Sveinssonar, Finns Ingólfssonar og þeir slógu skjaldborg um formann sinn Halldór Ásgrímsson allt þar til hann var rúin trausti kjósenda.
Boðar siðbótarpistill þinn nýja tíma? "Guð láti gott á vita"
Sigurður Þórðarson, 10.10.2007 kl. 00:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.