Mikilvægara en niðurfærsla
29.11.2010 | 17:40
Ég ætla ekki að segja hvort þessi tala á að vera 175 þúsund eða 215 þúsund en það er eitt mikilvægasta verkefni endurreisnarinnar að hækka lægstu laun.
Við hrunið lenti umtalsverður hópur launafólks undir fátæktarmörkum, hópur sem var á mannsæmandi kjörum áður. Vinstri stjórnin hefur gert mikið til að koma til móts við þennan hóp og í fyrsta skipti í áratugi hefur kjaraskerðing bitnað meira á hinum efnameiri. En samt er ekki nóg að gert. Lægstu laun eru hættulega langt fyrir neðan meðalbætur. Slíkt fyrirkomulag er mjög hættulegt fyrir þjóðarhag og enn verra fyrir þjóðarsálina.
Kostnaður við að hífa upp lægstu laun er smávægilegur miðað við t.d. kostnað við hina margræddu niðurfærslu lána og margfalt mikilvægara verkefni.
Lægstu laun yfir 200 þúsund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB semur dagskrá Stjórnlagaþingsins
25.11.2010 | 18:49
Í ársskýrslu ESB um samningaviðræður við Ísland segir meðal annars:
Legislation to elect an advisory constitutional assembly was adopted in June. The task of the
assembly is to prepare a proposal to parliament for a new constitution. Among the issues to be
addressed is delegation of powers by the State to international organisations. (Í júní voru samþykkt lög um stjórnlagaþing sem mun leggja fram tillögu fyrir Alþingi um nýja stjórnarskrá. Meðal verkefna þar er að deila fullveldi ríkisins með alþjóðlegum stofnunum.)
Það spyr auðvitað enginn fréttamaður hvaðan ESB hafi þessa fullyrðingu en það er fráleitt að þetta sé sagt út í loftið. Þannig vinnur þetta risastóra skrifræðisbákn ekki. Þetta mál verður sett á dagskrá af þeim sem til þess eru settir. Spurningin er bara hvort það verða nógu margir sem standa á móti og mæta til þings þessa með hagsmuni lýðveldisins að leiðarljósi en ekki hagsmuni erlendra stórríkja.
Listinn hjá Heimssýn lofar góðu og þar er enn að bætast við.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.11.2010 kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Kambsránssaga og æviminningar í bókakaffinu í kvöld
25.11.2010 | 13:57
Upplestrarkvöld verður að vanda í bókakaffinu í kvöld. Að þessu sinni kynnum við Kambsránssögu sem var að koma út hjá Sunnlenska bókakaffinu og er þetta fimmta útgáfa þessarar sívinsælu sögu sem er allt í senn fyrsta sakamálasagan og einnig talin yngsta Íslendingasagan. Staðgengill Þuríðar formanns mætir á staðinn og sömuleiðis einn af afkomendum Brynjúlfs Jónssonar höfundar sögunnar.
Þá koma tveir rithöfundar í heimsókn, þeir Hákon Sigurgrímsson frá Holti í Stokkseyrarhreppi sem gefur út sjálfsævisögu sína, Þú ert þessi Hákon og Níels Árni Lund sem kynnir bók sína um Melrakkasléttu, Af heimaslóð. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Að velja á stjórnlagaþing
23.11.2010 | 19:33
Það er erfitt verk að velja á stjórnlagaþing. Við sem erum í forsvari fyrir Heimssýn og þar með andstöðuna við aðild Íslands að ESB erum mörg spurð hvern eigi að kjósa til þess að koma í veg fyrir að Ísland gangi í ESB. Stórt spurt.
Nýlega auglýsti Heimssýn eftir afstöðu frambjóðenda til fullveldisins og nú hefur nokkur hópur svarað. Þann lista má sjá hér.
Það er auðvitað mjög umdeilanlegt að setja þessa kosningar í skotgrafir baráttunnar um ESB aðild og ekki frá okkur andstæðingum aðildar komið. ESB hefur beinlínis kallað eftir þessum víglínum því í nýlegri ársskýrslu þess um viðræðurnar við Ísland er því haldið fram að Íslendingar muni á Stjórnlagaþingi breyta stjórnarskránni í þá veru að gera fullveldisafsal auðveldara. Smekkleysi þessa stórveldis í afskiptum af innanlandsmálum eru engin takmörk sett.
Sjálfum er mér illa við að hlutast til um lýðræðislega kosningu til Stjórnlagaþings með þeim hætti að segja að þessir séu fullveldinu og lýðveldinu þóknanlegri og aðrir séu það ekki en rétt er að benda á að öllum frambjóðendum er frjálst að svara Heimssýn,- eða gera það ekki.
Svo eru vitaskuld til fleiri leiðir. Þannig hefur verið smíðuð sérstök leitarvél þar sem hægt er að slá inn ákveðnum hugtökum og leita í stuttum stefnupunktum sem frambjóðendur hafa kosið að setja á vef dómsmálaráðuneytisins. Vélin er hér: http://www.andrimar.is/malefnaleitin
Hér er hægt að slá inn hugtökum eins og fullveldi, lýðræði eða jafnrétti en það eitt að orðið komi fyrir er vitaskuld ekki trygging fyrir neinu en auðveldar engu að síður leitina að viðhorfum frambjóðenda.
Bókadómar bókakaffisins
22.11.2010 | 20:05
Sunnlenska bókakaffið heldur úti síðu þar sem m.a. eru birtir stuttir palladómar um bækur, nú þegar eru komnir þar dómar um bækur Þórunnar Valdimars, Kristínar Steins, Kristínar Eiríks, Óskars Magnússonar, Megasar, Bergsveins Birgissonar og svo er eitthvað minnst þar á Sigurð fót eftir undirritaðan...
Fleiri koma síðar
Best í heimi...
21.11.2010 | 13:58
Best í heimi er að vakna klukkan átta á sunnudagsmorgni og lúra sér ofan í góða bók, þangað til maður er kominn með náladofa í hendina en herping neðan við vömbina og fara þá fram og koma aftur í rúmið með mikið kaffi og ristað brauð með gulu marmelaði og setja það við hliðina á konunni sinni og lesa svo áfram og borða öll ristuðu brauðin og nöldra í henni að ná nú í meira af því ég náði í áðan og sofna svo með margar ristabrauðssneiðar og líter af kaffi í maganum og konan er ýmist í rúminu eða ekki og stundum nakin að striplast við rúmgaflinn eins og nývaknaðar konur gera og böðuð og það er lykt og það er löngu kominn dagur og bókin er þykk og góð og kaffið gutlar í maganum og samt sofnar maður smá og hrekkur upp og nær jafnvel að hafa smá móral yfir að vera latur og drekkur kaldar dreggjar af þykku kaffinu og það er ennþá smá biti eftir af síðasta brauðinu en Elín vill hann ekki og er farin og kemur aftur nokkrum sinnum í svona mjög kvenlegu húsrábi, alklædd og fer að tala um skúringar en er samt miklu skárri en konan hans Lúðvígs í bókinni hans Braga Ólafssonar með langa nafninu sem er eiginlega svo leiðinleg, konan en ekki bókin, að úr því að hún er aftur komin inn á söguna set ég örlítið bréfsnifsi innan í hana miðja, ekki konuna enda myndi ég aldrei gera það heldur bókina, loka og fer í sokkana sem lykta af támeyru og hugsa um að kannski eigi ég að skipta um sokka þegar ég er búinn að skúra eða skúra sokkalaus nema það sé hægt að nota þetta með sokkana sem einhverskonar viðbáru gagnvart þeim ósköpum að þurfa að skúra en svo horfi ég á konuna sem er ekki í bókinni heldur á svefnherbergisgólfinu og sé að þetta er allt vonlaust...
Upplestur á bókakaffinu í kvöld
18.11.2010 | 16:41
Við verðum þrír sunnlenskir höfundar sem ríðum á vaðið í jólabókalestrinum í Sunnlenska bókakaffinu í kvöld. Þar les Guðmundur Kristinsson úr nýrri og allsérstæðri viðtalsbók sinni, Óskar Magnússon Fljótshlíðingur les úr smásagnabók sinni og sjálfur mun ég svo lesa úr Sigurðar sögu fóts.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis og húsið er opnað klukkan átta.
Gott landsbyggðarblað
18.11.2010 | 16:38
Bændablaðið kom út í dag og það fyllir mig jafnan stolti - hafandi komið að stofnun þessa blaðs og rekið það fyrstu sjö árin.
Það var svo sérstakt ánægjuefni að sjá að blaðinu nú fylgir aukablað um málefni landeigenda í landinu. Þar ber þjóðlendumálin hæst og öll umræða um þau afar mikils virði.
Stjórnar Jón Bjarnason umræðunni...
17.11.2010 | 17:38
Ég er ekki vanur að nota þessa síðu til að auglýsa pólitíska fundi hjá Samfylkingunni en auglýsing fyrir fundinn með Baldri Þórhallssyni í kvöld hrópar á athygli og kætir okkur mörg. Líklega erum við bara á réttri leið.
Samfylkingin og Evrópumál:
Erum við að gera nóg eða stjórnar Jón Bjarnason umræðunni?
Allir velkomnir. Stjórnin
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.11.2010 kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Kortlagning risa stóra bróður
10.11.2010 | 16:02
Við getum haft mismunandi skoðanir á ESB aðild og því ferli sem er nú í gangi en sú kortlagning sem Timo Summa segir frá í dag vekur spurningar.
Það eru nokkrir mánuðir síðan mér barst til eyrna orðrómur um að ESB væri að kortleggja og vinna að yfirliti yfir afstöðu mismunandi þjóðfélagshópa á Íslandi til ESB og pólitískra álitamála með viðamiklum spurningalistum og viðtölum. Nú hefur sendiherra ESB á Íslandi staðfest að þetta er rétt.
Þegar valdið og í þessu tilviki erlent stórveldi tekur sig til að kortleggja þjóðina með þessum hætti þá erum við komin talsvert lengra heldur en jafnvel Orwell datt í hug að hægt væri að fara. Og þetta gerist þó að við séum hvorki í ESB né nokkur meirihluti fyrir inngöngu inn í það.
Hver sá sem hefur gögn eins og þessi í höndunum getur leikið sér með skoðanir okkar og afstöðu eins og unglingur í tölvuleik. Heillandi veruleiki!
ESB kortleggur Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |