Upp rísi sveit!

skjaldarmerkiDagarnir fara í bóksölu og þess utan að undirbúa á fullveldishátíð Heimssýnar 1. desember en þá verður fullveldi vort 90 ára. (Það er semsagt aðeins yngra en Framsóknarflokkurinn og lifir enn.)  Oft var þörf en nú er nauðsyn að við stöndum vörð um fullveldið og það gerum við best með því að fylkja liði, þvert á flokkslínur.

Við erum nú að safna saman fólki sem vill aðstoða okkur við að auglýsa hátíð þessa upp með því að setja nöfn sín undir dagblaðaauglýsingar. Um leið lýsum við yfir einarðri andstöðu við ESB aðild landsins.

Heimssýn sem standa að þessu eru þverpólitísk samtök þar sem sitja í stjórn fulltrúar allra flokka og flokksleysingjar. Dagskráin verður nánar kynnt hér á síðunni en þó fyrst á síðu Heimssýnar strax eftir helgi.

En það er ekki ókeypis að auglýsa og því förum við fram á 5000 krónur frá hverjum þeim sem vill vera með – minna þó frá námsmönnum, öryrkjum og eldri borgurum.

Nánari upplýsingar er að finna hér – en einnig er hægt að senda á mig línu og þá bæti ég viðkomandi beint á listann eða sendi nánari upplýsingar eftir því hvað beðið er um. Nú eða einfaldlega að kommentera hjá mér hér að neðan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Upp risi tjodlif og skipist i sveit !

Tetta list mer a Bjarni Hardarson !

En tessi nyji flokkur okkar Tjodarflokkurinn - Nyja Island ma ekki verda einhverskonar endurunninn Framsoknarflokkur, ta er hann algerlega daudadaemdur eins og Framsoknarflokkurinn sjalfur !

Hann verdur ad hafa miklu breidari skyrskotun en tad !

Eg styd tetta heilshugar to eg bui a Spani. 

Settu reikningsnumerid ykkar a netid strax tannig ad vid sem viljum getum greitt ykkur tennan pening. LIFI FRJALST OG FULLVALDA ISLAND ! 

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 19:54

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég er áhugasamur um þetta, en líklegast er ég ekki borgunarmaður fyrir svona aukakostnaði fyrr en á mánaðamótum.  Þessi kostnaður á þó líklega eftir að fæla marga frá, sem annars vildu leggja málinu lið, svo mér er spurn hvort ekki væri heilnæmara að biðja um eins og helming þessa og eiga von á helmingi fleirum, en hitt.

Málefnið er mikilvægt og vonandi er þetta grunnur að sterku afli í stjórnmálum hér.

Langaði að deila með þér heimildamynd hér, sem lýsir IMF og WB í tengslum við Jamaica.  Ansi margt uggvænlegt þar, sem við sjáum teikn um hér.

Svo er hér linkur, sem þú ættir að hafa í Favorites, þar sem margar heimildamyndir er að finna um glóbalismann og nauðgun hans, sem við erum farin að kenna á kaunum.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.11.2008 kl. 19:58

3 identicon

OK eg var adeins of fljotfaer, tetta fylgir allt med tarna a linknum hja ter og er mjog gott !

Takk fyrir framtakid !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 20:02

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er Birgir Ármannson eitthvað tengdur þessu???!  Heyrðu nei takk. Enga kafbáta.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.11.2008 kl. 20:05

5 Smámynd: Bjarni Harðarson

Frábært að fá svona mikil viðbrögð strax!

1. Reikningsnúmerið er 101-26-5810 kt. 680602-5810.

2. Ég veit að upphæðin er há en fyrir námsmenn, eldri borgara og öryrkja og atvinnulausa er taxtinn 2000 krónur og það þarf ekkert að borga fyrir mánaðamót. Við sendum út gíró á þá sem þess óska með eindaganum 15. des.

3. Birgir Ármannsson (sem er besti drengur) er ekki í stjórn Heimssýnar.

4. Þátttaka í auglýsingunni er ekki skuldbinding um mætingu!

Bjarni Harðarson, 21.11.2008 kl. 20:23

6 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Heimssýn fagnar á 1. desember fullveldi Íslands.

Evrópusamtökin fagna á Evrópudeginum 9. maí.

Segir sennilega sitt um áherzlur þessara tveggja samtaka.

Hjörtur J. Guðmundsson, 21.11.2008 kl. 20:28

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég efast ekkert um að bæði Birgir og Sigurður Kári eru bestu drengir, en það kveður við einhvern holan hljóm að hafa þarna tvo sitjandi þingmenn sjálfstæðisflokksins, sem situr nú sem fastast og rótar sér ekki til að játa minnstu ábyrgð á hruninu, ver vitfirrtann seðlabankastjóra og klúðurheimsmeistara fjármálaeftirlitsins.

þeir eru hollari hundum við flokkslínuna og þótt þetta eigi að kallast þverpólitískt, þá er eitthvað krosspólitískt við það í mínum huga, með fullri virðingu annars.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.11.2008 kl. 20:32

8 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Jón Steinar er sennilega að skírskota í grein á Heimssýnarbloggið eftir Birgi Ármannsson. Á blogginu birtum við efni úr ýmsum áttum sem við teljum vera í anda þess sjónarmiðs samtakanna að hagsmunum Íslands sé bezt borgið utan Evrópusambandsins. Þannig er Heimssýn sömuleiðis byggð upp, af fólki víða að úr hinu pólitíska landslagi sem er gjarnan ósammála um margt en eiga sameiginlegt að telja hag Íslands ekki bezt borgið innan sambandsins.

Hjörtur J. Guðmundsson, 21.11.2008 kl. 20:35

9 Smámynd: Hallur Magnússon

Kæri Bjarni!

Ég hefði glaður viljað vera með auglýsingunni - en get - samvisku minnar vegna ekki sett nafn mitt undir yfirlýsingu umeinarða andstöðu gegn ESB.

En ég er hins vegar reiðubúinn að styrkja auglýsinguna með fjárframlagi - því við eigum að halda upp á 90 ára afmæli fullveldisins og vekja athygli á þeim tímamótum  - sem ég tel ekki skerðast frá því sem nú er við mögulega inngöngu í ESB í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þá skil ég mjög vel tilfinningar þeirra sem eru með efasemdir um ESB - þótt ég vilji fá upp á borðið í aðildarviðræðum hver skilyrðin við inngöngu yrðu - og telji meiri líkur en minni að hag okkar sé betur borgið innan ESB.

Og menn verða að hafa mátt og bolmagn að koma á framfæri rökum fyrir sínum sjónarmiðum. Það er aldreið mikilvæga en þegar rætt er um slík grundvallarmál sem fullveldi og inngöngu í ESB.

Má ég ekki borga fimmþúsundkallinn - en sleppa við að vera á nafnalistanum?

Hallur Magnússon, 21.11.2008 kl. 20:54

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Bjarni. Settu mig á blað að sjálfsögðu. Greiði strax eftir helgi.

Mikil aðför er nú gerð af ESB-sinnum að fullveldi Íslands sem VERÐUR að hrinda.  Þeir sem treysta sér ekki að taka þátt í því
að verja fullveldið UNDIR FULLU NAFNI eiga að láta það vera.
Dæmigert um þá.

Með þjóðlegri kveðju

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.11.2008 kl. 22:10

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kærar þakkir fyrir þetta framtak Bjarni, ég vil leggja þér lið.

Ég er ekki skráður meðlimur í Heimsýnar, hvað þá kjörinn talsmaður. Samt langar mig að gerast svo framhleypinn að svara góðum félaga okkar Halli Magnússyni: Hallur, ég skil vel að þig langi að vera með í auglýsingunni og ennfremur að þú viljir ekki leggja nafn þitt við "yfirlýsingu um einarða andstöðu gegn ESB". Ekki hef ég neitt á móti þessu bandalagi þó Íslandi sé örugglega betur borgið utan þess. Ágæti Hallur ég leyfi mér að benda þér á að Ísland og EFTA hafa mun hagstæðari tollasamninga með fisk en ESB. Munar það ekki minnst um samninga okkar við A-Asíu, sem eru vaxandi markaðir.  Ég vil að lokum þakka þér innilega fyrir framlag í þágu lýðræðisins. ESB hefur yfir öflugum "kynningarsjóðum" að ráða og hafa haft úrslitaáhrif í stækkun bandalagsins.

