Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Veljum nýja fulltrúa með hlutkesti

Það er ekki auðvelt að taka ákvörðun um að slá Stjórnlagaþingið af. Það er ennþá erfiðara að verja nýjar kosningar sem þar sem kosningaþátttaka gæti jafnvel farið niður fyrir þriðjung. Og kostnaður væri eins og niðurskurður nokkurra spítala.

Eðlilegast við þessar aðstæður væri að velja 25 fulltrúa með slembiúrtaki úr þjóðskrá og greiða svo þeim sem voru kosnir eins eða tveggja mánaða laun í sárabætur. Ef menn vilja er líka mögulegt að hafa aðeins frambjóðendurna til fyrra þings í framboði.


Heimsfrægur ferðalangur

Austurlandaegill er lagstur í flakk enn einn ganginn nú á reiðhjóli um Vestur Afríku. Eftir að hafa eytt jólunum fjarri foreldrunum á Sólbakka flaug hann frá kærustunni í Guðs eigin landi alla leið þvers og kruss um heiminn en endaði í Dakar í Senegal. 011.jpg

Þaðan ætlar hann að hjóla í gegnum Gíneurnar báðar og niður til Sierra Leóne og verður kominn til Free Town fyrir fardaga. Ég held að þaðan fari hann til Burkína Fasó en er ekki viss og áreiðanlega ekki hann sjálfur. 

En allavega, hann er farinn að blogga og segir meðal annars frá frægð sinni sem ljósmyndara en myndir hans hafa nú sést bæði í Kína og National Geograpich.

Færslan þar sem Egill segir frá þesu heitir almennt mont. Nú hefi ég af hógværð Flóamannsins montast svolítið yfir þessu monti sonarins.

 

 


Áskrift að blaði sem á það skilið

Það er heldur fátt við að vera í veikindum en þá kem ég því loks í verk að kaupa áskrift að DV.

Ég hef á liðnum árum ekki verið nein loftunga þess blaðs - en undanfarið ár eða svo hef ég oftar en einu sinni staðið mig að því að vilja taka hatt minn ofan fyrir þessu blaði. (Þá er vont að eiga ekki hatt.)

Þetta á við í dag og marga aðra daga þó auðvitað beri þar líka á stundum á miður vönduðum fréttaskrifum. 

Sá svipur mannorðsmeiðinga sem einkenndi blaðið fyrir nokkrum árum er aftur á móti mikið minna áberandi og DV sýnir okkur nú góða takta í baráttunni sem er við spillingu, sérgæsku og vitleysu. Þar þurfa margir að koma að.


Með nórunni í bælinu á nýárinu

Ekki byrjaði vinnuvikan glæsilega því þegar ég var rétt að renna mér á bílpútunni minni upp úr draganum sem myndast þar sem vegurinn yfirgefur gömlu Geithálsskvompuna, eiginlega þar í fyrsta brekkustúfnum sem er þó eiginlega ekki brekka heldur meira eins og örlítil hækkun og vegurinn sveigir til suðurs nema maður fari inn í Mosfellssveit beint sem er þá til norðurs en það var ég ekki að gera heldur bara að fara í vinnuna niður á mölinni við Hörpuna og þá heltist yfir mig slík vanlíðan að helst datt yfir mig að hugsa um sósur eða farsbúðinga en staðreyndin var að allt kom þetta til af ógleði samfara velgjulegum magakitlingi sem er eiginlega ekki prenthæfur og kominn í ráðuneytið var ég byrjaður með slagveður og haskaði mér strax heim aftur eftir að hafa neitað mér um þann munað ársins að kyssa ráðuneytisstelpurnar gleðilegt ár því það eru nú takmörk fyrir því hvað margir geta verið slagveðri í einu í einu ráðuneyti og hér hef ég svo legið og sofið þegar ég hef ekki þurft að sinna líkamsþurft minni og vist þessi öll eitthvað svo óskemmtileg að það er alls ekki hægt að ætlast til að nokkur maður lesi þetta blogg.

Í dag fékk ég svo sjúkdómsgreiningu en pest þessi sem er yfirleitt stutt (7-9-13) ku heita Nóra sem er kvenkenning enda pestir kvenkyns en dregur vitaskuld nafn sitt af þingeyskum manni sem heitir Arnór sem fyrstur fékk þessa aðkenningu, sumir segja eftir ferðalag í Þistilfjörðinn en aðrir halda að hann hafi þvælt sér til Brussel þar sem allir eða flestir eða að minnsta kosti sumir eru með pest og jafnvel þessa pest og er mikil ábyrgð þeirra manna sem bera jafn kvalafullan rumb úr ókunnum sóknum...


Að vakna hjá múvístar og vera það samt sjálfur

Í morgun vaknaði ég hjá kvikmyndaleikkonu sem er auðvitað ekkert merkilegt því eins og allir vita getur allt gerst á nýársnótt þegar jafnvel nautpeningur mælir fram Hávamál og byssuhvellir kveða við í friðsælum bæjum en álfar aka á trailerum um þjóðvegina og hafa tólgarskildi til viðbits.11412-1.jpg

En svo ber við um þessar mundir (alveg sama hvort pláss verður á gistihúsinu) að tónskáldið á Sólbakka verður stórleikari í kvikmynd sem frumsýnd er í sjónvarpinu á morgun og segir frá Húsinu á Eyrarbakka sem fegurst er húsa í Flóanum og merkast. Auk þess að vera þar í gervi Guðmundu Nielsen semur Elín tónlistina við þessa fallegu mynd sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara og enda ekkert betra að gera á jórturdegi jólahátíðar. 

En ég var svosem ekki einn um þessa upplifun á suddalegum nýársmorgni því sama sagan var af konunni sem vaknaði við hliðina á manni sem hreinlega brilleraði í áramótaskaupi í gærkvöldi og ég er enn að velta því fyrir mér hvernig við Jón Bjarnason náðumst þarna á mynd því ekki dettur mér í hug að halda nokkur hafi getað hermt atvik og takta svo nákvæmlega eftir.


ESB gamlársspuni Fréttablaðsins

Fréttablaðið birtir í dag gamlársdag frétt um það að nú hafi ráðherrar VG samþykkt svikaleið að umsóknarstyrkjum ESB. 

Eitthvað hefur fréttamönnum skjöplast á þessum síðasta degi ársins. Hafi hjáleiðir sem þessar að ESB umsóknapeningum verið ræddar í ríkisstjórn þá hafa þær samt ekki verið samþykktar. Það er langur vegur þarna á milli þó að stundum sé eins og skilningur á þessu tvennu sé á reiki. Þannig getur ríkisstjórnin rætt ýmislegt sem ýmist ríkisstjórn eða Alþingi eiga eftir að samþykkja en meðan það hefur ekki verið gert þá hefur einfaldlega ekkert gerst.

Þingsályktunartillaga Alþingis um ESB umsóknina gerir ekki ráð fyrir beinum styrkjum eða aðlögun að ESB og það sama hefur verið ítrekað í ályktun VG í haust. Það getur vissulega verið gaman fyrir spunameistara Fréttablaðsins að vera fluga á vegg í ríkisstjórnarherberginu en illt ef óskhyggjan bjagar aftur og aftur fyrir sömu flugu það sem hún þar heyrir.


Gleðileg jól

Úti er snjókoma en samt sést í Ingólfsfjall og þar uppi liggur Ingólfur með gulli sínu og heldur jól með hundi sínum en hér á Sólbakka er verið að kokka finngállkn úr Mosfellssveitinni sem fannst dautt, hauslítið og frosið á förnum vegi og er nú komið með berjamauk og brauðmylsnu í magann sem fuglum þessum þykir gómsæti en í útvarpinu er verið að lesa fréttir um peninga sem enginn vill eiga nema þeir útgerðarmenn sem mesta peninga eiga og nú kemur Elín úr kaupfélaginu og hefur vonandi keypt handa mér tóbak í kaupfélaginu og þá er allt gott...

Semsagt, gleðileg jól.


Vitnað í mömmu í Smuguviðtali

tn_laufabr.jpgÉg hafði orð á því í viðtali við Smuguna að í skáldskap þætti mér eðlilegast að klæða skynsemina og vitið í mannheimum í búning gamallrar konu og hefði þá stundum óður mína að fyrirmynd.

Þóra Kristín orðar þetta svolítið öðru vísi en kannski bara betur og allt í einu móðir mín komin í fyrirsögn í Smuguviðtali sem ég er bara ánægur með. Þar er m.a. sagt er frá því að útrásarriddarinn Sigurður fótur er kominn í menningarlega útrás.

Myndin er frá laufabrauðsbakstri í eldhúsinu hjá mér um síðustu helgi þar sem sést í smáfólk Brekkugerðisættar og baksvip ættmæðranna mömmu og tengdamömmu.


Sigurði fót vel tekið

sigur_ar_saga_fots_kapa.jpgSigurður fótur hefur hlotið afbragðsgóðar viðtökur gagnrýnenda og kaupenda. Komst einu sinni á metsölulista Eymundsson og enn er vika eftir! Að minnsta kosti þrír bókadómar hafa birst um bókina og hennar getið vinsamlega í framhjáhlaupi víðar. 

Helgi Bjarnason skrifar m.a. í dómi sínum:

Höfundurinn er fundvís á ýmis skondin atvik úr lífi venjulegs fólks sem flestir ættu að kannast við og jafnvel talið sína persónulegu upplifun. Þá er sagan hlaðin skemmtilegum lýsingum á atburðum og samskiptum fólks og tilsvörum.

Sjá nánar. 

Jón Daníelsson skrifar í Sunnlenska:

Svona grátlega – eða hlálega – vitlaus er íslenskur raunveruleiki. Í þessari nýju bók sinni setur Bjarni Harðarson grátlegan raunveruleika síðasta áratugar í búning fáránleikafarsa, sem stundum verður svo hlálegur, að lesandinn gæti haldið að hann væri staddur í miðri bók eftir þann ágæta meistara skopsögunnar P. G. Wodehouse.

Sjá nánar.

Loks skrifar Jón Þ. Þór ágætan dóm þó hann hafi verið svoldið spar á stjörnur sem er eiginlega svoldið sætt, allavega fallegra en þegar ritdómar standa varla undir þeim stjörnum sem á þeim hvíla. Jón Þ. segir m.a.:

Frásagnarmáti höfundar er lipur og myndrænn, á köflum bráðfyndinn og margar persónulýsingar einkar skemmtilegar. Þó er þetta engin skemmtisaga, miklu frekar hárbeitt háðsádeila á íslenskt samfélag undanfarna tvo áratugi eða svo. 


Vestfirskt upplestrarkvöld með meiru

Árviss úgáfuhátíð Vestfirska forlagsins sunnanlands  verður í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi fimmtudaginn 16. desember og hefst kl. 20:00. 

Þar verður lesið úr nokkrum af hinum fjöbreyttu útgáfubókum Vestfirska forlagsins fyrir þessi jól.  Hafliði Magnússon les úr 3ja bindi nýr bókaflokks Frá Bjargtöngum að Djúpi, Jóhann Diego Arnórsson les úr bók sinni Undir miðnætursól, sem fjallar um amerísku lúðuveiðimennina við Vestfirði á tímabilinu 1884-1897.  Finnbogi Hermannsson les úr bók sinni, Vestfirskar konur í blíðu og stríðu. Jón Hjartarson á Selfossi les úr bók sinni Fyrir miðjum firði. Myndbrot frá liðinni öld. Emil Hjörvar Petersen kynnir einstaka ævintýrabók sína, Sögu eftirlifenda en höfundur á ættir að rekja á Ísafjörð. Loks les Sveinn Runólfsson í Gunnarsholti úr bók sinni um refaskyttuna hugljúfu. (Þórunn Erlu-Valdimarsdóttitr sem ætlaði að vera með okkur forfallast.)

Lýður Árnason nýkjörinn þingmaður á Stjórnlagaþingi sér um tónlistarflutning ásamt félögum sínum og Ólafur Sæmundsson frá Patreksfirði flytur gamanmál.  Allir eru velkomnir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband