Forsmekkur að vetrinum
4.10.2009 | 19:06
Ofbeldi endurtekningar og skrifræðis
2.10.2009 | 17:26
Stjórnvöld sem ekki fella sig við vilja almennings hafa haft ýmsar aðferðir til að fara sínu fram. Algengast er að banna óæskilega stjórnmálaflokka, takmarka ritfrelsi og málfrelsi almennings og þeir sem lengst ganga hafa fangelsað og tekið af lífi stjórnarandstæðinga sem ógna völdum þeirra. Allt eru þetta frekar klunnalegar aðferðir og verða oft til að magna andstöðu og óróa.
Skrifræðisbákn Vesturlanda sem rís hæst í Brussel hefur því fundið upp alveg nýjar aðferðir og ísmeygilegri. Ein sú algengasta þar er að láta fólk kjósa aftur og aftur þar til það annaðhvort samþykkir eða hreinlega gefst upp á að mæta á kjörstað. Slíkri aðferð er nú beitt vegna Lissabonsáttmálans á Írlandi. Írar þurfa í dag að kjósa aftur um sáttmála sem þeir höfnuðu fyrir ári og kemur ekki á óvart að kjörsókn sé talin léleg.
Þetta er langt því frá að vera eina aðferðin sem ESB-notar til að koma sér hjá lýðræðinu eða að ESB sé eitt um aðferðir eins og þessar. Samskonar nauðgun á lýðræði hefur verið viðhöfð á Íslandi við sameiningu sveitarfélaga þar sem íbúarnir fá að kjósa aftur og aftur þar til þeir hafa samþykkt og þá aldrei að nýju.
Af öðrum tækjum sem ESB hefur á takteinum gegn lýðræðinu má nefna að völd eru falin embættismönnum en ekki kjörnum fulltrúum, almenningi jafnt sem kjörnum fulltrúum er gert að velja milli tveggja eða fleiri kosta sem allir eru óskiljanlegir. Samningar, regluverk og lagagreinar er allt haft í svo löngu máli og á svo flókinni kansellímállýsku að enginn skilur og áfram mætti telja. Að síðustu má nefna það snjallræði að breyta einfaldlega nafni á því sem fólk hefur hafnað í kosningum og setja það á með einföldum stjórnvaldsaðgerðum en einmitt þannig er Lissabonsáttmálanum troðið upp á Frakka og Hollendinga sem höfnuðu honum í þjóðaratkvæði en fengu svo ekki að kjósa um hann nafnbreyttan.
Það er vísast að Leoníd Brjesnev heitinn og Aldinborgararnir dönsku liggi allir með tölu öfundsjúkir í gröfum sínum yfir ráðkænskunni í Brussel.
Að rembast við níð
1.10.2009 | 00:12
Það gladdi mig að sjá Morgunblaðinu núna í vikunni pistil eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur blaðamann. Ekki vegna þess að ég hafi verið ánægður með skoðanir Kolbrúnar heldur af því að ég unni því að Mogginn hafi margar vistarverur og vonandi nær hann að halda þeirri stöðu.
En þessi tiltekni pistill sem ég las heitir Hin vonda þjóðremba og mig minnir til að hafa lesið sömu skoðun áður í pistli hjá Kolbrúnu. Ef það er hægt að kalla það skoðun að afgreiða andstæðinga sína í pólitík sem þjóðrembur og telja málið þar með útrætt.
Það er alveg rétt hjá Kolbrúnu að hverskyns þjóðrembubelgingur er ógeðfelldur og ég vil bæta því við að hann er líka miður gáfulegur og vitnar um einhverskonar harðlífi andans. En hitt skil ég ekki hvernig blaðamaðurinn fær það út að eigna svo lágkúrulegum hvötum að andstaða við ESB-aðild hefur aukist eða að við andstæðingar ESB-aðildar séum útsettari fyrir þjóðrembu en hinir sem aðhyllast ESB. Ég mótmæli þessu enda tel ég sjálfan mig svo langt frá því að aðhyllast þjóðrembu sem vera má. Raunar er þessi rökræðuaðferð um ESB álíka gáfuleg eins og að útmála alla ESB-sinna sem þjóðníðinga og alla VG menn sem kommúnista. Getur í hæsta lagi hentað sem gamanmál á þorrablótum en slík sleggjudómaumræða hæfir ekki upplýstu og vel skrifandi fólki eins og Kolbrúnu Bergþórsdóttur.
Sjálfur er ég ESB-andstæðingur og alþjóðasinni, meiri alþjóðasinni en sumir þeir sem telja einfaldlega að heimatúnið hafi nú færst ofan úr Sumarhúsum, niður á Austurvöll og þaðan alla leið suður til Evrópu. Heimavöllur frjálsborinna manna á 21. öldinni er stærri en Evrópa og fram til þessa hefur samstarf okkar við hina heimóttalegu skrifræðisstofnun í Brussel aðallega orðið til að loka landi voru fyrir jafnt Afríku- og Asíumönnum sem er afar háskalegt og heimskulegt.
Ögmundur maður að meiri
30.9.2009 | 14:03
Ögmundur er maður að meiri að hafa sagt af sér og svolítið fellur nú á heilaga ásjónu Jóhönnu. Best væri ef þetta yrði upphaf að því að við rækjum bæði Icesave og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn af höndum okkar.
Ég spái því að vinstri stjórnin lifi þetta af enda sé ég í augnablikinu ekki betri kosti í stjórnarmynstri. Versti kosturinn yrði að endurvekja Viðeyjarskottuna með Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki og það er ekki tímabært að VG myndi stjórn með Sjálfstæðisflokki meðan enn er mikið óunnið í uppgjöri við kreppuna og langa stjórnartíð íhaldsins. Þriggja flokka stjórnir eða þaðan af fjölmennari eru líka afar vondur kostur enda situr allt fast í slíkri stjórn.
![]() |
Ögmundur segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enn reyna bankarnir að plata fólk...
28.9.2009 | 15:03
...og reyna ekki bara. Yfirleitt tekst þeim það og örugglega verða einhverjir sem taka þessu höfðinglega boði Íslandsbanka sem þýðir einfaldlega að bankanum tekst að stela ögn meiru af þeim skuldsettu.
Allir sem taka þessu boði um að breyta erlenda láninu í innlent munu tapa peningum þegar krónan styrkist. Þessi lán eru til fleiri ára og sum áratuga. Krónan mun auðvitað styrkjast um meira en 25% þegar fárinu linnir. Þeir sem skulda í erlendu létu plata sig þegar þeir tóku lánin á tímum hágengis og nú er reynt að plata þá aftur með því að umreikna lánið í krónur á tímum lággengis. Lánin sem fólk umbreytir núna í krónur lækka ekki þegar krónan styrkist.
"Við værum ekki að bjóða upp á þessi lán ef við teldum ekki að þetta hjálpaði okkar viðskiptavinum," segir Birna bankastjóri í samtali við Morgunblaðið. Hvað hét annars glæpakvendið sem Megas söng svo fallega um hér um árið, glæpakvendið var það Birna eða Stella. Skyldi þó ekki vera að hún sé komin í Íslandsbanka.
Grínlaust þá falla nú mjög þau rök að ríkisbankar séu betri en einkagræðgisbankar.
![]() |
25% lækkun höfuðstóls lánanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Besta og mesta sköpunarverk heimskringlunnar!
27.9.2009 | 11:51
Eitt það skemmtilegasta við bloggið er kommentakerfið. Þannig skrifar góður vinur minn og skólabróðir frá Menntaskólaárum inn á bloggið mitt í gær afar dýrmæta færslu sem vitnar um þá nálgun sem er á ESB-umræðu og trúarbrögðum:
En í raun er allt breytingum háð og Evrópusambandi sem þér finnst nú vera afsprengi djöfulsins gæti orðið eitt af hinum bestu og mestu sköpunarverkum heimskringlunnar.
Í raun ekki hægt að fastsetja það til eilífðar að gallar sem að einhverjum finnast á sambandinu í dag verði þar til frambúðar. Þvert á móti má gera ráð fyrir að það slípist til og að það séu líka hagsmunir annarra landa að sníða af því helstu agnúana.
(Gunnlaugur B. Ólafsson frá Stafafelli í Lóni, Samfylkingarmaður og göngugarpur með meiru.)
Davíðs-innsogið og fúkyrði DV-ritstjórans
26.9.2009 | 13:18
Það hafði skemmtanagildi að hlusta á Vikulokin hjá Hallgrími Thorsteinssyni í morgun þar sem rifist var á innsoginu yfir ráðningu Davíðs Oddssonar til Morgunblaðsins.
Þátturinn endaði skemmtilega á umfjöllun DV um Björgólfana þegar Reynir Traustason var spurður að því hvort þar yrði sambærileg umfjöllun um aðra útrásarkónga. Í stað þess að svara hreytti ritstjórinn fúkyrðum að spyrjandanum, Sigurði Kára Kristjánssyni sem kynnti sig reyndar sem óbreyttan lesanda sem ekkert vissi meira um mál Björgólfa en allur almenningur.
Sigurður Kári er aðstoðarmaður formanns Sjálfstæðisflokksins og það er Sjálfstæðisflokkurinn sem ber ábyrgð á vafasömu veldi Björgólfanna. Og aðstoðarmaður formanns Sjálfstæðisflokksins er ekki bara einhver úti í bæ.
Reynir Traustason er í vinnu hjá hinni útrásarklíkunni og DV ber þess merki. Fúkyrði breiða ekkert yfir þá staðreynd.
Davíð Oddsson verður auðvitað prýðilegur ritstjóri, enda pennafær og skemmtilegur. En Morgunblaðið tapar auðvitað heilu áratugunum í þeim árangri að verða blað allra landsmanna. Og mér er til efs að spenningur fyrir leiðaraskrifum þessa magnaða penna dugi til að vinna á móti því tapi. En það er mál Moggans.
Mér er líka til efs að ráðning Davíðs sé endilega svo hagstæð okkur sem erum skoðanabræður hans í ESB-málum. Líklegast er að umræðan flytjist nú enn meira í skotgrafir og verði ómálefnalegri en ætti að vera.ESB-andstæðinar græða mest á rökfastri, hógværri og málefnalegri umræðu. Reyndar fer Davíð vel af stað með leiðaranum í dag og guð láti gott á vita.
Já og talandi um Sigurð Kára. Hann er aðstoðarmaður Bjarna Ben. Ef það er einhver sem ætti að hafa raunverulegar áhyggjur af ráðningu Davíðs þá er það Bjarni og klúbburinn sem hann veitir forstöðu. Sú harka sem nærvera Davíðs hleypir í alla umræðu gæti orðið til að einangra Sjálfstæðisflokkinn um langa hríð.
Hóxi sjálfur í furðuhillunni
25.9.2009 | 11:54
... Endurskoðunarsinnarnir, afturhaldssama borgarastéttin og flokkar þeirra halda þvífram, að fræðikenning okkar, marxisminn-lenínisminn, sé kredda, jarðfastur steingervingur... Marxisminn-lenínisminn er í raun eina fræðikenningin, sem býr yfir lífi og hreyfanleika. Það er vegna þess, að hann er fræðikenning verkalýðsstéttarinnar, framsæknustu stéttar þjóðfélagsins og þeirrar byltingasinnuðustu, sem hugsar á réttan hátt, framleiðir hin efnislegu verðmæti og er sístarfandi. ...
Á degi eins og þessum er ekkert betra en að hafa gaman af lífinu og teygja sig í furðuhilluna hér í Fornbókabúðinni sem geymir allskonar rarítet.
Til dæmis hið stórmerka rit Heimsvaldastefnan og byltingin 1. hluti eftir alþýðuleiðtogann Enver Hoxha, en rit þetta var þýtt yfir á íslensku 1980 og gefið út af Menningartengslum Albaníu og Íslands. Hoxha var einhverskonar pólitísk ofurhetja sem bauð öllum birginn, einangraði land sitt algerlega og henti andstæðingum sínum út um glugga ef þeir voru með múður.
Ég er orðlaus!
24.9.2009 | 17:20
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Ég er orðlaus!
24.9.2009 | 17:19