Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Við brutum engar reglur!

Lífeyrissjóðirnir hafa birt skýrslu um lærdóm sinn af hruninu. Spegill RÚV var í dag með viðtal við Stefán Halldórsson talsmann nefndarinnar sem samdi skýrslu þessa. Hann lagði áherslu á að lífeyrissjóðirnir beri ekki ábyrgð á hruninu, hafi engar reglur brotið og séu yfirhöfuð saklausir. En þeir ætla að laga nokkur smáatriði, aðallega láta meira til sín taka við stjórnun þeirra verkefna og fyrirtækja sem þeir leggja fé í.

Auðvitað er þetta yfirklór. Lífeyrissjóðirnir voru á haugafylleríi með mestu og verstu gangsterum þessa lands og fíluðu það í ræmur. Eru þetta eru lærdómarnir, geta sagt við brutum engar reglur!? Verstu afglöpin í fylleríi liðinna ára eru ekki þar sem reglur voru brotnar heldur þar sem dómgreindinni var varpað fyrir róða. Reglur geta aldrei komið í veg fyrir fyllerí og heimsku eins og þá sem hér tröllreið húsum.


Velheppnaður fréttavefur og glæsileg heilsugæsla

Tvær mikilvægar stofnanir í samfélaginu okkar hér á Suðurlandi opnuðu í dag. Annarsvegar var hleypt af stokkunum mjög vel heppnuðum fréttavef á slóðinni sunnlenska.is og hinsvegar opnaði heilsugæslan í sjúkrahúsinu hér á Selfossi í nýju húsnæði. frettavefur

Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um það hversu dýrmæt góð heilsugæsla er fyrir samfélagið og aðstaðan sem nú er tekin í notkun er bylting frá því sem var. Verkefnið er mér ekki alveg framandlegt því þetta var baráttumál meðan ég sat í fjárlaganefnd og náðist þar í gegn á síðustu metrunum fyrir hrun.

Fréttavefurinn er líka verkefni sem ég þekki en fyrirtækið er í eigu og stjórn Guðmundar Karls Sigurdórssonar sem hóf blaðamennsku hjá mér þegar hann var enn á barnsaldri og hefur aldrei orðið samur! Guðmundur er afar vandaður í öllum sínum verkum og nýi vefurinn ber þess merki að þar hefur verið nostrað við. Hér til hliðar má sjá vefinn og splunkunýja frétt um opnun heilsugæslu H.Su. (Þar var Álfheiður en ekki veit ég hvort Steingrímur Ari mætti!)

Það hafa nokkrum sinnum áður verið gerðar tilraunir til að reka sunnlenskan fréttavef en engir þeirra orðið langlífir. Þessi vefur sem nú er farinn í loftið tekur gömlu tilraununum fram og er fyrir margra hluta sakir lífvænlegri.  Fréttaþjónusta jafnt á neti sem í blöðum er mikilvæg fyrir héraðið og ástæða til að óska okkur öllum til hamingju með daginn.


Baráttan gegn fátæktinni

Baráttan gegn fátæktinni en brýnni nú en nokkru sinni áður. Í stað hennar hafa þrýstihópar og stjórnmálamenn staðið fyrir skaki um að ríkið gefi öllum pening með flötum niðurfærslum skulda. Þá yrði ríkum gefið mest og þeir fátækustu jafn fátækir og áður.

Harpa Njáls kommenterar á velferðarkerfið á Íslandi og hefur mikið til síns máls. Það er ólíðandi að stór hópur fólks eigi varla til hnífs og skeiðar og þurfi að standa í biðröðum hjálparsamtaka eftir matargjöfum.

Ein leiðin út úr þessum vanda er að efla stórlega velferðarkerfið en eitt og sér dugar það ekki. Það ekki síður mikilvægt að hækka lægstu laun sem eru í dag 150 þúsund krónur. Það segir sig sjálft að velferðarkerfið hlýtur alltaf að yfirbjóða slíka launataxta og þá er allt kerfið lent í alvarlegum vítahring. Þessi vítahringur og vaxandi fjöldi fátækra í landinu er stærsta pólitíska verkefni okkar daga. Þar þurfa ríki, þing, og sveitarfélög að taka höndum saman.


Auðvelt að villast

Ég er ekki þaulkunnugur á því svæði þar sem fólkið varð úti innan við Einhyrningsháls en hef komið þar nokkrum sinnum. Og með öllum sínum krókóttu vegum, fjallatindum og gríðarlegri fjölbreytni í landslagi  hefur þetta svæði virkað á mig sem völundarhús. Það er því ekki að undra að fólk geti villst á þessu svæði en hörmulegt er það og minnir okkur enn og aftur á hversu ógnvænlegt íslenskt fjalllendi er í sínum vetrarham.

Vér mótmælum öll, Kristján Möller!

Ráðherrrar og ráðuneytismenn fá oft ótrúlegar hugmyndir, misjafnlega gáfulegar. Ég hefi enga trú á að það verði nokkru sinni þingmeirihluti fyrir vegtolli á Hellisheiði líkum þeim sem er í Hvalfjarðargöngum.

Ef þetta á að vera svokallað skuggagjald má okkur svosem vera sama. Þá eru bílarnir taldir sem framhjá fara og ríkið reiknar af hverjum bíl gjald sem ríkið greiðir ríkinu og nær þar með að plata sjálft sig með svipuðum hætti og gera þau sveitarfélög sem kosta nýjar fasteignir með fjármögnunarleigu. Þetta getur gagnast mjög vel stjórnherrum sem vilja eyða meiru en þeir mega en er aldrei farsælt.

Vegtolli munum við öll mótmæla, þvert á flokka.


mbl.is Alfarið á móti vegtollum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar sólin dansaði og ég vaknaði í timburmönnum

Sólin dansaði á himninum í morgunsárið eins og hún gerir alltaf þegar páska ber upp á réttum degi eins og nánar má lesa um hér. En sjálfur svaf ég þau firn af mér eins og hina 49 páskamorgnana. Vaknaði ekki fyrr en á tíunda tímanum og þá með skerandi timburmannahöfuðverk.

Við Egill vorum við gólfmálningu í bókakaffinu í gærkvöldi og gengum þaðan út úr terpentínusvækjunni hálfvegis rykaðir. En óskaplega montnir því þetta er okkur mikið afrek. Hér á bæ eru allir mjög samtaka í leti sinni til verklegra framkvæmda. Það var því stór sigur þegar fjölskyldunni var allri smalað á skírdag til málningarvinnu sem ég er að vona að hafi lokið í gærkvöldi.

Málshátturinn sem ég fékk í morgun innan úr rúsínu:

Ekki er gott að selja kaffi í málningarsvækju.

Aftan á málsháttamiðanum voru þau heilræði að hafa búðina lokaða fram á þriðjudag en þá verður nú dansað og þá verður lesið á fagurbrúnu trégólfi.


Einhverntíma hefði verið rekið tafarlaust

Nú er moldviðri umhverfis Álfheiði og víst getur hún verið hvöss.

En er þetta ekki allt partur af pólitík.

Ráðherra setur vinstri-reglugerð um aukna samhjálp til handa þeim sem þurfa tannréttingar.

Ríkisforstjóri sem áður gengdi trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn þybbast við að fara eftir henni af því að kannski sé hún ekki nógu góð.

Kannski megum við bara þakka fyrir að Álfheiður ákveði ekki einfaldlega að leggja stofnun Steingríms Ara niður...


Í íslensku fátæktarhverfi...

Fór á Kóngaveg í Háskólabíói í gær. Myndin er einkar vel leikin, persónusköpun skemmtileg og um margt heillandi. Söguþráðurinn - semsagt handritið - er samt of laust í reipum og það eiginlega vantar fléttuna í söguna, plottið eða festuna í frásögnina.20091221155549984.jpg

Þó að margir hér búi við kröpp kjör var í myndinni dregin upp ýkt mynd af íslenskum lúserum sem búa í hjólahýsaslömmi. Hugtakið "white trash" var hér heimfært á íslenskan veruleika. Fyrir öllum sem hafa kynnst  fáránleika fátæktarinnar í gettóum Vesturlanda og ríkjum þriðja heimsins þá var myndin raunsönn lýsing á því hvernig Ísland, eða hluti þess, gæti orðið ef fátækt eykst hér að marki.

Fyrir þá sem heillast af þessari tegund mannlífsflórunnar er upplagt að berjast fyrir því að Ísland gangi í ESB, þá verður nóg af ólæknandi og viðvarandi atvinnuleysi hér með tilheyrandi efnalegri og andlegri fátækt.

Önnur leið að sama marki er að fylkja sér undir frjálshyggjufánana og berjast með íslenskum belgingi fyrir því að Ísland verði ríkasta land í heimi! Í þeirri vegferð vantaði síðast ekki nema herslumuninn til að koma landinu almennilega fram af bjargbrúninni. 


Við Þórðarfell á Fimmvörðuhálsi

fimmvorduhals001.jpgKomst í vikunni á Fimmvörðuháls sem var bæði tilkomumikið og skemmtilegt. Þórðarfellið fagra býr  yfir krafti og frumleika líkt og nafngjafi þess Þórður í Skógum. Þarna uppfrá sló ég tölu á yfir 100 farartæki og úr einu þeirra komu frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins hér í bæ með Eyþór Arnalds í broddi fylkingar.

Það var vitaskuld við hæfi að tekin væri mynd af okkur keppinautum og nágrönnum saman.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband