Stoltur af búðunum sem neituðu

Ég er stoltur af þeim kollegum í minni bóksalastétt sem neituðu verðlagseftirliti ASÍ um aðgang að sínum verslunum. Ekki vegna þess að ég sé á móti verðlagseftirliti heldur vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem við búum nú við. Það getur enginn leyft sér að bera heiðarlega kaupmenn saman við þá sem selja þýfi. Þeir sem reka verslanir án þess að láta sér detta í hug að þeir muni borga skuldir sínar eru í nákvæmlega sama leik og sá sem selur þýfi.

Þýfissalinn stingur andvirði hins selda einfaldlega beint í eigin vasa og sá sem stolið er frá fær aldrei neitt. Gjaldþrota stórmarkaðir stinga andvirði alls sem þeir selja ofan í einhvert það ginnungagap skulda og óreiðu að enginn veit hvað snýr fram og hvað aftur. Bakvið eina af stórkeðjunum í landinu er móðurfélag sem skuldaði 1000 milljarða eða með öðrum orðum milljón milljónir. Hverjir fá svo borgað hjá slíkum glæparekstri er tilviljunarkennt. Kannski fá allir forleggjarar sitt en það bitnar þá á einhverjum öðrum og á endanum á almenningi öllum.

Auðvitað erum við heiðarlegir bóksalar ekki í samkeppni við þessa menn. Við höfum aftur á móti  skömm á þeim samtökum launamanna og fréttastofum sem taka að sér og það ókeypis að básúna skrumskælda auglýsingastarfssemi fyrir starfssemi sem þessa.

Sá sem auglýsir þýfi er ekkert betri en þjófurinn sjálfur!


mbl.is Mikill verðmunur á jólabókum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þessi Jólasveinn Gylfi Arnbjörnsson - ASI Forstjóri hefur nú ekki gert mikið til þess að vinna fyrir venjulegt launafólk í landinu.

Enda sjálfskipaður Jólasveinn ESB trúboðsins á Íslandi og hans helsta baráttumál verið að enduróma áróður Samfylkingarinnar og ESB rétttrúnaðrins hér á landi,  ekki von að hann hafi ekki haft tíma til að skíta sig út á því að vinna fyrir sauðsvartann almúgann þessi sjálftöku forstjóri Verkalýðsforstjóranna sjálfumglöðu!  Hann ku víst hafa yfir milljón á mánuði auk all kyns sporslna og fríðinda.

Þessum ESB trúboða ferst því best að skipa sér í lið með öðru sjálftökuliði og útrásarglæpónum eins og hann hefur nú gert, sem og oft áður.

Gott hjá þér Bjarni að senda þessum falska alþýðujólasveini tóninn ! 

Hann á það margfaldlega skilið.

Gunnlaugur I., 15.12.2009 kl. 20:06

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Þegar hin skipulagða glæpastarfsemi hefur hreiðrað um sig í hjarta samfélagsins verður ekki auðvelt að komast hjá því að styðja við glæpamennina.

Héðinn Björnsson, 15.12.2009 kl. 20:10

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Tek undir þetta. Almennilegt og heiðarlegt fólk virðist varla geta aflað sér lífsviðurværi í þessu samfélagi þar sem búið er að lögleiða sóðaskap mafíunnar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 15.12.2009 kl. 20:31

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er vel hægt að gera sín innkaup hjá heiðarlegum kaupmönnum ef vilji er fyrir hendi. Það má afla sér upplýsinga um eignarhald þeirra fyrirtækja sem höndla með þann varning sem mann vantar og láta vera að afhenda misindismönnum aura sína.

Þeir sem eru á bíl (og vetrardekkjum) geta svo rennt á Selfoss þar sem bóksalinn stendur í fylkingarbrjósti sjálfstæðra smásöluverslunar.

Ragnhildur Kolka, 15.12.2009 kl. 20:38

5 Smámynd: Bjarni Harðarson

Ég er sammála því Jakobína að það er erfitt ef yfirleitt mögulegt að afla sér lífsviðurværis án þess að versla við bófa - og það hefi ég sjálfur margoft gert. Það er ekkert við því að segja þegar fólk hefur ekki efni á að sniðganga þessi fyrirtæki. En fjölmiðlar og alþýðuleiðtogar geta látið ógert að auglýsa fyrir bófana.

Bjarni Harðarson, 15.12.2009 kl. 20:48

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Tímarnir breytast og mennirnir með,við sem höfum lifað tímana tvenna,vitum að viðskiptahættir breytast,bæði til góðs og ills,þetta með þjófnaðinn,er einnig svolítið erfitt að segja,við höfum svo mikið af slíku til að það hálfa væri nóg,verslun á Ísandi hefur alltaf verið umdeild,með sérvöru og bækur og bókstaflega allt,en að stórmarkaðir skuli taka þetta allt yfir er umdeilt en löglegt,þó svo dæmin sanni að þetta fari á hausinn og engin fái sitt,þetta getur einnig komið fram hjá Kaupmanninum á horninu,við skulum taka dæmi í USA þar sem Wull Mart hefur tekið allan markað yfir fyrst allan fatnað og svo allt frá vöggu til grafar og siðast Líkistu,engin getur við þær keppt,hvað ef þetta fer yfir/eins er þetta að gerast hér /annars er eg meðmæltur millileiðum,og verðkönnum sem ekki eru gerðar af ASI/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 15.12.2009 kl. 21:04

7 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þessi aumkunnarverði og sjálfskipaði Alþýðuleiðtogi sem hér er til umræðu þ.e. hinn sjálftöku ASÍ hálaunajólasveinn sem auglýsir stanslaust ESB rétttrúnaðinn, þýfið þeirra og allt þeirra hyski er ekki trúverðugur. Þegar hann svo fullyrðir að alþýðusamtökin og allt alþýðufólk vilji heilt og óskipt ganga  ESB apparatinu á hönd, þá lýgur hann enn og aftur - sem aldrei fyrr! 

Sá "stóri sannleikur" og blekkingar áróður er einhver mesta og versta lygi Íslandssögunnar og enginn alþýðuforingi hvorki fyrr né síðar hefur verið eins umboðslaus og berstrípaður lygari og loddari en þessi ASÍ Jólsasveinn sem heitir Gylfi Arnbjörnsson!

Gunnlaugur I., 15.12.2009 kl. 21:28

8 Smámynd: HR

Það verður að segjast að við viljum fá Framsóknarflokkinn aftur í stjórn og þig á þing.

HR, 16.12.2009 kl. 01:42

9 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Óheppinn HR.  Bjarni er genginn úr Framsókn og yfir í VG...

Axel Þór Kolbeinsson, 16.12.2009 kl. 08:59

10 identicon

Ég er ekki viss um að röksemdafærsla þín sé með öllu skotheld. Geri ráð fyrir að þú eigir við stórmarkaði og bókaverslanir sem ríkið hefur tekið yfir, eftir hrunið. Læt liggja milli hluta hvað þér finnst um Alþýðusambandið, Gylfi kemur þessu máli ekkert við og að tengja verðlagseftirlit á bókum við ESB maníuna verkar í hæsta máta undarlega á mig.

Margar bókaverslanir og stórmarkaðir (aðrir en Krónan og Nettó) eru nú undir hatti ríkisbankanna, sem ég leyfi mér að trúa að reyni að lágmarka það tjón sem fyrri eigendur og bankaforkólfar hafa valdið. Það að Bónusfjölskyldan segist muni borga skuldir hringsins og hafi enn hönd í bagga með rekstrinum, þýðir ekki að við verslum við þjófa. Í fyrsta lagi hafa bankarnir ekki enn afskrifað neitt hjá Högum hvað sem síðar verður. Og í öðru lagi væri miklu nær að halda því fram að við versluðum við lögregluna heldur en þjófana. Lagt hefur verið hald á eignir. Bankarnir eru þannig séð í hlutverki lögreglunnar en ekki þjófanna.

Hitt er allt annað mál að við í Rithöfundasambandinu höfum lengi haft áhyggjur af hvernig fer fyrir minni bóksölum þegar lunginn af jólaversluninni fer í gegnum stórmarkaði á niðursettu verði. Sú þróun hófst löngu fyrir bankahrun, enda hefur bókaverslunum á borð við þá sem þú rekur stórlega fækkað síðustu 20 árin, eftir því sem ég best veit. Það er verulegt áhyggjuefni því bókaverslanir eru menningarstofnanir rétt eins og söfn, leikhús og sv. frv.. Mér er sagt að bóksala í heild hafi þó ekki minnkað, jafnvel aukist, við innkomu stórmarkaðanna - það er hin hliðin á peningnum.

Um verðlagseftirlit Alþýðusambandsins segi ég þetta: Forseti þess er að sönnu einn af ESB-aðdáendunum og hefur fengið sambandið til að álykta í sömu, veru. Þessi staðreynd má ekki blinda menn. Verðlagseftirlitið er nauðsyn og mér þykir afleitt að þú skulir hafa sést í sama bás og Bónus sem stundum hefur neitað eftirlitsmönnum um aðgang.

Kveðja í hús þitt.

hágé.

Helgi Guðmundsson (IP-tala skráð) 16.12.2009 kl. 13:12

11 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Tek undir orð Jakobínu & Bjarna: "..ég er sammála því Jakobína að það er erfitt ef yfirleitt mögulegt að afla sér lífsviðurværis án þess að versla við bófa - og það hefi ég sjálfur margoft gert. Það er ekkert við því að segja þegar fólk hefur ekki efni á að sniðganga þessi fyrirtæki. En fjölmiðlar og alþýðuleiðtogar geta látið ógert að auglýsa fyrir bófana." Eins og talað frá mínu hjarta.  

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is) 

Jakob Þór Haraldsson, 16.12.2009 kl. 17:34

12 Smámynd: Bjarni Harðarson

Kæri Helgi. Ég hef ekki tengt ESB við þessa umræðu og nú gef ég mér að þú sért að tala til mín gamli granni og vinur. En ég geri alvarlega athugasemd við eftirfarandi málflutning:

"Það að Bónusfjölskyldan segist muni borga skuldir hringsins og hafi enn hönd í bagga með rekstrinum, þýðir ekki að við verslum við þjófa. Í fyrsta lagi hafa bankarnir ekki enn afskrifað neitt hjá Högum hvað sem síðar verður..."

Þangað til fyrir nokkrum mánuðum heyrðum við aldrei talað um Haga-verslanir heldur Baugs. Nú er Baugur á hausnum en rétt fyrir gjaldþrotið var búðunum skotið undan móðurfélaginu og skuldir sem hafa verið og verða afskrifaðir vegna Baugs og eigenda þeirra nema skrilljónum. Mín vegna má selja  bækur í fiskbúðum en samkeppni við þá sem ekki borga skuldir sínar er alltaf óþolandi. Að bankarnir, sem nú eru í eigu erlendra vogunarsjóða, séu lögregla - er samlíkingin sem ég skil ekki...

Bjarni Harðarson, 16.12.2009 kl. 17:47

13 identicon

thanks for sharing nice infromation with us.

642-067 (IP-tala skráð) 12.3.2010 kl. 04:43

14 identicon

I like the concept of site its really good to provide this discussion forum.

642-975 (IP-tala skráð) 12.3.2010 kl. 04:44

15 identicon

Blogs are always a main source of getting accurate information and provide you the handy results; you can get instant and reliable information which surely helps you in any field of your concern.

70-236 exam questions (IP-tala skráð) 12.3.2010 kl. 04:45

16 identicon

I like your site its quite informative and i would like to come here again as i get some time from my studies

70-270 latest dumps (IP-tala skráð) 12.3.2010 kl. 04:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband