Prófraun VG eru Bakki og Helguvík
23.9.2009 | 17:13
Vinstri grænir standa nú frammi fyrir mikilli prófraun. Flokki Steingríms J. er smám saman að takast að þoka sér upp úr því hjólfari að vera þröngsýnn óstjórntækur öfgaflokkur í eilíflegri stjórnarandstöðu yfir í að vera stjórntækur og sæmilega víðsýnn þjóðlegur vinstri flokkur. Þetta er líka mikilvægt ef flokkurinn ætlar að halda í það fylgi sem hann fékk í síðustu kosningum og helst auka það.
ESB-málin eru vissulega skuggi á mynd flokksins en ef og þegar ESB-samningi hefur verið hafnað í þjóðaratkvæði þá getur vel farið svo að við þjóðlega þenkjandi menn tökum að lokum ofan fyrir Steingrími og Ögmundi fyrir þann kjark að hleypa þessu máli hjá á viðsjártímum. En þá er líka eins gott að allur þingflokkur VG beiti sér gegn samþykkt samningsins. Og um Icesave er það að segja að það mál er að fara eins og það hlaut að fara.
Stóra prófraun flokksins nú er álverið við Húsavík. Það er algerlega óásættanlegt fyrir okkur landsbyggðarsinnaða og skynsama kjósendur VG ef flokkurinn ætlar að stoppa Bakka við Húsavík en hleypa Helguvík áfram. Sjálfur get ég vel sætt mig við að Helguvík verði stöðvuð enda vafamál að það sé skynsamlegt að reisa risaálver ofan í hesthúsahverfum Keflvíkinga. Ég skil líka að það er ákveðin málamiðlun milli álverssinna og hinna að stoppa annað álverið en það er afar misráðið og andstætt þeirri byggðastefnu sem VG hefur staðið fyrir ef það verður norðlenska álverið sem verður þar sett út í kuldann.
Hann á afmæli í dag...
22.9.2009 | 12:42
Karl faðir minn á afmæli í dag, 75 ára og bráðvel ern og hraustur eins og segir í vísunni. Hann er hér á mynd, lengst til hægri með vinum sínum fyrir utan æskuheimili sitt á Baldursgötu í Reykjavík.
Semsagt, til hamingju.
Skáldskapur á Eyjunni
21.9.2009 | 23:46
Ég hef ekkert fyrir mér en ég ætla að veðja á að frétt Eyjunnar um Davíð sem næsta ritstjóra Morgunblaðsins sé lygi, brosleg lygi til að fá fram umferð á vef Eyjunnar.
Þar með er ég ekki að segja að Davíð gæti ekki orðið góður ritstjóri Moggans, maðurinn sjálfur hefði alla burði í það. En Mogginn gæti aldrei borið þá sögu og þann klafa sem ímynd Davíðs bæri með sér inn á blaðið.
Mogginn fór illa út úr því að hafa ESB-trúboðann Óla Stef. sem ritstjóra. Nú skiptir miklu fyrir trúverðugleika og vægi blaðsins að í ritstjórastól setjist hófsamur og lítt umdeildur maður sem getur komið fram sem sameiningartákn allra lesenda blaðsins. Ólafur Stephensen var það ekki og Davíð yrði það enn síður.
Ófyrirleitið skuldaskrum
21.9.2009 | 13:19
Er það ekki réttlæti og þá gætum við verið á svipuðum skuldareit og við vorum við upphaf kreppunnar. Þessi krafa hefur heyrst öðru hvoru allt frá því fjármálakrísan skall á og einstaka sinnum heyrist í fólki sem virðist tala af hugsjónahita um þetta hugðarefni sitt.
Í verunni er ekki til meiri ófyrirleitni og meira siðleysi í umræðunni en þessi krafa.
Sjá nánar í pistli mínum á AMX
Þín miskunn ó guð
20.9.2009 | 20:34
Fyrir okkur sem erum Megasarfan er hvert nýtt lag opinberun. Og það skemmtilega við endurútgáfu diska hjá meistaranum eru aukalögin öll sem hafa verið sett aftan við. Þar leynast gómsætir gullmolar eins og sálmurinn Þín miskunn ó guð aftan við nýja Millilendingu. Sálmur þessi er bæði hjartnæmur og fallegur í anda frelsunarguðfræði.
Seinasta erindið þar er svohljóðandi:
þín miskunn ó guð er svo gengdarlaus feit
mér gengur næst hjarta allt spikið
en sem ég hér eigra um ein grasbitin geit
að mér geltir: hvað finnst þér það mikið...
Seinni og enn lakari Icesave umferð í gang
19.9.2009 | 17:06
Seinni og ennþá óskiljanlegri Icesave umferð er nú að hefjast en í henni verður eins og þeirri fyrri tekist á um aukaatriði með stóryrðum.
Raunar ljóst að eftir að Indefence hópurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og að síðustu Framsókn gengust inn á að við ættum og yrðum að borga Icesave að hér er rifist um keisarans skegg.
Mér er mjög til efs að það hafi átt að semja um þessar skuldir yfirhöfuð en geri mér alveg grein fyrir að það fólst nokkur áhætta í þeirri leið að loka þeim dyrum. Úr því að samið var munar mjög litlu hvort ríkisábyrgð fellur niður árinu fyrr eða seinna þar sem Ísland mun borga þessar skuldir upp í topp, þrátt fyrir alla fyrirvara.
Sjálfstæðismenn reyna nú að blása málið upp þrátt fyrir að þeir hafi sjálfir lagt drög að mun verri samningi í tíð Geirs-stjórnarinnar og þrátt fyrir að þeir streitist við að halda öllum dyrum opnum svo þeir geti fyrirhafnarlítið stokkið inn í stjórnarsamstarf ef tækist nú að sprengja upp núverandi stjórn.
Sigurður Karlsson 1945-2009
19.9.2009 | 12:40
Pláss eiga sér svipi í landi sínu, götum og fjallasýn. En ekki síður í rismiklum karakterum. Nú í þessum skrifuðu orðum er til moldar borinn hér á Selfossi einn af okkar dýrmætustu mönnum, Sigurður Karlsson verktaki, liðlega sextugur.
Siggi Kalla var ljósgeisli í Flóamennskunni, skjól fjölmörgum og mikill hamingjuhrólfur í sínu lífi. Honum tókst enda að geisla þeirri hamingju út til sinna samferðamanna. Stór í andanum, gjöfull og höfðingi í lund.
Bærinn er fátækari að slíkum manni gengnum en líka ríkari að hafa átt.
Ingunni, afkomendum og öðrum ástvinum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur.
(Myndin er af vef Árborgar af þeim Sigga og Einari Njálssyni fv. bæjarstjóra, tekin 2006)Hrappur að velli lagður
16.9.2009 | 09:37
Skiptastjórar Baugs og 365 eru nú um það bil að rifta samningum sem Jón Ásgeir gerði við sjálfan sig rétt fyrir gjaldþrot þessara félaga þar sem hann tók undan þeim báðum mjólkurkýrnar. Þó fyrr hefði verið.
Raunar held ég að Jón Ásgeir hafi aldrei látið sig dreyma um að hann kæmist upp með þetta heldur sé í báðum tilvikum um að ræða tilraun til að tutla út úr þessum stórfyrirtækjum með sætt er. Það er enn langt í að við fáum að vita hversu mikið hefur verið tekið út úr þessum tveimur fyrirtækjum til einkaneyslu og aflandsfélaga frá því hrunið varð.
Nú er þessi hrunadans á enda og Jón segist eiga fyrir díet-kóki. Þetta lífhræðslulega smekkleysi að drekka ekki almennilegt kók kemur mér einhvernveginn ekki á óvart.Í faraldri heimskunnar...
15.9.2009 | 11:45
Það er utan þess sem ég almennilega nenni að elta ólar við umræðuna sem verið hefur undanfarið um tóbaksfaraldur þjóðarinnar enda er nær í þessum efnum að tala um faraldur heimsku og sefjunar.
Staðreyndin er að tóbak er eitt af meinlausustu nautnalyfjum mannkyns og fráleitt eins mikill skaðvaldur í samfélaginu eins og til dæmis majones og áfengi. Áfengið eitt og sér útheimtir margfalt meiri löggæslu, stærri fangelsi og fleiri sjúkrastofnanir en væru í áfengislausu landi. Ekki að ég vilji banna áfengi og þaðan af síður majones enda trúi ég lítið á bönn. Við höfum þegar gengið allt of langt með því að banna fólki að leyfa tóbaksnotkun á veitingastöðum.
Lífið hefur þann einan tilgang að njóta þess og þeir sem ekki skilja lífsnautnina eru og verða eins og segir í alþekktri stöku eftir Martein Lúter siðbótarmann, andstyggð góðra manna. Hvert nýtt líf sem kviknar felur í sér dauða og það er hin eðlilega hringrás. Hvort sá dauði er tímabær eða ótímabær þegar hann mætir er eins og hver annar útúrsnúningur. Dauðinn bara er.
Að við sem reykjum kostum samfélagið svo mikið er byggt á afar hæpnum grunni. Ef það er rétt að við deyjum ungir þá spörum við heilbrigðiskerfinu einmitt milljónir. Það gleymist algerlega í útreikningum að hinir þeir deyja víst líka og þannig eru nú dánir í landinu allir landnámsmennirnir og er þó næsta öruggt að enginn þeirra reykti.
Stóri kosturinn við tóbak sem nautnalyf er að öfugt við áfengi, amfetamín og hass sturlar það neytendur frekar lítið. Það er aftur á móti bæði ávanabindandi og óhollt en þeir sem trúa því að heimur án lasta sé virkilega eftirsóknarverður hafa illilega misskilið lífið og mannskepnuna.
Reyndar er helsta ástæðan fyrir því hvað hart er sótt að reykingafólki meðan t.d. áfengisneysla er látin í friði og engum dettur í hug að banna franskar kartöflur er að við tóbaksmenn erum að lenda í afgerandi minnihluta. En þessar árásir á okkur lýsa óneitanlega lágkúrulegri skrílmennsku.
Eins og ég sagði ætlaði ég alls ekki að skrifa tóbaksvarnapistla (sannar tóbaksvarnir eru auðvitað varnir okkar sem reykjum) núna en meðfylgjandi mynd sem vinur minn Ólafur Örn Haraldsson sendi mér í morgun og er tekin á liðnu sumri inni í Þverbrekknamúla kveikti í mér. Á henni sést beinlínis hvað það getur verið gaman að reykja.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
ðe big red bastard - im memorian -
14.9.2009 | 16:56
Lengi og raunar mjög lengi getur vont versnað. Fyrir ári síðan fóru nokkrir sparisjóðir vestanhafs á hausinn og í framhaldi af því var lokað fyrir nokkra glæpabanka á Íslandi sem enginn þurfti að býsnast yfir.
Nú réttu ári eftir þennan atburð verða enn verri tíðindi og alvarlegri því Stóri Rauður er dauðvona. Eftir mat sérfræðinga er það samdóma álit að þessi trausta og hrausta skepna sé nú komin með þau innanmein að enginn mannlegur máttur fái þar rönd við reist.
Stóri Rauður sem er hálfþrítugur að aldri hefur marga fjöruna lapið, ausuna étið, brekkuna dregið og fjallveginn að velli lagt á langri og viðburðaríkri ævi, hýst jafnt höfðingja sem portkonur, verið vettvangur heimspekilegra samræðna og drykkjutúra og yfirleitt átt ævi bæði mikla og stóra.
Hann var skapmikill, dyntóttur eins og títt er um kana, dekurrófa hin mesta og ekki nema í meðallagi félagslyndur. En vinur vina sinna og gat komið á óvart með óvæntum rykkjum. Í yfirferð var hann sem sambland af þýskri herfreigátu eða norðlenskri prestmaðdömu. Riðaði á malbiki en gat verið allra fastastur fyrir í vondu og festist aldrei svo séð væri.
Við Rauður minn vorum lengi jafnaldrar. Kom þar mest til að fram eftir vist sinni hér á Sólbakka sýndi Rauður þann sprækleik að ætla mætti að hann yrði á dögum lengur en yngstu menn sem þá lifðu og mátti á stundum ætla að skepna þessi hefði mannsvit. Síðustu tvö ár hafa aftur á móti verið kvellisöm með drunti og oftlega að hlutar lágu eftir í hlaði þá farið var af bæ og höfðu þá oxast af undirvagni ofan í malarhlaðið.
Rauður var mikil áhugaskepna um landgræðslu og vann ötullega að landbótum. Hann stóð lengstum á gróðurleysu en hafði farið langt með að rækta upp þann skika á langri ævi svo þar má nú heita beit fyrir hálft geitfé dagpart og mest gómsætur arfi.
Stóri Rauður verður haugsettur á Sólbakka. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.