Allir hoppa á ESB vagninn - VG stefnulaus!

Vinstri græn hafa rætt þann möguleika að ganga inn í ESB og taka upp evruna en hafa ákveðið að það þyrfti fyrst að fara fram málefnaleg umræða um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu og síðan þá upptöku evrunnar og að slíkt ákvörðunarferli þurfi að vera lýðræðislegt þannig að á þessari stundu er ekki alveg ljóst hvert flokkurinn muni stefna varðandi aðild að Evrópusambandinu þar sem flokkurinn er í raun og veru að leggja þessa ákvörðun í hendurnar á þjóðinni.

 

Ofanritað er tilvitnun í Lilju Mósesdóttur hagfræðing og frambjóðanda hjá VG í samtali við Gunnar Gunnarsson fréttamann hjá Speglinum á RÚV. Gunnar er svoldið áfram um að menn játist ESB með einum eða öðrum hætti og það reyndist ótrúlega auðvelt í þessu tilviki. Samt er Lilja sá hagfræðingur sem hefur talað af einurð gegn því að ESB og evra hefði leyst kreppuna okkar. En ég er hálfhræddur um að þetta sé einfaldlega rétt lýsing á þokukenndri stefnu VG í sjálfstæðismálunum. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan menntamálaráðherra sem er líka varaformaður VG sagði að VG og Samfylkingin þyrftu að ná saman í ESB málum.

 

Á yfirstandandi vetri urðum við vitni að því hvernig þingflokkur Sjálfstæðisflokks molaðist undan ESB umræðunni þannig að undir lokin stóðu ekki eftir nema fjórir þingmenn sem þorðu og voru heilsteyptir í því að vera á móti ESB aðild og aðilarviðræðum. Þetta voru heimastjórnarmennirnir Björn, Birgir, Pétur og Sigurður Kári. Formannsefnið nýja, Bjarni Benediktsson var um tíma farinn að tala eins og Evrópukrati og virtist eiga létt með gíraskiptingar í þessu máli að ekki sé nú talað um varaformann sama flokks og Illuga Gunnarsson vonarstjörnu.

 

Á sama vetri samþykkti minn gamli flokkur aðildarviðræður á flokksþingi og  þeir fáu ESB andstæðingar sem töluðu á því þingi voru púaðir niður með 10% atkvæðafylgi gegn öllum þorra Framsóknarmanna. Þá skiptir litlu þó að flokkurinn hafi sett ýmis kátleg skilyrði. Það hefur Samfylkingin líka gert og raunar allir ESB sinnaðir flokkar í Evrópu hafa sett allskonar skilyrði bara til að geta svo sagt,- nei við náðum því reyndar ekki fram en það er aukaatriði því við fengum góðan hljómgrunn við hugmyndir okkar um aðlögun að umræðu um gerð áætlunar sem miðar að hagsmunum þjóðarinnar í alþjóðlegu samhengi sem er mikilvægt í ljósi breyttra aðstæðna o.s.frv. o.s.frv.þangað til það eru allir örugglega hættir að hlusta.

 

Í þriðja sinn tekst Evrópukrötunum að svæfa ESB málið fyrir kosningar þannig að það verður ekki kosið beint um það. Það þýðir um leið að allskonar ESB sinnar ná fótfestu í öllum flokkum og hefur svo sér við hlið hina linu sem láta hrekja sig eins og Lilja Mósesdóttir gerði svo átakanalega í nefndu RÚV viðtali.

 

En það er eins gott að það sé ekki kosið um þetta því þjóðin hefur alveg áttað sig og nú er mikill meirihluti gegn ESB aðild. Það er eins gott fyrir ESB sinnana að það fari nú ekki að rugla myndinni í sjálfum kosningunum!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Því miður hefur þú mikið til þín máls Bjarni, það er laumu-krata-spil í gangi. Eins og þú, þá treysti ég ekki VG lengur til að standa vörð um sjálfstæðið. Nú langar þau Steingrím og Katrínu, að vera áfram í ríkisstjórn og við vitum að Samfylkingin mun halda gangandi sínum gamalkunna laumu-krata-þrýstingi um ESB-aðild.

Ef svo heldur fram sem þú mælir, verður hvergi skjól fyrir sjálfstæðissinna nema í Sjálfstæðisflokknum. Ég legg til að þú gangir til liðs við okkur.

Kveðja.

Loftur Altice Þorsteinsson, 22.2.2009 kl. 21:43

2 Smámynd: Þór Jóhannesson

Áhugavert - en hvað er svona mikið mál með að setja þetta í þjóðaratkvæði? Þá fáum við einfaldlega úr því skorði hvort þjóðin vill þetta eða ekki og þá er a.m.k. hægt að vita hvaða stefnu yfirvöld eru inni á í Evrópumálum. Svo geta menn rifist um það bak og fyrir hvort sú stefna og vilji þjóðarinnar sé okkur fyrir bestu eða ekki.

Eruð þið á móti því að halda þjóðaratkvæðiagreiðslu um málið líka?

Þór Jóhannesson, 22.2.2009 kl. 23:32

3 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þór, kosningar um inngöngu í ESB ?

Já hvers vegna ekki það, ef við erum lausir við óværuna eftir að ESB-inngangan hefur verið felld.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.2.2009 kl. 00:03

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

Ég er tilbúinn að fallast á kosningar um aðildar viðræðum að gefnu því skilyrði að allir ESB sinnar heiti því að ef aðildarviðræður verði feldar, þá  muni þeir um allan aldur og ævi stein halda kjafti, ella vera fleygt af landi brott.

Fannar frá Rifi, 23.2.2009 kl. 00:56

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Bara rugl að kjósa um hvort farið skuli í aðildarviðræður.

Fólk kýs náttúrulega bara þegar samningurinn er kominn uppá borð og sér þá svart á hvítu að esb var ekki stofnað til að stela orku og/eða fikauðlyndum af íslandi.

Annars er ótrúegt hvað menn geta miklað þetta fyrir sér.  Þetta er ekki það risaskref sem margir ætla.  Íslendingar eru þegar prímsigndir og inní sambandinu að mörgu leyti.

Jú jú, þeir þyrftu að láta af ýmissri forneskju við formlega inngöngu, en það yrði auðvitað bara framför.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.2.2009 kl. 01:21

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það er arfavitlaust að vera að hugsa um aðildarviðræður að ESB í dag vegna þess að samningsforsendur eru afleitar. Auðvitað eru ESB jákvæðir núna enda sjá fyrir sér að það verði létt að beygja okkur við þessar aðstæður.

Við ættum að mynda góð tengsl við aðrar þjóðir en láta ESB eiga sig í bili eftir fantaskapinn í þeim í haust.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 23.2.2009 kl. 02:28

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er hrikalegt að lesa þessi ummæli Lilju Mósesdóttur – jafnvel hrikalegra en að horfa upp á Bjarna unga Ben. af kolkrabbakyninu og Þorgerði Katrínu ætla sér að hafa forystuna í Sjálfstæðisflokknum.

Jón Valur Jensson, 23.2.2009 kl. 02:49

8 Smámynd: Bjarni Harðarson

Já og það þarf mikla trú til að treysta því að þessi Sjálfstæðisflokkur muni standa vörð um sjálfstæðið...

Bjarni Harðarson, 23.2.2009 kl. 09:41

9 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Öll ESB umræðan er fátækleg. Hún hefur frá upphafi líkt og í mörgum löndum fyrrum austantjaldslanda einkennst mest at trúarhita. Já þetta hefur nánast jaðrað við ofstæki og þeir sem ekki gleypa við aðildarumsóknartillögu eru í framvarðarsveit afturhalds og landsvikamanna.  ESB sinnar sjá ekki ljótleika báknsins. Regluveldisins og minnast ekki óvildar sambandsins í garð okkar Íslendinga nú þegar við þörfnuðumst hjálpar mest, spörkuðu þeir í okkur.

Svona SKÍTASAMBAND vil ég ekki hafa nærri Íslandi. Að vera gleyptur af ESB, missa stjórn á fiskveiðilögssögu (að segja annað er að ljúga), missa taktfast stjórn á innri málefnum, festast i reglugerðaskógi, vera dregin í hernaðarbrölt meginlandsins. Þjóðnýtt og misbeitt munum við glata þjóðareinkennum okkar smátt og smátt.

Þetta er ljótur andskoti sem ég óska engu landi að sameinast!

Baldur Gautur Baldursson, 23.2.2009 kl. 10:21

10 Smámynd: Héðinn Björnsson

VG hefur sagt hreint og klárt að VG sé á móti aðild að ESB. VG hefur hinsvegar opnað fyrir að taka þá baráttu í þjóðaratkvæðagreiðslu, enda síst verri vetvangur til þess en á Alþingi. Annars held ég að það liggi alveg fyrir að ESB mál séu ekkert að fara að gerast. ESB er í upplausn jafnt vegna Lissabonsamningsins sem ekki beinlínis hefur komist nær því að verða samþykktur með efnahagsástandinu á Írlandi og ekki síður vegna þess að hrun efnahagsins í stóru ESB löndunum mun koma í veg fyrir að þau sýni áhuga á að taka yfir rústirnar okkar.

Héðinn Björnsson, 23.2.2009 kl. 10:57

11 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Óvildin er auðvitað bara hjá hverjum og einum Baldur og birtist í orðanotkun þinni. Veit ekki hvort að félagi Bjarni ætlar að fara að setja einhverja júðaborða á hættulega krata sem hann er farinn að sjá í öllum flokkum.

Við þurfum að leysa þetta stóra hagsmunamál á lýðræðislegan hátt, með aðildarviðræðum og þjóðaratkvæði. Það er heilbrigður farvegur sem að allir eiga að geta sætt sig við. Það felast tækifæri og sjálfstæði einstaklinga í ESB samstarfinu.

Nú bendir allt til að fjöldi fólks sé að flytja úr landi á næstu misserum í leit að betri tækifærum. Hvaða spil hafa ESB andstæðingar á hendi t.d. með myntina. Ekki neitt. Nýja LÍÚ stjórn?

Gunnlaugur B Ólafsson, 23.2.2009 kl. 11:00

12 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Þú ert Bjarni minn í vagni sem strefnir á ESB enda má vera öllum ljóst nema bornsfrosnum íhaldsmönnum að innan þeirra vébanda er hag okkar best borgið í nálægð og ekki síst fjarlægri framtíð. Innganga í ESB er, að mínum dómi, lykillinn að því að varðveitum sjálfstæði okkar og fullveldi en gætum annars orðið fátæk afskipt þjóð út í miðju ballarhafi.  Kv. B

Baldur Kristjánsson, 23.2.2009 kl. 11:09

13 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Í stað þess að ræða um ESB, ættum við að ræða um reynslu okkar af EES. Er sú reynsla eitthvað til að hrópa húrra fyrir ? Þurfum við ekki að halda áfram hinni óuppgerðu umræðu frá 1993 ? Hér er mitt innlegg í þá umræðu. Tökum svo ESB umræðu árið 2059 !

Alþingi getur leyft, bannað eða takmarkað athafnir landsmanna. Hvað sem það gerir, ber það ábyrgð á ákvörðuninni. Skaðabóta-ábyrgð myndast ef Alþingi gætir ekki eðlilegs meðal-hófs. Hins vegar ber Alþingi ekki ábyrgð á Stjórnarskrár-ákvæðum. Þar stendur þjóðin sjálf til ábyrgðar.
Með inngöngu í EES 1.janúar 1994 var stigið skref sem við fyrstu sýn virtist sumum heilladrjúgt, en átti eftir að verða örlagaríkt. Beint orsakasamband er á milli inngöngunnar og þeirra stórkostlegu erfiðleika sem Icesave reikningar Landsbankans eru að valda okkur. Alþingi hafnaði kröfu margra um þjóðaratkvæði og kaus því að bera sjálft ábyrgð á inngöngunni í Evrópska efnahagssvæðið.
Inngangan í EES kom í stað tvíhliða fríverzlunar-samnings frá 1972, sem landið hafði við Efnahagsbandalag Evrópu (EB). Tvíhliða samningurinn hefði ekki leyft stofnun innlánsreikninga Íslendsku bankanna erlendis og því var með inngöngunni gerð stefnubreyting, sem sannanlega leiddi til Icesave hörmunganna og var samningurinn algjörlega á ábyrgð Alþingis. Hin neikvæðu áhrif samningsins eru staðreynd og þau hverfa ekki þótt einhver jákvæð áhrif megi mögulega rekja til hans.
Ákvörðun Alþingis um inngöngu í EES var umdeild og samþykkt með naumum meirihluta þingmanna, eða 33 þingmönnum af 63. Andvígir voru 23 en 7 sátu hjá. Sjálfstæðisflokkurinn var klofinn um málið, þótt flestir þingmenn hans hafi greitt atkvæði með samningnum. Aþýðuflokkurinn var einhuga um EES samninginn, eins og ávallt þegar afsal landréttinda var til umræðu. Samfylkingin, rétt borinn arftaki Alþýðuflokks, er enn við sama heygarðshornið.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.2.2009 kl. 11:14

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Séra Baldur Gautur í Stokkhólmi hefur komizt að því fullkeyptu, hvílíkt sælubandalag Evrópusambandið er. Séra Baldur í Þorlákshöfn sér þetta hins vegar allt í hillingum og yrkir sínar óbundnu öfugmælavísur í gríð og erg.

Jón Valur Jensson, 23.2.2009 kl. 11:46

15 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Nei Bjarni við eigum ekkert erindi þarna i ESB, kannski ekkert skrítið að presturinn sem er i ríkiskirkjunni vilji þetta / trúfrelsi er kannski ekki heldur hans bókum á dagskrá/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 23.2.2009 kl. 11:50

16 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Samkvæmt skoðannakönnunum írskum hefur fylgi við  Lissabonsáttmálann stóraukist uppá síðkastið.

Yfirgnæfandi meirihluti segir já.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.2.2009 kl. 12:16

17 Smámynd: Jón Valur Jensson

... enda hafa EBé-kommissararnir beitt ýmsum brögðum til að fá Íra til að fá samvizkubit vegna þess að þeir einir skerist úr leik í þessum stjórnarskrárfarsa. Reyndar voru Írar eina þjóðin sem fekk að kjósa um Lissabon-sáttmálann!

En þetta hér í byrjun hjá mér er reyndar sagt að því gefnu að Ómar Bjarki fari þarna með rétt mál um afstöðu Íranna. Athygli mína vekur hins vegar, að hann gefur ekki upp neinar tölur né heimild, máli sínu til staðfestingar.

Jón Valur Jensson, 23.2.2009 kl. 12:57

18 Smámynd: Þór Jóhannesson

1) Fyrst ætti að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður.

a) Sé það fellt þá geta menn farið að einbeita sér að örðum leiðum og þá verða ESB sinnar að sætta sig við þá niðurstöðu og fara að halda kjafti (eins og maður segir).

b) Sé það samþykkt þarf aftur á móti að gefa yfirvöldum vinnufrið og hafa umræðuna heiðarlega og uppbyggjandi.

2) Halda þarf kosningum að inngöngu í ESB eftir - og ef að - 1)b) liður varð ofan á.

a) Sé þjóðin á móti inngöngu er komin niðurstaða og allt hjal um slíkt fellur um sjálft sig enda hljóta menn að læra að halda kjafti með tímanum því enginn heilbrigður pólitíkus talar markvisst gegn lýðræðinu og kemst upp með það.

b) Samþykki þjóðin inngöngu verða and-ESB sinnar að læra að sætta sig við orðinn hlut og halda kjafti enda - eins og segir í 2)a)...enginn heilbrigður póitíkus talar markvisst gegn lýðræðinu og kemst upp með það.

Þetta er ekki svo flókið - ef lýðræðið fær að ráða för, eða hvað?

Þór Jóhannesson, 23.2.2009 kl. 13:21

19 identicon

Nú er þar komið sögu að ég gefst upp.

Hvílík allífisviska og snilld sem hér er farin að birtast. Ég á bara ekkert erindi inn í svo yfirskilvitlega vitræna og greinargóða umræðu.  En það er nú gott að kunna sín takmörk - á köflum.

Drottinn minn, hvað ég veit nú annars lítið þegar upp er staðið! Mér er nær - liggja sisona síknt og heilagt í bókum. "Jætti bar' að skammast mín". Mun reyna

Helga Ág.

venjulegur kjósandi m/meðal gripsvit.

Helga Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 13:21

20 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Major swing in favour of Lisbon treaty

The poll shows that 51 per cent would now vote Yes, an increase of eight points since the last Irish Times poll in November, with 33 per cent saying they would vote No, a drop of six points. There are still 16 per cent in the “Don’t Know” category (down 2 points). When undecided voters are excluded, the Yes side has 60.7 per cent, with 39.3 per cent in the No camp.

Voters were also asked if, in the light of the current economic crisis, they thought it was better to be part of the EU. An overwhelming 80 per cent thought it better to be part of the EU, 13 per cent thought it was not and 7 per cent had no opinion.

http://www.irishtimes.com/newspaper/frontpage/2009/0216/1233867938989.html

Yfirgnæfandi stuðningur hjá Labour and Green Party en Sinn Féin er ennþá við sama heygarðshornið og styður Nei-arana.

(En þegar sáttmálinn var felldur á sínum tíma snerist áróður neiara um eitthvað úttí hött)

Athyglisvert hve margir telja að betra sé núna í krísunni að vera í ESB.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.2.2009 kl. 13:28

21 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég bendi á að þessi skoðanakönnun er mein gölluð, vegna þess að forsendur eru óraunhæfar. Auðvitað segja menn JÁ, ef þeir fá allt sem þeir vilja. Ég man ekki eftir jafn fáránlegri könnun.

In the poll, people were asked how they would vote in the light of the commitment to allow Ireland to retain a European Union commissioner along with legal guarantees on other Irish concerns about neutrality, abortion and taxation.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.2.2009 kl. 13:43

22 Smámynd: Bjarni Harðarson

Þór - afhverju halda stuðningsmenn Lissabonsáttmálans ekki kjafti á Írlandi? Íslendingar eru nú af sömu dýrategundinni og Írar og hér hefur verið alsiða að láta t.d. sveitamenn kjosa aftur og aftur og aftur þangað til þeir kjósa rétt í sameingakosningum...

Bjarni Harðarson, 23.2.2009 kl. 13:47

23 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Loftur, afhverju heldurðu að það sé minnst á "abortion" þarna ?

Snýst Lissabonsátmálinn um það.

(Eg veit nefnilega afhverju það er, enda hef ég kynnt mér baráttu neiara í Írlandi)

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.2.2009 kl. 13:57

24 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ómar, í þessari skoðana-könnun var verðið að bjóða upp á rétti, sem ekki munu standa til boða í raunveruleikanum. Jafnvel ég myndi vera meðmæltur inngöngu í ESB, ef ég fengi allar mínar óskir uppfylltar. Það stendur auðvitað ekki til boða og að auki veit ég að öll loforð ESB verða svikin.

Komdu með eitthvað bitastæðara í umræðuna en myglaðar áróðurs-skoðana-kannana-lummur !

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.2.2009 kl. 14:04

25 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

VG.virðast vera tilbúnir að fórna andstöðu sinni við ESB fyrir ráðherrastóla.

Ragnar Gunnlaugsson, 23.2.2009 kl. 14:11

26 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Kæri nafni minn.

1.  Rétt er það, að vart er að treysta nokkru um þjóðhollustu sumra flokksbræðra minna og systra.  Nægir í því sambandi að nefna undirlægjuhátt þeirra í umræðunni um að erlendir ,,kröfuhafar" eignist banka hér og þar með veðin sem eru í landsgæðum og eignum innlendra.

2.  Mjög þarf mikla trú og einfeldningshjátt  til, að trúa því, að þeir sem vilja okkur inn í ESB og tala út frá því sem ,,satt er "  muni stjórna ,,lest" okkar af þjóðhollustu.

Um þa´er hægt að segja eins og hagyrðingurinn sagði forðum

,,Prestar hinum heimi frá

Hulda dóma segja.

En skyldi þeim ekki bregða í brá, blessuðum nær þeir deyja"

Sama á við um þann vígða sem hér fer með lygimál, sem sannleika.

Þú ert Bjarni minn í vagni sem strefnir á ESB enda má vera öllum ljóst nema bornsfrosnum íhaldsmönnum að innan þeirra vébanda er hag okkar best borgið í nálægð og ekki síst fjarlægri framtíð. Innganga í ESB er, að mínum dómi, lykillinn að því að varðveitum sjálfstæði okkar og fullveldi en gætum annars orðið fátæk afskipt þjóð út í miðju ballarhafi.  Kv. B

Baldur Kristjánsson, 23.2.2009 kl. 11:09

3.  Öngvir eru þó líklegri til, að verja hag okkar afkomenda en Sjálfstæðismenn, sem bera þá nafnBÓT með rentu.

Með kærum kveðjum í byrjun Góu

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 23.2.2009 kl. 14:24

27 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Loftur, trúirðu sem sagt að fóstreyðingar hafi eitthvað að gera með Lisbon sáttmálann ?

Ef svo er þá er  erkibiskupinn af Dublin ósammála þér: THE Lisbon Treaty does not alter the legal position of abortion in Ireland the Archbishop of Dublin said...

http://www.independent.ie/national-news/lisbon-treaty/a-yes-vote-is-not-a-vote-for-abortion-says-archbishop-1391962.html

Sko, málið er að Neiarar í Írlandi létu kosninguna um sáttmálann snúast um eitthað sem kom málinu ekkert við.  Fundu uppá einhverju sem höfðaði til þjóðerniskenndar o.s.frv.

Skoðanakannanir hafa sýnt að fóstureyðingar voru eitt aðalatriðið fyrir nei atkvæum.  Fólki var talið trú um, með afar harðsnúinni og óheiðarlegu propaganda að sáttmálinn myndi afnema írskar hefðir varðandi það mál (en írar náttúrulega kaþólskir og sona, og fóstureyðingar mikið hitamál)

Nú, hvað má læra af þessu ? Jú, það að td. kosning hérna um hvort fara skuli í viðræður væru kiler fyrir alla málefnalega umræðu.  Killer.

And sinnar myndu spinna upp eitthvað sem hentaði  íslenskum aðstæðum: Stela orku, stela fiski etc og öll málefnaleg umræða myndi fara umsvifalaust fyrir björg.  Umsvifalaust.

Þessvegna er alveg lágmark í þjóðaratkvæðagreiðslu að hafa í höndunum hvað náist fram í aðildarviðræðum.  Þar kæmi auðvitað skýrt fram að esb myndi ekki stela orku og fiski.  En Þar með yrðu neiarar ekki dauðir úr öllum æðum, myndu finna á uppá einhverju náttúrulega.  En það myndi þrengja að þeim og halda meira við efnið. 

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.2.2009 kl. 14:35

28 Smámynd: Jón Valur Jensson

Bjarni Kjartansson, þetta sem þú segir í góðri viðleitni til að sannfæra okkur um, að Sjálfstæðisflokkurinn muni halda áfram að vera sjálfstæðisflokkur til framtíðar, hlýtur að vera svolítið háð því, hvort hann verði undir stjórn Evrópubandalagsinnlimunarsinna (eins og Bjarna unga Ben. Kolkrabbafóstra og Þorgerðar Katrínar evró-laumukrata) á komandi árum eða sannra fullveldissinna.

Á ekki að kjósa á móti þessum tveimur á landsfundinum?

Jón Valur Jensson, 23.2.2009 kl. 15:40

29 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Ég get ekki séð að það sé betra að vera esb sinni eða á móti ef marka má orð Jóns Frímanns, en han segir hér fyrir ofan

"Það er erfitt að vera gamall í dag. Jeminn eini! Að þurfa að stunda í því að vera á móti öllum framförum í dag, jeminn eini. Þetta er fullt starf hjá gömlu fólki sem hugmyndafræðilega tómt.

ESB mundi vera stórt skref fram á við fyrir Íslendinga. Dómsdagsspár andstæðinga ESB eru eingöngu til þess fallnar að hræða fólk. 

Jón Frímann, 22.2.2009 kl. 23:48"

Hann áttar sig kanski ekki á því að esb-sinnarnir eru með dómsdagsspér líka en bara á hinn veginn þar sem allt mun hér fara fjan... til (afsakið orðbragðið) ef við ekki göngum inn í þetta ríkjasamband sem stjórnað er frá Brussel.

reyndar hef ég fyrir löngu gert upp hug minn og hef ég og verð á móti ingöngu í þessa spillingu, það er nóg með spillingu hér heima þó ekki sé á það bætt með bullinu frá Brussel.

Kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 23.2.2009 kl. 16:40

30 identicon

Ég vona svo innilega að þessi Loftur Alice nái ekki góðum árangri í prófkjöri

Eiríkur (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 17:01

31 Smámynd: Jón Valur Jensson

Loftur verkfræðingur er stólpamaður, ég hef þekkt hann í mörg ár og mæli hikstalaust með honum.

Jón Valur Jensson, 23.2.2009 kl. 17:35

32 Smámynd: Þór Jóhannesson

Merkilegt hvað þessi umræða hefur snúist upp í innanflokksdeilur í Sjálfstæðisflokknum!

Tek ekki þátt í svoleiðis rugli - en hitt er víst að svona "skítabombur" eins og nafnlausa bleyðan Eiríkur sendir inn hér fyrir ofan mig eru klassískar fyrir ný-frjálshyggjubrjálæðingana á þeim bænum. Er sannfærður um að það væri margt mun verra en að Loftur Alice komist að í Sjálfstæðisflokknum - þó ég skilji ekki alveg hvað hann er að gera í þeim flokki, enda margt mun vitibornara komið frá honum en maður er vanur að lesa frá þingmönnum flokksins sem virðast algjörlega ofurseldir flokksræðinu og búnir að missa sjálfstæða hugsun (ef frá er talinn Pétur Blöndal e.t.v.).

Nenni samt ekki að taka þátt í innanflokksmálum og umræðu um þau - hélt við værum að ræða ESB hér!

Þór Jóhannesson, 23.2.2009 kl. 17:41

33 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Það eru engar innanflokksdeilur í Sjálfstæðisflokknum um Evrópumálin. Sú vinna sem farið var í fyrir og eftir jól í flokknum sýndi svo um munaði að flokksmenn eru upp til hópa andvígir inngöngu í Evrópusambandið. Það heyrðist varla múkk í Evrópusambandssinnum í flokknum.

Hjörtur J. Guðmundsson, 23.2.2009 kl. 18:26

34 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Huldumaðurinn Eiríkur kom hér með innlegg, sem hann telur líklega að sé mjög málefnalegt. Ætli hann haldi, að svona barnaleg ummæli séu ESB-málstaðnum til framdráttar ?

Ég bið þig Eiríkur að kjósa mig ekki, ef þú hefur þá kosningarétt, því að ég vil heldst vera laus við atkvæði þitt.

Varðandi ESB, hef ég gefið eftirfarandi yfirlýsingu:

Til að gæta heiðarleika gagnvart kjósendum, skal áhugamönnum um inngöngu landsins í Evrópusambandið bent á, að ég mun ekki ljá því eyra hvað þá heldur hönd, að sjálfstæði þjóðarinnar verði skert. Það er mín skoðun, að mikilvægt sé að leggja faglegt mat á núverandi tengsl okkar við Evrópusambandið og að ekkert sé fyrirfram gefið varðandi samskipti við þann félagskap.

Að þessu sögðu tel ég mikilvægt að umræða um ESB fari fram, eins og um önnur mikilvæg mál og ég hlusta eftir því sem ESB-sinnar hafa að segja. Eiríkur er vonandi á engan hátt dæmigerður ESB-sinni.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.2.2009 kl. 20:48

35 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Ég er enn ofan jarðar og stend í lappirnar þannig að ekki er allt farið til fj.... á Íslandi.

Svo geturðu sent mér póst ef þig langar að skjóta eitthvað á mig varðandi afsöðu mína, Jón Frímann.

Kveðja

Kaldi

kaldi (hja) kaldi .is

Ólafur Björn Ólafsson, 23.2.2009 kl. 23:09

36 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hjörtur, þeir voru nú allnokkrir á fundunum í Valhöll, sem voru með "múkk" á móti meginstefnu flestra Sjálfstæðisflokksmanna um þetta volduga, en illa fyrir kallaða yfirríkjabandalag. Meðal þeirra var t.d. Bjarni ungi Benediktsson, yfirlýstur EBé-sinni á þeim fundum (og beinlínis annar höfuðmálsvari "inngöngu" á einum fundinum), og hefur hann þó þá dirsku til að bera að ætla sér að verða formaður flokksins! Ertu ekki sammála mér, að meðan við erum í flokknum, verðum við að taka afstöðu gegn framboði hans til formennsku?

Ef þú spyrð mig í einlægni, Hjörtur: Er einhver stjórnmálaflokkur hér á landi nógu þjóðlegur og staðfastur til að standa vörð um fullveldi okkar og sjálfstæði og halda okkur einarðlega utan við Evrópubandalagið? þá er svar mitt: Nei, ég veit engan þann flokk hér á landi, sem ég geti treyst í þeim efnum, af princípástæðum og með öllu sínu þingmannaafli, jafnvel ekki Sjálfstæðisflokkinn og Vinstri græna, en ég geri mér þó vonir um, að landsfundur fyrrnefnda flokksins muni taka harða afstöðu gegn innlimun landsins í Evrópubandalagið – í takt við afstöðu 75% óbreyttra stuðningsmanna þess flokks – og raunar geri ég mér sömu vonir um landsfund Frjálslynda flokksins, en eru Vinstri grænir ekki búnir að halda sinn og samt byrjaðir með sín undarlegu EBé-ólíkindalæti við Samfylkinguna (Lilja Mósesdóttir og jafnvel Katrín Jakobsdóttir)?

Jón Valur Jensson, 24.2.2009 kl. 01:53

37 Smámynd: Fannar frá Rifi

En þarf ekki mikinn meirihluta til að samþykkja framsal á löggjafar og framkvæmdarvaldinu til erlendra valastofnanna? í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu voru um 98% (kosningar þátttakan þá var hátt í 97%) þeirra sem þátt tóku á þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu á þeirri línu að við segðum okkur frá öllum yfir þjóðlegum valdastofnunum og Íslendingar réðu sínum málum sjálfir. þyrfti í raun ekki sambærilegan fjölda til þess að samþykkja þessi lýðræðislega ákvörðun yrði dregin til baka?

Fannar frá Rifi, 24.2.2009 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband