Fćrsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Heim og heiđursmanna minnst
19.2.2010 | 10:17
Besti hluti hvers ferđalags er heimkoman. Ég var ađ vísu eftir mig ţegar ég kom í fyrradag frá Afríku enda flugferđin í ţađ heila yfir 22 tímar. Samt frekar ţćgileg og núna á eftir fer ég ađ sćkja Egil sem náđi vél sólarhring eftir mér og stoppađi dag í London. Sjálfur fór ég í gegnum Róm og Stokkhólm, allt á vegum dohop.is sem er tvímćlalaust sterkasta leitarvél vefsins ţegar kemur ađ flugfargjöldum.
Fljótt á litiđ finnst mér fátt hafa boriđ viđ hér heima ţessar ţrjár vikur sem ég var í burtu nema andlát tveggja stórmenna sem báđir voru mér kćrir.
Annar er Sigsteinn Pálsson á Blikastöđum sem lést 104 ára nú í byrjun mánađar. Hann var ömmubróđir konu minnar og frá Tungu í Fáskrúđsfirđi sem lauslega kemur viđ sögu minnar eigin ćttar. Sigsteini kynntist ég ţegar ég átti viđ hann stutt blađaviđtal 1986 um líkt leyti, en ég var ţá sjálfur ađ stíga i vćnginn viđ frćnku hans, Elínu mína og hafđi vitaskuld ekki orđ á. Mér er í fersku minni afar skemmtilegt spjall viđ ţau hjón Sigstein og Helgu konu hans á heimili ţeirra á Blikastöđum.
Nokkrum dögum á undan Sigsteini fór Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsćtisráđherra, hinn mćtasti mađur og vinur vina sinna. Vinátta okkar Steingríms hófst međ kynnum okkar í stjórn Heimssýnar og var mér lćrdómsrík og kćr. Steingrímur var stjórnmálaforingi sem hélt um stýriđ hjá sínum flokki og sinni ţjóđ af festu en samt međ lipurđ og mildi. Kannski varđ okkur enn meiri eftirsjá ađ honum sem stjórnmálaforingja á sínum tíma vegna ţess hvađ ţeir sem viđ tóku, bćđi í Framsókn og viđ stjórn ţjóđarskútunnar, höfđu allt annan og um margt óbilgjarnari stjórnunarstíl.
Blessuđ sé minning heiđursmanna.
Borg í frumskóginum
12.2.2010 | 16:09
Eftir tíu daga skrölt um villta vestriđ í Eţjópíu erum viđ feđgar nú komnir í borgina Bonga sem rís upp upp úr frumskóginum. Eđa rís kannski ekki upp úr honum ţví húsin sem standa hér hćđadrögum allt um kring rísa ekki upp úr skóginum ţó viđ sjáum hér af hótelsvölum í bárujárnsţök, brúnryđguđ. En viđ sem gist höfum allskonar búllur smáţorpa erum komnir í splunkunýtt lúxushótel međ heitri sturtu!
Landslagi hér er ekki hćgt ađ lýsa í bloggi svo stórkostlegt er ţađ en fyrir ţá sem komiđ hafa til Úganda ţá ţolir ţetta vel samjöfnuđ. Mannlífinu, fátćku, nćgjusömu og fallegu er ekki heldur ekki hćgt ađ lýsa og ţađan af síđur gististöđunum ţannig ađ ég veit ekki hvađ ég er ađ gera hér á lyklaborđinu. Í ţessum litlu sveitaţorpum er vissulega siđmenning ţó hreinlćti sé nokkuđ frjálslegt og langan tíma ađlögunar ţurfi til ađ venjast stöđum ţeim ţar sem menn hér ganga örinda sinna.
Einhverjir höfđu hér orđ á ađ viđ síđasta blogg ađ heimska vćri ađ telja fátćkt fólk hamingjusamt og má rétt vera. Hamingja ţessa fólks liggur ekki í fátćktinni heldur í fjölskyldusamheldni og léttleika tilverunnar. Hin felagslega firring og einangrun er ekki til. Fćstir hafa ennţá uppgötvađ ţá tegund lífsgćđakapphlaups sem viđ erum uppteknust af og láta ţess í stađ hverjum degi nćgja sína ţjáningu. Heima berum viđ gjarnan ţjáningar heils lífs dag hvern.
En kannski er ţetta rétt hjá Simma hér fyrr ađ ég sé í ţessum viđhorfum líkastur gamaldags rómantískum komma og er ţá ekki leiđum ađ líkjast.
I Addis
28.1.2010 | 18:11
Addis Abeba er ein thessara oborganlegu thridja heims borga. Thegar madur leidir hja ser skitinn og betlarana er borgin fyrst og fremst sudupottur af hamingjusomu fataeku folki sem segir sogur allan daginn. Thad selur og kaupir, 'etur og lifir i thusund falt meira fjori en vid sjaum nokkru sinni i okkar sterila vestraena lifi.
En Ethiopiumenn eru kannski ekkert mjog bokmenntalega sinnadir og bokabudirnar snaudar af andans efni. Thad var frekar ad eg fengi eitthvad spennandi hja fornbokasolum sem sumir ganga um goturnar med bokastafla afa sins og thar i bunkunum leyndust tvo sagnaskald her af stadnum, their Fikeremakos og Gudeta. Blogga um thad seinna hversu godir their eru.
Vid fedgar forum a morgun i vesturatt og verdum thar a tali vid baendur naestu vikurnar.
Lagdur af stad til Afriku
26.1.2010 | 15:15
Semsagt, langthrad ferd til Afriku er hafin. Tharf ad eyda 8 timum her a flugvellinum i Arlanda i Svithjod sem er samt of stuttur timi til ad eg nenni ofan i bae. Thad er ekki verra ad lesa og drekka kaffi her en hvar annarsstadar en oneitanlega eru flugvellir litid sjarmerandi.
Thad fyndnasta sem her hefur gerst i dag er ad medan eg vaetti pissuskalina heyrdi eg einhver koll innan ur einum klefanum og medan eg thvodi mer nadi kallarinn athygli minni, hann sat a dollunni og vantadi ad einhver retti honum pappir sem eg gerdi og hefi thar med gert godverk dagsins. Leid eins og miskunnsama Samverjanum hlytur ad hafa lidid thvi thad voru margir bunir ad ganga framhja aumingja manninum sem vaeldi ut um mjoa rifu a hurdinni!
Her kostar kaffibollinn 600 kronur og thad klingir i kaffisalanum gledi yfir blekkingunni ad thad maetti nu selja hann svona dyrt heima a Selfossi.
Er Selfoss í Biblíubeltinu?
25.1.2010 | 12:19
Sterkustu rökin fyrir ţví ađ hafa ţjóđkirkju er ađ međ ţví komumst viđ langt međ ađ afstýra allskonar leiđinlegum kirkju- og trúardeilum sem oft og einatt skađa samfélög meira en nokkuđ annađ.
Ástandiđ hér á Selfossi er samt fariđ ađ minna skelfilega á bandaríska biblíubeltiđ og stundum dettur mér í hug ađ sóknarnefndin hér sé eftir hin kostulegu Gunnarsmál komin í ţann vígaham sem ekkert fćr stöđvađ.
Valdabarátta og hugmyndir um ađ úthýsa vammlausum og góđum presti út úr Selfosskirkju er vitaskuld ekki sćmandi í stofnun eins og íslensku ţjóđkirkjunni.
Nýr prestur stýri og beri ábyrgđ á kirkjustarfinu | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Tekiđ í nefiđ af tilefni!
22.1.2010 | 13:21
Eftir ađ hafa keypt sína fyrstu íbúđ á ćvinni bauđ Magnús sonur minn Guđmundi Pálssyni seljanda og bónda í Litlu-Sandvík í nefiđ og ţar međ höfđu ţeir haldiđ upp á merk tímamót.
Ţegar Magnús flutti ađ heiman fyrir ţremur árum var hann ţess fullviss um ađ íbúđaverđ í landinu vćri alltof hátt, leigđi smátt og sparađi aurana til betri tíma. Nú í kreppunni stendur hann uppi sem hinn nćgjusami og skynsami sigurvegari og innsiglar sigurinn á međfylgjandi mynd.
Íbúđin sem Magnús keypti er í Ástjörn og nú taka viđ framkvćmdir ţar innanhúss sem eru i öruggum höndum Hákonar Páls og hans manna hjá Selási. Viđ feđgar ţökkum fasteignasölunni Remax fagleg og góđ vinnubrögđ og Guđmundi Pálssyni viđskiptin.
Semsagt, til hamingju Magnús.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.1.2010 kl. 00:06 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (11)
Verđur gengisfelling í bođi ÓRG
19.1.2010 | 09:51
Daglega flytja fjölmiđlar okkur fréttir af ţví ađ ekkert gerist á fundum stjórnar- og stjórnarandstöđu um Icesave og ţađ kemur ţjóđinni vitaskuld stórlega á óvart!
Á sama tíma veikir vandrćđagangurinn og vitleysan hér heima íslenskt hagkerfi dag frá degi og langlíklegast ađ innan skamms hrynji krónan um 20-30 prósent til viđbótar viđ ţađ sem orđiđ er. Allt í bođi Indefence og Ólafs Ragnars Grímssonar. Ţar fjúka ţá fúlgur miklu hćrri en ţađ sem deilt er um í Icesavemálinu sem allir nema Davíđ eru sammála um ađ borga, bara ekki hinsegin heldur svona (eđa var ţađ svona en ekki hinsegin) ...
Farsinn heldur áfram og verđur međ hverjum degi fíflalegri á kostnađ almennings og atvinnulífs sem á sínar skuldir og myntkörfur undir ţví ađ einhverntíma fari ađ rofa til á Íslandi. En nei, međan mínir menn sitja ekki viđ kjötkatlana skal frekar svíđa allt ofan í grunn, hugsar hin ţröngsýna íhaldssál allra hreppa.
Til Afríku međ Dohop
17.1.2010 | 16:15
Nú styttist í langţráđ frí.
Dag nokkurn í jólavertíđinni ákvađ kvenskörungurinn konan mín ađ senda mig afbćjar á nýju ári og fékk stálpađan son okkar til ađ taka gamla manninn ađ sér í nokkrar vikur, orđin leiđ á spurningum gesta og gangandi í búđinni um ţađ hvort ţessi "elderly man" vćri fađir hennar eđa afi og ţví heppilegra ađ ég yrđi um skeiđ međ blámönnum og villidýrum.
Eftir liđlega viku legg ég ţví upp í flugvél til Svíţjóđar, Rómar og loks Addis Abeba í Eţjópíu og ţađan kem ég aftur liđiđ er fram yfir miđjan febrúar ef viđ fegđar lendum ţá ekki í mannćtupottum áđur.
Til ţess ađ fara svo langan veg án atbeina ferđaskrifstofa er best ađ nota einhverjar af ţeim mörgu leitarvélum flugferđa sem reknar eru í netheimum. Ţađ er skemmst frá ţví ađ segja ađ í ţeirri leit reyndist hin íslenska Dohop leitarvél öllum öđrum fremri, raunar svo ađ međ öđrum leitarvélum tókst mér ađ ná heildarverđinu niđur í 260 ţúsund en međ Dohop fékk ég miđa fram og til baka á 140 ţúsund.
Ef ég frétti eitthvađ suđur í Afríku lćt ég ykkur vita en vísa annars á blogg Austurlandaegils (sjá mynd) sem hefur lofađ ađ ala önn fyrir föđur sínum í nokkrar vikur.
Hvar liggja hin háskalegu tengsl Icesave og ESB?
15.1.2010 | 23:30
...útspil forsetans verđur ESB ađ Ţórđargleđi ţví ţar međ er jafnvel hćtta á ađ Ísland lendi í enn alvarlegri fjármálakrísu en orđin er. Viđ erum ţegar lentir í ruslflokki hjá matsfyrirtćkjum og erlendir lánadrottnar ríkisins velta upp ţeim möguleika ađ kippa ađ sér hendi. Ţar međ veikist til muna viđnámsţróttur ţjóđarinnar til ađ standast útţenslustefnu Brusselvaldsins og hćttan á evrópskri innlimun eykst verulega. Ţegar viđ bćtist svo hćttan á ađ núverandi ríkisstjórn hrökklist frá völdum versnar enn stađa okkar sem viljum standa vörđ um sjálfstćđi og fullveldi landsins.
Sjá nánar í pistli mínum á AMX, hér.
Í skákkennslu hjá Fischer
15.1.2010 | 14:34
Fischer er nú í Flóanum og ţví er viđ hćfi ađ skákáhugamenn geti sótt kennslu eftir meistarann hingađ austur.
Ţví ţó meistarinn sé fallinn lifa verk hans í bókum og nú hefur Sunnlenska bókakaffiđ fengiđ mikiđ úrval af skákritum til sölu. Ţar má nefna ţessa klassísku bók stórmeistarans sem kom fyrst út 1966 en einnig Hagnýt endatöfl eftir Keres, Viđ skákborđiđ eftir Friđrik, bćkur Envoldsen og Wade um Fischer, Skákkveriđ fyrir byrjendur, Skáldskap á skákborđinu eftir Guđmund Arnlaugsson og margt margt fleira.