Sigurður Þórðarson, 21.11.2008 kl. 22:25

12 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Það eru síður en svo andstæður að halda upp á fullveldisdaginn og Evrópudaginn. Við þyrftum jafnvel að bæta við Norðurlandadeginum. Nú vilja Danir og Svíar taka upp evru samkvæmt fréttum, umræðan líka komin í gang í Noregi og Færeyjum. Evrópulestin fer víða. 

Ég tel það mikilvægt að Norðurlöndin sameinist um áherslur og vegferð í samvinnu Evrópuþjóða. Þannig gætum við hugsanlega náð umræðunni um þessi mál á hærra plan og í víðara samhengi. Fullveldinu væri sýndur mestur sómi með því að Heimssýn hefði skilning á því sjónarmiði að framtíðarstaða okkar í þessum málum mun verða ákveðin af þjóðinni.

Gunnlaugur B Ólafsson, 21.11.2008 kl. 22:25

13 Smámynd: Gísli Tryggvason

Sæll; gjarnan vil ég styðja og styrkja fullveldishátíðahöld. Á háskólaárum mínum í Danmörku og Íslandi stúderaði ég mjög vel fullveldi - sem er í mínum huga lagalegt hugtak meðan sjálfstæði er pólitískt fyrirbæri.

Sem laganemi taldi ég EES brjóta stjórnarskrána og tel enn - eins og ýmsir sem síðan hafa skipt um skoðun og fallist á mína. Af þeim sökum tók ég ungur og þröngsýnn laganeminn aldrei pólitíska afstöðu til EES. Sá mæti laga- og söguspekingur, prófessor, ráðherra, þingmaður og dómari, Einar Arnórsson, sagði um 1918 að fullveldið væri formlegs fræðilegs eðlis - til að höggva á deilu um keisarans skegg og fá loks fullveldið í stað þess að eyða fleiri ár(atug)um í að hártoga við Dani. Með því fengum við loks meira sjálfstæði. Kannski má endurtaka þennan leik; öðlast meira sjálfstæði með því að hætta að deila um inntak og mikilvægi fullveldis - og framselja örlítið meira af því enda framseldum við lungann úr því sem framselja þarf með fullri aðild að ESB með aukaaðild okkar að ESB, EES-samningnum.

Gísli Tryggvason, 21.11.2008 kl. 22:30

14 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Bjarni.

Gott framtak og bráðnauðsynlegt um þessar mundir.

Vil gjarna vera með ykkur þótt sé ekki skráður meðlimur í samtökin.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.11.2008 kl. 00:06

15 Smámynd: Árni Gunnarsson

Um minn stuðning má enginn efast.

Baráttukveðjur!

Árni Gunnarsson, 22.11.2008 kl. 00:35

16 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gísli, varðandi Einar Arnórsson, þann merka lagaspeking, þá má bæta því við að  hann skrifaði greinar um félagsfræði, sem þá var ung grein og ekki síður stórmerkilega tímamótagrein um kristnitökuna, sem birtist í  Skírni 1944.  Í alþjóðasamfélaginu þurfum við yfirþjóðlegar reglur t.d.  siglingareglur á opnu hafi. Eitt af því besta sem við fengum úr EES  voru neytenda og samkeppnisreglur sem þú þekkir.

Efnahagslega er ESB tollmúrabandalag og með EES komumst við inn fyrir múrana með inngöngu í ESB myndum við vera lokuð fyrir innan múrana og ekki geta gert þau viðskipti sem við gerum í dag.

Sigurður Þórðarson, 22.11.2008 kl. 00:39

17 identicon

Bjarni boy!  Láttu vera að rukka ellilífeyrisþega um ónýtar krónur.  Þetta er ótrúleg ósvífni!!  Látiði kallrassgatið hann Ragnar Arnalds borga fyrir allt draslið.  Nóg fær hann borgað fyrir slímusetu í seðlabankanum við að koma þjóðinni á hausinn.

marco (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 02:09

18 Smámynd: Jón Valur Jensson

Frábært að efna til fullveldisfagnaðar fullveldissinna 1. desember, 90 árum eftir að landið varð sjálfstætt ríki. Dagurinn er ekki einkadagur stúdenta. Þessi 90. afmælisdagur ætti að vera almennur frídagur (ber upp á mánudag). Þjóð, sem fagnar ekki sjálfstæði sínu og fullveldi, hversu gleymin er hún á það sem áunnizt hefur? Og hve auðvelt á sú þjóð, sem gleymir gildum sínum, með að glutra þeim niður í fljótfærni eða vegna sefjandi söngls manna, sem hrifizt hafa af einhverju stærra og máttugra? Og vita þeir ekki, að Evrópubandalagið hefur meðal annars á dagskrá að koma sér upp eigin her? Halda menn, að Íslendingar yrðu undanþegnir því að leggja fram fjárframlag til hans? En árgjaldið sjálft, án her-framlaga, yrði við núverandi aðstæður ekki minna en 25 milljarðar króna á ári.

