Hættir að vera með...
22.5.2010 | 20:27
Aðilar vinnumarkaðarins eru óborganlegir og duga ágætlega síðan spaugstofan hætti.
Nú segir Villi Egils sig í annað sinn frá sama samstarfinu við ríkisstjórn. Virkar á mig eins og kona sem hótar enn að skilja við manninn sinn löngu eftir skilnað.
Gylfi Arnbjörns (sem átti alls ekki að raka af sér skeggið) birtist í garði við einhverja Reykjavíkurvillu og er öskuvondur yfir því að ríkið sé að hugsa um skattahækkanir á hátekjufólk. Ég sem hélt að hann ynni hjá ASÍ. Var allavega þar um daginn þegar hann hótaði verkfalli til að mótmæla atvinnuleysi.
Saman hóta Gylfi og Villi svo að taka engan þátt í samningum í haust og ef þeir geri það þá muni þeim allavega alls ekki takast að ljúka þeim.
Kosningaloforðaveikin - íhaldið lofar nýrri Sundhöll
22.5.2010 | 12:08
Með morgunkexinu náði ég að blaða aðeins í kosningamálgagni Sjálfstæðismanna hér í bæ. Fallegt blað og vel upp sett, lesmálið er ekki eins yfirþyrmandi og var í annars ágætu blaði Samfylkingarinnar og skopmyndirnar margar vel gerðar. En gagnrýnin er yfirleitt sett fram í hálfkveðnum vísum og sama er með loforðin.
Það er vissulega þolraun frambjóðendum að lofa engu upp í ermi sína. Nú eru Sjálfstæðismenn sprungnir á limminu og lofa bæjarbúum því að byggja nýja Sundhöll og vilja líka klára menningarsalinn í Hótelinu. Allavega telja þeir þá sem nú stendur ekki boðlega sveitarfélagi sem vill láta taka sig alvarlega. Skrýtinn alvarleiki það.
Allt þetta ætla þeir að byggja með því að spara í yfirstjórn Árborgar sem er samt sú fjórða ódýrasta í öllu landinu. Hér verður auðvitað beitt göldrum sem jafnvel útrásarvíkingar gætu öfundast yfir...
Að menntast sig til óbóta
22.5.2010 | 00:31
Illa launar Þórólfur Matthíasson gott uppeldi í Rangárþingi þegar hann nú heggur að bændum vegna eldgoss í Eyjafjallajökli. Það sér vitaskuld hver maður að náttúruhamfarir eins og þessar styrkja frekar en hitt þær röksemdir sem eru fyrir íslenskum landbúnaði. Þó ekki sé annað en bara hvað náttúran getur á augnabliki dæmt nútíma flutninga úr leik.
Til þess að komast að annarri eins niðurstöðu þurfa menn annað tveggja að hafa vitleysislegar ályktanir að sérstöku áhugamáli - nú eða þá að hafa menntað sig til óbóta.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Einkennilegt viðtal og undarlegt siðferði
20.5.2010 | 17:30
DV er um margt einkennilegt blað og þrátt fyrir góða spretti þarf líka að taka efni þess með nokkrum fyrirvara.
Nú áðan datt ég um viðtal við nágranna minn hér úr Latínuhverfinu á Selfossi, Björgvin G. Sigurðsson þar sem blaðamaður hefur eftir honum að flokkurinn hafi lofað honum vinnu eftir afsögn. Þetta er fáránlegra en svo að ég trúi því upp á þann ágæta dreng Björgvin að hann hafi nokkru sinni sagt þetta.
Flokkar eru einfaldlega ekki vinnumiðlanir og þó að þeir hafi í sukki og svínaríi fyrri ára leyft sér slíkt þá hefi ég miklar efasemdir um að nokkur flokksforysta telji sig geta hagað sér með þessum hætti dag.
Verði viðtalið ekki borið til baka skuldar bæði Samfylkingin og Björgvin G. þjóð sinni skýringar á þeim þankagangi sem hér liggur að baki.
ESB-martröðin senn á enda
19.5.2010 | 22:38
ESB umsókn Íslendinga er sjálfdauð. Evrusvæðið glímir nú við kreppu sem dýpkar með hverju misseri og það verður sífellt fjarstæðukenndara að gangast þeirri martröð á hönd. Ofurtrú Össurar og annarra sem sjá enn ljós þegar ekkert blasir við nema myrkur minnir á gömlu kommana sem lofuðu Kína og Sovét löngu eftir að ljóst var að þessi ríki höfðu ekkert að bjóða.
Það styttist í að almenningur í landinu taki málið í sínar hendur enda er hér líkt og í Noregi langt yfir 2/3 hlutar almennings andvígur aðild. Það getur engin ríkisstjórn í lýðræðisríki komist upp með stórfelldan fjáraustur í verkefni sem rétt um fjórðungur landsmanna styður.
Magma og klofningur Sjálfstæðisflokksins
18.5.2010 | 18:49
Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins talar um klofning ríkisstjórnarinnar í þessu ólukkans máli sem er beint framhald af gömlu REI-spillingunni.
Kannski er það rétt og það eru þá einhverjir væntanlega í Samfylkingunni sem eru ánægðir með þessa útsölu orkuauðlinda. Þeir hafa samt ekki gefið sig mikið fram. Aðallega er hér á ferðinni að útlensku skúffufyrirtæki hefur verið gefinn kostur á að nota sér veika stöðu Íslands.
Hitt er athyglisverðara að bera saman annars vegar málflutning Davíðs Oddssonar ritstjóra Moggans annarsvegar og svo hinsvegar þingmannanna Ragnheiðar Elínar og Birgis sem eru óskaplega ánægð með Magma.
Davíð á sér helst málsvara í Ögmundi, Lilju og öðrum ríkisstjórnarliðum í þessu máli.
Hvað er að gerast í Sjálfstæðisflokknum?
![]() |
Vill banna fjárfestingar erlendra aðila í orkufyrirtækjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Mölbrotinn eiðstafur og farísear
17.5.2010 | 16:06
Nímenningamálið er sorglegt dæmi um fyrirlitningu einhverskonar farísea gagnvart því alþýðufólki sem stóð að réttmætum og löngu tímabærum mótmælum á Austurvelli.
Sami vandlætingakór hefur til þessa ekki haft áhyggjur af stjórnarskránni og eiðstaf þingmanna.
Sjá nánar í grein minni á Smugunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Ef einhver hefði hlustað á Brynleif
17.5.2010 | 15:55
Ég sagði það, ég sagði það, heyrist á blogginu og í pólitíkinni þegar menn hafa þörf fyrir að hampa því að allt sé nú komið fram sem þeir spáðu. Stundum slá menn um sig og hafa þetta á ensku, æ-sed-só.
Verra er þó þegar svo langt líður að menn séu dauðir þegar að öllu kemur sem þeir sáu samt fyrir. Það eru nú meira en hálf öld síðan sá merki maður Brynleifur Tobíasson frá Geldingaholti enti sína hérvist. Hann flutti lýðveldisárið 1944 nokkra pistla í útvarpi sem útvarpsráði líkaði svo illa við að síðasta pistilinn var honum bannað að flytja. Hann hafði þá eftir siðvenju síns tíma skilað útvarpsráði handriti þar sem starfsmaður þess merkti við það sem óhæfa þótti að flutt yrði. Þetta voru þeir dagar.
Brynleifur dó ekki ráðalaus frekar enda væri það ólíkt Skagfirðingum. Hann gaf pistla sína út í litlu kveri sem heitir Horft um öxl og fram á leið. Þar feitletrar höfundur allt það í síðasta erindinu sem útvarpsráð hafði merkt við og taldi óheppilegar skoðanir til flutnings í útvarpi. Það er athyglisvert nú meira en hálfri öld síðar að Brynleifur sá fyrir alla samspillingu stjórnmálaflokkana og hvernig þeir myndi smám saman verða innantómu lýðskrumi að bráð. Brynleifur vildi koma í veg fyrir þetta með sterkara forsetavaldi og fullum aðskilnaði framkvæmdavalds og löggjafarvalds. Í umrótinu eftir fall bankanna er merkilegt hvað fáir hafa gefið því gaum að ofurveldi flokkanna og framkvæmdavaldsins er ein af höfuðmeinsemdum samfélagsins.
Brynleifur dregur ágætlega fram í riti sínu hvernig allt hangir á sömu spýtunni, lýðskrumið þar sem enginn þorir að segja sannleikann, dugleysið þar sem duglitlir snatar flokkanna komast til æðstu metorða, flokksræðið og klíkukennt vald Alþingis umhverfis flokksforingjanna.
Íhaldið biðlar til Samfylkingar
16.5.2010 | 14:06
Nýjasta greining sjálfstæðismannsins Þorsteins Pálssonar á ástandinu rímar afar vel við ræður Bjarna Ben. í vikunni. Þeir segja báðir: Með okkur gæti Samfylkingin gert allt sem hana langar til að gera og líka gengið í ESB.
Og það skuggalega við þennan málflutning er að þegar kemur að völdum er ekkert sem heldur aftur af Sjálfstæðisflokknum. Þegar gamla ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sat að völdum og til stóð að breyta ESB-kúrsi flokksins fyrir liðlega ári voru það örfáir af þingmönnum flokksins sem hægt var að treysta til að vera einarðir á móti. Nú eru flestir þessara hættir og við vitum ekki hverjir reynast öruggir í ESB-andstöðunni. Pétur Blöndal er sá eini sem er naglfastur í þessu efni.
Það er vissulega mikil andstaða við ESB í grasrót Sjálfstæðisflokksins en eins og í öllum flokkum er það þó forystan sem leiðir grasrótina en ekki öfugt. Meirihluti þessarar grasrótar mun snúast með svikulli forystunni, ef það er það gjald sem greiða verður fyrir völdin. Ef þetta gerist versnar til muna vígstaða okkar sem viljum halda í sjálfstæði landsins.
Enn og aftur eru það brýnustu hagsmunir okkar ESB andstæðinga að halda lífi í vinstri stjórninni enda er það sú stjórn sem síst getur komið landinu í ESB. Þar fyrir utan eru svo þeir hagsmunir þjóðarinnar að hafa vinstri stjórn í endurreisn eftir frjálshyggjufylleríið en það er önnur pólitík.
Og hér í Árborg er auðvitað allt í steik!?
16.5.2010 | 10:53
Bærinn er á hausnum, á Selfossi er ekkert við að vera, hér eru hvorki hjólastígar né reiðleiðir, vegurinn hingað er lífshættulegur og einn umferðartappi, verktakafyrirtækin öll á hausnum og allt í kringum okkur hálfbyggð draugahverfi. Atvinnuleysið er meira en nokkru sinni áður og á ströndinni berjast ferðaþjónustufyrirtækin í bökkum. Er ég að gleyma einhverju, jú, sundlaugin er lokuð á helgidögum og það er verið að ala múkkann í fuglafriðlandinu.
Einhvernveginn þannig hljómar söngur sem við heyrum alltof oft í okkar ágæta sveitarfélagi. Og víst er það svo að verkefni næstu ára eru ærin. En það er mikill bölmóður þegar talað er á þá lund að hér sé allt í steik. Staðreyndir tala allt öðru máli. Staða bæjarfélagsins er viðunandi miðað við hamfarir liðinna frjálshyggjuára og öfundsverð í samanburði við mörg sambærileg sveitarfélög. Við erum einfaldlega ekki á lista Eftirlitsnefndar um fjárhag sveitarfélaga og ekkert sem bendir til að við lendum þar.
Það er óvíða eins gott að vera fyrir bæði hestamenn og hjólhestamenn. Vissulega þarf enn úrbætur í þessum málum, einkanlega hvað varðar leiðir fyrir hestamenn suður fyrir bæinn og þar grillir sem betur fer í lausnir. Það eru óvíða ef nokkursstaðar á landsbyggðinni eins góðir hjólreiðastígar en vitaskuld þarf að efna afar gamalt og dýrmætt loforð fyrri framboða um hjólaleiðir milli kauptúnanna í sveitarfélaginu.
Vegbætur eru sömuleiðis í farvatninu. Staðreyndin er samt sú að þegar talað er um umferðarhnúta á Ölfusárbrú og slysahættu á Hellisheiðarvegi hættir okkur til að grípa í ýkjustílinn. Miðað við þær kröfur sem gerðar eru í nágrannalöndum okkar, hvort sem er í Evrópu eða Ameríku þá teljast vegirnir hér engan veginn alvarlega ofsetnir og umferðarhnútar í miðbænum okkar og á brúnni eru örfáir á árinu. Með nýrri Ölfusárbrú léttum við mikið á umferðinni og sömuleiðis eru vegbætur í Ölfusi og Hellisheiði á teikniborðinu.
Á Selfossi er ekkert við að vera, er viðkvæði margra. Þetta er einfaldlega rangt enda eru örfáir bæir á landsbyggðinni sem búa að jafn mikilli umferð og viðskiptum ferðamanna, jafnt innlendra sem erlendra. Hingað sækja menn margháttaða þjónustu sem er enda hlutverk bæjarins og allt í kring eru svo vinsælir áningarstaðir. Það er Selfoss sem sem nýtur góðs af þeirri umferð sem náttúruperlur Suðurlands draga til sín. Vitaskuld er brýnt að byggja einnig upp afþreyingu í bænum við ána. Undirritaður hefur sjálfur reynslu af slíkum rekstri þar sem er Sunnlenska bókakaffið og ég tel að í þessum efnum eigi einkaframtakið í bænum mikið óunnið. Þar getur hvatning bæjarstjórnar skipt miklu.
Það er dæmigert fyrir málefnafátækt minnihluta bæjarstjórnar að gera lokun Sundhallar Selfoss á opinberum helgidögum að kosningamáli. Síðast þegar opið var sumardaginn fyrsta komu um 40 ferðalangar á staðinn auk fastagesta! Óhróður manna um fuglafriðlandið er langt utan þess raunveruleika sem við aðdáendur Flóagaflshverfisins þekkjum.
Atvinnuleysi, gjaldþrot verktaka og hin hálfköruðu hverfi umhverfis þéttbýlið eru alvarleg verkefni í kjölfar frjálshyggjutímans og þau kalla á viðbrögð. En bölmóðurinn mun engu skila. Til þess að ná árangri þurfum að við að hafa jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi. Þannig getum við lyft grettistaki og gert gott sveitarfélag ennþá betra.
Gerum það.
(Birt í Sunnlenska 13. maí 2010)