Ég hvet menn til að taka þátt í þessum fagnaði á vegum Bjarna og félaga. Heitum því öll að standa vörð um fullveldi þjóðarinnar – við skuldum bæði foreldrum okkar það og afkomendum.

Jón Valur Jensson, 22.11.2008 kl. 03:26

19 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Þessi þarna:
Góðiur punktar. Þingmenn á Evrópusambandsþinginu eru að vísi 785 og við fengjum hámark 5 stykki. En í ráðherraráðinu eru 345 atkvæði og við fengjum þar 3 í samræmi við ibúafjöldann hér. Það er mælikvarðinn á allt vægi aðildarríkja Evrópusambandsins innan þess.

En það mun ekkert kosta inn á sjálf hátíðarhöldin, það er aðeins verið að óska eftir stuðningi þeirra sem geta til að auglýsa þau í blöðum ásamt yfirlýsingu þess efnis að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan en innan Evrópusambandsins.

Hjörtur J. Guðmundsson, 22.11.2008 kl. 13:35

20 identicon

Er þessi þröngsýni ekki búið að kosta þjóðina nóg?

 Ef Ísland hefði verið komið inní ESB fyrir einhverjum árum síðan, komið með Evru værum við ekki í þessum djúpa skít sem Framsóknarflokkurinn og aðrir stjórnmálaflokkar eru búnir að koma okkur í. 

Hvað er að því að hefja aðildarviðræður og sjá hvað kemur útúr því og láta þjóðina síðan kjósa um aðild að ESB. Það kallast lýðræði!!

Endilega sýnið framá hvernig hagsmunum Íslands sé betur borgið utan ESB með handónýta krónu og handónýta stjórnmálaflokka. Hvaða leiðir hafið þið að bjóða uppá?

EE (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 17:07

21 Smámynd: Kolbrún Hilmars

EE, mín greindarvísitala er áreiðanlega undir 80, en viltu vera svo væn/n að útskýra betur síðustu málsgreinina, sérstaklega þetta:

"...utan ESB með handónýta krónu og handónýta stjórnmálaflokka."

Ég skil hugsjónina krónu út - evru inn, en alls ekki þetta með stjórnmálaflokkana...

Kolbrún Hilmars, 22.11.2008 kl. 19:24

22 Smámynd: Árni Gunnarsson

EE. Inni í hvaða alþjólega umhverfi er þessi þjóð stödd að þínu mati? Þú spyrð beinlínis:-Hvaða leiðir hafið þið til að bjóða upp á?

Ef sú niðurstaða þín er rétt að það sé ekki lengur um aðrar leiðir að velja fyrir örþjóð í auðugu landi en þá að fela sig á hendur yfirþjóðlegri valdstjórn þá eru það tíðindi sem ástæða er til að taka ákvörðun um sem fyrst. Því þá erum við stödd utan við allar forsendur til skiptra skoðana.

'Eg er sammála ályktuninni um handónýta stjórnmálaflokka.

En þá er ástæða til að mynda nýtt stjórnmálaafl með nýja og breytta framtíðarsýn fyrir sjálfstæða þjóð í auðugu landi. Bjartsýna þjóð og sjálfstæða í fögru landi stórra tækifæra fyrir komandi kynslóðir.

Árni Gunnarsson, 22.11.2008 kl. 21:47

23 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Skilaboð EE eru þau að við Íslendingar séum einhvern veginn þannig frá náttúrunnar hendi að við getum ekki stjórnað okkur sjálf og okkar málum. Þess vegna þurfi að fá útlendinga í að sjá um þau mál í okkar stað. Ég mun aldrei fallast á slíka andúð á eigin þjóð.

Hjörtur J. Guðmundsson, 23.11.2008 kl. 14:24

24 Smámynd: Halldór Jónsson

tími ekki fimmþúsundkalli í þig Bjarni en ég hugsa eins til ESB

Halldór Jónsson, 24.11.2008 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband